BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221015
DTEND;VALUE=DATE:20221030
DTSTAMP:20260530T195850
CREATED:20221013T153514Z
LAST-MODIFIED:20221110T095135Z
UID:26926-1665792000-1667087999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ástríður J. Ólafsdóttir: Fellingar
DESCRIPTION:Það er nýr heimur að myndast\, efni og klæði falla saman og mynda heimsmynd. Rétt eins og þegar jörðin býr til fjöll og dali með jarðskjálftum og eldgosum. Agnir dragast saman og verða plánetur\, loftsteinar og sólir. Líkt og komið sé út í geim og verkin mynda nýja stjörnuþoku. Sjónarhornið færist nær\, inn í pláneturnar og ímyndað landslag myndast\, minnir á eldfjöll eða jökla úr draumalandi. Einfalt í byrjun en verður svo flóknara. Alveg eins og lífið sjálft.\n\nMyndaröðin á sýningunni heitir „Panneggio“ eins og tæknin sem gömlu ítölsku meistararnir notuðu sem sérhæfðu sig í að mála klæði\, fellingarnar í efninu\, samspil ljóss og skugga og anatómíu klæðanna.\nPanneggio serían varð til við samruna tveggja hugðarefna Ástríðar. Loftfimleika (aerial silks) og myndlistarinnar. Þar mættust andstæðurnar hreyfing og kyrrð. Í loftfimleikunum notar „aerialistinn“ hangandi klæði til þess að klifra upp eftir og dansa í loftinu. Hann skapar atburð sem er andartak\, ólíkt málaranum sem situr kyrr og málar í marga klukkutíma í sömu stellingunni\, festir augnablikið á strigann og gerir það eilíft. Annars vegar er augnablikið og hins vegar eilífðin.\n\n“Mér fannst áhugavert að skoða hvernig ég gat leikið mér með efnið\, búið til úr því skúlptúra og yfirfært með olíumálningu á strigann. Svo bætti ég ljósi í leikinn og þá urðu til verk þar sem ljósið er eins og bundin orka\, föst inn í efninu og reynir að brjótast í gegn. Útkoman eru þessar abstrakt myndir unnar á raunsæjan hátt. Einhvers konar abstrakt raunsæi sem augað getur túlkað áfram.”\n\nÁstríður Jósefína Ólafsdóttir lærði myndlist í Bologna á Ítalíu. Hún útskrifaðist árið 2016 frá Accademia di Belle Arti di Bologna\, með meistaragráðu í Visual Arts. Á námsárunum sýndi hún víða í Bologna m.a. í Museo civico Medievale.\nFyrsta einkasýning hennar á Íslandi var sumarið 2021 í Húsi Máls og menningar í Reykjavík og sumarið 2022 sýndi hún í Núllið gallerí í Bankastræti.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/astridur-j-olafsdottir-fellingar/
LOCATION:Gallery Fold\, Rauðarárstígur 12 - 14\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/Cercando-la-Luce-web-1-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR