BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230422
DTEND;VALUE=DATE:20230501
DTSTAMP:20260530T092438
CREATED:20230421T160319Z
LAST-MODIFIED:20230428T205456Z
UID:30525-1682121600-1682899199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kveðja
DESCRIPTION:Nú kveðjum við Hjartatorgið sem hefur verið heimili Þulu í tæplega þrjú ár\, vegna fluttninga. Að þessu tilefni setjum við upp fallega hópsýningu með nokkrum þeim listamönnum sem sýnt hafa í Þulu við torgið í gegnum tíðina.\nÞar ber að nefna:\nÁslaug Íris\nElli Egilsson\nKristín Morthens\nÞorvaldur Jónsson\nAnna Maggý\nHelga Páley\nAuður Lóa\nTolli\nRakel McMahon
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kvedja/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/04/336924292_1437811447035496_1509402565840993942_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221105
DTEND;VALUE=DATE:20221127
DTSTAMP:20260530T092438
CREATED:20221110T140632Z
LAST-MODIFIED:20221201T151003Z
UID:27465-1667606400-1669507199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Auður Lóa Guðndóttir: Be Mine
DESCRIPTION:Auður Lóa Guðnadóttir (f. 1993) er myndlistarmaður\, sem leikur sér á landamærum hins hlutlæga og huglæga\, skúlptúrs og teikningar\, listar og veruleika. Hún vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri\, fígúratíft\, og myndmál sem hún sækir í forna jafnt og nýliðna sögu. Auður Lóa útskrifaðist af myndlistasviði Listaháskóla Íslands 2015. Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt og í samstarfi við aðra listamenn\, og tekið þátt í sýningum eins og Leikfimi í Safnasafninu\, Djúpþrýstingur í Nýlistasafninu og Allt á sama tíma í Hafnarborg. Hún hlaut hvatningarverðlaun myndlistarráðs 2018 fyrir sýninguna Díana\, að eilífu. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur en hún bar titilinn Já / Nei og 2022 opnaði einkasýning hennar í Listasafni Akureyrar undir yfirskriftinni Forvera.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/audur-loa-gudndottir-be-mine/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-10-at-14.06.42.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220602
DTEND;VALUE=DATE:20220815
DTSTAMP:20260530T092438
CREATED:20220525T144417Z
LAST-MODIFIED:20220916T100849Z
UID:23359-1654128000-1660521599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Auður Lóa Guðnadóttir
DESCRIPTION:Auður Lóa Guðnadóttir (f. 1993) er myndlistarmaður sem leikur sér á landamærum hins huglæga og hlutlæga\, skúlptúrs og teikningar\, listar og veruleika. Hún vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri og fígúratíft myndmál sem hún sækir í forna jafnt og nýliðna sögu. Auður Lóa leitast við að virkja sjálf listaverkin\, ætíð þó sem fyrirbæri í sínu eigin félagslega umhverfi. Á sýningunni Forvera heldur hún áfram á þeirri braut\, en heimilisbúnaður og skrautmunir frá ýmsum tímapunktum sögunnar eru að þessu sinni í brennidepli. \nAuður Lóa útskrifaðist af myndlistasviði Listaháskóla Íslands 2015. Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt\, í samstarfi við aðra listamenn og tekið þátt í sýningum\, s.s. Leikfimi í Safnasafninu\, Djúpþrýstingur í Nýlistasafninu og Allt á sama tíma í Hafnarborg. Hún hlaut hvatningarverðlaun Myndlistarráðs 2018 fyrir sýninguna Díana\, að eilífu sem hún tók þátt í og stýrði. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur\, Já / Nei\, sem samanstóð af yfir 100 skúlptúrum úr pappamassa.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/audur-loa-gudnadottir/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/ja-nei-2021-2_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211030
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T092438
CREATED:20211011T145801Z
LAST-MODIFIED:20220916T105047Z
UID:19597-1635552000-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Abrakadabra
DESCRIPTION:Við kynnumst töfrum samtímalistar á þessari skemmtilegu sýningu fyrir alla sem vilja sjá ný og spennandi verk eftir núlifandi listamenn. Markmiðið er að gera heim samtímalistar aðgengilegan. Í verkunum má sjá fjölbreytileika listarinnar\, þau höfða til ímyndunaraflsins og skynfæranna\, þar er fjallað um líkamann\, sjálfsmyndina\, náttúruna\, samfélagið og ótal margt fleira. Við bjóðum unglinga\, ungmenni og alla sem eru forvitnir um samtímalist sérstaklega velkomna! \nAbrakadabra er dularfullt orð sem tengist töfrum. Það er mjög gamalt og uppruni þess er ókunnur. Líklega er það dregið úr hinu forna tungumáli arameísku og þýðir: „Það sem ég segi verður að veruleika.“ Er það ekki dálítið eins og listamenn vinna? Þau fá hugmyndir og láta þær verða að listaverkum. Á sýningunni Abrakadabra er miðlað áherslum sem er að finna í deiglu samtímans. \nHvað einkennir myndlist dagsins í dag? Hver eru viðfangsefni listamanna\, aðferðir\, efni og áskoranir? \nSamhliða sýningunni er sett fram ríkuleg fræðsludagskrá ásamt miðlun á stafrænu formi. Abrakadabra er jafnframt nýtt svæði á heimasíðu Listasafns Reykjavíkur sem verður áfram aðgengilegt. Þar er að finna fróðleik sem eflir hugtakaskilning og menningarlæsi og hentar vel til kennslu og til að grúska í samtímalist. \nListamenn\n\n\n\n\n\nAlicja Kwade\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Júlía Friðbjörnsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Hallin\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Líndal\n\n\n\n\n\n\n\n\nAuður Lóa Guðnadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nBaldur Geir Bragason\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nFritz Hendrik IV\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðný Guðmundsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHeimir Björgúlfsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildigunnur Birgisdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildur Bjarnadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnhildur Arnardóttir/Shoplifter\n\n\n\n\n\n\n\n\nHreinn Friðfinnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKarin Sander\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Steingrímur Jónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nLeifur Ýmir Eyjólfsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nLogi Leó Gunnarsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nMagnús Helgason\n\n\n\n\n\n\n\n\nMargrét H. Blöndal\n\n\n\n\n\n\n\n\nMatthías Rúnar Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nMelanie Ubaldo\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Gíslason\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlöf Nordal\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnheiður Gestsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRúrí\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteingrímur Eyfjörð Kristmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nUnndór Egill Jónsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/abrakadabra/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/abracadabra.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211002
DTEND;VALUE=DATE:20211015
DTSTAMP:20260530T092438
CREATED:20211006T151446Z
LAST-MODIFIED:20211014T104451Z
UID:19489-1633132800-1634255999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Brúnn\, bleikur\, banani
DESCRIPTION:Við erum lítil\, við lærum lag um litina. Ekki alveg alla litina en nógu marga til að taka þátt í því samtali. Stef\, orð\, byrjun og endir\, um eitthvað sem við sjáum. Kannski erum við að kynnast einhverjum lit í fyrsta skiptið\, annað hvort orðinu þá eða litnum\, það sem við tengjum orðið við. Þú hefur sennilega heyrt lagið áður en þú syngur það. Þetta er upplifun\, að læra er upplifun. Við lærum af upplifunum. Við lærum litina með lagi. \nEf við getum lært litina með lagi\, hvað annað er hægt? Getum við lært tölur með trompeti? Lært um tölvur með trjágreinum? Um geiminn með lyklum? Sumt af þessu er augljóst\, auðvitað. Eins og þegar þú lærðir um sársauka með svelli\, eða lærðir um bíla þegar hann bilaði\, eða lærðir um drauma frá dauðanum. Sumar tengingar eru viljandi\, sumar eru óvart tengingar. \nAf því það er alltaf líka eitthvað meira.Við lærum eitthvað kannski fyrst og fremst: nöfnin á litunum. En hér er ekki bara brúnn\, bleikur heldur líka banani\, og svo appelsína – talandi. Litir eru alltaf bara til á einhverju\, ekki í lausu lofti\, ok. Eitthvað til að muna\, já\, en líka til að túlka. Kannski er ekkert þá fyrst og fremst. Kannski er lærdómurinn hvernig á að beita raddböndunum\, eða að ríma\, eða kannski hvernig á að vinna saman og syngja í hópi. Kannski er það stuðlunin\, kannski erum við að læra fyst og fremst hvernig við stuðlum. Ég skal ekki segja\, það er þitt mál. \n  \nAnna Hrund Másdóttir (f.1981) vinnur tilraunakennt og óútreiknanlega með efnivið sinn. Hún lauk BS námi í stærðfræði við Háskóla Íslands árið 2006 og BA námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2010. Árið 2012 var hún nemi í listamannarekna skólanum The Mountain School of Arts í Los Angeles og útskrifaðist síðar með MFA gráðu við California Institute of the Arts. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum\, hérlendis og erlendis. \nAuður Lóa Guðnadóttir (f.1993)er myndlistarmaður\, sem leikur sér á landamærum hins hlutlæga og huglæga\, skúlptúrs og teikningar\, listar og veruleika. Hún vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri\, fígúratíft\, og myndmál sem hún sækir í forna jafnt og nýliðna sögu.\nAuður Lóa útskrifaðist af myndlistasviði Listaháskóla Íslands 2015. Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt og í samstarfi við aðra listamenn\, og tekið þátt í sýningum eins og Leikfimi í Safnasafninu\, Djúpþrýstingur í Nýlistasafninu og Allt á sama tíma í Hafnarborg. Hún hlaut hvatningarverðlaun myndlistarráðs 2018 fyrir sýninguna Díana\, að eilífu sem hún tók þátt í og stýrði. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur en hún bar titilinn Já / Nei og samanstóð af yfir 100 skúlptúrum úr pappamassa. \nPatty Spyrakos (f. 1974) er myndhöggvari og listmálari sem leggur áherslu á blandaða tækni og er búsett í Reykjavík. Patty lauk BS-prófi í sálfræði og mannfræði við Loyola-háskóla í Chicago en í námi sínu lagði hún einkum áherslu á skynkerfi\, skyntúlkun og þróunarsálfræði. Um 20 ára skeið starfaði hún við sjónræna og gagnvirka hönnun og sem hugmyndastjóri hjá stóru alþjóðlegu tæknifyrirtæki í San Francisco. Hún lærði keramikgerð í þrjú ár við Lincoln Square Pottery Studio í Chicago. Patty leggur í verkum sínum mikla áherslu á tilraunastarfsemi með efniviðinn og viðfangsefnið er oftar en ekki undir áhrifum frá þeim stað þar sem hún heldur til eða þar sem sýningin er haldin. Hver sýning listakonunnar vekur upp ný sjónarhorn á bæði verkum og hana sjálfa en undir niðri má skynja þróunarferli hugans\, andleg og tilfinningaleg átök\, hverfult jafnvægi\, hið yfirnáttúrulega og þróun tengsla og tengingu af öllu tagi jafnt innan sem á milli sjálfsins og samfélagsins. Hún hefur sýnt í Chicago\, Los Angeles\, Hong Kong\, Reykjavík og hélt sína fyrstu einkasýningu í New York á þessu ári í Padre Gallery.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/brunn-bleikur-banani/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/banana.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210529
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T092438
CREATED:20210831T153723Z
LAST-MODIFIED:20220916T105958Z
UID:18897-1622246400-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Takmarkanir
DESCRIPTION:Samsýning norðlenskra myndlistarmanna \nÞetta er í fjórða sinn sem tvíæringur\, sýning á verkum norðlenskra listamanna\, er haldinn í Listasafninu á Akureyri. Að þessu sinni var unnið út frá þemanu takmarkanir\, sem er augljóslega bein tilvísun í ástandið í heiminum þessi misserin. Listasafnið auglýsti eftir umsóknum um þátttöku í sýningunni og dómnefnd valdi verk eftir 17 ólíka listamenn af þeim 44 sem sóttu um. \nDómnefndina skipuðu Haraldur Ingi Haraldsson\, myndlistarmaður og verkefnastjóri Listasafnsins\, Hlynur Hallsson\, safnstjóri\, og Vigdís Rún Jónsdóttir\, listfræðingur. Titillinn Takmarkanir er misjafnlega augljós í verkunum en sum þeirra voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna. Listræn túlkun á hugtakinu takmarkanir getur svo auðvitað verið afar fjölbreytt. \nGefin er út sýningarskrá og er áhugavert að bera saman sýningarskrár fyrri sýninga til að sjá hvaða þróun er í verkum norðlenskra listamanna og hvort einhver rauður þráður leynist þar. Markmiðið er vissulega að sýna þá fjölbreytni í efnistökum\, aðferðum og hugmyndum sem listamenn af svæðinu eru að fást við hverju sinni. \nJón B. K. Ransu\, myndlistarmaður og fræðirithöfundur\, skrifar í inngangi í sýningarskránni: „Sýningin ber titilinn Takmarkanir og fer fram þegar heimsfaraldur hefur geisað í á annað ár. Á þeim tíma hefur hugtakið „takmörkun“ öðlast áþreifanlega merkingu þar sem fjöldatakmarkanir\, nándartakmarkanir og samkomutakmarkanir hafa haft mótandi áhrif á daglegt líf manna. Yfirskrift sýningarinnar vísar þannig til ástands sem hefur skapast vegna heimsfaraldursins en hún leikur líka með hugtakið vegna þess að þemasýningar eru í eðli sínu takmarkaðar. Við getum til að mynda sagt að val listaverka úr umsóknum listamanna byggi á ákveðinni takmörkun og að listamenn merktir svæði eða landshluta sé takmörkun í sjálfu sér.“ \nSýningunni Takmarkanir er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar almennt. Tvíæringurinn getur\, ef vel tekst til\, orðið grunnur rannsókna og sköpunar á sviði myndlistar og um leið hvatning og tækifæri. \nSýningin er ein af sumarsýningum safnsins því eftirspurn er meðal ferðamanna\, innlendra og erlendra\, eftir myndlist af svæðinu. Safnaráð styrkir sýninguna sérstaklega. \nListamenn: \nAðalheiður S. Eysteinsdóttir (1963)\nAuður Lóa Guðnadóttir (1993)\nÁrni Jónsson (1989)\nBergþór Morthens (1979)\nBrák Jónsdóttir (1996)\nEgill Logi Jónasson (1989)\nGuðmundur Ármann Sigurjónsson (1944)\nHekla Björt Helgadóttir (1985)\nHrefna Harðardóttir (1954)\nÍris Ólöf Sigurjónsdóttir (1958)\nJonna – Jónborg Sigurðardóttir (1966)\nJoris Rademaker (1958)\nJón Laxdal Halldórsson (1950)\nMaría Sigríður Jónsdóttir (1969)\nSigurður Mar Halldórsson (1964)\nStefán Boulter (1970)\nTanja Stefanovic (1985) \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/takmarkanir/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/bergthor-morthens-sumarnott-2021-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR