BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230525
DTEND;VALUE=DATE:20230702
DTSTAMP:20260530T071242
CREATED:20230530T114028Z
LAST-MODIFIED:20230901T145427Z
UID:31360-1684972800-1688255999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Birgir Andrésson & Lawrence Weiner: Seinni hluti
DESCRIPTION:Fyrri hluti sýningarinnar stóð yfir frá 30. mars – 13. maí en seinni hlutinn verður 25. maí – 1. júlí.\n\nBirgir sýndi fyrst í i8 gallerí árið 2000 og Lawrence árið 2005; báðir listamenn spila veigamikið hlutverk í sögu gallerísins og hafa veitt samlistafólki sínu í i8\, og víðar\, mikinn innblástur. Á sýningunni verða innsetningar\, skúlptúrar\, málverk og verk á pappír eftir Birgi og Lawrence. Sérhvert verk sýningarinnar undirstrikar hina fjölbreyttu miðla og tímabil sem einkenna starfsferil listamannanna tveggja.\nTungumálið er kjarni sköpunarferils Lawrence og Birgis. Báðir listamennirnir\, sem einnig voru vinir\, tengjast mætti orðanna órofa böndum og nota þau sem tjáningaraðferð\, sér í lagi með því að leita í sjónrænt afl textans. Birgir og Lawrence rannsökuðu takmörk listarinnar með því að teygja sig út fyrir hefðbundnar hugmyndir um eðli hluta í rými og áhorfandann og sköpuðu þannig nýjar leiðir til tjáningar. Með tilvistar- og heimspekilegum hugleiðingum þróuðu báðir listamennirnir einstakar aðferðir við listsköpun sem bergmáluðu á alþjóðagrundvelli og breyttu stefnu samtímalistar.\nÁhugi Birgis Andréssonar á aðferðum miðlunar magnaðist á uppeldisárunum en Birgir ólst upp hjá blindum foreldrum á blindraheimili. Þar af leiðandi skipuðu lýsingar með orðum mikilvægan sess í lífi Birgis og því þróaði hann með sér aukna næmni fyrir tungumálinu og lýsandi mætti þess. Einnig spilaði kímni og persónu- og þjóðareinkenni stórt hlutverk í listsköpun Birgis en saga Íslands ómar í gegnum allan feril hans. Birgir var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1995 og er verk eftir hann í safneign Metropolitan Museum of Art í New York. Hann hélt einkasýningar á Listasafni Íslands og árið 2022 var sett upp stór yfirlitssýning af verkum hans á Listasafni Reykjavíkur í sýningarstjórn Robert Hobbs; með yfirlitssýningunni kom út vegleg bók um feril hans sem gefin var út af Distanz Verlag.\nLawrence Weiner helgaði sköpun sinni því að draga viðteknar reglur í efa sem gerði hann að leiðandi persónu konseptlistar á sjöunda áratug síðustu aldar. Myndrænt tungumál grafískrar notkunar á texta í hástöfum\, merkjum og línum einkennir myndlist hans og hefur hlotið mikið lof. Lawrence hefur sýnt víða á alþjóðlegum vettvangi þar á meðal í Tate Modern í London; Stedelijk Museum\, Amsterdam; Museo Tamayo í Mexíkóborg; Guggenheim Museum í Bilbao; The Jewish Museum í New York og í Museo Nacional Centro de Arte Reina Sofía í Madrid. Stór yfirlitssýning var sett upp á vegum Whitney Museum í New York; The Museum of Contemporary Art í Los Angeles og K12 Kunstsammlung Nordrhein-Westfalen í Dusseldorf á árunum 2007 – 2009.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/birgir-andresson-lawrence-weiner-seinni-hluti/
LOCATION:i8 Gallery\, Tryggvagata 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-30-at-14.04.55.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221015
DTEND;VALUE=DATE:20221114
DTSTAMP:20260530T071242
CREATED:20221014T090601Z
LAST-MODIFIED:20221118T151427Z
UID:26955-1665792000-1668383999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Skynleikar
DESCRIPTION:Á sýningunni Skynleikar mætast ólíkir listamenn með það sameiginlega markmið að brjóta niður stigveldi skynfæranna. Myndlist hefur í gegnum tíðina oftar en ekki verið tengd sjónrænni upplifun. Markmið Skynleika er að fólk\, hvort sem það er full sjáandi\, sjónskert eða blint nái að upplifa listaverkin á fullnægandi hátt. Listræn upplifun sem er ætluð þvert á samfélag óháð sjón. \n  \nListamenn \nBirgir Andrésson\nBjörk Viggósdóttir\nHólmfríður Guðmundsdóttir\nHugleikur Dagsson\nHulda Hákon\nKristín Morthens\nFischersund: Ingibjörg\, Lilja & Sigurrós -Birgisdætur\nLilý Erla Adamsdóttir\nLína Rut Wilberg\nSunneva Ása Weisshappel\nTolli & Nonni\nÞórdís Erla Zoëga\nÞorvaldur Jónsson\nJón Óskar \n  \nSýningastjórar \nÁsdís Þula Þorláksdóttir\nBjörk Hrafnsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/skynleikar/
LOCATION:Hafnartorg\, Geirsgata\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/skyn.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220129
DTEND;VALUE=DATE:20220509
DTSTAMP:20260530T071242
CREATED:20220103T142838Z
LAST-MODIFIED:20220905T135333Z
UID:20973-1643414400-1652054399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir
DESCRIPTION:Eins langt og augað eygir er fjölbreytt og umfangsmikil yfirlitssýning á verkum myndlistarmannsins Birgis Andréssonar (1955-2007) sem tekur yfir nær alla Kjarvalsstaði. Birgir var var leiðandi afl í íslenskri myndlist í meira en 30 ár en féll frá langt fyrir aldur fram. Birgir leitaði í brunn íslenskrar menningar\, sagna\, hefða og handverks þjóðarinnar og dró þar fram þætti sem hann síðan setti fram á sinn einstæða hátt í verkum sem tryggðu honum sess í íslenskri listasögu og aðdáun á alþjóðlegum vettvangi myndlistar. Sýningin veitir innsýn í áhrifamikinn feril listamannsins og tengir verk hans við innlenda og erlenda samtímalist. Sýnd eru yfiir eitthundrað verk sem koma meðal annars úr safneign Listasafns Reykjavíkur\, Listasafns Íslands\, Nýlistasafnsins og Metropolitan safnsins í New York en einnig frá innlendum og erlendum einkasöfnurum. Sýningarstjóri er bandaríski listfræðingurinn Robert Hobbs. Samtímis sýningunni kemur út bók á ensku um ævistarf Birgis Andréssonar\, In Icelandic Colour\, en þar verður að finna ritgerð eftir Hobbs með sama nafni. \nBirg­ir Andrésson nam mynd­list við Mynd­lista- og handíðaskól­ann 1973 til 1977 og fór síðan til fram­halds­náms í mynd­list við Jan van Eyck Aka­demie í Ma­astricht í Hollandi 1978 til 1979. Birgir var valinn til að taka þátt í Feneyjatvíæringnum árið 1995 fyrir hönd Íslands. Verk hans hafa verið sýnd á virtum sýningarstöðum jafnt hérlendis sem erlendis og eru í opinberum safneignum og einkasöfnum víða um heim. Nýlega bættist verk eftir hann í safneign Metropolitan safnsins í New York. \nFrá Robert Hobbs sýningarstjóra: \nÁrið 2005 skrifaði hugmyndalistamaðurinn Birgir Andrésson (1955-2007): „Ég sé sjálfan mig sem ég hafi verið getinn í „blindni“.“ Hann virðist vera að vísa í blinda foreldra sína og uppvöxt á Blindraheimilinu í Reykjavík\, gæsalappirnar utan um orðið „blindni“ og síðari athugasemd hans: „það er hrein heppni … einfaldlega að vera hluti af þessari vitleysu\,“ vitna um það afgerandi listræna sjónarhorn sem óvenjuleg barnæskan veitti honum. \nÁrið 1989 hóf Birgir að vinna með hugtakið nálægð. Orðið vísar til kenningar þýska heimspekingsins Martins Heidegger (1889-1976) á miðri tuttugustu öldinni og vera má að Birgir hafi fyrst rekist á það seint á áttunda áratugnum þegar hann var við nám í Hollandi\, sem þá var gróðrarstía hugmyndalistar. Í augum Heideggers er nálægð mótsögn\, hún staðfestir vangetu mannsins til að skilja grundvallarleyndardóma lífsins\, byggt á þeirri hugmynd að því nær sem maður kemst slíkum sannleik\, þeim mun betur skynjar maður fjarlægð hans. Hins vegar er nálægð Birgis fremur pólitísk en heimspekileg; hún skapar áframhaldandi spennu á milli alþjóðlegra\, framsækinna listaforma og þjóðlegra\, íslenskra viðfangsefna. Þótt titill veggmyndarinnar Eins langt og augað eygir gefi til kynna ótakmarkað útsýni og grafi þannig undan sérstöku sjónarhorni nálægðarinnar\, er skynjun í verkum Birgis háð sýn og hugmyndafræði. Hvor tveggja nálgunin getur þanist út en stundum geta þær líka verið takmarkandi og í þeim mun liggur lykillinn að verkum hans. \nHugmyndalist Birgis byggir á aðferðum tungumálsins\, ljósmyndun\, rannsókn á skjalasöfnum og enduruppbyggingu til að fagna íslenskum menningarhefðum\, gagnrýna þær og draga í efa með þurri kímnigáfu. Sérstaklega er eftirtektarvert hve mikla virðingu hann ber fyrir áhorfendum sínum en það sést vel í því hvernig list hans rokkar á milli þess sem búist er við og þess sem kemur á óvart\, sem og þess nálæga og þess fjarlæga\, svo að Íslendingum og öðrum býðst að skoða sjálfa sig og hefðir sínar í hnattrænum heimi. Verk á þessari sýningu innihalda íslensk frímerki frá 1930\, hönnuð af Þjóðverja í Austurríki; stækkaðar ljósmyndir af flækingum nítjándu og upphafi tuttugustu aldar\, auk ítarlegra textalýsinga á íslenskum einstaklingum\, gerólíkum hetjum Íslendingasagnanna. Þessi yfirlitssýning inniheldur einnig grunnmyndir af torfhúsum innfæddra\, umbreyttum í myndletur fyrir nýja tegund af steyptri ljóðagerð; ullarfána\, prjónaða í sauðalitunum; og málningu sem sögð er „íslensk“ þótt notast sé við bandarískt Pantone og sænskt NCS litakerfi. Í ofanálag sýna verk Birgir útlendar plöntur ræktaðar í Ora-dósum; hús og byggingar sem nefnd hafa verið eftir borgum\, löndum og svæðum víðs vegar um heiminn; og samsafn íslenskra grátóna\, tekið saman af útlendingi\, hinum virta enska listamanni\, ljóðskáldi og hönnuði Viktoríutímans\, William Morris. Á heildina litið nær list Birgis yfir ótrúlega vítt svið sem byggist á þjóðlegum/alþjóðlegum mótsögnum\, eins og nokkurs konar viðbrögð við Sjálfstæðu fólki\, skáldsögu Halldórs Laxness frá 1934-35. Á svipaðan hátt og sá makalausi skáldskapur veitir list Birgis ferska og háðska sýn á þætti í íslenskri menningu og kemst að því að þeir eru allrar athygli verðir. \nMargir samtímalistamanna Birgis minnast „mildrar kímnigáfu“ hans og „hlýrrar kaldhæðni“. Fyrrverandi nemandi hans\, alþjóðlega þekkti listamaðurinn Ragnar Kjartansson hefur talað um „djúpstæðan kærleik Birgis í garð mannkynsins og tilfinningu hans fyrir fólki.“ Náinn vinur hans\, hinn frægi bandaríski hugmyndalistamaður Lawrence Weiner\, hefur rifjað upp að hann hlakkaði alltaf til að hitta Birgi og minnist hans ekki eingöngu sem manns sem bjó til hluti heldur listamanns sem var vel að sér í kenningum og dró stöðugt aðra og sjálfan sig í efa. Hann tók þátt í fjölmörgum einka- og samsýningum á Íslandi og í Evrópu. Fjórum árum eftir einkasýningu sína í Listasafni Reykjavíkur 1991\, var Birgir valinn fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum. Árið 2000 var einkasýning á verkum hans haldin í Listasafni Íslands og 2006 yfirlitssýning ferils hans hjá sömu stofnun. Bókmenntarýnirinn og ritstjórinn Þröstur Helgason skrifaði fræðirit um list Birgis 2011\, þar sem hann skrásetur margar forvitnilegar og djúpsæjar sögur hans. Árið 2017 festi Metropolitan-listasafnið í New York kaup á veggmynd Birgis\, Eins langt og augað eygir\, í viðleitni til að styrkja alþjóðlega listaverkaeign sína. Titill verksins er jafnframt undirtitill núverandi yfirlitssýningar á verkum Birgis. \nDr. Robert Hobbs \n 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/birgir-andresson-as-far-as-the-eye-can-see/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/birgir-andresson.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR