BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T132036
CREATED:20211014T125603Z
LAST-MODIFIED:20220916T111613Z
UID:19671-1634342400-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - Lucky 3: PUTI
DESCRIPTION:Verkið PUTI er félagsleg kóreógrafía sem endurspeglar ofurraunveruleika kynþáttahlutverka og valdastigveldi. Verkið vitnar í átta klukkutíma vinnudag. \nÞótt frásagnirnar séu sundurleitar\, er kjarninn hinn sami. Við viljum varpa ljósi á sundraðan hóp\, fólk sem er rótlaust\, er í stöðugri endurnýjun og berst við að bjarga arfleifð sinni í ljósi menningarlegs tjóns. Með blygðunarlausum heiðarleika og varnarleysi\, tekur hópurinn á málefnum sem þessum. Í tilfelli PUTI; upplifun filippseyskra innflytjenda á Íslandi\, tilfærslu og kynþáttafordóma. \nOpnunargjörningur \nLucky 3 (st. 2019) er listahópur stofnaður af Darren Mark\, Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo; íslenskir listamenn af filippeyskum uppruna. \nDarren Mark (f. 1993) útskrifaðist með BA próf í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2017. Hann flutti til Íslands frá Filippseyjum aðeins átta ára gamall ásamt fjölskyldu sinni. Hann vinnur aðallega við fatahönnun\, hann fæst við að taka í sundur og setja flíkur saman til þess að endurnýta og betrumbæta þær og búa til nýjar flíkur. Darren hefur áður sýnt á Dutch Design Week í Eindhoven\, Designer’s Nest – Copenhagen Fashion Week  og á Hönnunarmars í Reykjavík. \nDýrfinna Benita Basalan (f. 1992) vinnur sem myndlistarmaður en er líka þekkt sem tónlistarkonan Countess Malaise. Dýrfinna er fædd og uppalin á Íslandi og á íslenskan föður. Hún útskrifaðist með BA í myndlist og hönnun frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 2018. Dýrfinna vinnur út frá mörgum miðlum og takast verk hennar oft á um sjálfsmynd\, samfélag og einsemd. Dýrfinna er partur af listamannahópnum The Blue Collective\, hópur alþjóðlegra listamanna sem eru hinsegin og af jaðarsettum kynþáttahópum. Með þessum listahópi hefur Dýrfinna m.a. sett upp sýningar í Juliette Jongma gallerí\, Amsterdam og í Decoratillier í Brussels í samstarfi við Living Leaving Dacota. \nMelanie Ubaldo (f. 1992) útskrifaðist með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Í verkum Melanie er myndefni og texti órjúfanleg heild. \nSjá má sundurleit málverk sem innihalda texta sem minnir helst á veggjakrot. Textinn vísar í hennar eigin reynslu af fordómafullri hegðun annarra í hennar garð. Verkin afhjúpa valdið sem felst í fordómum og eyðandi áhrif þeirra á þolendur. Melanie hefur áður sýnt í Kling og Bang og hefur tekið þátt í öðrum hópsýningum hérlendis og erlendis til að mynda í Hafnarborg\, Gerðarsafni\, hátíðinni Cycle – Music and Art festival og nýlega í Pavilion Nordico í Argentínu. Jafnframt er verk hennar að finna í safneign Listasafns Reykjavíkur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-lucky-3-puti/
LOCATION:OPEN\, Grandagarður 27\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/R1-04310-0036-Cropped.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR