BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220507
DTEND;VALUE=DATE:20220801
DTSTAMP:20260530T073257
CREATED:20220505T151042Z
LAST-MODIFIED:20220803T155603Z
UID:23174-1651881600-1659311999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Tilraun – Æðarrækt
DESCRIPTION:Þverfagleg sýning um sjálfbært sambýli æðarfugla og manna á Íslandi\, í Danmörku og Noregi. Sýningin er byggð á rannsókn á fuglinum og umhverfi hans\, á sambandi hans við manninn\, hefðinni\, æðardúni og því hvernig dýrmæt sjálfbær hlunnindi eru nýtt á Norðurslóðum. \n\n\nÆðarfuglinn og æðarbændur hafa þróað einstakt samband sín á milli byggt á vináttu og gagnkvæmu trausti og er báðum aðilum til hagsbóta. Æðarbóndinn ver fuglinn gegn vargi og fær að launum dún fuglsins\, eitt best einangrandi efni í heiminum. Ef dúnninn er ekki tíndur fer hann forgörðum. Um 4 tonn af æðardúni eru unnin á norðurhveli jarðar ár hvert\, þar af rúm 3 tonn á Íslandi. \nTilraun – Æðarrækt er rannsóknarverkefni sem hófst árið 2019. Listamennirnir á sýningunni eru með fjölbreyttan bakgrunn í myndlist\, hönnun\, sviðslistum\, tónlist og arkitektúr. Þátttakendur voru valdir út frá fyrri verkum þeirra og aðferðafræði og einhverjir þeirra paraðir saman til að skapa áhugavert samtal. Hópurinn fór saman í ferðir að kynna sér ólík æðarvörp og hver einstaklingur eða teymi fóru svo á ólíka staði til að kynnast heimi æðarfuglsins enn frekar. \nHlutverk lista er að varpa fram spurningum\, rýna í hversdagslega hluti frá nýju sjónarhorni og skapa nýjar leiðir til að leysa verkefni. Æðarfuglum og æðarrækt stendur ógn af hlýnun jarðar\, auk breyttra lifnarðarhátta. Fólk flyst úr sveit í borg og fjarlægð við æðarvörpin eykst. Við lítum á verkefnið sem hlekk í því að átta sig á stóra samhenginu\, vistkerfinu okkar. Listræn nálgun og skapandi hugsun eru mikilvægt tól í þeirri umræðu. \nÆðarkollur hljóma eins og þeim hafi verið sagt eitthvað áhugavert\, jafnvel slúður. Úúúú\, Úúúú! Það er erfitt að hrífast ekki af þessum fallega kór. Við vonum að verkefnið veiti þér innblástur og þú eigir nokkur Úúúú augnablik á sýningunni og næst þegar þú hittir æðarfugla. \nTilraun – Æðarrækt verður opnuð í Hvelfingu þann 7. maí klukkan 17:00 ogstendur til 31. júlí.  \n\nSýningastjórar: Hildur Steinþórsdóttir & Rúna Thors \nSýnendur:\nAnne Lass\, Lisbeth Burian & Rikke Houd\nArnhildur Pálmadóttir & Samuel T. Rees\nAuður Ösp Guðmundsdóttir & Hanna Jónsdóttir\nBaldur Björnsson & Þórey Björk Halldórsdóttir\nBjarki Bragason\nBrynhildur Pálsdóttir & Ólöf Erla Bjarnadóttir\nEygló Harðardóttir\nFriðgeir Einarsson & Sigrún Hlín Sigurðardóttir\nGabriel Johann Kvendseth\nHilda Gunnarsdóttir & Loji Höskuldsson\nÍris Indriðadóttir & Signý Jónsdóttir\nKristbjörg María Guðmundsdóttir\, Ragna Margrét Guðmundsdóttir & Vilborg Guðjónsdóttir\nMargrét H. Blöndal\nTanja Levý & Valdís Steinarsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/experiment-eider-farmer/
LOCATION:The Nordic House\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/Eider_mynd-1280x720-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210918
DTEND;VALUE=DATE:20211224
DTSTAMP:20260530T073257
CREATED:20210907T114359Z
LAST-MODIFIED:20211224T112727Z
UID:19005-1631923200-1640303999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Time Matter Remains Trouble
DESCRIPTION:Time Matter Remains Trouble er ný myndlistarsýning sem opnar í Hvelfingu laugardaginn 18 september kl. 17:00 \nAðferðir sem manneskjur nota til að varðveita efni\, fyrirbæri og þekkingu úr náttúrunni eru skoðaðar í brotakenndum sviðsmyndum. Eftirköst og framtíðarsýnir á niðurbroti könnuð\, með eða án mannkynsins sem þáttakanda í því ferli. \n——- \nErum við að viðhalda þrákelknislegri sjálfsblekkingu með því að greina á milli fortíðar\, nútíðar og framtíðar? Er tíminn alltaf afstæður\, jafnvel fyrir líffræðilega skeiðklukku mannslíkamanns? Afhverju getum við umbreytt orku úr einu formi í annað\, en ekki skapað orku eða eytt henni? Er heildarmagn orku og efnis í alheiminum föst stærð\, en á sífelldu flæði úr einu formi í annað? Ef svo fer að mannkynið verður ekki alveg útdautt einhvern tíma á næstu milljónum ára og hefur heldur ekki tekist að eyða öllu lífi á Jörðinni\, hvað mun sitja eftir? Hverskonar líf lifir okkur af? \n  \nListamenn \nAlice Creischer \nAnna Líndal \nAnna Rún Tryggvadóttir \nBjarki Bragason \nnabbteeri \n  \nSýningarstjóri: Arnbjörg María Danielsen.\nAðstoðarsýningarstjóri: Veigar Ölnir Gunnarsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/time-matter-remains-trouble/
LOCATION:Norræna húsið\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/time-matter-nordic-house.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210610
DTEND;VALUE=DATE:20211018
DTSTAMP:20260530T073257
CREATED:20210819T140253Z
LAST-MODIFIED:20220916T110015Z
UID:18466-1623283200-1634515199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Iðavöllur: Íslensk myndlist á 21. öld
DESCRIPTION:Horft er til nærumhverfisins í starfi Listasafns Reykjavíkur á árinu 2021 með áherslu á að sýna þá grósku sem einkennir íslenska myndlistarsenu. \nHafnarhúsið allt er vettvangur kraftmikillar sýningar á nýjum verkum ungra listamanna sem líta má á sem leiðandi afl sinnar kynslóðar um leið og draga má ályktanir um stærra samhengi innlendrar sem alþjóðlegrar samtímalistar. Nokkuð er liðið síðan staðan var tekin á þeim hræringum sem eru í deiglunni meðal þeirra listamanna sem eru í mestum vexti og blóma á sínum ferli og endurspegla viðfangsefni og nálgun samtímans. \nYfirskrift sýningarinnar er Iðavöllur. Titillinn er fengið að láni úr Völuspá og kemur þar tvisvar við sögu. Iðavöllur er staðurinn þar sem æsir hittast við frumsköpun heimsins og koma síðan aftur saman á eftir Ragnarök til þess að skapa nýja heimsmynd. \nHafnarhúsið tekur á sig hlutverk slíks Iðavallar sem vettvangur skapandi listamanna í hringiðu umbreytinga við upphaf nýrrar þúsaldar. Þema sýningarinnar er þannig hinn skapandi og umbreytandi kraftur sem býr í vinnu listamanna og hún endurspeglar fjölbreytt viðfangsefni á tímum jafnt tæknilegra sem félagslegra umbreytinga. \nVal listamanna ræðst af samspili þess með hvaða hætti þau bregðast við samtímanum og um leið hvernig sjónarhorn þeirra hefur áhrif á sjónarhorn áhorfenda. Um er að ræða listamenn sem mótað hafa listalífið hér á landi í upphafi nýrrar aldar. Þessi kynslóð er sérstök fyrir þau tímamót sem hún upplifir: Hún fellur á milli X og Y kynslóða\, í árdaga þúsaldarkynslóðarinnar. Listamennirnir muna eftir heiminum án internets og snjallsíma\, upplifa efnahagshrunið\, taka inn MeToo byltinguna\, skynja mörk jarðsögulegs tíma og mannlífstíma og horfast í augu við hamfarahlýnun. Þau taka þátt í uppbyggingu listalífs sem er að fagvæðast með tilkomu listaháskóla\, alþjóðlegra gallería og útgáfu listasögunnar. Þau eru fulltrúar kynslóðar sem tekst á við aukinn hraða\, meira upplýsingaflæði\, óljósari landamæri\, reikult kyngervi\, breytt samskiptamynstur\, nýja tækni – allt á meðan þau muna á eigin skinni það sem áður var. Þau upplifa endalok heimsins í vissum skilningi og leggja sitt af mörkum við nýtt upphaf. \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nAnna Júlía Friðbjörnsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Rún Tryggvadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nArna Óttarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nArnar Ásgeirsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nBjarki Bragason\n\n\n\n\n\n\n\n\nDodda Maggý\n\n\n\n\n\n\n\n\nElín Hansdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nEva Ísleifs\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðmundur Thoroddsen\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildigunnur Birgisdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll Haukur Björnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nRebecca Erin Moran\n\n\n\n\n\n\n\n\nStyrmir Örn Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÖrn Alexander Ámundason\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nAldís Snorradóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/idavollur-islensk-myndlist-a-21-old/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-06-22-at-11.06.03.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR