BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231028
DTEND;VALUE=DATE:20240217
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231025T143301Z
LAST-MODIFIED:20231102T134104Z
UID:33216-1698451200-1708127999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ásta Fanney Sigurðardóttir: Næturútvarp
DESCRIPTION:Laugardaginn næstkomandi klukkan fjögur opnar sýningin Næturútvarp á Svavarssafni á Höfn í Hornafirði. Sýningin er innblásin af verkinu Næturútvarp á Öræfajökli\, geómetrísku abstraktmálverki sem Svavar Guðnason málaði 1954-1955 og tileinkaði vini sínum Jóni Leifs. Þessa sögu hefur myndlistakonan og skáldið Ásta Fanney Sigurðardóttir tekið og unnið upp úr sýningu sem fer með gesti inn í heim málverksins. Að sögn listamannsins er kveikja sýningarinnar lítill gylltur kassi í verki Svavars\, sem virkar eins og dyr inn í málverkið og þar með aðra veröld þar sem litir og form verksins lifna við. Á sýningunni eru tvö videoverk\, hljóðverk\, málverk\, ljósmynd og skúlptúrar. Ásta Fanney skar út nótnablöð með tónverkum Jóns Leifs eftir geometrískum formum úr verki Svavars\, úr þeim vann hún í samstarfi við sellóleikarann Gyðu Valtýsdóttur og píanóleikarann Áshildi Ákadóttur hljóðverk sem óma í rýminu. Litir og form úr málverki Svavars vakna til lífsins í einskonar abstrakt útvarpi þar sem skipt er um stöð aftur og aftur. Næturútvarpið sjóngerist að endingu í klassísku málverki á striga og þar með er hringnum lokað. Sýningin er mjúk hrynjandi með sterku hljómfalli draumkenndra andstæðna og nýrra tíma. \nSýningarstjóri: Margrét Áskelsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/asta-fanney-sigurdardottir-naeturutvarp/
LOCATION:Svavarssafn\, Hafnarbraut 27\, Höfn\, 780\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/IMG_8745.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231021
DTEND;VALUE=DATE:20231120
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231019T093351Z
LAST-MODIFIED:20231102T092140Z
UID:33071-1697846400-1700438399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eygló Harðardóttir: Þú átt leik
DESCRIPTION:Verk sýningarinnar eru máluð og unnin úr handgerðum pappír\, kopar\, ull og lituðu gleri. Þau eru unnin sem marglaga\, lifandi rannsókn – þar sem ferli og umbreyting hafa fengið að dvelja í og með efninu\, og þannig hleypt hvoru öðru af stað – í ferlinu\, sem má líkja við umbreytingarás. \nSamnefnt bókverk „Þú átt leik“ er til sýnis í Gunnfríðargryfju og má rekja upphaf þess til Varanasi þar sem Eygló sótti listamannadvöl árið 2019 –2020. Kjarni bókverksins eru lagskiptir indverskir pappírsstaflar\, bundnir saman\, unnir úr auðfengnum handunnum pappír\, mislitum þráðum og sögulegum litarefnum fengnum í Varanasi. Saman við indverskan efniviðinn hefur sandpappír\, flauelspappír\, olíu og þurrpastel litum verið bætt við eftir tveggja ára úrvinnslu í Reykjavík. „Þú átt leik“ er stefnumót tveggja gerólíkra staða í tveimur heimsálfum sem saman mynda margskipt og marglaga bókverk\, þar sem tími og efni eiga í samtali og umbreytingarferlið á leik.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eyglo-hardardottir-thu-att-leik/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/393721086_805632128141710_8137779350490413322_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231019
DTEND;VALUE=DATE:20231231
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231019T094528Z
LAST-MODIFIED:20231019T094528Z
UID:33083-1697673600-1703980799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gildi: 40 ár frá stofnun Hafnarborgar
DESCRIPTION:Hvert safn endurspeglar gildi þess sem safnar. Á þetta jafnt við um einkasafn eða opinbera stofnun með langa sögu. Safnið endurspeglar það sem skiptir hvern þann máli sem lagði grunn að því – af eigin áhuga og áræðni\, af innri þörf eða tilviljun. Þegar safn kemur í hlut samfélagsins má svo segja að það eignist eigið líf en það segir að sama skapi fjöldamargt um það samfélag sem það tilheyrir og vex í takt við. Um tíðaranda og breytilegan smekk fólks\, um efnisnotkun og áherslur\, um hugmyndir og hugsjónir. \nÁ sýningunni getur að líta valin verk\, sem safnið hefur eignast síðan 2008 – eða á undanförnum fimmtán árum – eftir Egil Sæbjörnsson\, Georg Guðna\, Guðnýju Rósu Ingimarsdóttur\, Harald Jónsson\, Hildigunni Birgisdóttur\, Ingólf Arnarsson\, Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur\, Philipp Valenta\, Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur og Unu Björgu Magnúsdóttur. Þá hafa sum verkanna ekki verið sýnd áður í safninu. \nSýningarstjóri er Hólmar Hólm.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gildi-40-ar-fra-stofnun-hafnarborgar/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/Hafnarborg-2023-GILDI-Ingunn-Fjola-Ingthorsdottir-slideshow-1400x462-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231015
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231013T124947Z
LAST-MODIFIED:20231013T124947Z
UID:33041-1697328000-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Get ekki séð — Frumspekivídd
DESCRIPTION:Gangið inn í frumspekivíddina\, heim þar sem línuleg og rökrétt sannindi eru dregin í efa. Leitin að nýjum formum og listræn landkönnun birtist í formi snúinnar rúmfræði\, flæktra hnatta og dáleiðandi spírala. Hér byrjum við að má út mörk ímyndunar og veruleika\, óvissu og vitneskju\, til að vefa saman viðtekinn skilning á nauðsyn og möguleikum. Hugurinn verður að að skipta um gír\, bæði á einstaklings- og samfélagsskala til þess að til verði pláss fyrir hið nýja – sem gæti allt eins verið löngu gleymdur sannleikur. \nSýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún hefst á þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar\, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra.Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar\, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. \nGet ekki séð er skipt í fjóra kafla sem veita innsýn í rýmin og andartökin sem mannlegt auga nemur yfirleitt ekki: allt frá hafsbotni og jarðlögunum að braki fortíðar og draumum um framtíðina. Sögurnar eru sagðar frá ýmsum sjónarhornum\, allt frá blendingsfuglum að bakteríum\, að sjávarlífverum\, ævafornu tré eða óþreytandi vindinum. Markmiðið er að velta upp ólíkum leiðum til að sjá og upplifa heiminn og fjarlægjast þannig þau sjónarhorn sem við eigum að venjast. Teygjanlegur tími leyfir okkur að ferðast langt aftur í goðsagnakennda fortíð eða ímynda okkur ókomna framtíð. \nSýnendur: Agnes Denes\, Daria Melnikova\, Elo-Reet Järv\, Gerður Helgadóttir\, Ólöf Nordal\, Zenta Logina \nSýningarstjórar: Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-get-ekki-sed-frumspekividd/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/387199785_703612855147917_6050111484520495337_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231014
DTEND;VALUE=DATE:20231203
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231019T094815Z
LAST-MODIFIED:20231019T094857Z
UID:33085-1697241600-1701561599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ian McKeever: Henge málverk
DESCRIPTION:Herbert Read described it as the moment of liberation. ‘Once it is accepted’\, he wrote\, ‘that the plastic imagination has at its command\, not the fixities of a perspectival point of view…but the free association of any visual elements (whether derived from nature or constructed apriori)\, then the way is open to an activity which has little correspondence with the plastic arts of the past.’ Writing in 1959\, Read defined the trajectory in modern painting which sprang from the experiments in ‘pure art’ conducted by Robert Delaunay\, Wassily Kandinsky and others at the end of the first decade in the twentieth century. Their innovations would lead to the flowering of abstract painting\, a means of expression unburdened by ‘an irrelevant representational function’. Freed from imitating the observed world\, henceforward artists could construct non-representational structures that would\, it was assumed\, ‘appeal directly to human sensibility1. As Read’s words suggest\, such ideas had a heady significance but also posed profound questions\, not least concerning the capacity of abstract painting to transcend its own formal means. Can non-figurative art – a visual language of marks\, shapes and colours – truly serve as a vehicle for meaning\, and\, if so\, what exactly is being conveyed? Over a hundred years later\, such questions still provoke debate. In that context\, the work of Ian McKeever constitutes a compelling affirmation of abstract painting’s continuing relevance in the twenty-first century.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ian-mckeever-henge-malverk/
LOCATION:BERG Contemporary\, Klapparstígur 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/MASKEDHengeXXVII2021-2022Acrylicandoiloncan.145251.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231014
DTEND;VALUE=DATE:20231105
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231019T093010Z
LAST-MODIFIED:20231019T093010Z
UID:33069-1697241600-1699142399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Erla Þórarinsdóttir: 107.000 km/klst
DESCRIPTION:\,\,Við eigum það sameiginlegt að vera jarðarbúar á fleygiferð í geimi sem er í stöðugri útþenslu. Við vitum hvar við erum stödd á jörðinni en aðrar staðsetningar þekkjum við lítið. Við þykjumst vita hver við erum en það er líka óljóst. Við reynum að vera góðar manneskjur\, viðbragðsgóð og lifandi í líðandi ástandi.”\nBrot úr texta Erlu Þórarinsdóttur um sýninguna 107.000 km/klst
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/erla-thorarinsdottir-107-000-km-klst/
LOCATION:Portfolio Gallery\, Hverfisgata 71\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/387777228_630867299260499_7338142987081525008_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231014
DTEND;VALUE=DATE:20240226
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231019T092524Z
LAST-MODIFIED:20231019T092524Z
UID:33063-1697241600-1708905599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Egill Sæbjörnsson og óendanlegir vinir alheimsins
DESCRIPTION:Í sköpun Egils Sæbjörnssonar er leikgleðin alltumlykjandi. Fjölbreytileiki efnisheimsins og alheimsvitundarinnar spretta upp líkt og gorkúlur í formi tónlistar\, innsetninga\, lifandi skúlptúra og ljóslifandi ímyndaðra ferðafélaga. Á sýningunni býður Egill óendalegum fjölda vina velkomna í samverustund í leikherbergi listarinnar. \n 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/egill-saebjornsson-og-oendanlegir-vinir-alheimsins/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/Screenshot-2023-10-19-at-12.22.55.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231014
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231013T124656Z
LAST-MODIFIED:20231013T124656Z
UID:33039-1697241600-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Get ekki séð — Vatn
DESCRIPTION:Sýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún fæddist út frá þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar\, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra. Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar\, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. \nGet ekki séð er skipt í fjóra kafla sem veita innsýn í rýmin og andartökin sem mannlegt auga nemur yfirleitt ekki: allt frá hafsbotni og jarðlögunum að braki fortíðar og draumum um framtíðina. Sögurnar eru sagðar frá ýmsum sjónarhornum\, allt frá blendingsfuglum að bakteríum\, að sjávarlífverum\, ævafornu tré eða óþreytandi vindinum. Markmiðið er að velta upp ólíkum leiðum til að sjá og upplifa heiminn og fjarlægjast þannig þau sjónarhorn sem við eigum að venjast. Teygjanlegur tími leyfir okkur að ferðast langt aftur í goðsagnakennda fortíð eða ímynda okkur ókomna framtíð. \nDjúpsævið umlykur eyjuna og vatnsósa mýrin umlykur sýningarstaðinn. Stórbrotnar öldurnar og endalaust hyldýpið kalla fram sýnir af goðsagnakenndum verum sem líða um í yfirgefnum innviðum\, afurð löngu gleymdra tíma. Vatnið nálgast ströndina\, með lög af tíma og rústir fortíðar í farteskinu. Kæfandi myrkrið á hafsbotni geymir ótalmörg leyndarmál og goðsögur greina frá sjávarferlíkjum skelfilegum ásýndum\, skyldu þau vakna af eilífum svefni. Á ferð um mýrlendið eru raddir sem aldrei hafa fengið að heyrast með í för. \nGjörningadagskráin sem er samhliða sýningunum er tækifæri til að sameinast á myrkasta tíma ársins til að deila orku og hugmyndum. Gjörningarnir flytja okkur oftar en ekki að jaðri umbreytinga\, að líkamlegum takmörkunum og færa huga okkar á ný mið. Í samfloti við sýningarnar skapar hátíðin í heild rými fyrir ímyndunarafl og táknræna hugsun og gefur okkur færi á að sjá lengra frá okkur. \nListamenn: \nAnna Niskanen (FI) \nGústav Geir Bollason (IS) \nEdith Karlson (EE) \nEmilija Škarnulytė (LT) \nKatja Novitskova (EE) \nGuðrún Vera Hjartardóttir (IS) \nSýningarstjórar:Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-get-ekki-sed-vatn/
LOCATION:The Nordic House\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/387204228_703604345148768_1686369761838269038_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231013
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231013T124022Z
LAST-MODIFIED:20231013T124022Z
UID:33033-1697155200-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Get ekki séð — Jarðvegur
DESCRIPTION:Sýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún hefst á þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar\, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra.Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar\, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. \nÞessi kafli varpar ljósi á það sem leynist undir fótum okkar. Jarðvegurinn er bullandi\, molnandi yfirborð þar sem vakandi auga getur uppgötvað fjölbreytt líf. Mannskepnan tekur sjaldnast eftir því hvernig lífið i&#769; jarðveginum fylgir sínum eigin lögmálum og hringrás. Jörðin hjá Kling & Bang er jafn eyðilögð og hún er blómstrandi\, hún er heimsendir og nýtt upphaf í senn. Manngerður garðurinn er hruninn og þráir að tortímast algjörlega. Nýtt líf er að vakna inni í fúnum viðarbol. Undarlegar verur skríða um rýmið og landslagið sem kemur síðar í ljós dáleiðir okkur með undurfögru útsýni. \nListamenn:\nBjarki Bragason (IS)\nAlma Heikkilä (FI)\nAntti Laitinen (FI)\nElo-Reet Järv (EE)\nGuðrún Nielsen (IS)\nGústav Geir Bollason (IS)\nJóhannes S. Kjarval\nKärt Ojavee\nNaufus Ramírez-Figueroa\nÓlöf Nordal (IS)\nPakui Hardware\nSigurður Einarsson (IS)\nÞorgerður Ólafsdóttir (IS) \nSýningarstjórar: Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-get-ekki-sed-jardvegur/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/Venue-photos_1640x2-1024x577-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231013
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20231013T123503Z
LAST-MODIFIED:20231013T123738Z
UID:33020-1697155200-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Get ekki séð — Neðanjarðar
DESCRIPTION:Sýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún hefst á þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar\, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra.Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar\, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. \n\nSýnendur: Aaloe-Ader-Flo-Künnap-Soosalu\, Anna Líndal\, Daiga Grantina\, Gerður Helgadóttir\, Jussi Kivi\, Katya Buchatska\, Kadri Liis Rääk\, Monika Czyżyk\, Valgerður Briem\, Zenta Logina \nSýningarstjórar: Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-get-ekki-sed-nedanjardar/
LOCATION:Nýlistasafnið\, Marshallhúsið\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/Venue-photos_1640x2-1024x577-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231001
DTEND;VALUE=DATE:20231016
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230920T110820Z
LAST-MODIFIED:20231005T094510Z
UID:32761-1696118400-1697414399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hans Jóhannsson: Ómur aldanna
DESCRIPTION:Dagana 1. – 15. október nk. verður haldin hátíð í Ásmundarsal til að fagna rösklega fjögurra áratuga starfsferli Hans Jóhannssonar\, fiðlumiðs. Sýnd verða tugir hljóðfæra\, allt frá barokkhljóðfærum til klassískra strengjahljóðfæra\, auk tilraunahljóðfæra og hljóðskúlptúra í anda 21. aldar. \nStrengjahljóðfæri (fiðlur\, víólur\, selló og bassar) eru bakbeinið í hljómi allrar klassískrar tónlistar hvort heldur sem litið er til hefðar genginna árhundraða eða samtímans. Í gegnum yfirlitssýningu\, viðburðaröð og fjölda tónleika er markmið hátíðarinnar Ómur aldanna – fiðlusmíði í 40 ár\, að segja sögu fiðlusmíði undanfarinna 500 ára í gegnum kviksjá starfsferils Hans\, auk þess að varpa ljósi á nýsköpun og framtíðarmöguleika í hönnun og þróun þeirra strengjahljóðfæra sem notuð eru til að þjóna klassískum tónlistararfi. Horft verður til sögu og hefðar\, goðsagna\, smíða\, hljóms\, tónlistarflutnings\, sambands hljóðfæraleikara við hljóðfærið sitt og síðast en ekki síst upplifunar þeirra sem hlusta og njóta.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hans-johannsson-omur-aldanna/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/379403800_785906833447573_7874707961585037621_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230930
DTEND;VALUE=DATE:20240108
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230929T133323Z
LAST-MODIFIED:20231005T094523Z
UID:32947-1696032000-1704671999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Skúlptúr/Skúlptúr
DESCRIPTION:Sýningaröðin Skúlptúr/Skúlptúr er nú haldin í fimmta skiptið í Gerðarsafni þar sem leitast er við að kanna hver staða höggmyndalistar sé í samtíma okkar. Sýningaröðin kannar þróun þrívíðrar myndlistar með vísunum í frumkvöðlastarf Gerðar Helgadóttur (1928-1975) innan íslenskrar höggmyndalistar. Titillinn vísar til sýningarinnar Skúlptúr/skúlptúr/skúlptúr\, samsýningu 29 listamanna sem haldin var á Kjarvalsstöðum árið 1994 og gaf veigamikið yfirlit yfir höggmyndalist þess tíma.\nÞessi fimmta sýning í röðinni hér í Gerðarsafni er með öðru sniði en áður þar sem leitast er við að taka stöðu á skúlptúrnum í dag með samsýningu tíu listamanna. Enginn einn samnefnari er með þeim listamönnum sem taka þátt í sýningunni en í samtali verka þeirra má finna forvitnilegar vísanir í stöðu skúlptúrsins sem listmiðils\, möguleika hans og samband við samtíma okkar. \nSýningarstjórar Skúlptúr/Skúlptúr eru Brynja Sveinsdóttir og\nCecilie Cedet Gaihede. \nListamenn:\nAndreas Brunner\nAnna Líndal\nClaire Paugam\nElísabet Brynhildardóttir\nEygló Harðardóttir\nGeirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar\nIngrid Ogenstedt\nÍvar Glói Gunnarsson Breiðfjörð\nMartha Haywood\nRaimonda Sereikaitė
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/skulptur-skulptur/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/3237b886-7a39-335f-1160-036d91c66730.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230930
DTEND;VALUE=DATE:20231113
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230929T132350Z
LAST-MODIFIED:20231005T094535Z
UID:32935-1696032000-1699833599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anne Carson & Ásta Fanney: HIK
DESCRIPTION:Anne Carson er skáld\, rithöfundur og þýðandi úr forngrísku. Frá unga aldri hefur hún teiknað og teikningar hennar birtast í bókum og á sýningum. \nÁsta Fanney er skáld\, myndlistarkona\, tónskáld og söngkona\, sem á að baki einkasýningar\, hefur tekið þátt í samsýningum\, út hafa komið bækur eftir hana\, m.a. Eilífðar nón\, og sem þýdd er á nokkur tungumál. Hún flytur ljóð sín\, gjörninga og tónlist víða\, jafnt á Íslandi og í útlöndum. \nbilið milli þrepanna er gap\, ég kemst þar fyrir inn á milli \nSkrifar Ásta Fanney. \nThe premise of the spiral staircase was military… \nSkrifar Anne Carson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anne-carson-asta-fanney-hik/
LOCATION:Glerhúsið\, Vesturgata 33b\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/Screenshot-2023-09-29-at-13.21.50.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230929
DTEND;VALUE=DATE:20231022
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230929T132742Z
LAST-MODIFIED:20231005T094558Z
UID:32937-1695945600-1697932799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:IS/POL
DESCRIPTION:Á sýningunni IS/POL eru grafíkverk eftir 20 listamenn frá Íslandi og Póllandi.\nTilurð sýningarinnar er margþætt listrænt samstarf milli landanna undanfarin ár. Það hófst árið 2017 að frumkvæði Jan Metejko listaakademíunnar í Krakow við íslenska listamenn og listastofnanir og hefur m.a. innifalið gagnkvæmar heimsóknir\, málþing\, vinnustofur og sýningar.\nSýningarstjórarnir hafa nú valið hóp listamanna frá báðum löndum til að sýna með sér á Íslandi. Síðar á þessu ári heldur sýningin áfram við opnun nýrrar byggingar Grafíkdeildar Listaakademíunnar í Krakow.\nMarta Bozyk\, aðjúnkt við grafíkdeildina verður viðstödd opnunina á Íslandi. Sýningin stendur til 21. október og er opin virka daga frá 12-16.\n\nListamenn:\nLeifur Ýmir Eyjólfsson\nSigurður Atli Sigurðsson\nKristbergur Ó. Pétursson\nJoe Keys\nSoffía Sæmundsdóttir\nEmilia Telese\nElva V. Hreiðarsdóttir\nElísabet Stefánsdóttir\nAnna Snædís Sigmarsdóttir\nÞóra Sigurðardóttir\nSýningarstjórar/ Curators:\nSoffía Sæmundsdóttir\, Marta Bożyk and Mateusz Otręba
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/is-pol/
LOCATION:SÍM gallerí\, Hafnarstræti 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/384119892_704288911732170_3806372766586288797_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230929
DTEND;VALUE=DATE:20240513
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230929T131237Z
LAST-MODIFIED:20231005T094546Z
UID:32922-1695945600-1715558399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Þura: Heima og heiman
DESCRIPTION:Þura teng­ist safn­inu á sér­stak­an hátt þar sem stað­setn­ing þess í Laugar­nesi leik­ur lykil­hlut­verk. Á sýn­ing­unni býð­ur lista­mað­ur­inn áhorf­end­um í ferða­lag um staði og tíma sem bæði eiga sér al­menna og sögu­lega skír­skot­un en jafn­framt mjög persónu­lega. Laugar­nes er ríkt af sögu langt aft­ur í aldir og á þess­um sér­staka stað hafa ótal manns átt heima í gegn­um tíð­ina. Ein af þeim er Þura\, en hún fædd­ist og ólst upp í gamla Laugar­nes­bæn­um\, stein­snar frá Lista­safni Sigur­jóns. Þar var henn­ar leik­völl­ur og er jafn­vel enn í dag. Henni er hug­leik­ið hvern­ig mann­leg til­vist er bund­in stöð­um órjúfan­leg­um bönd­um\, æsku­stöðv­ar skipa sér­stak­an sess í huga manns og móta til­ver­una að svo miklu leyti. En rétt eins og við menn­irn­ir taka stað­ir breyt­ing­um í tím­ans rás og eftir standa minn­ing­ar og minjar sem eru hvort tveggja hverful fyrir­bæri\, brota­kennd og óáreið­an­leg. Á sýn­ing­unni kem­ur einn­ig við sögu Búr­fells­gjá\, sem er í henn­ar heima­bæ í dag. Þura geng­ur gjarn­an þenn­an far­veg hrauns sem rann fyrir um 8.000 árum og skildi eftir sig breið­götu með há­um kletta­veggj­um á báð­ar hlið­ar\, þar sem ó­líkir tím­ar mæt­ast og hafa orðið Þuru að yrkisefni.\n\n    Þura útskrif­að­ist frá Lista­háskóla Ís­lands með BA gráðu í mynd­list árið 2001. Frá náms­lok­um hef­ur hún unn­ið að mynd­list og sýnt víða bæði innan­lands og utan. Þura fæst fyrst og fremst við olíu­mál­verk og við­fangs­efn­ið er gjarn­an nátt­úr­an\, stund­um með þröngt eða óvænt sjónar­horn. Hún hefur kennt við Mynd­lista­skóla Reykja­vík­ur og á eigin nám­skeið­um. Hún átti þátt í stofn­un og rekstri StartArt galler­ís­ins við Lauga­veg sem starf­rækt var 2007−2009. Þuríð­ur var valin bæjar­lista­mað­ur Garða­bæjar 2004. Þura er jafn­framt ein ást­sæl­asta söng­kona þjóð­ar­inn­ar og hefur komið víða við á löngum og farsælum tónlistarferli.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/thura-heima-og-heiman/
LOCATION:Listasafn Sigurjóns Ólafssonar\, Laugarnestanga 70\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/23-Thura-ljonslappi.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230923
DTEND;VALUE=DATE:20231015
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230920T111719Z
LAST-MODIFIED:20230929T130200Z
UID:32773-1695427200-1697327999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnheiður Gestsdóttir: Sjónskekkjur
DESCRIPTION:Sýningin Sjónskekkjur er afrakstur 3ja mánaða vinnstofudvalar Ragnheiðar hjá European Ceramic Work Center í Hollandi. Ragnheiður gerði þar ótal tilraunir með form\, liti og áferð sem skila sér í margvíslegum verkum á gólfi og á vegg.\nVerkin\, eins og öll verk sem unnin eru í leir\, spegla ófullkomleika höfundarins og manneskjunnar almennt. Með lokkandi yfirborði og litasamsetningum auk vísana í form og tákn\, sem mörg skírskota í einhvers konar hagsbætur eða betrumbót\, minna verkin okkur á þrá manneskjunnar eftir einhverju meira\, einhverju betra.\nSýningarstjóri\, Dorothée Kirch.\nRagnheiður Gestsdóttir kvikmyndagerðar- og myndlistarkona vinnur með ólíka miðla; innsetningar\, skúlptúr\, ljósmyndir og kvikmyndir. Í verkum sínum vinnur hún með hugmyndir um þekkingarsköpun og sviðsetningu menningar og sjálfsmyndar\, auk þess sem hún rannsakar og afhjúpar tilbúnar narratívur og valdakerfi í samfélaginu. Hún hefur áhuga á þrá manneskjunnar eftir samræmi og fegurð en einnig ómöguleikanum sem felst í að grípa einhvers konar fullkomleika.\nRagnheiður lauk MFA námi í myndlist frá Bard College 2012 og MA námi í sjónrænni mannfræði frá Goldsmiths College 2001.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnheidur-gestsdottir-sjonskekkjur/
LOCATION:Gallery Grótta\, Eiðistorgi 11\, Seltjarnarnes\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/379408895_618780573782344_7502788560350672564_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230921
DTEND;VALUE=DATE:20231105
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230920T110043Z
LAST-MODIFIED:20230929T130139Z
UID:32754-1695254400-1699142399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Á milli glugga og hurðar
DESCRIPTION:Sýningarin Á milli glugga og hurðar\, er hópsýning fimm listakvenna sem nýta tungumál sem kveikju og efni verka sinna. Sýningin leggur áherslu á myndgert mál\, þar sem verk eftir Renee Gladman\, Iman Issa\, Christine Sun Kim\, Tania Pérez Córdova\, og Iris Touliatou munu tengja saman ýmsar nálganir á munnlegum\, skriflegum\, teiknuðum og óhefðbundnum leiðum til að tjá texta. Sérhvert verk rannsakar notagildi\, getur og formgerðir sem flokka\, viðhalda og móta upplýsingar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-milli-glugga-og-hurdar/
LOCATION:i8 Gallery\, Tryggvagata 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/4d3300539cd3860a8c8a2e217564d258.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230914
DTEND;VALUE=DATE:20231231
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230914T111409Z
LAST-MODIFIED:20230929T130145Z
UID:32728-1694649600-1703980799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Landslag fyrir útvalda
DESCRIPTION:Á sýningunni Landslag fyrir útvalda eru ólíkar hliðar veruleikaflótta kannaðar. Við búum í heimi öfgafullra yfirvofandi breytinga\, þar sem samfélagið kallar eftir því að einstaklingar beri í síauknum mæli ábyrgð á hnattrænum vandamálum. Að leita á vit flóttans er því orðinn stór hluti hversdagsleikans. \nVeruleikaflóttinn sem slíkur er ekki nýtt fyrirbrigði\, heldur hefur hann fylgt okkur um aldanna rás. Birtingarmyndir hans eru og hafa verið margbreytilegar en eiga það flestar sameiginlegt að endurspegla það ástand sem ætlunin er að flýja. Auk þess getur flóttinn haft mótandi áhrif á þann sem kýs að flýja á vit annarra heima. \nSýningunni er ætlað að velta upp spurningum á borð við: Hvers vegna flýjum við? Er flóttinn góður eða slæmur? Hvaða ástand flýjum við í dag? Hvert er landslag veruleikaflóttans? Og hver hefur aðgang að því? \nListamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Arna Beth\, Fritz Hendrik IV\, Margrét Helga Sesseljudóttir\, Sól Hansdóttir\, Vikram Pradhan\, Bíbí Söring og Þrándur Jóhannsson\, auk þess sem sýnd eru verk eftir Eirík Smith\, Patrick Huse og Sigrid Valtingojer úr safneign Hafnarborgar og Listasafns ASÍ. \nSýningarstjórar eru Eva Lín Vilhjálmsdóttir og Odda Júlía Snorradóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/landslag-fyrir-utvalda/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/Landslag-fyrir-utvalda-verk-eftir-Fritz-Hendrik-IV-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230914
DTEND;VALUE=DATE:20231016
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230914T111042Z
LAST-MODIFIED:20230929T130152Z
UID:32720-1694649600-1697414399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sindri Ploder: Ef ég væri skrímsli
DESCRIPTION:Á sýningunni eru gestir leiddir inn í mynd- og hugarheim listamannsins Sindra Ploder. Sindri hefur teiknað skrímsli frá tólf ára aldri og notast helst við penna og pappír en hefur í seinni tíð einnig fært teikningar sínar yfir í þrívídd og gert skúlptúra í við\, keramik\, mósaík og textíl. Verk Sindra eru sum hver sjálfsmyndir\, þar sem glettni\, dirfska og ögrandi gleði leynir sér ekki. Blikið í augum Sindra endurspeglast í teikningunum sem fanga áhorfandann við fyrstu sýn. Sýningarstjóri er Íris Stefanía Skúladóttir\, listrænn stjórnandi Listar án landamæra.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sindri-ploder-ef-eg-vaeri-skrimsli/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/Sindri-Ploder-verk.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230909
DTEND;VALUE=DATE:20231022
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230907T104547Z
LAST-MODIFIED:20230911T114752Z
UID:32616-1694217600-1697932799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Til fundar við Eldfell
DESCRIPTION:Til fundar við Eldfell er ávöxtur af samtali tveggja listamanna\, sýningastjóra og mannfræðings um sameiginlegan áhuga þeirra á Eldfelli\, sem leiddi af sér samstarfsverkefni í tilefni 50 ára afmælis eldfjallsins. \nÁ sinni stuttu ævi hefur Eldfell og sagan um gosið veitt fólki um allan heim innblástur. Það hefur sótt eldfjallið heim\, hvert á sínum forsendum\, til að kynnast og upplifa þennan merka stað. Á sýningunni  verður í fyrsta sinn dregið saman safn verka\, bæði nýrra og eldri\, eftir um tuttugu íslenska og erlenda listamenn\, rithöfunda og fræðimenn sem hafa rannsakað Eldfell. Þá verða einnig sýnd mikilvæg gögn úr söfnum\, svo sem fyrsta skjálftaritið\, jarðskjálftamyndin sem benti til goss\, sýni úr borkjarna frá hrauni Eldfells og dagbækur jarðfræðinga frá dögum gossins. Á sýningunni verða teikningar\, málverk\, textíll\, ljósmyndir\, þrykk\, jarðfræðilegir skúlptúrar\, kvikmyndir og ritaður texti. \n„Sýningunni hefur vaxið fiskur um hrygg undir forystu undirbúningshópsins\, og hún er orðin vísir að margþættri ævisögu eldfjallsins. Við vonum að þetta sé upphafið að því að haldið verði utan um safn verka um Eldfell\, sem tengi saman gesti\, sem sótt hafa Eldfell heim\, og Vestmannaeyinga. Fólk mætir Eldfelli á mismunandi forsendum. Hvort sem um er að ræða þau sem flúðu eyjuna um miðja nótt þegar gosið hófst eða barnabörnin sem nú eru að fikra sig upp eftir fjallinu í fyrsta skipti  eru samskiptin við fjallið ávallt áminning um að við erum hluti af vaxandi jarðfélagslegri fjölskyldu með sameiginlega ábyrgð sem teygist um alla jörð\,“ segja sýningarstjórarnir\, Ilana Halperin og Vala Pálsdóttir. \nÁ sýningunni verða verk eftir listamenn\, rithöfunda og fræðimenn. Þau eru: Anna Líndal\, Adam Putnam\, Ayan Farah\, Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir\, Dieter Roth\, Emma Stibbon\, Frank Siteman\, Genya Turovskaya\, George Carman\, Gísli Pálsson\, Hugh Raffles\, Ilana Halperin\, Jesse Bransford\, John McPhee\, Keith Grant\, Kirsty Badenoch\, Kristján Steingrímur\, Ragna Róbertsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir auk prentefnis frá SITE\, Inc./Alison Sky við Roberts Smithsons. \nLjósmynd: On the way to Eldfell\, May 6th\, 2023\, c-print\, Ilana Halperin. Með leyfi Patricia Fleming Gallery. \nSafnahús Vestmannaeyja \nOpnunartími Safnahúss Vestmannaeyja: Í september verður safnið opið alla daga vikunnar frá klukkan 10 að morgni til klukkan 17 síðdegis. Í október verður opið alla virka daga frá klukkan 10 að morgni til klukkan 17 síðdegis. Auk þess er einnig opið á laugardögum frá klukkan 12 til 15 síðdegis. Frekari upplýsingar veitir Sigurhanna Friðþórsdóttir\, safnstjóri Sagnheima\, sigurhanna@vestmannaeyjar.is.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/til-fundar-vid-eldfell/
LOCATION:Safnahús Vestmannaeyja\, Kirkjuvegur 52\, Vestmannaeyjar\, 900\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/download.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230902
DTEND;VALUE=DATE:20231112
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230901T120018Z
LAST-MODIFIED:20230929T130211Z
UID:32600-1693612800-1699747199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Christopher Taylor: Heima
DESCRIPTION:Sýningin samanstendur af þremur ljósmyndaseríum sem tengjast allar hugmyndinni um heimili og eru unnar á yfir 25 ára tímabili. Sumar eru teknar á hans eigin heimili\, aðrar eru af yfirgefnum heimilum\, og enn aðrar eru af verum sem tekið hafa sér bólstað á heimili ljósmyndarans í Frakklandi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/christopher-taylor-heima/
LOCATION:Sláturhúsið\, Kaupvangi 9\, Egilsstaðir\, 700\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/Arthropoda017.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230902
DTEND;VALUE=DATE:20231223
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230901T114828Z
LAST-MODIFIED:20230908T125108Z
UID:32588-1693612800-1703289599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnheiður Jónsdóttir: Kosmos / Kaos
DESCRIPTION:Þegar horft er yfir höfundarverk Ragnheiðar Jónsdóttur á sviði teikninga og dráttlistar í íslenskri listasögu sést bersýnilega hve einstök staða hennar er. Sýningin Kosmos/Kaos er haldin á nítugasta afmælisári hennar og skilaboð Ragnheiðar frá áttunda áratug síðustu aldar\, um kvenréttindi\, umhverfisvitund og samfélagslega ábyrgð\, eiga enn vel við í dag. Í grafíkverkum Ragnheiðar birtast hversdagsleg fyrirbæri hlaðin táknum og vísa í vaxandi iðnað\, pólitískt umrót og deilur\, áníðslu á náttúrunni\, félagslegan aktívisma\, feðraveldið og kvenréttindahreyfinguna. Verk hennar eru beitt og fersk og hróplega áríðandi í umhverfis- og samfélagsmálum nútímans.\nVerk frá upphafi ferils Ragnheiðar einkenndust af öflugum symbólisma og nákvæmum\, krefjandi vinnubrögðum með ríkri áherslu á smáatriði\, en slíkar aðferðir eru dæmigerðar fyrir grafíska list. Ríkjandi stef í verkum hennar eru óþægileg og forvitnileg – þrungin súrrealisma og þurri kímnigáfu.\nRagnheiður nýtir sér menningarlegar myndlíkingar með undarlegum formum sem vísa beint í pólitísk\, siðferðisleg og samfélagsleg málefni á Íslandi á þessum tíma. Verk hennar höfðu mikil áhrif á kvenfrelsisbaráttuna og hún er enn í dag talin ein af mikilvægustu forvígiskonum feminískrar listar á Íslandi. Vinna hennar einkennist af andstæðum\, og ekki einungis bókstaflegum andstæðum hins svarta og hins hvíta\, heldur á hún einnig rætur í tvískiptingunni á milli smásmygli og frelsis\, abstraksjónar og symbólisma\, náttúrulegs og vélræns\, myndrænnar framsetningar og tilfinningaþrunginnar túlkunar\, á milli grafíklistar og frjálsrar teikningar. Á tíunda áratugnum byrjaði Ragnheiður að vinna eingöngu með stórar kolateikningar og sagði skilið við nákvæma þolinmæðisvinnu grafísku verkanna sem hún hafði helgað sig fram að því. Hún fjarlægðist hið bókstaflega líkingamál en einbeitti sér að myndmáli hreinnar og óhlutbundinnar tjáningar. Kolateikningar hennar voru jafn beittar og ákveðnar og grafísku verkin en bjuggu yfir frjálsari hreyfingu\, léttleika og abstrakt táknsæi.\nHvaða lærdóm má draga af sextíu ára ferli Ragnheiðar sem frumkvöðuls í grafískri list og látbrigðateikningum? Síbreytileg og stöðugt vaxandi list hennar vísar í eðlislæga eiginleika mannsins – þörfina fyrir frelsi\, abstrakt\, öndun og hreyfingu\, mitt í basli hversdagsins. Ferill Ragnheiðar ber vitni um þau áhrif sem listamaður getur haft á samfélag sitt\, þann kraft sem býr í rödd eins listamanns sem vekur athygli á málefnum\, hvetur fólk til aðgerða og ýtir undir samfélagslegar og pólitískar breytingar kynslóð eftir kynslóð.\n  \nRagnheiður hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1968 og hefur frá þeim tíma unnið óslitið að myndlist til dagsins í dag. Þráðurinn í verkum Ragnheiðar er sjálfblekkingin – blindnin – græðgin – einsemdin – andvaraleysið – umhverfið – heimurinn okkar. Ragnheiður segir að myndlist sé í hennar huga samtal listamannsins og áhorfandans. Að tilganginum sé náð þegar að henni tekst að rumska við áhorfandanum.\n  \nRagnheiður Jónsdóttir er Árnesingur í báðar ættir. Móðir hennar Sigurbjörg var dóttir Ingvars Hannessonar bónda að Skipum Stokkseyrarhreppi og fyrri eiginkonu hans Vilborgar Jónsdóttur frá Sandlækjarkoti Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Ingvar bóndi á Skipum og Ásgrímur Jónsson listmálari voru systrasynir. Mæður þeirra voru systurnar Sigurbjörg og Guðlaug frá Vantsholti í Flóa. Faðir Ragnheiðar var Benedikt sonur Guðjóns Jónssonar bónda frá Seli og eiginkonu hans Kristjönu Jónsdóttur frá Grímsfjósum Stokkseyri. Þau bjuggu að Leiðólfsstöðum Stokkseyrarhreppi\n  \nSýningarstjóri: Daría Sól Andrews.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnheidur-jonsdottir-kosmos-kaos/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/RJ_Verk_Katalogur-7-1200x1192-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230902
DTEND;VALUE=DATE:20240205
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230901T114534Z
LAST-MODIFIED:20230908T125158Z
UID:32586-1693612800-1707091199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigga Björg Sigurðardóttir: Yfir strikið
DESCRIPTION:Verkið er  innsetning og samanstendur af teikningum og litaformum sem unnin eru  beint á veggi rýmisins. \nSigga Björg teiknar hömlulaust og leyfir öllu að flæða í óritskoðuðu vinnuferli\, þar sem mannleg hegðun\, frumstæðar kenndir og tilfinningar birtast í sínu hráasta formi. Listakonan kannar þannig oft á tíðum óljós mörkin milli mennskunnar og hins dýrslega.   \nSigga Björg er þekktust fyrir teikningar sínar og skapar innsetningar sem samanstanda af verkum á pappír\, veggteikningum\, hreyfimyndum og skúlptúrum.\n“Línurnar í teikningum Siggu Bjargar eru sjálfbær heimur\, svo öruggar að þær hljóta að hellast útúr listakonunni fullmótaðar. Kannski af því að myndefnið fær að elta línuna\, hvert sem hún fer eða klessist. Í öryggi þess að treysta ferlinu verður útkoman nákvæmlega sú sem hún átti að verða: furðuskepnan\, sokkurinn\, froskurinn sem gæti átt heima í kennslubók í líffræði eða hreinlega stokkið út úr teikningunni. Slettan og klessan hafa líka sína tilveru og réttindi. Teikningarnar eru ekki eftirlíkingar raunveruleika\, heldur sinn eiginn raunveruleiki..” (´úr sýningarskrá)\n\nSigga Björg lauk MFA gráðu frá Glasgow School of Art 2004\, og hefur síðan sýnt verk sín á einka- og samsýningum víða um heim. Sem dæmi um einkasýningar má nefna Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn\, Yancey Richardson Gallery New York\, Teckningsmuseet í Svíþjóð\, Kling og Bang\, Hverfisgallerí\, og Hafnarborg. Auk þáttöku í samsýningum\, meðal annars í Göteborgs Konsthall í Svíþjóð\, The Centre For Contemporary Art\, Glasgow\, National Galleries of Scotland\, Edinborg og á Listasafni Íslands.   Verk hennar má finna í safneign Listasafns Reykjavíkur\, Nordiska Akvarellmuseet í Svíþjóð\, Listasafns Íslands\, Zabludowicz Art Trust London og Kunsthaus Zürich í Sviss svo eitthvað sé nefnt.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigga-bjorg-sigurdardottir-yfir-strikid/
LOCATION:Gallery Underpass\, Hverfisgata 76\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/SiggaBjorg_2023_Botanical_space_IX-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230902
DTEND;VALUE=DATE:20231223
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230824T100113Z
LAST-MODIFIED:20230908T125115Z
UID:32436-1693612800-1703289599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jakob Veigar Sigurðsson: Megi hönd þín vera heil
DESCRIPTION:Jakob Veigar (1975) starfar og býr í Vínarborg en er uppalinn í Hveragerði. Hann fetaði fremur seint inn á veg myndlistarinnar eftir að hafa snúið baki við byggingariðnaðinum og snúið sér að Myndlist . Hann útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2016 og sem „Herr Magister“ í myndlist frá Akademie der bildenden Künste í Vínarborg 2019.\nJakob er einnig með BA gráðu í byggingatæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík. Málverkið er hans aðal miðill og er innblásið af persónulegri reynslu\, alkóhólískum huga sem reynir að skilja samfélagið sem hann dvelur í á hverjum tíma ásamt djúpri tengingu hans við náttúruna.\nJakob hefur á ferðalögum á framandi slóðir m.a annars Indland og Íran notað myndlistina til að dýpka skilning og tengingu við framandi menningu.\nÞrátt fyrir stutta viðkomu í myndlistinni er verk Jakobs að vinna í einkasöfnum víða um heim og hafa verk hans verið sýnd ásamt Íslandi víða um Evrópu\, Kína ofl.\nMegi hönd þín vera heil\, er saga af ferðalagi frá Íslandi til Írans. Saga af listamanni sem elti ástina á milli heimsálfa á tímum heimsfaraldar. Ferðalag til einnar af elstu menningu veraldar þar sem hann fann hluta af sjálfum sér í landslagi töluvert frábrugðið hans eigins. Saga af ást sem glataðist\, á meðan hann safnaði sögum og efni frá hirðingjum og handverksfólki um allt Íran. Allt frá Frá skítugum mottum\, ómetanlegum vefnaði og útsaum sem hann notar til að skapa sína persónulegu og einstöku veröld.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jakob-veigar-sigurdsson-megi-hond-thin-vera-heil/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/366530375_764877998981447_595951561021733846_n-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230831
DTEND;VALUE=DATE:20231201
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230901T115513Z
LAST-MODIFIED:20230901T143352Z
UID:32598-1693440000-1701388799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Linda Steinþórsdóttir: Endurlit
DESCRIPTION:Listamaðurinn Linda Steinþórsdóttir sækir innblástur til naumhyggju annars vegar og til expressjónisma hins vegar\, þar finnur hún rými til að spegla eigin persónu og reynslu í gegnum afar persónulega náttúruskoðun\, sem miðlað er áfram til áhorfandans. Formin í verkum Lindu leitast við að miðla flóknu samspili manns og náttúru sem á sama tíma er sjálfstæð upplifun í gegnum myndverk listamannsins.\nVerkin eru oft áferðamikil\, þar sem endurvarp myndanna minna á Ísland\, hörð og ber náttúra er tjáð á striga í gegnum endurlit og íhugun listamannsins þar sem uppeldislandsins er minnst með formum og áferðum sem koma upp í minningalandi Lindu.\nLinda reynir að feta mjóan stíg þar sem áhorfandinn skynjar spennu milli hins óvænta\, hins nýja\, hins flæðandi og hins kunnuglega. Einfaldleiki litrófs listamannsins má mögulega rekja til naumhyggju en áferðir myndverkanna eru þó mun tjáningaríkari\, þannig kallast tvær ólíkar stefnur á innan sama striga í verkum listamannsins.\nÞað er mikill fengur í að fá Lindu Steinþórsdóttur til að opna í Bíósal Duus menningarhúsa í tilefni að Ljósanótt 2023. Listamaðurinn hefur alið flest sín fullorðins ár í Austurríki\, því gefst íbúum Reykjanesbæjar ekki oft færi á að njóta myndverka listamannsins í uppeldisbæ hennar.\n\nLinda Steinþórsdóttir fæddist í Keflavík árið 1968. Hún lærði fjölmiðlafræði og listasögu við háskólann í Salzburg einnig hefur hún stundað nám við International Summer Academy for Fine Arts í Salzburg hjá Varda Caivano.\nLinda er meðlimur SÍM hún er ein af skipuleggjendum alþjóðlega málþingsins Art DIAGONALE Traunkunst 2016/ í samstarf við Museum Angerlehner / ART DIAGONALE II á Korpúlfsstöðum Reykjavík 2017\, í samstarfi við Samband Íslenskra Myndlistamanna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/linda-steinthorsdottir-endurlit/
LOCATION:Reykjanes Art Museum\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/04b61b7a-e609-dd4b-7cdb-267a19ff55ba.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230826
DTEND;VALUE=DATE:20240311
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230824T142016Z
LAST-MODIFIED:20230901T143407Z
UID:32484-1693008000-1710115199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Melanie Ubaldo: Afar ósmekklegt
DESCRIPTION:Hvernig er hægt að minnast hræðilegra gjörða án þess að úr verði sjónarspil? Fyrir lokaverkefnið mitt í MA-náminu spreyjaði ég á glugga í gallerýi í Breiðholti orðin „Farðu til fjandans helvítis útlendingaskíturinn þinn“ og allt ætlaði um koll að keyra. \nÞessi einkasýning er innblásin af því bakskoti sem ég varð fyrir við þetta tiltekna textaverk. Athugasemdir frá ókunnugu fólki á netinu hafa síðan orðið að jarðsprengjusvæði haturs\, heimsku og kynþáttafordóma\, sem nýtist sem efniviður í sýninguna. Ofbeldið sem beint var að mér hefur breyst í opinbera rökræðu um hvernig við sættumst við kynþáttafordóma á Íslandi. Markmið sýningarinnar er að endurheimta það gangverk tungumálsins sem orðræða kynþáttafordóma nýtir sér með því að ráðskast vísvitandi með sýnileika málsins og sigla á milli mismunar þess að sjá\, lesa og að lokum – skilja.“ \nMelanie Ubaldo (f. 1992) lauk MA-námi frá Listaháskóla Íslands 2022. Hún er einn af stofnendum listamannaþríeykisins Lucky 3 og hefur tekið þátt í sýningum á Íslandi og erlendis. Verk hennar má m.a. finna í safneign Listasafns Íslands\, Listasafns Reykjavíkur\, Gerðarsafns og Hafnarborgar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/melanie-ubaldo-afar-osmekklegt/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/melanieimage1_vefur-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230826
DTEND;VALUE=DATE:20240115
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230824T121804Z
LAST-MODIFIED:20230901T143400Z
UID:32456-1693008000-1705276799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hringfarar
DESCRIPTION:Listamennirnir sem hér koma saman vinna út frá náttúrulegum ferlum\, efniviði og samhengi. Hver og einn hefur sína persónulegu nálgun\, en sameiginlega mengið er efniviður úr nærumhverfinu\, sem hver og einn vinnur með á sinn persónulega hátt. \nVerk Sólveigar Aðalsteinsdóttur endurspegla hugleiðingar um tíma og umhverfi\, náttúruna\, vöxt og gróður\, þar sem mörk innri og ytri veruleika eru ekki endilega ljós. \nElsa Dóróthea Gísladóttir vinnur með hverfulleika\, sjálfbærni\, ræktun\, lífkerfi og alkemíu hvunndagsins. Tíminn er afar mikilvægur þáttur í hennar verkum. \nGuðjón Ketilsson vinnur gjarnan með fundna hluti sem geyma minningar og sögur liðinna atburða. Hann skrásetur þá\, endurskipuleggur og setur í annað samhengi. \nDaglegt umhverfi hefur oft verið kveikjan að verkum Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur\, svo sem rauðrófuhýði í vatni sem hefur myndað rauðan lit og pappírsörk á glugga sem raki hefur teiknað á.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hringfarar-2/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/elsa-dorothea-gisladottir-koparblomi-2021-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230520
DTEND;VALUE=DATE:20230618
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230519T151824Z
LAST-MODIFIED:20230519T151824Z
UID:31087-1684540800-1687046399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Solander 250: Bréf frá Íslandi
DESCRIPTION:Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp til að minnast þess að liðin eru 250 ár frá merkum erlendum vísindaleiðangri til Íslands árið 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carls von Linné\, náttúrufræðingurinn Daniel Solander frá Svíþjóð. Þá skrásetti Solander og safnaði margs konar fróðleik um náttúru Íslands\, menningu\, siði og klæðaburð þjóðarinnar. Á sýningunni túlka tíu íslenskir listamenn frá félaginu Íslenskri grafík þessa atburði og þær breytingar sem hafa orðið á landi og þjóð síðan.\n\nSamhliða henni má svo sjá sýninguna Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy\, sem ætlað er að minnast ferða Solanders til Kyrrahafsins árið 1769. Eru þar sýnd verk tíu listamanna frá Kyrrahafssvæðinu en Solander var í áhöfn HMS Endeavour í fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. Mynda sýningarnar tvær þannig einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í ljósi ferða Solanders. Sýningarnar eru settar upp í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar á Íslandi og félagið Íslenska grafík.\n\nParadise lost – Daniels Solander’s Legacy hefur áður verið sett upp á Nýja-Sjálandi\, í Ástralíu og Svíðþjóð en að loknum sýningartímanum í Hafnarborg munu sýningarnar ferðast um landið. Umsjón með sýningunni Solander 250: Bréf frá Íslandi fyrir hönd félagsins Íslenskrar grafíkur hafa Anna Snædís Sigmarsdóttir og Elísabet Stefánsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/solander-250-bref-fra-islandi-2/
LOCATION:Svavarssafn\, Hafnarbraut 27\, Höfn\, 780\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/345620835_994020595341178_3678429813010609750_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230517
DTEND;VALUE=DATE:20231030
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230511T160906Z
LAST-MODIFIED:20230908T125628Z
UID:30947-1684281600-1698623999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Snorri Ásmundsson: Boðflenna
DESCRIPTION:Hver man eftir forsetaframboðinu 2004? Vinstri Hægri Snú framboðinu? Kattaframboðinu? Besta píanóleikara Evrópu? Fjallkonunni? Listasafn Reykjanesbæjar ætlar að ramma inn og færa persónu- og myndsköpun Snorra í ákveðinn farveg sem mun auka skilning almennings á gagnrýninni samfélagslegri gjörningalist á Íslandi. \nSýningarstjóri Helga Þórsdóttir. Aðstoðarsýningarstjórar Iðunn Jónsdóttir og Helga Arnbjörg Pálsdóttir. \nSýningin Boðflenna mun standa til og með 20. ágúst 2023.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/snorri-asmundsson-bodflenna/
LOCATION:Reykjanes Art Museum\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/test3.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230513
DTEND;VALUE=DATE:20230813
DTSTAMP:20260530T051435
CREATED:20230511T155316Z
LAST-MODIFIED:20230511T155316Z
UID:30935-1683936000-1691884799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Remember the Future
DESCRIPTION:Ingrid Larsen\, Solveig Ovanger & Inger Blix Kvammen.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/remember-the-future/
LOCATION:Sláturhúsið\, Kaupvangi 9\, Egilsstaðir\, 700\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/344950852_1307454796784961_1039070631141271794_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR