Remember the Future
Sláturhúsið Kaupvangi 9, Egilsstaðir, IcelandIngrid Larsen, Solveig Ovanger & Inger Blix Kvammen.
Ingrid Larsen, Solveig Ovanger & Inger Blix Kvammen.
Hver man eftir forsetaframboðinu 2004? Vinstri Hægri Snú framboðinu? Kattaframboðinu? Besta píanóleikara Evrópu? Fjallkonunni? Listasafn Reykjanesbæjar ætlar að ramma inn og færa persónu- og myndsköpun Snorra í ákveðinn farveg sem mun auka skilning almennings á gagnrýninni samfélagslegri gjörningalist á Íslandi. Sýningarstjóri Helga Þórsdóttir. Aðstoðarsýningarstjórar Iðunn Jónsdóttir og Helga Arnbjörg Pálsdóttir. Sýningin Boðflenna mun standa til …
Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp til að minnast þess að liðin eru 250 ár frá merkum erlendum vísindaleiðangri til Íslands árið 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carls von Linné, náttúrufræðingurinn Daniel Solander frá Svíþjóð. Þá skrásetti Solander og safnaði margs konar fróðleik um …
Listamennirnir sem hér koma saman vinna út frá náttúrulegum ferlum, efniviði og samhengi. Hver og einn hefur sína persónulegu nálgun, en sameiginlega mengið er efniviður úr nærumhverfinu, sem hver og einn vinnur með á sinn persónulega hátt. Verk Sólveigar Aðalsteinsdóttur endurspegla hugleiðingar um tíma og umhverfi, náttúruna, vöxt og gróður, þar sem mörk innri og …
Hvernig er hægt að minnast hræðilegra gjörða án þess að úr verði sjónarspil? Fyrir lokaverkefnið mitt í MA-náminu spreyjaði ég á glugga í gallerýi í Breiðholti orðin „Farðu til fjandans helvítis útlendingaskíturinn þinn“ og allt ætlaði um koll að keyra. Þessi einkasýning er innblásin af því bakskoti sem ég varð fyrir við þetta tiltekna textaverk. …
Listamaðurinn Linda Steinþórsdóttir sækir innblástur til naumhyggju annars vegar og til expressjónisma hins vegar, þar finnur hún rými til að spegla eigin persónu og reynslu í gegnum afar persónulega náttúruskoðun, sem miðlað er áfram til áhorfandans. Formin í verkum Lindu leitast við að miðla flóknu samspili manns og náttúru sem á sama tíma er sjálfstæð …
Jakob Veigar (1975) starfar og býr í Vínarborg en er uppalinn í Hveragerði. Hann fetaði fremur seint inn á veg myndlistarinnar eftir að hafa snúið baki við byggingariðnaðinum og snúið sér að Myndlist . Hann útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2016 og sem „Herr Magister“ í myndlist frá Akademie der bildenden …
Jakob Veigar Sigurðsson: Megi hönd þín vera heil Read More »
Verkið er innsetning og samanstendur af teikningum og litaformum sem unnin eru beint á veggi rýmisins. Sigga Björg teiknar hömlulaust og leyfir öllu að flæða í óritskoðuðu vinnuferli, þar sem mannleg hegðun, frumstæðar kenndir og tilfinningar birtast í sínu hráasta formi. Listakonan kannar þannig oft á tíðum óljós mörkin milli mennskunnar og hins dýrslega. …
Þegar horft er yfir höfundarverk Ragnheiðar Jónsdóttur á sviði teikninga og dráttlistar í íslenskri listasögu sést bersýnilega hve einstök staða hennar er. Sýningin Kosmos/Kaos er haldin á nítugasta afmælisári hennar og skilaboð Ragnheiðar frá áttunda áratug síðustu aldar, um kvenréttindi, umhverfisvitund og samfélagslega ábyrgð, eiga enn vel við í dag. Í grafíkverkum Ragnheiðar birtast hversdagsleg …
Sýningin samanstendur af þremur ljósmyndaseríum sem tengjast allar hugmyndinni um heimili og eru unnar á yfir 25 ára tímabili. Sumar eru teknar á hans eigin heimili, aðrar eru af yfirgefnum heimilum, og enn aðrar eru af verum sem tekið hafa sér bólstað á heimili ljósmyndarans í Frakklandi.
Til fundar við Eldfell er ávöxtur af samtali tveggja listamanna, sýningastjóra og mannfræðings um sameiginlegan áhuga þeirra á Eldfelli, sem leiddi af sér samstarfsverkefni í tilefni 50 ára afmælis eldfjallsins. Á sinni stuttu ævi hefur Eldfell og sagan um gosið veitt fólki um allan heim innblástur. Það hefur sótt eldfjallið heim, hvert á sínum forsendum, til …
Á sýningunni eru gestir leiddir inn í mynd- og hugarheim listamannsins Sindra Ploder. Sindri hefur teiknað skrímsli frá tólf ára aldri og notast helst við penna og pappír en hefur í seinni tíð einnig fært teikningar sínar yfir í þrívídd og gert skúlptúra í við, keramik, mósaík og textíl. Verk Sindra eru sum hver sjálfsmyndir, …
Á sýningunni Landslag fyrir útvalda eru ólíkar hliðar veruleikaflótta kannaðar. Við búum í heimi öfgafullra yfirvofandi breytinga, þar sem samfélagið kallar eftir því að einstaklingar beri í síauknum mæli ábyrgð á hnattrænum vandamálum. Að leita á vit flóttans er því orðinn stór hluti hversdagsleikans. Veruleikaflóttinn sem slíkur er ekki nýtt fyrirbrigði, heldur hefur hann fylgt okkur um …
Sýningarin Á milli glugga og hurðar, er hópsýning fimm listakvenna sem nýta tungumál sem kveikju og efni verka sinna. Sýningin leggur áherslu á myndgert mál, þar sem verk eftir Renee Gladman, Iman Issa, Christine Sun Kim, Tania Pérez Córdova, og Iris Touliatou munu tengja saman ýmsar nálganir á munnlegum, skriflegum, teiknuðum og óhefðbundnum leiðum til …
Sýningin Sjónskekkjur er afrakstur 3ja mánaða vinnstofudvalar Ragnheiðar hjá European Ceramic Work Center í Hollandi. Ragnheiður gerði þar ótal tilraunir með form, liti og áferð sem skila sér í margvíslegum verkum á gólfi og á vegg. Verkin, eins og öll verk sem unnin eru í leir, spegla ófullkomleika höfundarins og manneskjunnar almennt. Með lokkandi yfirborði …
Þura tengist safninu á sérstakan hátt þar sem staðsetning þess í Laugarnesi leikur lykilhlutverk. Á sýningunni býður listamaðurinn áhorfendum í ferðalag um staði og tíma sem bæði eiga sér almenna og sögulega skírskotun en jafnframt mjög persónulega. Laugarnes er ríkt af sögu langt aftur í aldir og á þessum sérstaka stað hafa ótal manns átt …
Á sýningunni IS/POL eru grafíkverk eftir 20 listamenn frá Íslandi og Póllandi. Tilurð sýningarinnar er margþætt listrænt samstarf milli landanna undanfarin ár. Það hófst árið 2017 að frumkvæði Jan Metejko listaakademíunnar í Krakow við íslenska listamenn og listastofnanir og hefur m.a. innifalið gagnkvæmar heimsóknir, málþing, vinnustofur og sýningar. Sýningarstjórarnir hafa nú valið hóp listamanna frá …
Anne Carson er skáld, rithöfundur og þýðandi úr forngrísku. Frá unga aldri hefur hún teiknað og teikningar hennar birtast í bókum og á sýningum. Ásta Fanney er skáld, myndlistarkona, tónskáld og söngkona, sem á að baki einkasýningar, hefur tekið þátt í samsýningum, út hafa komið bækur eftir hana, m.a. Eilífðar nón, og sem þýdd er …
Sýningaröðin Skúlptúr/Skúlptúr er nú haldin í fimmta skiptið í Gerðarsafni þar sem leitast er við að kanna hver staða höggmyndalistar sé í samtíma okkar. Sýningaröðin kannar þróun þrívíðrar myndlistar með vísunum í frumkvöðlastarf Gerðar Helgadóttur (1928-1975) innan íslenskrar höggmyndalistar. Titillinn vísar til sýningarinnar Skúlptúr/skúlptúr/skúlptúr, samsýningu 29 listamanna sem haldin var á Kjarvalsstöðum árið 1994 og …
Dagana 1. - 15. október nk. verður haldin hátíð í Ásmundarsal til að fagna rösklega fjögurra áratuga starfsferli Hans Jóhannssonar, fiðlumiðs. Sýnd verða tugir hljóðfæra, allt frá barokkhljóðfærum til klassískra strengjahljóðfæra, auk tilraunahljóðfæra og hljóðskúlptúra í anda 21. aldar. Strengjahljóðfæri (fiðlur, víólur, selló og bassar) eru bakbeinið í hljómi allrar klassískrar tónlistar hvort heldur sem …
Sýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún hefst á þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra.Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. Sýnendur: …
Sýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún hefst á þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra.Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. Þessi …
Sýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún fæddist út frá þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra. Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla …
Í sköpun Egils Sæbjörnssonar er leikgleðin alltumlykjandi. Fjölbreytileiki efnisheimsins og alheimsvitundarinnar spretta upp líkt og gorkúlur í formi tónlistar, innsetninga, lifandi skúlptúra og ljóslifandi ímyndaðra ferðafélaga. Á sýningunni býður Egill óendalegum fjölda vina velkomna í samverustund í leikherbergi listarinnar.
,,Við eigum það sameiginlegt að vera jarðarbúar á fleygiferð í geimi sem er í stöðugri útþenslu. Við vitum hvar við erum stödd á jörðinni en aðrar staðsetningar þekkjum við lítið. Við þykjumst vita hver við erum en það er líka óljóst. Við reynum að vera góðar manneskjur, viðbragðsgóð og lifandi í líðandi ástandi." Brot úr …
Herbert Read described it as the moment of liberation. ‘Once it is accepted’, he wrote, ‘that the plastic imagination has at its command, not the fixities of a perspectival point of view…but the free association of any visual elements (whether derived from nature or constructed apriori), then the way is open to an activity which …
Gangið inn í frumspekivíddina, heim þar sem línuleg og rökrétt sannindi eru dregin í efa. Leitin að nýjum formum og listræn landkönnun birtist í formi snúinnar rúmfræði, flæktra hnatta og dáleiðandi spírala. Hér byrjum við að má út mörk ímyndunar og veruleika, óvissu og vitneskju, til að vefa saman viðtekinn skilning á nauðsyn og möguleikum. …
Hvert safn endurspeglar gildi þess sem safnar. Á þetta jafnt við um einkasafn eða opinbera stofnun með langa sögu. Safnið endurspeglar það sem skiptir hvern þann máli sem lagði grunn að því – af eigin áhuga og áræðni, af innri þörf eða tilviljun. Þegar safn kemur í hlut samfélagsins má svo segja að það eignist …
Verk sýningarinnar eru máluð og unnin úr handgerðum pappír, kopar, ull og lituðu gleri. Þau eru unnin sem marglaga, lifandi rannsókn - þar sem ferli og umbreyting hafa fengið að dvelja í og með efninu, og þannig hleypt hvoru öðru af stað – í ferlinu, sem má líkja við umbreytingarás. Samnefnt bókverk „Þú átt leik“ …
Laugardaginn næstkomandi klukkan fjögur opnar sýningin Næturútvarp á Svavarssafni á Höfn í Hornafirði. Sýningin er innblásin af verkinu Næturútvarp á Öræfajökli, geómetrísku abstraktmálverki sem Svavar Guðnason málaði 1954-1955 og tileinkaði vini sínum Jóni Leifs. Þessa sögu hefur myndlistakonan og skáldið Ásta Fanney Sigurðardóttir tekið og unnið upp úr sýningu sem fer með gesti inn í …