BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230819
DTEND;VALUE=DATE:20231002
DTSTAMP:20260530T040926
CREATED:20230816T141910Z
LAST-MODIFIED:20230816T141910Z
UID:32316-1692403200-1696204799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anna Reutinger\, Brák Jónsdóttir\, Hugo Llanes og Sigurður Ámundason: Gottfariðillailla
DESCRIPTION:Sýningin leiðir saman verk listamannanna Anna Reutinger\, Brákar Jónsdóttur\, Hugo Llanes og Sigurðar Ámundasonar\, sem hér sýna saman í fyrsta sinn. Gottfariðillailla sprettur upp úr þéttu samstarfi og tekur form sem einhvers konar samkomustaður\, upphaf eða endastöð einbeitts en örlítið óreiðukennds samtals þar sem mismunandi raddir fléttast saman og hugmyndir mótast í leiðinni. Sýningin tekur sér (ó)þægilega stöðu inni í maga dýrsins mikla og dregur fram skáldaðar minningar\, náttúru\, menningu\, útdauða\, sefandi sjálfshyggju — og skál fyrir heimi án okkar! \n\n\n\n\n\nÁgrip \n\nVerk Anna Reutinger seytla í gegnum trefjar einsemdarinnar og blanda félagslegum\, efnislegum og sögulegum augnablikum í margradda\, litríkar sögur. Með því að nýta notaðan vefnaðarvöru\, gler\, brotajárn\, náttúruleg litarefni\, aukaafurðir landbúnaðar\, félagsleg kynni og fjarlægar sögur\, rannsakar hún á verklegan hátt\, og undirstrikar handverk sem fræ fyrir félagslega\, efnislega og umhverfislega næmi. Hún býður öðrum inn í helli möguleika\, allt frá stórum innsetningum til leiklistarsmiðja og kvikmynda\, allt handsmíðað með það að markmiði að teygja magann í átt að rótakenndri sameiginlegri ímyndun. Hún er kennari við Dirty Art Department við Sandberg Instituut þar sem hún lauk einnig MA gráðu árið 2016. Þar á undan lauk hún BA gráðu í hönnunar\, miðlun og stafrænum hugvísindum við UCLA árið 2013. \n  \nBrák Jónsdóttir er starfandi myndlistarmaður á Íslandi. Hún útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar kanna þemu frá forsögu til ímyndaðrar framtíðar\, segja frá skálduðum atburðum sem blása lífi í útdauð dýr eða verur af öðrum heimi. Hún brúar bil þekkingar með goðsögum\, skapar tótemískar skúlptúrinnsetningar og kafar ofan í spennuna milli hins tilbúna og náttúrulega. Ef til vill hrollvekjandi við fyrstu sýn\, búa verk Brákar þó yfir blíðu\, næmni og húmor þar sem skynrænar tilgátur spretta upp úr staðreyndum. Dularfullar frásagnir í gegnum furðuleg vistkerfi\, kveikja tilvistarspurningar og bjóða áhorfendum að ígrunda leyndardóma lífsins. \n  \nHugo Llanes útskrifaðist frá MA í myndlist við Listaháskóla Íslands og er virkur meðlimur Artist in Iceland Visa Action Group. Hann hlaut nýverið tilnefningu PECDA (Young Creators fund Veracruz State) og er um þessar mundir staddur í Saari Residency Programe af KONE Foundation\, Finnlandi. Verk hans fela í sér rannsókn á félagspólitískum sprungum og þeirri fagurfræði sem brýst út úr þeim. Hann skoðar félagslegar aðstæður\, svo sem fólksflutninga\, dreifingu matar\, misbeitingu valds og áhrif síðnýlendustefnunnar á nýja sjálfsmynd Suður-Ameríku. Til að lýsa þessu notar hann listrænar rannsóknir og miðla eins og viðhaldslist\, gjörninga\, innsetningar\, staðbundna list\, þátttökulist\, vídeó og málverk. \n  \nFrá því að Sigurður Ámundason útskrifaðist úr Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2012\, hefur hann haldið tólf einkasýningar\, tekið þátt í fjölda samsýninga og flutt óteljandi gjörninga. Sigurður vinnur mest með teikningu og gjörninga en hefur notist við hina ýmsu listmiðla\, hvort sem um er að ræða skrif\, ljósmyndir\, innsetningar\, vídeó-verk\, skúlptúr eða bókverk. Sigurður hefur kennt í Myndlistarskólanum í Reyjavík og við Myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Árið 2020 hlaut hann tilnefningu til Hvatningarverðlauna Íslensku Myndlistarverðlaunanna Myndlist Sigurðar reynir að takast á við takmörk mannlegra samskipta og angist þeirri sem hlýst af óuppgerðum tilfinningum\, misskilningi og hégóma.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anna-reutinger-brak-jonsdottir-hugo-llanes-og-sigurdur-amundason-gottfaridillailla/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/64cb2d18-119b-49d5-bc6d-b3050aeef80c_Keiko-sling-purple-web.jpeg.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220529
DTEND;VALUE=DATE:20220916
DTSTAMP:20260530T040926
CREATED:20220530T164834Z
LAST-MODIFIED:20220916T105206Z
UID:23472-1653782400-1663286399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Brák Jónsdóttir: Sé (að Nýp)
DESCRIPTION:Ráfa\, horfa\, grípa\, krafsa\, skoða\, pota\, brenna\, grafa\, geyma\, nota. \nMeð verkinu Sé (að Nýp) vefur Brák Jónsdóttir saman þræði veruleika og ímyndunar við rannsókn á umhverfi sínu. \nVísanir verksins í heim vísinda\, safna\, geymslu og myndlistar varpa ljósi á dvöl listamannsins að Nýp í aðdraganda að vinnslu verksins. Gler spilar stórt hlutverk í innsetningunni; horft er inn um það\, út um það\, gegnum það. Áhorfandinn stendur andspænis þeim viðhorfum mannsins að meta náttúruna út frá sjálfum sér\, aðskilja sig frá henni\, fanga hana\, færa hana úr stað og laga að eigin afstöðu. \nBrák Jónsdóttir (f. 1996) er sjálfstætt starfandi myndlistarmaður og fjalla verkefni hennar um samband fólks og náttúru. Hún vinnur gjarnan með staði þar sem menning og náttúra mætast og valdið sem þar birtist. Brák dregst að hinu sjaldgæfa og hversdagslega í senn\, í anda arfleiðar Cabinets of curiosities. Það birtist í áhuga hennar á því sem er einstakt hvað varðar áferð og lit\, því sem er dularfullt og tengist jafnvel hinu yfirnáttúrulega.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/brak-jonsdottir-se-ad-nyp/
LOCATION:Nýp Project Space\, Guesthouse Nýp\, Skardsströnd\, 371\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/284706988_1949665458563965_4958564788405034537_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220521
DTEND;VALUE=DATE:20220711
DTSTAMP:20260530T040926
CREATED:20220525T175220Z
LAST-MODIFIED:20220916T104345Z
UID:23385-1653091200-1657497599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Brák Jónsdóttir: Dýpra
DESCRIPTION:Á sýningunni Dýpra | Deeper kannar Brák snertifleti blætismenningar og garðyrkju\, manns og náttúru\, sársauka og unaðar. Í þeim tilgangi að nálgast náttúruna á hátt sem ögrar hefðbundnum hugmyndum um hvernig menning og náttúra mætast. Sýningin byggir á rannsókn listamannsins á sambandi líkama og gróðurs. Brák leikur sér að hugmyndum garðyrkjunnar um beislun náttúrunnar innandyra en sýningin teygir anga sína einnig út í garð\, á sameiginlegt yfirráða svæði manns og náttúru. Inni hanga ýmis verkfæri\, eða eru þetta leikföng? Hvort þau eru ætluð til ástarleikja eða garðyrkju er erfitt að sjá\, enda þarf annað ef til vill ekki að útiloka hitt. Í garðinum hefur einhver verið iðin í beðinu og nú virðist blómgun hafa átt sér stað og kynlegur ávinningur ætlar að verða af því. \nÍ ferli listamannsins er jörðin í hlutverki þess undirgefna í leik þar sem garðyrkjumaðurinn gælir við mörk hennar. Leikvangurinn er skapaður á forsendum hins undirgefna en reglurnar eru settar af drottnaranum. Af ástríðu leitast listamaðurinn við að komast dýpra\, dýpra í jörðina. Þetta valdatafl byggir á ábyrgð\, nánd og virðingu sem felur í sér umhyggju í garð viðfangsins. Roðandi spenna myndast við leikinn þegar mörk beggja eru þanin til hins ýtrasta. \nSú blætismenning sem Brák sækir til býr yfir gildishlaðinni fagurfræði og myndmáli sem er til grundvallar þess að virkja minni gróðurhússins og framkalla spennu. Holdleg rannsóknin ber af sér niðurstöður sem ögra ef til vill hefðbundnum hugmyndum um nánd og samband manns við náttúru. Með þeim afleiðingum að mörkin á milli líkama og umhverfi hans verða óljósari. Á sýningunni Dýpra | Deeper eru ýmsar vísbendingar um þessar niðurstöður en hún skilur eftir eyður fyrir áhorfandann til að fylla inn í. Þannig gerir hún kröfu til hans um að horfast í augu við eigin hugmyndir og velta fyrir sér forsendum þeirra. \nTextann skrifaði: Odda Júlía Snorradóttir \nBrák Jónsdóttir er fædd árið 1996. Hún útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar taka helst á sig form vídjóverks\, bókverks\, skúlptúrs og gjörnings\, en nýverið hafa viðfangsefni hennar snúið að sambandi manneskju við náttúru. Í rannsóknum sínum nálgast hún kink og blæti og skoðar samband mannfólks og náttúrulegra kerfa á grundvelli yfirráða og undirgefni\, fantasíu og femínisma.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/brak-jonsdottir-deeper/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/282557971_1706120563062519_6746413123009176471_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220326
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T040926
CREATED:20220503T142234Z
LAST-MODIFIED:20220525T140014Z
UID:23067-1648252800-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Alter/Breyta
DESCRIPTION:Sýningin Alter / Breyta er samsýning fjögurra upprennandi myndlistarmanna sem eiga það sameiginlegt að hafa tiltölulega nýlega lokið námi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Hópurinn var valinn í samvinnu með Bjarka Bragasyni\, deildarforseta Myndlistardeildar LHÍ\, og boðið að dvelja í þriggja vikna vinnustofudvöl í Skaftfelli þar sem þau fengu næði til að þróa tillögur sínar fyrir sýninguna. Þau vinna öll með ólíkar áherslur en þó er hægt að greina fíngerðan þráð sem býr til óræða tengingu á milli verka þeirra. \nEinhvers konar umbreyting hefur átt sér stað eða er gerð að útgangspunkti eða viðfangsefni á sýningunni. Ólíkum efniviði og hugmyndum er hnikað til: Hæglátt og lágstemmt ferlið\, natnin og endurtekningin sem umbreytir hversdagslegum hlutum þegar þeir eru teknir úr fyrra samhengi og taka á sig nýja mynd. \nVerkið Fallen\, eftir Joe Keys er samansafn smágerðra og litríkra hluta sem við gefum venjulega ekki mikinn gaum. Þeir hafa týnst og tapað sínu upprunalega hlutverki en í krafti fjöldans og með því að stilla hverjum og einum þeirra vandlega upp á sinni hillu\, hljóta þeir fyrir vikið ákveðna upphefð. Áhorfandinn er tilneyddur að beygja sig til að skoða þá betur. \nInnsetning og gjörningur/fyrirlestur Hugos Llanes hverfist um brauð og menningarlegan hverfulleika þess. Hér er okkur boðið að skilja pólitíska tilveru brauðs allt frá því að vera hefðbundin næring yfir í gildishlaðna\, iðnvædda vöru þar sem hráefnið gefur vísbendingar um samfélagsstöðu okkar. Brauðgómarnir skapa eins konar líkamlega nærveru listamannsins og er afurð gjörnings um leið og listamaðurinn býður áhorfendum upp á sammanlega upplifun með því að búa til sinn eigin brauðgóm sem verður hluti af sýningunni. Með skúlptúrnum “…gives me sleepless nights…” er sett fram teiknimyndapersóna sem hægt er að skilja sem dæmisögu um hvernig ávani og þráhyggja mannsins um matvæli er kaffært með kapítalískum varningi. \nVerk Brákar Jónsdóttur\, Daphne\, hangir tíguglega og friðsælt. Það er unnið út frá goðsögunni um umbreytingu Daphnes í lárviðartré til að flýja ofbeldisfullt áreiti Apollo. Trjágreinarnar mynda saman sterkbyggða grind en hafa verið sviptar sínu ytra klæði\, berkinum\, sem hlífir trénu. Berskjaldaður innsti kjarninn stendur eftir og þar getum við speglað okkur og getum jafnvel skyggnst inn í ókomna framtíð. \nHugmyndin um heilagleika og heimili er tvinnað saman í innsetningu Nínu Óskarsdóttur. Fallegir skrautmunir og hlutir sem tengjast handverki og heimili snerta á listrænni sköpun og persónulega rýminu en njóta á sama tíma upphefðar eins íkon á altari. Greinanleg fingraför listamannsinns í leirnum sanna aðkomu hennar að verkinu en helgidómur vígða vatnsins er okkur ósýnilegur. Hvernig er hægt að kalla fram heilagleika? \nTexti: Hanna Christel Sigurkarlsdóttir \nÆviágrip: \nBrák Jónsdóttir er fædd árið 1996. Hún útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar taka helst á sig form vídjóverks\, bókverks\, skúlptúrs og gjörnings\, en nýverið hafa viðfangsefni hennar snúið að sambandi manneskju við náttúru. Í rannsóknum sínum nálgast hún kink og blæti og skoðar samband mannfólks og náttúrulegra kerfa á grundvelli yfirráða og undirgefni\, fantasíu og femínisma. Verk hennar samanstanda af roðandi spennu milli sársauka og unaðar\, náttúrulegra og manngerðra efna. \nHugo Llanes er fæddur 1990 í Xalapa\, Veracruz í Mexíkó. Hann býr og starfar í Reykjavík og útskrifaðist með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020. Hugo vinnur með pólitíska og félagslega bresti og fagurfræðina sem af því sprettur. Verk hans eru í formi málverka\, ætilegra verka\, innsetninga\, rýmistengdra verka og staðbundinna gjörninga. Með verkum sínum skoðar hann félagslegar aðstæður\, s.s. flutning fólks á milli landa\, valdbeitingu og áhrifa síðnýlendustefnunar á þróun sjálfsmyndar Rómönsku Ameríku\, stöðu sjálfstæðrar þjóðar\, annarleika og pólitíska andspyrnu\, auk þess sem hann vinnur með þema matar sem ádeilu á félagsleg vandamál og skoðar hvaða þýðingu upplifun okkar í gegnum matargerð hefur. Með ljóðrænni framsetningu verka sinni sér hann fram á mögulegan vettvang til að kryfja til mergjar þessi samofnu flóknu og krefjandi viðhorf. Hugo álítur að hið persónulega míkrókerfi sé berskjaldað gagnvart hinu hnattræna og með framsetningu sinni reynir hann að hvetja áhorfandann til þátttöku og íhugunar. \nJoe Keys er fæddur árið 1995 í Newcastle\, Englandi. Hann hefur búið og starfað á Íslandi síðan 2018 og útskrifaðist úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Joe vinnur aðallega með fundið efni í formi skúlptúra og prentverka. Verkin hans endurspegla kerfi úr daglegu lífi með þurri kímnigáfu og hugleiðingar um hluti sem við vanmetum og látum alla jafna framhjá okkur fara. Joe starfar sem umsjónarmaður prentverkstæðis í Listaháskóla Íslands og er félagi í samrekna prentverkstæðinu Prent & vinir í Laugardal\, Reykjavík. \nNína Óskarsdóttir er fædd árið 1986. Hún útskrifaðist með MA gráðu í myndlist árið 2020 frá Listaháskóla Íslands þar sem hún kláraði einnig BA nám sitt í myndlist 2014. Nína vinnur með skúlptúr og innsetningar og verk hennar einkennast af efniskennd sinni. Hún notar efni á borð við leir\, textíl og ljós sem kallast á við hverfulan efnivið á borð við vatn\, eld eða matvæli. Nína vinnur með óefnisbundnar hugmyndir\, svo sem heilagleika\, minningar og sjálfsmynd\, og gerir tilraunir til að koma þeim í efnislega mynd. Nína hefur tekið þátt í fjölda sýningarverkefna bæði hérlendis og í Evrópu sem og unnið að listrannsóknum sínum í gegn um vinnustofudvalir og rannsóknarstyrki.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/alter-breyta/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/Alter_Breyta_WebBanner@2x-840x320-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211025
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T040926
CREATED:20211019T141710Z
LAST-MODIFIED:20220825T133615Z
UID:19761-1635120000-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SKAFL
DESCRIPTION:25. – 31. okt. Skafl.\nListasmiðjan SKAFL fer fram í Alþýðuhúsinu á Siglufirði í þriðja sinn með þátttöku listamanna með ólíkan bakgrunn í listum og nú í samstarfi vð Ljósastöðina. Fólk kemur saman víða að og vinnur í frjálsu flæði og þvert á listgreinar í nokkra daga. Smiðjan er hugsuð sem tilraunasmiðja og verða því ekki endilega til fullmótuð verk eða hugmyndir á vinnutímanum. Mikilvægast er samtalið og samvera listamannana og samskipti við bæjarbúa. Smiðjan er opin þannig að gestir eru velkomnir að kíkja við í miðdegiskaffi í spjall og hugmyndaflæði við eldhúsborðið. \nÁ Skaflinum verða skipulagðir viðburðir sem hefjast miðvikudaginn 27. okt. kl. 17.00 með fyrirlestri Lefteris Yakoumakis um myndasögur. Ath. ekki ætlað börnum.\nFöstudagskvöldið 29. okt. kl. 20.00 verður Hljómsveitin ADHD með tónleika í Alþýðuhúsinu. Á efnisskrá tónleikanna verða lög\, sum glæný\, önnur eldri\, sum alveg hundgömul. Meðlimir ADHD eru\, Óskar Guðjónsson sem leikur á saxófón\, gítarleikarinn Ómar Guðjónsson\, Tómas Jónsson leikur á píanó og trommuleikarinn Magnús Trygvason Eliassen.\nLaugardaginn 30. okt. kl. 14.00 opnar Erla Þórarinsdóttir sýningu í Kompunni\, Alþýðuhúsinu. Erla sýnir teikningar frá undanförnum tveimur árum\, allar teiknaðar á Íslandi. Þetta eru lúpur; einlínur í þrívídd\, leikur og leit\, ritblý og strokur\, einfalt og flókið\, sameiginlegt og prívat. Ástand og ákall eftir nýrri framtíð\, alheimssýn og ósk um póesíu.\nLaugardaginn 30. okt. kl. 15.30 og kl. 21.00 verður uppákoma á vegum þátttakenda í Skafli. Mæting í Alþýðuhúsinu og síðan lagt í óvissuferð. \nUppbyggingasjóður\, Fjallabyggð\, Aðalbakarí og Rammi hf. styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. \nÞátttakendur eru.\nGuðjón Ketilsson\, myndlistamaður\nSigga Björg Sigurðardóttir\, myndlistamaður\nKristín Svava Tómasdóttir\, ljóðskáld\nTómas R. Einarsson\, tónlistamaður\nFritz Hendrik IV\, myndlistamaður\nErla Þórarinsdóttir\, myndlistamaður\nAðalheiður S. Eysteinsdóttir\, myndlistamaður\nArnljótur Sigurðsson\, Tónlist-ljóð- myndlistamaður\nBrák Jónsdóttir\, myndlistamaður\nJ Pasila\, myndlistamaður\nLefteris Yakoumakis\, ljóð – myndlistamaður\nHelena Stefáns Magneudóttir \, kvikmyndagerðarkona\nRodrigo Lopes\, Tónlistamaður\nÖrlygur Kristfinnsson\, myndlistamaður og rithöfundur og kvæðamaður.\nJón Proppé\, listfræðingur\nLydia Athanasopoulou – Skrásetning\nHekla Björt Helgadóttir\, ljóð-tónlist-myndlistamaður\nArnar Steinn Friðbjarnarson\, tónlist-myndlist- kvikmyndagerðamaður\nADHD\, hljómsveit\nHægt verður að fylgjast með framgangi smiðjunnar á facebook síðu Alþýðuhússins.\nViðburðirnir eru öllum opnir og tekið verður við frjálsum framlögum við innganginn. \nListamenn á Skafli 2021\nTómas R. Einarsson kontrabassaleikari og tónskáld. Hefur gefið út hátt í þrjá tugi platna með frumsaminni djass og latíntónlist. Hún hefur verið útsett fyrir stórsveitir og kóra\, endurhljóðblönduð og valin á alþjóðlega safndiska. Hann hefur oft verið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna og hlotið þau í allnokkur skipti. Þrjár nótnabækur hafa komið út með tónsmíðum hans. Árið 2015 var frumsýnd\nheimildarmyndin Latínbóndinn\, um feril hans og latíntónlist. Þá hlaut hann riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 2014 fyrir framlag sitt til djasstónlistar og menningarlífs. Fjórir latíndiskar hans hafa verið nefndir í hópi bestu latínplatna viðkomandi árs í erlendum tónlistartímaritum. Dúódiskur hans og Eyþórs Gunnarssonar\, Innst inni (2017) hlaut afar lofsamalega dóma erlendra djassgagnrýnenda og Gangandi bassi (2019) var kjörin plata ársins í Djass og blúsflokki Íslensku tónlistarverðlaunanna. Tónleikaplatan Latínball í Búðardal kom út 2020 og í haust kom út platan Ávarp undan sænginni\, þar sem Ragnhildur Gísladóttir syngur tíu lög hans.\n\nHekla Björt Helgadóttir vinnur jöfnum höndum sem myndlistarmaður og skáld og hefur fundið verkum sínum titilinn: þrívíð ljóð. Verk hennar leitast oft í að samþætta marga ólíka miðla í senn og eru gjarnan undir sterkum áhrifum frá leikhúsi\, gjörningalist og tónlist. Dimm baðherbergi\, salt og Stalínismi er meðal þess helsta sem ratað hefur í verk Heklu að undanförnu og leiðir hennar eru einlægar\, hnyttnar og draumkenndar.\nHekla hefur sett upp þónokkrar einkasýningar og samsýningar\, og um þessar mundir er einmitt yfirstandandi einkasýning hennar á Listasafninu á Akureyri: Villijóð. Auk þess að vera sjálfstætt starfandi myndlistarmaður og skáld fæst Hekla einnig við tilraunakennda tónlist og gjörninga undir listamannanafninu Honey Rotten. Þar að auki er hún ein af stofnendum listahópsins og viðburðarýmisins Kaktus á Akureyri þar sem hún gegnir hlutverki formanns og sýningarstjóra í dag.\n\nÖrlygur Kristfinnsson. Nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1969-73. Myndlistarkennsla\, aðallega við Grunnskóla Siglufjarðar 1975-1996. Hefur haldið allmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á Siglufirði og víðar á árunum 1977-2020. Safnstjóri og sýningahönnuður á Síldarminjasafni Íslands 1996-2016. Hefur unnið að endurgerð gamalla húsa og rekur sýningarsal í einu slíku: Söluturninum Siglufirði. Þá hefur hann skrifað þrjár bækur: Svipmyndir úr síldarbæ I og II og Sögu úr síldarfirði\, sem skreytt er fjölda vatnslitamynda.\n\nADHD\nÞrátt fyrir undarlegt ástand síðustu misseri\, þá hafa þeir félagar í ADHD þó ekki setið auðum höndum\, hafa m.a. tekið upp nýtt efni á tilvonandi plötu\, ADHD 8\, og spilað á nokkrum tónleikum\, nú síðast í Hörpu sem hluti af vetrardagskrá jazzklúbbsins Múlinn. Á efnisskrá tónleikanna verða lög\, sum glæný\, önnur eldri\, sum alveg hundgömul. Meðlimir ADHD eru\, Óskar Guðjónsson sem leikur á saxófón\, gítarleikarinn Ómar Guðjónsson\, Tómas Jónsson leikur á píanó og trommuleikarinn Magnús Trygvason Eliassen.\n\n\nGuðjón Ketilsson (f. 1956) býr og starfar í Reykjavík. Hann stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Nova Scotia College of Art and Design í Kanada.\nGuðjón hefur frá upphafi unnið í margvíslegan efnivið – jöfnum höndum með eigið handverk\, málverk\, teikningar\, leir\, keramik og fundna hluti sem oft hafa persónulega þýðingu fyrir hann – efnisval hverju sinni ræðst af inntaki verkanna.\nÍ verkum Guðjóns skipar fortíð efnisins iðulega stóran sess. Ólíkar vísanir í líf fólks og sögu. Það má segja að mörg verka hans vísi inn á við. Þau beina athygli okkar að efninu og hinu efnislega umhverfi. Hann vinnur oft með hluti sem hann tekur úr upprunalegu samhengi sínu og setur í nýtt.buy antabuse online https://blackmenheal.org/wp-content/languages/new/uk/antabuse.html no prescription\n Úr fundnum hlutum má lesa ýmis skilaboð sem öðlast merkingu eftir samhengi þeirra.\nGuðjón hefur haldið yfir þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga á Íslandi og í Evrópu\, Bandaríkjunum\, Kína og Ástralíu. Verk Guðjóns eru í eigu allra helstu listasafna á Íslandi\, svo og nokkurra erlendis. Auk þess að vera boðið að vinna að list sinni á ýmsum alþjóðlegum vinnustofum\, hefur hann verið valinn til þátttöku í samkeppnum um gerð listaverka í opinberu rými og má sjá verk hans í opinberu rými í Reykjavík og á Seyðisfirði.\nGuðjón hlaut Menningarverðlaun DV árið 2000 og verðlaun Listasafns Einars Jónssonar árið 1998. Guðjón Ketilsson hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin 2020 fyrir einkasýningu sína „Teikn“ í Listasafni Reykjaness frá Myndlistaráði Íslands.\n\n\nKristín Svava Tómasdóttir hefur tekið virkan þátt í íslensku ljóðalífi frá unga aldri og sent frá sér fjórar ljóðabækur\, síðast Hetjusögur sem hlaut Fjöruverðlaunin í flokki fagurbókmennta árið 2020. Ljóðabók hennar Stormviðvörun kom út í Bandaríkjunum undir titlinum Stormwarning árið 2018 í þýðingu K.B. Thors\, sem vinnur nú einnig að enskri þýðingu á Hetjusögum. Kristín Svava var einn af ritstjórum ljóðabókaseríunnar Meðgönguljóða. Haustið 2021 gegnir hún starfi Jónasar Hallgrímssonar í ritlist við Háskóla Íslands.\nAuk þess að vera ljóðskáld er Kristín Svava er sjálfstætt starfandi sagnfræðingur og hefur sent frá sér bókina Stund klámsins: Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar\, sem hlaut Viðurkenningu Hagþenkis árið 2018. Hún er einn af höfundum bókarinnar Konur sem kjósa: Aldarsaga\, sem hlaut Fjöruverðlaunin í flokki fræðibóka árið 2020\, en vinnur nú að bók um sögu Farsóttahússins við Þingholtsstræti 25 í Reykjavík.\n\nErla Þórarinsdóttir nam við Konstfack í Stokkhólmi og Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam. Hún hefur starfað á Norðurlöndunum\, í New York um tíma og einnig dvalið í Kína og á að baki fjölda einkasýninga og samsýninga hérlendis og erlendis. Verk eftir Erlu eru í eigu hestu safna landsins. Hún hefur hlotið styrki og viðurkenningar fyrir störf sín\, m.a. Unnið samkeppni um verk fyrir Ráðhús Reykjavíkur og hefur tvisvar fengið styrk úr sjóði Pollock-Krasner Foundation.\n\nLefteris Yakoumakis (pronounced Jakúmakis) was born in Athens\, Greece in 1984. In 2008 he graduated from the Aristotle University of Thessaloniki with a Masters in Fine Arts\, specializing in painting. He has participated in over a dozen solo and group exhibitions in Greece\, Iceland and the US. He has done art residencies in Siglufjörður\, Amsterdam and Kansas City. Starting out with large-scale oil and acrylics on canvas paintings\, inspired by New Objectivity\, Pop Art and younger Pop Surrealism\, he later moved to smaller works\, often black and white\, using markers and brush markers\, its later phase combining digital colour with traditional ink. Since 2017\, he has focused on the creation of comics\, writing and self-publishing\, while also drawing on found trash of varying size\, which he abandoned upon completion.\n\nHelena Stefáns Magneudóttir er kvikmyndaleikstjóri og vídeólistakona.\nHún stundaði nám í leikist og leikstjórn í París\, lauk BA námi í heimspeki og frönskum bókmenntum frá HÍ og útskrifaðist að lokum með MFA gráðu frá Valand School of Fine arts árið 2012.\nHelena hefur frá árinu 2000 stundað kvikmyndagerð og listsköpun\, en hún hefur leikstýrt fjölda stutt- og heimildamynda auk þess að vinna vídeóverk fyrir ýmsa viðburði\, leikhús\, sýningar og fleira.\n\nLydia Athanasopoulou graduated from the American College of Greece with a BA in Media Communications and a minor in Sociology. She has been working in the music and media industry for over a decade\, from record shops and booking music festivals in Athens\, Greece to vinyl record distribution and magazine editing in San Francisco. She has written extensively on music\, feminism\, subcultures and travel\, and has been coordinator for a number of publications\, vinyl compilations\, exhibitions and workshops. She is currently a radio producer and DJ for two online music stations and is working on her next musique concrète sound project.\n\nJ Pasila hefur sýnt verk sín bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Í New York hafa sýningar hennar meðal annars farið fram í Plane Space Gallery\, Momenta\, og The Carriage Trade Gallery. Í Evrópu hefur hún sett upp sýningar í Apollohuis í Eindhoven Hollandi\, Waterfront Gallery í Gent í Belgíu og á Siglufirði. Verk hennar voru valin af\nRobert Storr fyrir 44. National Chatauqa sýninguna á amerískri list. Þá hefur hún tekið þátt í sýningu “dust” ljósmyndasafnsins í Pompidou safninu í París frá október 2020 til mars 2021. Þá hefur J hlotið styrki og verðlaun frá Elizabeth Foundation\, Sambandi íslenskra myndlistarmanna og Mustarinda félaginu í Finnlandi – og tvisvar dvalið í McDowell Colony\, NH.\nJ Pasila útskrifaðist frá Ontario College of Art í Toronto. Hélt áfram námi í vídeolistadeild og arkitektúr við Listaháskólann í Dusseldorf. Á námsárum sínum í Þýskalandi stundaði hún rannsóknar- og þróunarvinnu með OMA\, Christopher Alexander og CRATerre fyrir skapandi heimildarmyndina A sense of place. J dvelur ýmist í Brooklyn\, New York\, eða á Siglufirði.\n\nRodrigo Lopes er tónlistarkennari í þremur tónlistarskólum\, á Akureyri\, Fjallabyggð og við Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Þar kennir hann trommu- og slagverksleik. Sem tónlistarmaður er Rodrigo Lopes fjölhæfur en mesta rækt hefur hann lagt við ýmis afbrigði af tónlist Rómönsku Ameríku.\n\nSigga Björg Sigurðardóttir (1977) útskrifaðist úr Myndlistadeild LHÍ árið 2001. Eftir útskrift fluttist Sigga Björg til Glasgow í Skotlandi þar sem hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá The Glasgow School of Art árið 2004. Síðan þá hefur hún sýnt í söfnum og galleríum víða um heim. Af einkasýningum má nefna Kling og Bang gallerí (Reykjavík)\, Teckningsmuseet (Svíþjóð)\, Hafnarborg (Hafnarfjörður)\,Yancey Richardsson gallerí (New York)\, Galerie Adler (Frankfurt) ofl. Af samsýningum má nefna Nordiska Akvarellmuseet (Svíþjóð)\, CCA (Center for Contemporary Art\, Glasgow)\, Göteborgs Konsthall (Svíþjóð) ofl. Verk Siggu Bjargar er að finna í mörgum opinberum söfnum hérlendis og erlendis eins og Listasafni Reykjavíkur\, Listasafni Íslands\, Hafnarborg\, Nordiska Akvarellmuseet (Svíþjóð)\, Zabludowicz Art Trust (London) ofl.\n\nNám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1969-73. Myndlistarkennsla\, aðallega við Grunnskóla Siglufjarðar 1975-1996. Hefur haldið allmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á Siglufirði og víðar á árunum 1977-2020. Safnstjóri og sýningahönnuður á Síldarminjasafni Íslands 1996-2016. Hefur unnið að endurgerð gamalla húsa og rekur sýningarsal í einu slíku: Söluturninum Siglufirði. Þá hefur hann skrifað þrjár bækur: Svipmyndir úr síldarbæ I og II og Sögu úr síldarfirði\, sem skreytt er fjölda vatnslitamynda.\n\nBrák Jónsdóttir (f. 1996) er sjálfstætt starfandi myndlistarmaður. Verk hennar taka helst á sig form vídjóverks\, bókverks\, skúlptúrs og gjörnings\, en nýverið hafa viðfangsefni hennar snúið að sambandi manneskjunnar við náttúruna. Brák útskrifaðist með BA gráðu af myndlistarbraut Listaháskóla Íslands árið 2021 en hún nam einnig myndlist í Lista-akademíunni í Aþenu (ASFA).\nÁsamt því að hafa reynslu að fjölbreyttum verkefnum\ní samstarfi við aðra listamenn í Evrópu þá hefur hún tekið þátt í fjölda skapandi smiðja\, og reglulega sýnt myndlist sína frá árinu 2015. Brák er ein stofnenda viðburðarýmisins Kaktus á Akureyri og hefur staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum þar og í Alþýðuhúsinu\ná Siglufirði sem er hennar annað heimili og vinnustofa\, auk þess að vera mikilvægur vettvangur til að kynnast og starfa með öðrum listamönnum.\nÍ rannsóknum sínum nálgast Brák gjarnan kink og blæti\nog skoðar samband mannfólks og náttúrulegra kerfa\ná grundvelli yfirráða og undirgefni\, berskjöldunar og trausts. Verk hennar samanstanda af roðandi spennu milli sársauka og unaðar\, náttúrulegra og manngerðra efna. „Ég\nleita gjarnan leiða til að vera ein með veröldinni og finn hana stundum í glufunni á milli þess ímyndaða og raunverulega\, með því að flétta saman gáttir veruleika og fantasíu.“\n\nFritz Hendrik IV (f. 1993) er íslenskur myndlistamaður sem að býr og starfar í Reykjavík. Í myndlist sinni fjallar hann m.a. um þá meðvituðu og ómeðvituðu sviðsetningu sem einkennir lífið\, listir og menningu. Fritz fæst einnig við samband hefðar\, skynjunar og þekkingar í verkum sínum. Hvað vitum við\, hvernig vitum við\, og hvað er það sem við erum að horfa á? Fritz hefur meðal annars haldið einkasýningar í Kling og Bang og Ásmundarssal auk þess að hafa tekið þátt í samsýningum á borð við Tilvist mansins: skyssa að íslenskri samtímalistasögu (III) í Listasafni Reykjavíkur og Abracadabra\, Moscow biennale for young art í Rússlandi. Verk Fritz eru í eigu fjölda einkaaðila og safnara sem og Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur.\n\n\nArnar Steinn Friðbjarnarson hefur unnið í kvikmyndagerð frá unglingsaldri. Hann er menntaður í kvikmyndagerð margmiðlun og þrívíddargrafík\, með MFA í Myndlist með áherslu á stafræna miðla auk þess að vera með listkennsluréttindi frá LHÍ.\nArnar hefur unnið sem þrívíddarhönnuður\, við eftirvinnslu kvikmynda og við hönnun myndbanda fyrir leikhús\, tónleika og Óperur. Hann hefur sýnt videoverk sín í San Fransiskó\, Gautaborg\, Reykjavík og á Siglufirði. Arnar hefur auk þess unnið mikið með raftónlistarmanninum Einari Indra við gerð videoverka fyrir tónleika í ýmsum löndum.\nArnar starfar sem þrívíddarhönnuður hjá Verkstæðinu ehf\, sem sérhæfir sig í leikmyndum fyrir kvikmyndir\, söfnum og viðburðum. Auk þess kennir hann kvikmyndagerð og sinnir kvikmyndagerðinni\, Undraland kvikmyndum\, sem hann rekur með konu sinni\, Helenu G. S. Magneudóttur.\n\n\nArnljótur Sigurðsson (f.1987) listamaður lifir og starfar í Reykjavík. Hann hefur komið nálægt ýmsum ólíkum geirum og stílum tónlistar og leikur á ýmisskonar hljóðfæri. Hann var prímus mótor í hljómsveitinni Ojba Rasta en hefur einnig verið hliðarmaður í ótal öðrum og komið fram á tónleikum í fjórum heimsálfum. Undanfarið hefur hann svo starfað sem einyrki í raftónlistarverkefninu Kraftgalli og hefur tónlist hans verið gefin út hjá hfn music\, SMIT Records og One Little Indian auk sjálfstæðrar útgáfu. Nýrri plötu er svo að vænta frá honum hvað og hverju. Kraftgalli var tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir lagið Rússíbani í flokknum raftónlistarlag ársins. Arnljótur er einnig mikill áhugamaður um tungumál og ljóðagerð\, en hann leikur sér með orð daginn út og inn ef skáklistin eða myndlistin nær ekki að fylla tómstundirnar.\n\nAðalheiður S. Eysteinsdóttir fæddist á Siglufirði 23.júní 1963 og bjó þar til 1986\, þá fluttist hún til Akureyrar. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 1989-93 og hefur síðan unnið ýmis störf á sviði myndlistar ásamt því að vera athafnasamur myndlistamaður. Aðalheiður starfrækti Kompuna\, gallerí á Akureyri í 8 ár\, tók virkan þátt í uppbyggingu “Listagilsins” á Akureyri og er einn af stofnenda Verksmiðjunar á Hjalteyri. Hún hefur verið í sýningarnefnd Skaftfells á Seyðisfirð\, gjaldkeri Gilfélagsins á Akureyri og varaformaður Myndlistafélagsins á Akureyri. Aðalheiður er félagi í Sím og Myndhöggvarafélaginu. Árið 2000 var hún útnefnd Bæjarlistamaður Akureyrar og sama ár hóf hún þátttöku í Dieter Roth akademíunni. Aðalheiður hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun ríkisins. Í desember 2011 keypti Aðalheiður Alþýðuhúsið á Siglufirði og hefur komið upp vinnustofu þar. Einnig stendur hún fyrir mánaðlegum menningarviðburðum og hefur endurvakið Kompuna í litlu rými þar. Aðalheiður hlaut menningarverðlaun DV árið 2015 og var tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2017 og 2020 fyrir starfið í Alþýðuhúsinu. Vinnustofa og heimili Aðalheiðar er í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og í Freyjulundi\, 601 Akureyri.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/skafl/
LOCATION:Alþýðuhúsið / Kompan\, Þormóðsgata 13\, Siglufjörður\, 580\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/sKAFL.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211007
DTEND;VALUE=DATE:20211011
DTSTAMP:20260530T040926
CREATED:20210913T115317Z
LAST-MODIFIED:20220916T111508Z
UID:19073-1633564800-1633910399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:A! Gjörningahátíð
DESCRIPTION:A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega\, nú í sjöunda sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri\, Leikfélags Akureyrar\, Menningarhússins Hofs\, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar\, Gilfélagsins\, \nListnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. \nFjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur A! Gjörningahátíðar eru ungir og upprennandi listamenn\, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og leikhúsfólki. Á meðal þeirra sem komið hafa fram á A! eru Magnús Pálsson\, Aðalheiður S. Eysteinsdóttir\, Rúrí\, Theatre Replacement\, Hekla Björt Helgadóttir\, Drengurinn Fengurinn\, Anna Richardsdóttir\, Halldór Ásgeirsson og Tales Frey. \nListamennirnir sem koma fram í ár eru: Thora Solveig Bergsteinsdóttir og Liv Nome\, Anna Richardsdóttir\, Egill Logi Jónasson\, Sigtryggur Berg Sigmundsson\, Snorri Ásmundsson\, Brák Jónsdóttir\, Steinunn Aragrúadóttir\, Elisabeth Raymond\, Amber Smits og Niklas Niki Blomberg\, Hombre Rural og Libia Castro og Ólafur Ólafsson. \nSamhliða A! fer vídeólistahátíðin Heim fram auk viðburða utan dagskrár (off venue). \nDagskrá.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-gjorningahatid/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/a-festival.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210529
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T040926
CREATED:20210831T153723Z
LAST-MODIFIED:20220916T105958Z
UID:18897-1622246400-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Takmarkanir
DESCRIPTION:Samsýning norðlenskra myndlistarmanna \nÞetta er í fjórða sinn sem tvíæringur\, sýning á verkum norðlenskra listamanna\, er haldinn í Listasafninu á Akureyri. Að þessu sinni var unnið út frá þemanu takmarkanir\, sem er augljóslega bein tilvísun í ástandið í heiminum þessi misserin. Listasafnið auglýsti eftir umsóknum um þátttöku í sýningunni og dómnefnd valdi verk eftir 17 ólíka listamenn af þeim 44 sem sóttu um. \nDómnefndina skipuðu Haraldur Ingi Haraldsson\, myndlistarmaður og verkefnastjóri Listasafnsins\, Hlynur Hallsson\, safnstjóri\, og Vigdís Rún Jónsdóttir\, listfræðingur. Titillinn Takmarkanir er misjafnlega augljós í verkunum en sum þeirra voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna. Listræn túlkun á hugtakinu takmarkanir getur svo auðvitað verið afar fjölbreytt. \nGefin er út sýningarskrá og er áhugavert að bera saman sýningarskrár fyrri sýninga til að sjá hvaða þróun er í verkum norðlenskra listamanna og hvort einhver rauður þráður leynist þar. Markmiðið er vissulega að sýna þá fjölbreytni í efnistökum\, aðferðum og hugmyndum sem listamenn af svæðinu eru að fást við hverju sinni. \nJón B. K. Ransu\, myndlistarmaður og fræðirithöfundur\, skrifar í inngangi í sýningarskránni: „Sýningin ber titilinn Takmarkanir og fer fram þegar heimsfaraldur hefur geisað í á annað ár. Á þeim tíma hefur hugtakið „takmörkun“ öðlast áþreifanlega merkingu þar sem fjöldatakmarkanir\, nándartakmarkanir og samkomutakmarkanir hafa haft mótandi áhrif á daglegt líf manna. Yfirskrift sýningarinnar vísar þannig til ástands sem hefur skapast vegna heimsfaraldursins en hún leikur líka með hugtakið vegna þess að þemasýningar eru í eðli sínu takmarkaðar. Við getum til að mynda sagt að val listaverka úr umsóknum listamanna byggi á ákveðinni takmörkun og að listamenn merktir svæði eða landshluta sé takmörkun í sjálfu sér.“ \nSýningunni Takmarkanir er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar almennt. Tvíæringurinn getur\, ef vel tekst til\, orðið grunnur rannsókna og sköpunar á sviði myndlistar og um leið hvatning og tækifæri. \nSýningin er ein af sumarsýningum safnsins því eftirspurn er meðal ferðamanna\, innlendra og erlendra\, eftir myndlist af svæðinu. Safnaráð styrkir sýninguna sérstaklega. \nListamenn: \nAðalheiður S. Eysteinsdóttir (1963)\nAuður Lóa Guðnadóttir (1993)\nÁrni Jónsson (1989)\nBergþór Morthens (1979)\nBrák Jónsdóttir (1996)\nEgill Logi Jónasson (1989)\nGuðmundur Ármann Sigurjónsson (1944)\nHekla Björt Helgadóttir (1985)\nHrefna Harðardóttir (1954)\nÍris Ólöf Sigurjónsdóttir (1958)\nJonna – Jónborg Sigurðardóttir (1966)\nJoris Rademaker (1958)\nJón Laxdal Halldórsson (1950)\nMaría Sigríður Jónsdóttir (1969)\nSigurður Mar Halldórsson (1964)\nStefán Boulter (1970)\nTanja Stefanovic (1985) \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/takmarkanir/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/bergthor-morthens-sumarnott-2021-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR