BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230211
DTEND;VALUE=DATE:20230312
DTSTAMP:20260530T095214
CREATED:20230209T102328Z
LAST-MODIFIED:20230209T102523Z
UID:29315-1676073600-1678579199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Daníel Magnússon:Konstrúktívur vandalismi
DESCRIPTION:Á sýningunni Konstrúktívur vandalismi eru tíu verk sem Daníel hefur unnið á undanförnum misserum. „Hringur og þvermál hans eru bundnir innbyrðis hlutfalli sem er torrætt. Það þýðir að þessi algengustu form sköpunarinnar geta ekki átt samskipti sem vísa í þeirra eigin tilvist. Þannig getur hringurinn ekki lýst þvermáli sínu og þvermálið þekkir ekki hringinn. Sýningin Konstrúktívur vandalismi er skemmdarverk á fullkominni kennisetningu þeirra Galileos Galilei og Giordanos Bruno og upphafning jarðmiðjukenningar Ptólemæusar. Sýningin er jafn rökrétt tilraun mín til að lýsa samkomulagi um heimsmyndina eins og hringsins sem lýsir þvermáli sínu\,“ segir Daníel Magnússon í sýningartexta. \nVerkin á sýningunni eru flest unnin með blýanti og penna á pappír. Þau eru flestöll hugsuð sem kortagerð fyrir hinn miðjusetta heim Ptólemæusar. Tvenn verkanna eru frussprent á bómull og eru þau hugsuð sem undirspil við hin kortin til að gefa þessum heimi heildrænni grunn. \nDaníel Magnússon útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og vakti þá strax athygli fyrir áhugaverð verk þar sem íslensk menning var oftar en ekki til umfjöllunar. Hann er einkum þekktur fyrir skúlptúra og ljósmyndaverk en hefur jafnframt myndlistinni hannað og smíðað húsgögn og unnið leikmyndir fyrir leikhús og sýningar. Daníel á að baki annan tug einkasýninga ásamt fjölda samsýninga bæði innanlands og utan. Verk hans eru m.a. í eigu Listasafns Íslands\, Reykjavíkurborgar\, ýmissa ríkisstofnana\, og einkaaðila bæði hérlendis og erlendis.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/daniel-magnusson-konstruktivur-vandalismi/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/starchart-hverfisg-2023-bleksprautacopy_cr.202900.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211011
DTSTAMP:20260530T095214
CREATED:20210927T122250Z
LAST-MODIFIED:20211011T142350Z
UID:19387-1632528000-1633910399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Fullkomið Firðrúm
DESCRIPTION:ANNA HRUND MÁSDÓTTIR\, JÓHANNA ÁSGEIRSDÓTTIR & DANÍEL MAGNÚSSON \nVillurnar vinda upp á sig sjálfsprottnar úr tóminu. Skekkjan getur af sér bil á milli hins beina og hins bogna\, eins og mynstruð mygla eða algoriðmi sem gæti hringsólast út í óendanleikann\, babelturn tæknialdarinnar. Samkvæmt ófullkomnunarsetning Gödels getur kerfi ekki lýst sér sjálfu\, sagt þér hvort það haldi áfram eða hætti og þá hvenær. \nVið teygðum úr okkur og komum okkur fyrir í hnitakerfi og fórum að elta óræðar tilfinningar fyrir einhverskonar samhengi hlutanna og þess óhlutbundna. Rúm er teygjanlegt yfirborð sem gefur eftir eins og svampur eða sykurpúði\, en stundum brotnar það skyndilega eins og rúða. Handahófskennt en rökrétt. Hvers vegna leiðir svo margt óvænt af rökfræðinni? Sumt er hugsanlegt en ekki nauðsynlegt. Ekkert er sjálfsagt og dæmið gengur ekki alltaf upp. Ó\, en þegar það gengur upp! \nSýningin er afrakstur úr vinnustofu teymisins Slembilukka sem stóð yfir í Gryfjunni 23. ágúst – 3. október. \nUm sýnendur:  \nJóhanna Ásgeirsdóttir (f. 1993) vinnur innsetningar\, upplifanir og skúlptúra innblásna af raunvísindum og umhverfismálum. Hún lauk grunnnámi í myndlist frá New York University og meistaranámi í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í og sýningarstýrt myndlistarsýningum á Íslandi\, Berlín og New York. Hún starfar nú sem listrænn stjórnandi listahátíðarinnar List án landamæra. \nAnna Hrund Másdóttir (f.1981) vinnur tilraunakennt og óútreiknanalega með efnivið sinn. Hún lauk BS námi í stærðfræði við Háskóla Íslands árið 2006 og BA námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2010. Árið 2012 var hún nemi í listamannarekna skólanum The Mountain School of Arts í Los Angeles og útskrifaðist síðar með MFA gráðu við California Institute of the Arts. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum\, hérlendis og erlendis. \nDaníel Magnússon (f. 1958) útskrifaðist úr Myndlista – og handíðaskóla Íslands árið 1987 og vakti þá strax athygli fyrir áhugaverð verk þar sem íslensk menning var oftar en ekki til umfjöllunar. Hann er einkum þekktur fyrir skúlptúra og ljósmyndaverk. Verk hans hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Auk þess að starfa sem myndlistarmaður kennir Daníel stærðfræði á framhaldsskólastigi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fullkomid-firdrum/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/complete-spaces.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR