BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230203
DTEND;VALUE=DATE:20230508
DTSTAMP:20260530T141522
CREATED:20230131T145245Z
LAST-MODIFIED:20230511T152508Z
UID:29154-1675382400-1683503999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigga Björg & Ásmundur Sveinsson: Breath on a Window
DESCRIPTION:The world of trolls\, elves\, ghosts and other creatures opens up in the exhibition Ghost at the window. Reykjavík Art Museum continues to present new works by contemporary artist in Ásmundarsafn\, where they meet in dialogue with  Ásmund Sveinsson’s visual world and his unique house in Laugardalur. \nNow the focus is on legends\, fairy tales and imagination. \nSigga Björg is known for her imaginative drawings\, installations\, videos and books. She has created a unique visual world where fantasy\, humor and horror go hand in hand. In her works\, she threads the emotional life in all its chaos and creates moods that are almost impossible to put into words\, but with her characteristic style she manages to express the most incredible nuances. At this exhibition\, she works\, among other things\, on a new series based on Icelandic folk tales. In Sigga Björg´s drawings she mixes splashes and randomness with fine precision and patterns. Her works are created equally on the walls of showrooms and on paper. \nÁsmundur Sveinsson shaped his imagery in sculpture that spanned everything from a figurative method to an abstract one. He worked in line with the direction and trends of the modernist development of the 20th century and always worked with material and form. He initially drew inspiration and imagery from the local environment\, human life\, cultural heritage and nature\, but later the subjects became more abstract and entered the realm of natural laws and cosmic dimensions. He said that in his youth\, when he was growing up on a farm in the Valleys\, he had come across folk tales and legends. Much of it found its way directly or indirectly into his work. Ásmundur once recalled a memory of a verse that was sung when children were being put to sleep on the farm: \nKeep still\, keep quiet \nWoe lurks in the shadow \nI‘ve heard through the night \nA breath on a window.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigga-bjorg-asmundur-sveinsson-andardrattur-a-glugga/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Ásmundarsafn\, Sigtún\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/siggabjorg.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230203
DTEND;VALUE=DATE:20230508
DTSTAMP:20260530T141522
CREATED:20230131T145245Z
LAST-MODIFIED:20230530T122607Z
UID:29150-1675382400-1683503999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigga Björg & Ásmundur Sveinsson: Andardráttur á glugga
DESCRIPTION:Sýningin Andardráttur á glugga með verkum eftir Siggu Björgu og Ásmund Sveinsson verður opnuð í Ásmundarsafni á Safnanótt\, föstudaginn 3. febrúar kl. 17.00. \nListasafn Reykjavikur heldur áfram að kynna ný verk starfandi listamanna í Ásmundarsafni\, þar sem þau kallast á við myndheim Ásmundar Sveinssonar. Nú er áherslan á þjóðsögur\, ævintýri og ímyndunarafl. \nSigga Björg er kunn af hugmyndaríkum teikningum sínum\, innsetningum\, myndböndum og bókverkum. Hún hefur skapað einstakan myndheim þar sem fantasía\, húmor og hryllingur fara saman hönd í hönd. Í verkum sínum þræðir hún tilfinningalífið í allri sinni óreiðu og skapar stemningar sem nær ómögulegt er að færa í orð en með einkennandi stílbrögðum sínum nær hún að tjá ótrúlegustu blæbrigði. Á þessari sýningu vinnur hún meðal annars nýja myndröð út frá íslenskum þjóðsögum. Efnistök Siggu Bjargar eru jafnframt sérstök\, í teikningum sínum blandar hún saman slettum og tilviljun við hárfína nákvæmni og mynstur. Verk hennar eru unnin jöfnum höndum á veggi sýningarsala og á pappír.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigga-bjorg-asmundur-sveinsson-andardrattur-a-glugga/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Ásmundarsafn\, Sigtún\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/siggabjorg.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20230123
DTSTAMP:20260530T141522
CREATED:20221010T094114Z
LAST-MODIFIED:20230124T102622Z
UID:26846-1665187200-1674431999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Geometry
DESCRIPTION:Geómetría spratt úr tilraunamennsku og framsæknum hugmyndum um eðli og möguleika listarinnar. Hreyfingin kom sem loftsteinn inn í íslenskt menningarlíf í upphafi sjötta áratugarins og olli straumhvörfum í listalífi þjóðarinnar. Hreyfingin var andsvar við ríkjandi fagurfræði þar sem leitast var við að finna nýjar leiðir til sköpunar og tjáningar. Geómetrían var ekki einangruð myndlistarstefna heldur nýtt viðmót\, túlkun og tjáning á samtímanum þar sem myndlistin flæddi út fyrir rammann\, samruni listgreina var mögulegur og borgin var vettvangur menningar.\n\nListamenn sýningarinnar eru Ásgerður Búadóttir\, Ásmundur Sveinsson\, Benedikt Gunnarsson\, Eiríkur Smith\, Eyborg Guðmundsdóttir\, Gerður Helgadóttir\, Guðmunda Andrésdóttir\, Guðmundur Benediktsson\, Hafsteinn Austmann\, Hjörleifur Sigurðsson\, Hörður Ágústsson\, Karl Kvaran\, Kjartan Guðjónsson\, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá\, Málfríður Konráðsdóttir\, Nína Tryggvadóttir\, Skarphéðinn Haraldsson\, Svavar Guðnason\, Sverrir Haraldsson\, Vala Enard Hafstað\, Valtýr Pétursson & Þorvaldur Skúlason.\n\nSýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir & Cecilie Gaihede.\nSýningarhönnun: Hreinn Bernharðsson & Studio Studio.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/geometry-2/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/geometria.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220910
DTEND;VALUE=DATE:20230123
DTSTAMP:20260530T141522
CREATED:20220908T133926Z
LAST-MODIFIED:20230124T104005Z
UID:25828-1662768000-1674431999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Unndór Egill Jónsson og Ásmundur Sveinsson: Eftir stórhríðina
DESCRIPTION:Á sýningunni mætast myndhöggvarar tveggja tíma í samtali sem veitir nýja sín á arfleifð Ásmundar Sveinssonar ásamt því að kynna fyrir gestum ný verk starfandi listamanns. Að þessu sinni sýnir Unndór Egill Jónsson verk sín í samtali við verk Ásmundar en safnið hefur nú um nokkurt skeið unnið með arfleifð Ásmundar á þennan hátt. \nÞegar kemur að því að greina samtímann og glöggva sig á tíðarandanum getur reynst gjöfult að líta til sögunnar. Mikilvægt er að sjá fortíðina í ljósi samtímans\, en einnig öfugt; að bera daginn í dag saman við það sem á undan er gengið\, vega og meta hlutina og fá þannig skýrari mynd eða ný sjónarhorn. Ásmundur Sveinsson komst svo að orði: \n„Ég get ómögulega séð að fortíð og nútíð séu í andstöðu hvor við aðra. Stórfljótin hætta ekki að streyma\, þó að kvíslarnar falli í þau. (…) Án nýrra verka\, án nútímans\, hættir fortíðin að vekja áhuga. Þá verður hún að uppistöðulóni sem þornar í mollunni“ (Matthías Johannessen\, Bókin um Ásmund\, bls. 34). \nÁsmundur Sveinsson (1893–1982) og Unndór Egill Jónsson (1978) eru myndhöggvarar tveggja tíma. Annar var fæddur að Kolsstöðum í Dalasýslu undir lok 19. aldar og starfaði í landslagi þeirrar uppbyggingar\, framþróunar og tæknivæðingar sem módernisminn boðaði. Hinn lauk myndlistarnámi árið 2011 og er hluti af kynslóð sem stendur frammi fyrir því að vinda ofan af offari fyrri kynslóða.  Titill sýningarinnar Eftir stórhríðina er fenginn úr bréfi sem Ásmundur skrifaði móður sinni frá Kaupmannahöfn árið 1920 en þar lýsir hann verki sem hann vinnur að og sýnir „lík sem liggur hálft á kafi í snjó“. Verkið hefur því miður ekki varðveist en hann nefnir það þessu myndræna heiti\, Eftir stórhríðina. Í samhengi sýningarinnar má líta á stórhríðina sem þá hringiðu breytinga sem urðu á 20. öld á öllum sviðum mannlegrar tilvistar og sem listsköpun Ásmundar endurspeglar. Hugmyndafræði þess tíma hefur getið af sér upplausnarástand sem nú ríkir\, einkum í umhverfismálum\, og Unndór tekst meðal annars á við í verkum sínum. \nBáðir eru Ásmundur og Unndór fagmenn á sínu sviði\, miklir handverks- og hugsjónamenn. Nokkrir þættir öðrum fremur tengja þá og listsköpun þeirra; notkun á efnivið\, þar sem viður leikur stórt hlutverk\, hreyfingin og hreyfanleikinn sem gjarnan er til staðar í verkum þeirra\, og svo sýn þeirra á og innblástur frá náttúrunni við sköpun verka. \n  \nUnndór Egill Jónsson (1978) útskrifaðist með BA-gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2008 og lauk MFA-námi frá Valand School of Art í Gautaborg árið 2011. Undanfarin ár hefur hann sýnt bæði á Íslandi og erlendis\, meðal annars á samsýningunum Momentum Design í Moss í Noregi árið 2010\, Ríki\, flóra\, fána\, fabúla í Listasafni Reykjavíkur árið 2016\, í Estonian Museum of Contemporary Art í Tallinn í Eistlandi árið 2018 og á sýningunni Abrakadabra í Listasafni Reykjavíkur árið 2021. Árið 2020 hélt Unndór einkasýninguna Cul de Sac í Kling og Bang í Marshall-húsinu. \nÁsmundur Sveinsson (1893–1982) var á meðal frumkvöðla íslenskrar höggmyndalistar og einn þeirra sem kynntu fyrir Íslendingum nýjar hugmyndir í myndlist 20. aldar. Ásmundur sótt innblástur í íslenskar sagnir og þjóðtrú en samfélagið og tækniframfarir 20. aldar voru honum einnig ríkuleg uppspretta hugmynda. Verk Ásmundar eru á opinberum stöðum víða um land og setja svip sinn á Reykjavík. Hann hélt alla tíð tryggð við þá afstöðu að listin ætti erindi til fólksins og ætti heima á meðal þess. Ásmundur ánafnaði Reykjavíkurborg verk sín ásamt heimili sínu eftir sinn dag. Ásmundarsafn við Sigtún var opnað formlega vorið 1983 og hafa þar verið settar upp fjölbreyttar sýningar. \n  \nSýningarstjórar: Aldís Snorradóttir\, Edda Halldórsdóttir \n 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/unndor-egill-jonsson-og-asmundur-sveinsson-eftir-storhridina/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Ásmundarsafn\, Sigtún\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/unndor_minni.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220226
DTEND;VALUE=DATE:20220829
DTSTAMP:20260530T141522
CREATED:20220103T144157Z
LAST-MODIFIED:20220830T093245Z
UID:20980-1645833600-1661731199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ásmundur Sveinsson og Rósa Gísladóttir
DESCRIPTION:Rósa Gísladóttir sýnir verk sín í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar. Myndhöggvarar tveggja tíma mætast í samtali sem veitir nýja sýn á arfleifð Ásmundar ásamt því að kynna fyrir gestum ný verk starfandi listamanns. \nRósa hefur á ferli sínum fengist við ýmsan efnivið en hún er þekktust fyrir gifsskúlptúra sem hafa tekið á sig ólík form og stærðir í gegnum tíðina. Í verkum sínum vinnur Rósa gjarnan með listrænar tilvísanir í arkitektúr og menningarsöguna og mun vinna með Ásmundarsafn sjálft sem skúlptúr. Ásmundur reisti „kúluhúsið“ við Sigtún í nokkrum áföngum á árunum 1942-59. Hann hafði þar heimili og vinnustofu og mun vinnustofustemmning þeirra beggja\, Ásmundar og Rósu\, mætast og vera gerð sýnileg. \nRósa Gísladóttir (f. 1957) nam myndlist í Þýskalandi\, Bretlandi og á Íslandi. Verk hennar hafa verið sýnd víða hérlendis og erlendis\, þar á meðal í Scandinavia House í New York\, Saatchi Gallery í London\, Listasafni Reykjavíkur\, Hafnarborg\, Listasafni Árnesinga og Berg Contemporary. Árið 2020 var Rósa fyrsti handhafi Gerðarverðlaunanna sem eru veitt framúrskarandi myndlistarmanni sem vinnur í skúlptúr og rýmisverk. \nÁsmundur Sveinsson (1893–1982) var á meðal frumkvöðla íslenskrar höggmyndalistar og einn þeirra sem kynntu fyrir Íslendingum nýjar hugmyndir í myndlist 20. aldar. Ásmundur sótti innblástur í íslenskar sagnir og þjóðtrú en samfélagið og tækniframfarir 20. aldar voru honum einnig ríkuleg uppspretta hugmynda. Verk Ásmundar eru á opinberum stöðum víða um land og setja svip sinn á Reykjavík. Hann hélt alla tíð tryggð við þá afstöðu að listin ætti erindi til fólksins og ætti heima á meðal þess. Ásmundur ánafnaði Reykjavíkurborg verk sín ásamt heimili sínu eftir sinn dag. Ásmundarsafn við Sigtún var opnað formlega vorið 1983 og þar hafa verið settar upp fjölbreyttar sýningar. \nSýningarstjórar: \n\nAldís Snorradóttir\nEdda Halldórsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/asmundur-sveinsson-and-rosa-gisladottir/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Ásmundarsafn\, Sigtún\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/rosa-gisladottir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210513
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T141522
CREATED:20210831T113655Z
LAST-MODIFIED:20220916T105938Z
UID:18842-1620864000-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hönnun í anda Ásmundar
DESCRIPTION:Sýning á verkum fimm vöruhönnuða sem fengu það verkefni að hanna nytjavörur innblásnar af listsköpun Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara. \nÁ sýningunni eru bæði verk hönnuðanna sem og verk eftir Ásmund sem hafa veitt hönnuðunum innblástur. Sýningin er sett upp í Kúlunni í Ásmundarsafni. \nListamenn :\n\n\n\n\n\nBjörn Steinar Blumenstein\n\n\n\n\n\n\n\n\nBrynhildur Pálsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nFriðrik Steinn Friðriksson\n\n\n\n\n\n\n\n\nHanna Dís Whitehead\n\n\n\n\n\n\n\n\nTinna Gunnarsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/honnun-i-anda-asmundar/
LOCATION:Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn\, Sigtún\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/05/honnun_asmundarsafn-samsett_mynd-_large.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210513
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T141522
CREATED:20210824T121729Z
LAST-MODIFIED:20210927T125232Z
UID:18694-1620864000-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sirra Sigrún Sigurðardóttir og Ásmundur Sveinsson: Ef lýsa ætti myrkva
DESCRIPTION:Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn hefur verið opnað á ný með sýningu Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur þar sem hún á í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar og bygginguna sjálfa. Verk Sirru eru kosmísk í eðli sínu og tengjast gjarnan inn á vangaveltur um stöðu okkar inni í gangverki náttúrunnar\, eðlisfræðinnar og þeirra afla sem halda heiminum gangandi. Þau framkalla oft stöðu okkar sem einstaklinga\, vægi okkar og smæð þar sem hið smáa er sett í samhengi við það stærra og merking er yfirfærð frá einu fyrirbæri yfir á annað svo úr verður ný skynjun\, ný sýn. Mörg verka Ásmundar vísa til forvitni hans um gang og lögmál himintunglanna. Einkum birtist það í abstrakt verkum frá 6. og 7. áratugunum sem jafnframt tengjast áhuga þess tíma á tækifærum mannsins til könnunar í geimnum. Á meðal verka á sýningunni er hið þekkta Andlit sólar sem er óður til sólarokunnar\, forsendu lífs á jörðinni. Það og önnur verk Ásmundar eiga sé djúpan samhljóm í verki Sirru. \n  \nÓlíkt því sem tíðkast í listum er miðlun vísindalegra upplýsinga og gagna gjarnan sett fram með áreiðanlegum\, ótvíræðum og auðskiljanlegum hætti í trúverðugu formi eins og línuritum\, hitamyndum\, stærðfræðilíkönum og skífuritum\, svo eitthvað sé nefnt. Þannig má miðla gögnum sem segja okkur eitthvað áþreifanlegt og ábyggilegt um heiminn okkar og stöðu mannsins í honum. Sirra hefur endurtekið notað ásýnd og inntak þessara forma í listaverkum sínum. Framsetningin setur þó upplýsingarnar sem um ræðir og ótvíræðni upplýsinga yfir höfuð í nýtt ljós svo á það næst einhver fjarlægð. Vísindalegu mælitækin eru upphafin um leið og þau eru dregin í efa. Eftir snúning í tilraunaglasi listamannsins birtist gjarnan annað sjónarhorn og víðara\, með fleiri skírskotanir og meðvitund um hve ómögulegt sé að miðla nokkru svona ótvírætt. Og órökréttar skýringar listarinnar verða ekki endilega eins óáreiðanlegar og þær virðast. \nStaða landsins á hnettinum veldur ýktum sveiflum í sólarganginum\, vetrarsólin marar lágt á himni í nokkrar klukkustundir og sumarsólin trónir hátt lungann úr sólarhringnum. Á sýningunni í Ásmundarsafni nýtir Sirra umfangsmesta skúlptúr Ásmundar\, bygginguna sjálfa\, og speglaða geisla sólarinnar til að búa til risavaxna teikningu í formi abstrakt sólúrs. Ásmundur gerði ýmsar tilraunir til að túlka lögmál náttúrunnar í gegnum form\, línur og efni höggmynda sinna. Vísindalegar uppgötvanir urðu honum innblástur til þess að þróa nýtt myndmál. Ný verk Sirru mynda samtal við valin verk hans og hugmyndaheim\, og kinka kolli til einlægs áhuga myndhöggvarans á tækni og vísindum\, og næmni hans fyrir ólíkum efnum og efnistökum\, sem birtist í óttaleysi hans við að breyta um stíl og aðferðir í gegnum ferilinn. \nSirra Sigrún Sigurðardóttir lauk BA námi frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og MA í Art Practice frá School of Visual Arts í New York árið 2013. Hún hefur meðal annars haldið einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur\, Nýlistasafninu\, Hafnarborg og Kling & Bang og tekið þátt í samsýningum og verkefnum víða um heim\, þar á meðal í Chinese European Art Center í Xiamen í Kína\, Amos Andersons Konstmuseum í Helsinki í Finnlandi og í Tate Modern og Frieze Projects í London á Englandi. \nSirra er einn stofnenda Kling & Bang í Reykjavík. Árið 2015 hlaut Sirra Guðmunduverðlaunin sem listamaðurinn Erró stofnaði til árið 1997. Sirra var tilnefnd til Myndlistarverðlaunanna árið 2020 og hefur hlotið styrki og viðurkenningar úr listasjóðum Dungal\, Leifs Eiríkssonar\, Svavars Guðnasonar og Guðmundu Andrésdóttur. Árið 2015 var Sirra á meðal 24 alþjóðlegra listamanna sem tímaritið Modern Painters útnefndi sem listamenn sem vert væri að fylgjast með á komandi árum. \nÁsmundur Sveinson (1893-1982) var frumkvöðull í íslenskri myndlist. Hann nam klassíska höggmyndalist og vann í hefðbundin efni framan af. Viðfangsefni hans voru tengd nærumhverfinu\, vinnandi stéttir\, þjóðsögur og sagnarfurinn. Á sjöunda áratugnum vék hann frá þeim fígúratífu aðferðum sem áður einkenndi listsköpun hans og fór í auknum mæli að nota óhlutbundið myndmál. Viðfangsefni hans urðu óefniskenndari og tengd náttúrufyrirbærum\, lögmálum og eðlisfræði. Óhefðbundinn efniviður varð áberandi í verkum hans og stýrði gjarnan útkomu einstakra verka; um leið tók hann upp frjálsari aðferðir með því að vinna beint í efnið. Ásmundur reisti vinnustofu sína og heimili\, kúluhúsið\, í nokkrum áföngum á árunum 1942-59. \nSýningin Ef lýsa ætti myrkva er hluti af sýningartvennu í Ásmundarsafni árið 2021 en sýning Carls Boutard og Ásmundar verður opnuð í haust. Með þessum sýningum opnar Ásmundarsafn eftir mestu endurbætur frá því það var opnað almenningi árið 1986. Gestir öðlast nýja sýn á arfleifð hins gamalkunna og ástsæla listamanns í gegnum linsu tveggja samtímalistamanna og í hinu fallega umhverfi sem Ásmundarsafn og garðurinn í kring móta.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sirra-sigrun-sigurdardottir-og-asmundur-sveinsson-ef-lysa-aetti-myrkva/
LOCATION:Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn\, Sigtún\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2020/06/Sirra_Asmundur_mai2021_PR-hq.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR