BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230325
DTEND;VALUE=DATE:20230530
DTSTAMP:20260530T082526
CREATED:20230324T153800Z
LAST-MODIFIED:20230530T122540Z
UID:30052-1679702400-1685404799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ósýndarheimar
DESCRIPTION:Í Ósýndarheimum verður sjónum beint að stafrænni list\, ljósmyndun\, hreyfimyndum\, raunsæi og ofurveruleika. Listamennirnir takast hver um sig á við hugmyndir um raunveruleika og sýndarleika sem birtast í verkum þeirra\, þar sem viðfangið er aftenging\, kvíði og sú gráglettni sem einkennir þá kynslóð sem nú lifir og hrærist í umhverfi nýmiðlunar. Með því að beita fyrir sig stafrænum tjáningarmöguleikum draga þau fram satíruna sem felst í streituvaldandi lífsmynstri 21. aldarinnar\, auk þess að gefa gaum að hvers kyns tilvistarkreppum\, loftslagsvánni og hruni vistkerfa\, mannlegu eðli og spillingu kapítalismans. Verk þeirra vekja jafnvel upp hugleiðingar um það hvernig veröld ofurveruleikans getur leitt til firringar og aftengdrar tilvistar. \nListamenn sýningarinnar Ósýndarheima nálgast hið „stafræna“ fyrst og fremst út frá hugsun og hegðun\, í stað þess að taka sérstaklega viðmið af miðlum eða aðferð. Vinna þeir með þrívíða miðla\, teikningu\, vídeó og ljósmyndun\, auk stafrænna ferla við gerð skúlptúra og málverka\, sem vísa til þeirra óskýru marka sem eru á milli raunveruleikans og hermiheimsins. Stuðst er við hreyfimyndir og hið stafræna til þess að rýna félagslegt ástand á líðandi stundu en listamennirnir í Ósýndarheimum vísa hér til stafrænna upplifana í því skyni að varpa ljósi á hinn óhlutbunda veruleika\, sem og þá spillingu og eyðileggingu sem viðgengst í umhverfi okkar. Þá ganga listamennirnir út frá því að aðgreining og tilvistarangist séu meðal afleiðinga stafræns sýndarveruleika og spyrja loks hvað framtíðin beri í skauti sér fyrir samfélag sem er orðið háð nettengdum kerfum og stafrænum tjáningarmátum í stað mannlegra samskipta. \nListamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Kristín Helga Ríkharðsdóttir\, Meriem Bennani\, María Guðjohnsen\, Bita Razavi\, Helena Margrét Jónsdóttir og Inari Sandell. \nSýningarstjóri er Daría Sól Andrews.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/osyndarheimar/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Hafnarborg-2023-Osyndarheimar-slideshow-nytt-1400x462-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221013
DTEND;VALUE=DATE:20230206
DTSTAMP:20260530T082526
CREATED:20220908T142430Z
LAST-MODIFIED:20230206T120119Z
UID:25852-1665619200-1675641599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Иorður og niður: Samtímalist á Norðurslóðum
DESCRIPTION:Hver eru þau viðfangsefni\, sögur og áskoranir sem listamenn í hánorðri eiga sammerkt\, í ljósi þeirra breytinga sem eiga sér nú stað í þessum heimshluta? \nИorður og niður inniheldur verk bæði upprennandi og þekktari núlifandi listamanna frá þverskurði listafólks sem búsett er á norðvesturströnd Bandaríkjanna\, á kanadískum strandsvæðum\, á Íslandi\, á Norðurlöndunum auk innfædds listafólks frá öllu svæðinu. Listamenn eru landkönnuðir nútímans\, þeir rannsaka áleitin efni og nýta sér tilfinningaleg áhrif listar og frásagnarmöguleika hennar sem hvata til breytinga. Loftslags- og umhverfisbreytingar\, auk sársaukafullrar sögu nýlenduvæðingar innfæddra þjóða\, hafa leitt til sköpunar nýrra listaverka sem fást við þungan straum félags-\, efnahags\, stjórnmála- og umhverfislegra áskorana um gjörvallt Norðrið. Listafólk tekst líka á við þá blekkingu að Norðrið sé afskekkt auðn og skorar á hólm rómantíska tálmynd af ósnortnu landi og meintri einsleitni samfélaganna. Verkin sem valin hafa verið\, í öllum miðlum\, rekja sameiginlegar frásagnir á sviði samtímalistar og endurspegla nýjan skyldleika eða bil á milli samfélaga og þjóða svæðisins í kringum Norður Atlantshaf. \nИorður og niður er myndlistarsýning sem unnin í samstarfi þriggja listasafna\, Portland Museum of Art í Maine-fylki í Bandaríkjunum\, Bildmuseet í Umeå í Svíþjóð og Listasafns Reykjavíkur á Íslandi. Þar sýna 30 listamenn ný verk sem takast á við þær breytingar sem eru að verða á samfélagi\, náttúru og lífríki á norðurslóðum í upphafi 21. aldarinnar og eru að stórum hluta tilkomnar vegna loftslagsbreytinga. Sýningin ferðast á milli samstarfsaðila frá febrúar 2022 til október 2023. Henni fylgir vegleg sýningarskrá og fræðsludagskrá. Verkefnið nýtur stuðnings fjölmargra aðila\, þ.á.m. Loftslagssjóðs\, Arctic Cooperation Programme\, Bandaríska sendiráðsins á Íslandi\, Norræna menningarsjóðsins\, Norrænu menningargáttarinnar og Eimskips. \nListamenn: Anders Sunna\, Andreas Siqueland\, Ann Cathrin November\, Høibo Anna Líndal\, Arngunnur Ýr\, Bita Razavi\, Christopher Carroll\, D´Arcy Wilson\, Frida Orupabo\, Gideonsson/Londré\, Hans Rosenström\, Jason Brown aka. Firefly\, Jessie Kleemann\, Joan Jonas\, Joshua Reiman\, Jóhan Martin Christiansen\, Julie Edel Hardenberg\, Justin Levesque\, Katarina Pirak Sikku\, Lauren Fensterstock\, Magnús Sigurðarson\, Mattias Olofsson\, Máret Ánne Sara\, Meagan Musseau\, Peter Soriano\, Ragnar Axelsson\, Reggie Burrows Hodges\, Snæbjörnsdóttir/Wilson\, SUPERFLEX \nSýningarstjórar: Anders Jansson\, Jaime DeSimone\, Markús Þór Andrésson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/%d0%b8ordur-og-nidur-samtimalist-a-nordurslodum/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Hafnarhús\, Tryggvagata 17\, 101\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/nat_web_01.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR