BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230401
DTEND;VALUE=DATE:20230428
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20230330T145109Z
LAST-MODIFIED:20230426T133851Z
UID:30281-1680307200-1682639999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Emma Heiðarsdóttir: Ljósrofi
DESCRIPTION:Emma Heiðarsdóttir (f. 1990) vinnur út frá breytilegum mörkum skúlptúrs og arkitektúrs\, listar og lífs. Verkin byggja gjarnan á inngripi í þau rými eða umgjörð sem hún sýnir í hverju sinni og snúa upp á viðtekna sýn okkar á umhverfið. Á sýningunni Ljósrofi kemur fram viðleitni til að skoða rými út frá takmarkandi og hlutlægum eiginleikum þess\, sem mynda umgjörð fyrir líkamlega og huglæga upplifun. Áhorfendur virkja sum verkanna með líkömum sínum og takmörk í rými leiða ef til vill hugann að öðrum takmörkum.\nEmma nam myndlist við Listaháskóla Íslands 2010-13 og stundaði framhaldsnám við listaakademíuna í Antwerp\, þaðan sem hún útskrifaðist 2018. Árið 2020 hlaut hún tilnefningu til hvatningarverðlauna Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Jaðar í D-sal Listasafns Reykjavíkur. Auk þess hafa verk Emmu meðal annars verið sýnd í i8 Gallery\, Listasafni Árnesinga\, Gallerí Úthverfu\, Kling & Bang\, Gerðarsafni\, Kunsthall Oslo og Einstein Kultur í München.\nemmaheidarsdottir.com
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/emma-heidarsdottir-ljosrofi/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/emma.jpeg
ORGANIZER;CN="%C3%81smundarsalur":MAILTO:asmundarsalur@asmundarsalur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230225
DTEND;VALUE=DATE:20230327
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20230227T145958Z
LAST-MODIFIED:20230227T150108Z
UID:29603-1677283200-1679875199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ólöf Nordal: Fygli
DESCRIPTION:Sýning Ólafar Nordal í Ásmundarsal ber titilinn Fygli og er innsetning með skúlptúrum\, texta og hljóðmynd.  Ólöf Nordal hefur lengi unnið með fugla í verkum sínum sem oft eiga rætur í þjóðtrú\, ímyndarsköpun og menningu samtímans. Fygli eru skúlptúrar steyptir í brons sem sýna fígúrur í umbreytingu.  Formgerð þeirra vísar í umskipti frá gervi manns í gervi fugls\, frá hinu efnislega til hins andlega. Fyglin eru af heimi gróteskunnar og þess kynlega\, en ýja líka að farfuglum þeim sem fljúga yfir hafið jafnt í formi fugls sem og í mennskri formgerð. Verkið er í samtali við nýlegt verk Ólafar sem ber heitið Mannfuglar (2022) og er staðsett í garði hjúkrunarheimilisins Móbergs á Selfossi. \nÓlöf vinnur með menningararfinn\, söguna og minni þjóðar í verkum sínum á gagnrýninn og greinandi hátt. Listrannsóknir hennar beinast að sjálfsmynd þjóðar á eftir-nýlendutímum\, uppruna og endurspeglun þjóðsagnaminna í samtímanum og brotinu sem spegli inn í fortíðina. \nÓlöf Nordal stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk síðan mastersprófi frá Cranbrook Academy of Art\, Michigan og MFA frá höggmyndadeild Yale Háskólans í New Haven\, BNA. Ólöf á sér langan listferil og hefur sýnt hérlendis sem og erlendis. Árið 2019 stóð Listasafn Reykjavíkur fyrir yfirlitssýningu um listferil Ólafar með sýningunum Úngl á Kjarvalsstöðum og úngl-úngl í Ásmundarsafni. Samtímis gaf safnið út yfirlitsrit um feril hennar. Ólöf hefur gert fjölda verka í almannarými. Nýjustu verkin eru Þúfa (2013) við höfnina í Reykjavík\, Hella Rock (2020) í Portland\, Main\, Auga (2021) í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Mannfuglar (2022) við hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi. Ólöf Nordal er prófessor í myndlist við Listaháskóla Íslands. \nsjá nánar á https://olofnordal.com/
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/olof-nordal-blird/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/olof-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230114
DTEND;VALUE=DATE:20230206
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20230113T112226Z
LAST-MODIFIED:20230113T112226Z
UID:28707-1673654400-1675641599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Umhverfa
DESCRIPTION:Verkið Umhverfa er vídeó- og hljóðinnsetning eftir Siggu Björgu Sigurðardóttur og Mikael Lind þar sem síbreytilegur og þyngdarlaus hljóðheimur umlykur ágengan myndheim. Lögmál hefðbundinnar framvindu verka víkja og hvikul verkin fá að kallast á og hverfast um hvort annað. Í rýminu birtast myndir sem ferðast á milli raunveruleika og abstraksjónar og með síbreytilegu hljóðverkinu skapast rými án upphafs eða endis. \nSamhliða innsetningunni sýnir Sigga Björg nýjar teikningar á pappír og viðarplötur. Verkin eru unnin samhliða vídeóverkinu og tilheyra sama myndheimi þar sem myndefnið fetar einstigið milli raunsæis og abstraksjónar\, veruleika og fáránleika\, frásagnar og hreinnar fagurfræðilegrar upplifunar. \nSigga Björg Sigurðardóttir (f. 1977) útskrifaðist úr Myndlistadeild LHÍ árið 2001. Eftir útskrift fluttist Sigga Björg til Glasgow í Skotlandi þar sem hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá The Glasgow School of Art árið 2004. Síðan þá hefur hún sýnt í söfnum og galleríum víða um heim. Af einkasýningum má nefna Kling og Bang gallerí (Reykjavík)\, Teckningsmuseet (Svíþjóð)\, Hafnarborg (Hafnarfjörður)\,Yancey Richardsson gallerí (New York)\, Galerie Adler (Frankfurt) ofl. Af samsýningum má nefna Nordiska Akvarellmuseet (Svíþjóð)\, CCA (Center for Contemporary Art\, Glasgow)\, Göteborgs Konsthall (Svíþjóð) ofl.  Verk Siggu Bjargar er að finna í mörgum opinberum söfnum hérlendis og erlendis eins og Listasafni Reykjavíkur\, Listasafni Íslands\, Hafnarborg\, Nordiska Akvarellmuseet (Svíþjóð)\, Zabludowicz Art Trust (London) ofl. Fyrir frekari upplýsingar endilega heimsækið heimasíðu Siggu Bjargar: www.siggabjorg.net \nMikael Lind er tónskáld sem fæst við tilraunakenndra ambient tónlist með klassískum áhrifum. Hann hefur gefið út nokkrar breiðskífur\, bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Mikael er þekktur fyrir að gera tilraunir og prófa nýtt efni á tónleikum sínum þar sem hann hefur einnig mikinn áhuga á fræðilegri hlið tónlistar og tjáningarmáta þess. Hljóðið fyrir innsetninguna í Ásmundarsal er ennþá óbeislaðra þar sem hljóðheimurinn ber keim af bæði hávaðatónlist og nútímaklassík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/umhverfa/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/324235094_2258696494312329_2740657717962066087_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230114
DTEND;VALUE=DATE:20230213
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20230113T111928Z
LAST-MODIFIED:20230113T111928Z
UID:28705-1673654400-1676246399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Dokað við trist
DESCRIPTION:Ekki alls fyrir löngu voru þeir garpar Gunnar Jónsson og Sigurður Ámundason á ferð yfir hálendið. Skyndilega gekk yfir landið mikill stormur og illfært varð til ferðarlaga. Þá voru góð ráð dýr en til mikillar lukku urðu þeir varir við sæluhús eitt\, fjarri allri byggð. Ekkert annað í augsýn en veðurbarið fjalllendið. Náttúran getur verið svo mikil ofgnótt. Í sæluhúsinu dvöldu þeir um tíma og sem betur fer höfðu þeir birgðir nægar. Landslagið í kring hafði svakaleg áhrif á hugmyndaflug tvíeykisins; litirnir sem stöku sinnum var hægt að greina í öllum þessum gráma\, tvískinnungurinn í jafnvægi þess manngerða við náttúruna. Svolítið trist\, en á sama tíma fallegt. \n\nGunnar Jónsson (1988) útskrifaðist úr bakkalárnámi við myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2012. Síðan þá hefur hann haldið fimm einkasýningar\, tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis sem og erlendis. Gunnar vinnur mest með myndbönd og hljóðinnsetningar sem miðil í verkum sínum en vinnur einnig ljósmyndaverk og vatnslitamálverk. Hann býr og starfar á Ísafirði.\n \nSigurður Ámundason (1986) útskrifaðist úr bakkalárnámi myndlistardeildar Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur síðan haldið ellefu einkasýningar\, tekið þátt í fjölda samsýningu og flutt tugi gjörninga. Sigurður notast mest við teikningar en skapar einnig innsetningar\, skúlptúra\, vídeóverk\, bókverk\, ljósmyndir og leikverk.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/dokad-vid-trist/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/323095316_2464318797053627_7311552608013746411_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221203
DTEND;VALUE=DATE:20221224
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20221205T115434Z
LAST-MODIFIED:20221205T115434Z
UID:28000-1670025600-1671839999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jólasýning Ásmundarsals
DESCRIPTION:Á sýningunni eru verk eftir 32 listamenn og ljósmyndara sem stendur frá 3. des – 23. des. \nArnar Ásgeirsson\, Arnfinnur Amazeen\, Baldur Kristjánsson\, Baldvin Einarsson\,Elín Hansdóttir\, Elísabet Anna Kristjánsdóttir\, Elísabet Davíðsdóttir\, Flaviu Cacoveanu\, Guðný Rósa Ingimarsdóttir\, Guðjón Ketilsson\, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir\, Guðmundur Ingólfsson\, Gunnar Sverrisson\, Hekla Dögg Jónsdóttir\, Hildur Elísa Jónsdóttir\, Hjördís Gréta Guðmundsdóttir\,Joe Keys\, Katrín Agnes Klar\, Katrín Elvarsdóttir\, Kjartan Hreinsson\, Klemens Nikulásson Hannigan\, Martha Lyons Haywood\, Ólöf Bóadóttir\, Patricia Carolina\, Ragnar Axelsson\, Saga Sigurðardóttir\, Sigurður Árni Sigurðsson\, Styrmir Örn Guðmundsson\, Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir\, Una Björg Magnúsdóttir\, Þór Vigfússon\, Þórsteinn Svanhildarson. \nSamhliða sýningu er gefin út bók þar sem verk\, viðtöl og vinnustofuheimsóknir færa lesendum innsýn í vinnuferli og sköpunarkraft listamanna sem standa að sýningunni.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jolasyning-asmundarsals/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/12/jolasyningin2022tabloid.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221110
DTEND;VALUE=DATE:20221121
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20221110T101132Z
LAST-MODIFIED:20221125T144742Z
UID:27429-1668038400-1668988799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jón Helgi Hólmgeirsson: Og svo kemur sólin
DESCRIPTION:Það er skýjað\, þoka\, súld.\nUmhverfið er grátt og rennur saman í eitt. Og svo kemur sólin. Umhverfið skerpist\, lifnar við og dýpkar. \nSýningin Og svo kemur sólin er önnur einkasýning á vegghengdum listaverkum eftir Jón Helga Hólmgeirsson en þar vinnur hann með samspil sólarljóss og skugga. Á sýningunni fangar hann fagurfræðina í nærumhverfi okkar en myndirnar eru skornar beint í rammagler verkanna. Án sólar eða ljóss sést ekkert í rammanum\, rétt eins og í þoku\, en þegar það rofar til birtist mynd inni í rammanum. Verkin haga sér mismunandi eftir magni ljóss í rými en lifna fyrst við þegar sólin leikur um þau\, þar sem þau hreyfast í takt við sólarganginn. Verkin eru unnin upp úr ljósmyndum sem Jón Helgi hefur tekið víðsvegar um landið. Myndunum er umbreytt í línuteikningar á stafrænu formi sem síðan eru sendar í gegnum tölvustýrðan fræsara sem sker verkin út í gler með demantshníf. \n“Hugmyndina fékk ég þegar ég sá ryk á listaverki í stofunni hjá mér sem varpaði skugga inn í rammann á því. Ég ákvað að prófa að skera í gler og sjá hvort það myndi hafa sömu áhrif. Eftir tilraunir með mismunandi bakgrunna og fjarlægð þeirra frá glerinu fann ég milliveg sem skapar þetta þokukennda ástand verksins þegar það er skýjað en skýra mynd þegar sólin skín. Viðfangesefni myndanna eru því hlutir og form úr nærumhverfinu sem birtast\, skýrast og skerpast þegar sólin lætur sjá sig.” \n  \nJón Helgi Hólmgeirsson er menntaður vöruhönnuður frá Listaháskóla Íslands og samspilshönnuður (e. interaction design) frá Háskólanum í Malmö. Frá útskrift hefur hann komið að fjölda hönnunarverkefna\, t.a.m. fyrir IKEA og FÓLK Reykjavík en hefur síðan árið 2015 gegnt stöðu yfirhönnuðar hjá íslenska tónlistartæknifyrirtækinu Genki Instruments. Verk hans hafa birst í fjölmörgum miðlum og verk hans verið sýnd á hönnunarhátíðum víða um heim. Þá hefur hann hlotið virt hönnunarverðlaun á borð við Red Dot Design Awards og Hönnunarverðlaun Íslands. Árið 2020 hélt hann sína fyrstu einkasýningu á prentverkum á kaffihúsinu í Ásmundarsal undir heitinu ‘Mikilvægar ítranir’ þar sem hann lagði fram endurbætur á hinni íslensku orðabók vegna breyttra aðstæðna í heiminum. Nú fetar hann nýja slóð en á sýningunni ‘Og svo kemur sólin’ nýtir hann þekkingu og reynslu sína úr heimi vöruhönnunar við gerð verkanna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jon-helgi-holmgeirsson-og-svo-kemur-solin/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-10-at-10.08.22.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221020
DTEND;VALUE=DATE:20221128
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20221018T154012Z
LAST-MODIFIED:20221201T151202Z
UID:27003-1666224000-1669593599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Linus Lohmann: Pacing
DESCRIPTION:Á fimmtudag kl18:00 – 20:00 opnar sýningin Pacing eftir Linus Lohmann á setustofunni.\nÁ sýningunni verða ný verk sem unnin voru í Gryfju síðast liðinn mánuð. Verkin eru öll unnin með sérsmíðuðum verkfærum Linusar\, teiknibyssu og blekblöndunarvél\, í sérstökum punktastíl sem er aðferð sem hann hefur verið að þróa og unnið með síðan árið 2016.\n\nLinus býr og starfar á Seyðisfirði og í Reykjavík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/linus-lohmann-pacing/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/4E259221-6D35-49EA-9B96-755FE5FD4ADB_1_201_a-LinusLohmann.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220924
DTEND;VALUE=DATE:20221024
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220928T160719Z
LAST-MODIFIED:20221110T111309Z
UID:26648-1663977600-1666569599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:ARNGRÍMUR & MATTHÍAS: VÆTTATAL
DESCRIPTION:Vættatal er samsýning Arngríms Sigurðssonar og Matthíasar Rúnars Sigurðssonar. \nÁ sýningunni verða til sýnis ný olíumálverk og höggmyndir sem listamennirnir hafa unnið að síðustu misseri. Þó að verkin séu ólík í útliti og efnistökum  þá tengjast þau innbyrðis á þann hátt að í hverju þeirra kemur fyrir ímynduð vera\, eða vættur.  Saman mynda verkin því einskonar vættatal.   Sumar verurnar minna á eitthvað kunnuglegt eins og kött eða letidýr en önnur eru óræð skoffín sem hafa fengið að skríða fram í rólegheitunum með pensilpoti eða juði fræsitannar. \nKraftgalli er tónlistarverkefni Arnljóts Sigurðssonar (f.1987) en hann býr og starfar í Reykjavík. Í grunninn gerir hann raftónlist en þar gætir stílbragða seiðandi framandleika jafnt sem danstónlistar. Að þessu tilefni hefur hann sett saman hljóðmynd úr gömlum fjögurra rása kassettuupptökum\, með stemningsríku sveimi tónaljóða\, vandlega tilhöggnum hljóðum og áferðarríkum hljómabreiðum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/arngrimur-matthias-vaettatal/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/skissa1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220820
DTEND;VALUE=DATE:20220926
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220817T120839Z
LAST-MODIFIED:20221006T161234Z
UID:24671-1660953600-1664150399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Una Margrét Árnadóttir: Sleeping Bags
DESCRIPTION:Connected. Disconnected. Connected. Disconnected.\n\nPairing..\n\nConnected..\n\nConnected. Connected. Connected.\n\nDisconnected.\n\nPairing..\n\nUna Margrét Árnadóttir’s exhibition “Sleeping Bags” opens on Culture Night\, August 20 in Ásmundarsalur.\n\nUna Margrét Árnadóttir (1985) is an artist based in Reykjavik. She has participated in several exhibitions locally and internationally since graduating from Malmö Art Academy in 2013. Alongside her own practice\, Una is one of the founders of the artist-run space Open. Free admission and everyone welcome!
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/una-margret-arnadottir-sleeping-bags/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/298720962_1765055370502371_734482871543659301_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220716
DTEND;VALUE=DATE:20220815
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220808T142819Z
LAST-MODIFIED:20220916T101419Z
UID:24613-1657929600-1660521599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Claire Paugam: Essentially Untitled
DESCRIPTION:Sýningin „Essentially untitled“ er einkasýning eftir Claire Paugam sem samanstendur af innsetningum og skúlpúturm sem voru skapaðir sérstaklega fyrir rými Ásmundarsalar. Fyrst er gestum boðið að ganga físískt í gegnum mynd til þess að komast inn í salinn\, í salnum rísa svo fleiri myndir upp úr gólfinu\, loftinu og veggjunum og þær taka yfir. Á sýningunni hefur hver mynd sinn eigin efnisleika og sérstaka framsetningu og þannig brjótast þær undan fyrirframgefnum væntingum okkar. \nÚr einu herbergi til víðar\nSvart og tómt\nFullt af aðskildum efnum\nHeimar innan rýmis\nBrjótast fram \n„Ljósmyndir eru í raun efnisleiki liðins veruleika\, þó við nánari skoðun\, bjóða þær uppá nálægar víddir sem taka okkur nær stundinni. Ég sé þær sem dyr sem hægt er að opna\, fyrir nýjar frásagnir\, sem skapa rými fyrir ferðalög hugans. Ljósmyndir eru sjónhverfingar\, en þó eru hin eðlilegaustu viðbrögð að trúa á þær og dýfa sér inn í þær. \nTruflaðar ljósmyndir\, hugsaðar sem breytilegt efni\, sem brotist hafa undan fyrirfram gefnum væntingum\, eru til sýnis. Þeim er stillt upp til að fara í gegnum\, hreyfa\, og fylgja\, meðan mögulegar merkingar þeirra myndast með þér.“ \nClaire Paugam er frönsk listakona (f.1991) og viðtakandi hvatningarverðlauna myndlistasjóðs (2020) sem vinnur þverfaglega og býr í Reykjavík. Eftir útskrift úr MA-námi Listaháskóla Íslands 2016 hefur Claire haldið sýningar á ýmsum stöðum á Íslandi og erlendis svo sem á Moskvutvíæringnum fyrir unga listamenn (2016)\, á Ljósmyndahátíð Íslands í Gerðarsafni (2018) og D-sals einkasýningu í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsinu (2021). Árið 2019 settist Claire í stjórn Nýlistasafnsins. \nKjarninn í vinnu hennar er að varpa fram spurningum um efnið með því að stilla viðkvæmri reynslu upp gegn hefðbundnum kerfum reglna og túlkunar. Formleysi\, óreiða og sú tilfinning að sleppa tökunum eru aðal þemun sem hún kannar. Claire styðst við eðlisávísunina í rannsóknum sínum\, hverju verkefni fylgir sérstök efniskennd og uppbygging og þannig getur hún tekist á við afar fjölbreytt efni.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/claire-paugam-essentially-untitled/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/claire-paugam.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220618
DTEND;VALUE=DATE:20220711
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220621T134734Z
LAST-MODIFIED:20220916T101321Z
UID:23818-1655510400-1657497599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Julie Lænkholm: Fjallið við
DESCRIPTION:Hugmyndafræði Julie Lænkholm á rætur að rekja til hugmynda og aðferðafræða sem snúast um sameiginlega þekkingu og sam-lærdóm kynslóða. Hún kannar aðferðir og venjur sem hafa borist munnlega frá kynslóð til kynslóðar\, og leggur áherslu í vinnuferli sínu á sögu kvenna sem oft hefur legið í dvala eða gleymst. \n„Sem listamaður er ég aðeins þáttakandi í sköpunarferli verks. Ég reyni að vera farvegur sem leiðir hið ytra niður í gegnum höfuðið og hjartað og út um hendurnar. Þannig get ég búið til hluti sem eru handan minnar ímyndunar og það er miklu áhugaverðara en að ofhugsa verk.“ \nÁ einkasýningu sinni í Ásmundarsal vinnur hún með ljóð Guðnýjar frá Klömbrum (1804-1836)\, Sit ég og syrgi og skoðar hún hvernig sársauki en í senn lækning birtist í ljóðinu samtímis. Samlækning og arfleiddur sársauki var rannsóknarefni Lænkholm við vinnu sýningarinnar þar sem hún skoðaði hið viðkvæma samband umhyggju og sorgar\, þjáningar og lækninga\, aðgerða\, viðbragða og aðgerðaleysis. Verkin eru unnin með efni og ull frá ættarbæ hennar Húsavík þar sem hún kynntist jurtalitun í fyrsta sinn og textílvinnslu sem hafa mótað iðkun hennar síðan. Lænkholm telur ljóðrænuna felast í efninu sjálfu. Verk hennar minna okkur á hina viðstöðulausu keðjuverkun þar sem verkin fá okkur til að finna fyrir hinni stöðugu þróun og hvernig við erum samtengd með gjörðum okkar sjálfra og annarra. Það sem virðist löngu horfið lifir löngu eftir að það hefur farið\, það heldur áfram að þróast þegar við upplifum\, afhjúpum og eigum samskipti við sögu okkar og hvort annað. Við verðum þáttakendur í keðjuverkun þar sem verkið hreyfir við okkur og við hreyfum samtímis við arfleiðinni og sköpum samlærdóm eða með öðrum orðum nýja sam-visku. \nSýningin er styrkt af The Danish Art Foundation\, Fondet for Dansk-Islandsk samarbejde og Danska sendiráðinu. \nJulie Lænkholm (f. 1985\, Danmörk) býr og starfar í Kaupmannahöfn í Danmörku. Hún er útskrifuð frá Parsons\, The New School of Design í New York. Hún er einnig menntaður hjúkrunarfræðingur með sérhæfingu í hjartaskurðlækningum\, sem hún stundaði á meðan hún lauk listnámi. Lænkholm hefur verið með einkasýningar í Matsushima Bunko Museum (Matsushima)\, Tranen Space for Contemporary Art (Hellerup)\, Safnahúsinu (Húsavík) og Textile Art Center (New York).
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/julie-laenkholm-we-the-mountain/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/juliel-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220521
DTEND;VALUE=DATE:20220711
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220525T175220Z
LAST-MODIFIED:20220916T104345Z
UID:23385-1653091200-1657497599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Brák Jónsdóttir: Dýpra
DESCRIPTION:Á sýningunni Dýpra | Deeper kannar Brák snertifleti blætismenningar og garðyrkju\, manns og náttúru\, sársauka og unaðar. Í þeim tilgangi að nálgast náttúruna á hátt sem ögrar hefðbundnum hugmyndum um hvernig menning og náttúra mætast. Sýningin byggir á rannsókn listamannsins á sambandi líkama og gróðurs. Brák leikur sér að hugmyndum garðyrkjunnar um beislun náttúrunnar innandyra en sýningin teygir anga sína einnig út í garð\, á sameiginlegt yfirráða svæði manns og náttúru. Inni hanga ýmis verkfæri\, eða eru þetta leikföng? Hvort þau eru ætluð til ástarleikja eða garðyrkju er erfitt að sjá\, enda þarf annað ef til vill ekki að útiloka hitt. Í garðinum hefur einhver verið iðin í beðinu og nú virðist blómgun hafa átt sér stað og kynlegur ávinningur ætlar að verða af því. \nÍ ferli listamannsins er jörðin í hlutverki þess undirgefna í leik þar sem garðyrkjumaðurinn gælir við mörk hennar. Leikvangurinn er skapaður á forsendum hins undirgefna en reglurnar eru settar af drottnaranum. Af ástríðu leitast listamaðurinn við að komast dýpra\, dýpra í jörðina. Þetta valdatafl byggir á ábyrgð\, nánd og virðingu sem felur í sér umhyggju í garð viðfangsins. Roðandi spenna myndast við leikinn þegar mörk beggja eru þanin til hins ýtrasta. \nSú blætismenning sem Brák sækir til býr yfir gildishlaðinni fagurfræði og myndmáli sem er til grundvallar þess að virkja minni gróðurhússins og framkalla spennu. Holdleg rannsóknin ber af sér niðurstöður sem ögra ef til vill hefðbundnum hugmyndum um nánd og samband manns við náttúru. Með þeim afleiðingum að mörkin á milli líkama og umhverfi hans verða óljósari. Á sýningunni Dýpra | Deeper eru ýmsar vísbendingar um þessar niðurstöður en hún skilur eftir eyður fyrir áhorfandann til að fylla inn í. Þannig gerir hún kröfu til hans um að horfast í augu við eigin hugmyndir og velta fyrir sér forsendum þeirra. \nTextann skrifaði: Odda Júlía Snorradóttir \nBrák Jónsdóttir er fædd árið 1996. Hún útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar taka helst á sig form vídjóverks\, bókverks\, skúlptúrs og gjörnings\, en nýverið hafa viðfangsefni hennar snúið að sambandi manneskju við náttúru. Í rannsóknum sínum nálgast hún kink og blæti og skoðar samband mannfólks og náttúrulegra kerfa á grundvelli yfirráða og undirgefni\, fantasíu og femínisma.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/brak-jonsdottir-deeper/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/282557971_1706120563062519_6746413123009176471_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220521
DTEND;VALUE=DATE:20220607
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220525T174742Z
LAST-MODIFIED:20220916T104334Z
UID:23378-1653091200-1654559999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Pamela Angela Mellem himlen og haven
DESCRIPTION:PAMELA ANGELA \nMellem himlen og haven er síðasta stykkið í vængjaseríu Pamelu Angelu (Miu Ghabarou og Áslaugar Magnúsdóttur) þar sem myndlíkingar verða að raunveruleika. Verkið er innsetning byggð á tveimur ólíkum einingum; skúlptúr og tónflutningi. Skúlptúrinn er spilanlegt hljóðfæri búið til úr bílhurð sem leyfir okkur að túlka tónlistina eftir að hún hefur verið stöðvuð. Tónlistin hefur leikræna eiginleika og er blanda af post-folk\, hávaða\, „autotune“ og uppleystum laglínum ástarsorgar. \nFerðalag bílhurðarinnar frá ruslahaug í Danmörku til bílakirkjugarðs á Íslandi\, með stoppi í Ásmundarsal. \nMETAL HARP ROCK MUSIC \nVerkið er eftir Pamela Angela (Mia Ghabarou og Áslaug Magnúsdóttir) og hljóðfærasmíði er í höndum Henrik Sandberg Ballowitz. \nPamela Angela er kraftmikið fyrirbæri þar sem alsæla mætir stanslausri truflun\, ágengi umvafin hinu rómantíska. Verkefnið er samstarf Miu Ghabarou og Áslaugar Magnúsdóttur. Nálgun þeirra er margþætt en þær hafa bakgrunn í klassískri tónlist og raftónsmíðum\, gjörningalist og dramatúrgíu\, þar sem hjartasorgir mæta akúsmatískri tónlist. Lifandi flutningur Pamelu Angelu er jafn tilfinninga truflandi eins og hann er síbreytilegur. Síendurteknar laglínur með breytilegum samsetningum ólíkra listamanna. Þær leggja nú orku sína í að smíða hljóðfæri\, semja handrit og vinna að nýrri plötu sem mun koma út síðar á þessu ári. \nÁslaug og Mia hafa báðar lokið BA gráðu í raftónsmíðum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/pamela-angela-mellem-himlen-og-haven/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/DSC08635.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220326
DTEND;VALUE=DATE:20220425
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220411T161002Z
LAST-MODIFIED:20220428T124929Z
UID:22941-1648252800-1650844799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sara Riel: Destination Mars
DESCRIPTION:„Destination Mars er sjónræn geimferð frá jörðinni til Mars og aftur til baka. Listamaðurinn beitir fjölbreyttri tækni til að fjalla um grundvallarspurningar sem snerta uppruna\, tilgang\, siðferði og örlög. \nMikilfengleiki vísindaafreka mannsins kallast á við smæð hans í geimnum. Tæknihyggja og framfaratrú mætir dulspeki og fortíðarrómantík. Geimferðir sýna okkur jörðina í nýju ljósi en afleiðingarnar eru að þær þekja hana smám saman geimrusli\, svo hætt er við að við lokumst inni í sjálfsköpuðum ruslahjúp. \nÞrátt fyrir útbreiddan miskilning um að geimurinn sé hið nýja villta vestrið\, eru fimm alþjóðasáttmálar í gildi. Einn þeirra er Útgeimssamningurinn (Outer space treaty) sem er alþjóðlegur samningur 129 landa\, sem samið var um á vettvangi Sameinuðu þjóðanna\, árið 1967. Samkvæmt sáttmálanum er öllum frjálst að kanna geiminn. Ekkert ríki getur kastað eign sinni á nærliggjandi plánetur og vopn eru ekki leyfileg í kringum sporbaug jarðar. Margt er þó óljóst í lögunum – til dæmis hver ber ábyrgð á geimruslinu sem verður til ef eitt ríki sprengir gervihnattardisk annarars ríkis. Alþjóðasamningur um skaðabótaskyldu frá árinu 1972\, kveður á um að allt sem fer út í geiminn\, þarf að vera nákvæmlega skrásett og ríki séu ábyrgð fyrir því sem skotið er út í geim\, frá þeirra yfirráðasvæði. Einnig eru lögin óskýr varðandi hvort einkafyrirtæki megi hefja námugröft í geimnum. Í framtíðinni getur verið að ýmis hráefni verði sótt til nærliggjandi pláneta frekar en í námur á jörðinni. \nUm miðjan nóvember 2021 skaut Rússland flugskeyti á eigið gervihnattatungl. Sprengingin olli því að meira en 1500 stærri brot og mörg hundruð minni dreifðust um sporbaug jarðar. \nSjö alþjóðlegir geimfarar voru í alþjóðlegu geimstöðinni (ISS) þegar sprengingin varð. Hún myndaði þykkt geimruslaský sem geimstöðin fór í gegnum á 90 mínutna fresti. Þetta gerði dvölina í geimstöðinni fjórum sinnum hættulegra en ella. Beiting vopna í geimnum\, eins og í þessu tilfelli\, getur sett af stað keðjuverkun sem erfitt er að vinda ofan af. \nMilljarðamæringar (Musk\, Bezos\, Branson) hafa þróað nýjar eldflaugagerðir sem gera það bæði ódýrara að ferðast út í geim og senda upp gervihnetti í einkaeigu. Hvaða áhrif mun aðkoma milljarðamæringa að geimferðum hafa á afstöðu okkar til almennra ferðalaga og/eða búflutninga út í geim? \nBandaríkin\, Kína og Sameinuðu arabísku furstadæmin sendu öll geimflaugar af stað til Mars árið 2020. Markmiðið er að rannsaka reikistjörnuna\, kortleggja og taka sýni með aðstoð vélmenna. \nÞegar geimjeppinn Perseverance lenti á Mars 2020\, kom í ljós að forsvarsmenn NASA höfðu skrifað með dulmáli á fallhlíf jeppans. Forvitnir áhorfendur réðu fljótlega í leynilegu skilaboðin: „Dare mighty things“ – tilvitnun í Theodore Roosevelt\, forseta Bandaríkjanna á fyrstu árum tuttugustu aldar. Roosevelt er þekktur fyrir áhuga sinn á náttúrufræði\, verndun skóga og stofnun fjölmargra þjóðgarða\, um leið og hann hélt áfram útþenslustefnu Bandaríkjanna. \nHubble geimsjónaukinn sem skotið var upp í geim 1990 var sá öflugasti þar til James Webb sjónaukanum var skotið út í geim á jóladag 2021. Vísindamenn vona að sjónaukinn geri þeim kleift að skoða tilurð og uppruna annara sólkerfa og stórauka líkurnar á að finna reikistjörnu sem svipar til jarðarinnar. James Webb kom auga á sína fyrstu stjörnu 11. febrúar 2022. \nBjartasta stjarnan á himninum\, séð frá jörðinni\, er Síríus. Stjarnan er einnig þekkt sem Canis Major eða Hundastjarnan. Nafnið er dregið af gríska orðinu Seirios sem merkir að glóa. Ólíkir menningarheimar\, á mismunandi tímum\, um allan heim\, hafa tengt stjörnuna við úlf eða hund og litið á hana sem uppsprettu mikillar visku og valds. Þessar hugmyndir má finna í steinaldarsamfélögum við upphafi siðmenningar\, hjá frumbyggja í samtímanum og í helstu höfuðstöðum hins vestræna heims. Síríus virðist vera mikilvæg í trúarbrögðum og andlegri iðkun auk þess sem hún er oft miðpunktur í merkingafræði leynilegra samfélaga og dulspeki allt til dagsins í dag. \nTunglið er það himintungl sem fer hraðast um í sólkerfinu okkar. Hringrás þess hefur áhrif á sjávarföll\, tíðahring og hvernig við mannfólkið mælum tímann eða upplifun okkar á tíma. Fullt tungl er þegar tunglið er nákvæmlega öfugum megin við sólina\, á ferðinni sinni umhverfis jörðina. Þessi andstæða sem er samstæða\, yingið og yangið\, myrkrið og ljósið\, gefur rými til að gefast upp og finna fyrir auknu tilfinningaflæði. Í andlegri iðkun hefur fullt tungl verið tákn um endalok hringrása\, venja og sambanda. \nÍ bók Enoks og fleiri trúarritum frá um þriðju til fyrstu öld fyrir krist\, er fjallað um Sariel\, fallinn engil. Sariel fór ásamt öðrum englum niður til jarðarinnar til að sænga með jarðneskum konum en villa um fyrir og spilla mönnunum. Englarnir kenndu þeim að gera vopn\, verjur og skartgripi og ýmislegt um snyrtivörur og galdra. Sariel kenndi mönnunum gang himintunglanna.“ \nSara Riel & Kári Gylfason \nSara Riel (f. 1980) nam höggmyndalist við Kunsthochschule Weissensee Berlin\, og útskrifaðist með meistaragráðu og sem heiðursnemandi DAAD 2005 og meistaranemi (post-grad) árið 2006. \nSara hefur frá námsárunum tekið virkan þátt í alþjóðlegu starfi götulistamanna í Evrópu og víðar. Hin fjölmörgu veggverk sem finna má á byggingum í Reykjavík þekkja flestir sem eru kunnugir í höfuðborginni\, enda eru mörg verkanna orðin samofin borgarlandslaginu. \nMyndlist Söru einkennist af tilraunamennsku\, leikgleði og tæknilegum metnaði. Sara hefur tileinkað sér fjölbreytta tækni sem hún notar til að útfæra verk sín. Öll eiga þau þó rætur í teikningunni enda lítur hún fyrst og fremst á sig sem teiknara. \nSamhliða veggjalistinni hefur Sara þróað sitt eigið myndræna tungumál og hefur sterkt höfundaeinkenni. Hún hefur sýnt verk sín í flestum höfuðsöfnum Íslands og tekið þátt í fjölmörgum sýningum hérlendis og erlendis og verið heiðruð af virtum menningarstofnunum. Verk eftir hana eru í eigu bæði stofnana og einkasafnara. Hún er meðlimur í Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur og SÍM.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sara-riel-destination-mars/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/04/276203855_1664480133893229_7117621780873589722_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220219
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220301T155217Z
LAST-MODIFIED:20220404T154010Z
UID:22375-1645228800-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Í öðru húsi
DESCRIPTION:‘Í öðru húsi’ er samsýning Guðlaugar Míu Eyþórsdóttur\, Hönnu Dísar Whitehead og Steinunnar Önnudóttur. \nForm sýningarinnar er híbýli. Höfundarnir draga upp vistarverur\, ytri mörk og innri rými\, en birta bara afmörkuð svæði. Verk höfundanna mætast í þessum senum og mynda framandlegan efnisheim sem formgerist í kunnuglegum sviðsetningum.\nÍ verkum Hönnu Dísar\, Guðlaugar Míu og Steinunnar má finna sameiginlega strengi. Þær vinna gjarnan á mörkum myndlistar og hönnunar en í þessu verkefni mætast þær á landamærum þessara heima\, og setja fram sýningu sem tilheyrir hvorum\, heldur bregður sér undan slíkum skilgreiningum. \nGuðlaug Mía Eyþórsdóttir (f.1988) útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og stundaði síðar meistaranám í myndlist við Koninklijke Academie í Gent\, þaðan sem hún útskrifaðist árið 2018. Í myndlist sinni skoðar Guðlaug skúlptúríska þætti í manngerðu umhverfi okkar\, gaumgæfir þau form\, áferðir og gjörðir sem nærumhverfi okkar samanstanda af og kannar hvort efnisgera megi daglegar athafnir. Að auki hefur hún staðið að margvíslegum verkefnum innan myndlistar og brugðið sér í hlutverk útgefanda\, sýningarstjóra og rannsakanda. Á árunum 2012-19 stofnaði hún\, ásamt hópi listamanna\, sýningarrými Kunstschlager í Reykjavík og ABC Klubhuis í Antwerpen\, Belgíu og situr nú í stjórn Nýlistasafnsins. Hún hefur verið virk í sýningarhaldi bæði hér heima og erlendis síðastliðinn áratug og var tilnefnd til hvatningarverðlauna Íslensku Myndlistarverðlaunanna árið 2020. \nHanna Dís Whitehead (f.1982) útskrifaðist með láði frá Design Academy Eindhoven árið 2011. Hún hefur sýnt víða hérlendis sem og erlendis svo sem Danmörku\, Eistlandi\, Englandi\, Finlandi og Svíþjóð. Verk hennar eru staðsett á landamærum hönnunar\, listar og handverks. Ferlinu er leyft að ráða ferðinni og farið er á milli mismunandi efna svo sem viðar\, textíls og keramíkur innan sömu hugmyndar. Hanna Dís hefur sérstakan áhuga á að vekja upp samtal á milli hluta og áhorfenda þar sem hún vefur saman sögum\, formi\, litum og teikningu. Hún býr og starfar á Hornafirði. \nSteinunn Önnudóttir (f. 1984) býr og starfar í Reykjavík. Hún lauk BA námi í grafískri hönnun við Gerrit Rietveld Academie árið 2009\, og BA námi í myndlist (Audiovisual) árið 2011\, einnig við GRA. Helstu sýningar eru Feigðarós Í Kling&Bang 2021\, Non Plus Ultra í Listasafni Reykjavíkur 2019\, Skúlptúr Skúlptúr í Gerðarsafni 2018\, og Fallvelti Heimsins\, á vegum Myndhöggvarafélagsins\, 2018. Frá árinu 2014 hefur Steinunn rekið sýningarýmið Harbinger og hún er jafnframt hluti af útgáfusamstarfinu In volumes sem einbeitir sér að útgáfu bókverka. Árið 2019 hlaut Steinunnn viðurkenningu frá styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur. \nSteinunn fæst fyrst og fremst við málverk og skúlptúra sem renna gjarnan saman hvort við annað. Hún gerir tilraunir með að kanna víddir málverksins\, lætur það flýja flatneskju tvívíddar sinnar og verða hluti af þrívíðu umhverfi. Fyrir vikið verða verkin að líkamlegri upplifun þar sem hægt er að ganga í kring um þau eða jafnvel í gegnum þau. Steinunn leikur sér að því að spinna hugrenningatengsl á milli raunveru og sviðsetninga með verkum sínum\, og vinnur gjarnan með hugtök eins og afbyggingu\, sjónblekkingu\, uppruna og eftirlíkingu.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/in-another-house/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/03/another-house.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220115
DTEND;VALUE=DATE:20220131
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220112T134024Z
LAST-MODIFIED:20220825T135410Z
UID:21039-1642204800-1643587199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Klængur Gunnarsson & Hrafn Hólmfríðarson Jónsson: Loftþétt
DESCRIPTION:Hversdagsleikinn býður\, að því er virðist\, upp á óendanlega möguleika til athafna – eða það hefur í það minnsta verið frásagnaform samfélags okkar í lengri tíma.buy kamagra gold online healthcoachmichelle.com/wp-content/themes/twentytwentyone/inc/en/kamagra-gold.html no prescription\n Í raun og veru eru það takmarkanir sem mynda skapalón daglegs líf og á hverjum degi reynum við að finna aðferðir til að ráfa um innan þessa takmarkana. Þessar aðferðir geta verið einfaldar\, til dæmis að dást að sólsetri eða skýjum á himni – eða þá eitthvað stórbrotið líkt og skíðastökk. \nLaugardaginn 15. janúar opnar sýningin Loftþétt í Ásmundarsal. Að sýningunni standa Klængur Gunnarsson og Hrafn Hólmfríðarson Jónsson (Krummi). Í verkum sínum takast listamennirnir á við hversdagslega tilburði\, fyrirbæri og staði. Sýningin veltir fyrir sér lágstemdum möguleikum í hversdagsleikanum og hátíðlegum áformum um uppbrot hans. \nÍ vinnuferli sínu veitir Hrafn sínu nánasta umhverfi sérstaka athygli. Fyrir sýninguna vinnur hann með vistarverur sínar og þær líkamlegu takmarkanir sem hann glímir við sem afleiðingu af heilablóðfalli sem hann varð fyrir á táningsaldri. Í verkum sínum veltir Klængur fyrir sér hversdagslegum leiða og möguleikum manneskjunar til að rétta leiðann af – bæði frá degi til dags og við dagamun. \nSýningin er á dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands og er opin frá 15.buy levitra oral jelly online healthcoachmichelle.com/wp-content/themes/twentytwentyone/inc/en/levitra-oral-jelly.html no prescription\n1 – 30.1 2022.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/klaengur-gunnarsson-hrafn-holmfridarson-jonsson-airtight/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/Krummi_Airtight.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220113
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20220110T155022Z
LAST-MODIFIED:20220916T105009Z
UID:21030-1642032000-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ljósmyndahátíð Íslands
DESCRIPTION:Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóðleg ljósmyndahátíð sem haldin er í janúar annað hvert ár. Hátíðin var fyrst haldin árið 2012 og þá undir nafninu Ljósmyndadagar. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms. Á dagskrá hátíðarinnar eru ljósmyndasýningar með erlendum og íslenskum listamönnum\, fyrirlestrar\, ljósmyndabókakynningar og ljósmyndarýni. \nLjósmyndasafn Reykjavíkur skipuleggur ljósmyndarýnina og býður erlendum safnstjórum\, sýningastjórum og fagfólki í greininni til landsins. \nSamstarfsaðilar um Ljósmyndahátíð Íslands 2022 eru: Ásmundarsalur\, BERG Contemporary\, Félag íslenskra samtímaljósmyndara\, Gallery Port\, Gerðarsafn\, Hafnarborg\, Listasafn Íslands\, Ljósmyndasafn Reykjavíkur\, RAMskram\, Þjóðminjasafn Íslands. \nStjórnendur hátíðarinnar eru Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-icelandic-photo-festival/
LOCATION:City of Reykjavík\, Reykjavík\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/tipf2022_facebookspjald.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20211224
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20211202T124211Z
LAST-MODIFIED:20211224T111929Z
UID:20505-1638576000-1640303999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Svona eru jólin
DESCRIPTION:Jólasýningin „svona eru jólin“ er sölusýning um 170 listamanna. Verið er að endurvekja gamla hefð en sölusýningar voru haldnar fyrir jólin í Ásmundarsal (þá Listvinasalnum) á fimmta áratug síðustu aldar. Þá voru verk þekktustu listamanna þjóðarinnar sýnd samhliða verkum yngri og lítt þekktari listamanna. Um 450 verk verða til sölu á sýningunni í ár. Hægt verður að pakka þeim beint í silkiþrykktan jólapappír á innpökkunarstöð Prents & vina sem sjá um sýningarstjórnun. Í Gryfjunni verður sett upp grafíkverkstæði þar sem listamenn vinna verk í upplagi yfir sýningartímabilið. \nDagskrá Grafíkverkstæðis 2021: \n4-5.des | Almar Steinn Atlason og Hákon Bragason \n6-7.des | Anna Júlía Friðbjörnsdóttir \n8-9.des | Joe Keys \n10-11.des | Anna Rún Tryggvadóttir \n12-13.des | Margrét Blöndal \n14-15.des | Jón B.K Ransu \n 16-17.des | Melanie Ubaldo \n 18-19.des | Baldur Geir Bragason \n 20-21.des | Kristinn Már Pálmason \n 22-23.des | Tara Njála Ingvarsdóttir og Silfrún Una Guðlaugsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/so-this-is-christmas/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/12/asmundarchristmas.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211112
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20211111T161413Z
LAST-MODIFIED:20211111T162233Z
UID:20143-1636675200-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Reykjavík Art Book Fair
DESCRIPTION:Listabókamessa með áherslu á bókahönnun\, útgáfu og prent sem listform sem er í stöðugri þróun. \nVerið hjartanlega velkomin á opnun Reykjavík Art Book Fair í Ásmundarsal föstudaginn 12. nóvember kl.18. Reykjavík Art Book Fair byggir á vinsælu alþjóðlegu sýningarsniði listbókamessunnar. Messurnar sem haldnar eru víðsvegar um heim sameina listamenn og hönnuði sem nota bókverkamiðilinn sem listform\, lítil listbókaforlög\, gallerí og söfn sem stunda útgáfu á prentuðu efni. \nÚtgangspunktur messunnar er að líta á bókahönnun\, útgáfu og prent sem listform sem er í stöðugri þróun. Prentið hefur oft verið nefnt lýðræðislegasti listmiðillinn þar sem hann er aðgengilegur öllum\, hver sem er getur stundað sjálfsútgáfu og stjórnað dreifingu efnisins. \nListbókamessur ýta undir þá hugmynd þar sem þær eru einn af fáum viðburðum í listheiminum þar sem óþekktir listamenn\, aktívistar\, grasrót og gagnmenning sýna samhliða þekktum listamönnum\, stofnunum og sölugalleríum. Þátttakendur sjá um sölu á eigin efni og rennur ágóðinn óskiptur til þátttakenda. \nOPNUNARTÍMI MESSUNNAR:\nFös 12.nóv 18:00 – 21:00\nLau 13.nóv 11:00 – 17:00\nSun 14.nóv 11:00 – 17:00 \n  \nDAGSKRÁ HELGARINNAR: \n \nDunce tímarit útgáfuhóf Í Gryfjunni 12.nóv frá kl. 18:00 – 21:00 \nDunce er árlegt tímarit um kóreógrafíu og gjörningalist gefið út hjá Prenti & vinum í ritstjórn Sóleyjar Frostadóttur\, hannað af Helgu Dögg Ólafsdóttur. Tímaritið býður upp á faglega umfjöllun um verk og listrænt ferli danshöfunda og myndlistarmanna sem vinna með gjörningaformið. Dunce veitir viðtöku textum frá listamönnum um eigið skapandi ferli en með því gefst lesandanum tækifæri til að kynnast verki listamannsins af meiri dýpt. \nAnnað tölublað Dunce inniheldur meðal annars vital Joe Keys við Ilmi Stefánsdóttur um verk hennar á sviði myndlistar og leikhúss\, viðtöl við Sigtrygg Berg Sigmarsson\, Sigurð Guðmundsson\, Natalia Villanueva Linares\, Gjörningaklúbbinn\, Steinunni Ketilsdóttur og Ingrid Berger Myhre auk skrifa listamanna s.s. Sólbjartar Veru Ómarsdóttur um sýningu Yelena Arakelow og Gígju Jónsdóttur um eigið verk. \n  \n \nHvít sól útgáfuhóf í Gryfjunni\, 13. nóvember frá kl. 11-17 \nBókverkið Hvít sól er myndræn samantekt á samnefndum sýningum hópsins IYFAC. Sýningarnar samanstóðu af innsetningum og gjörningum sem haldnir voru á árunum 2017-2021 í ýmsum útgáfum á fimm mismunandi stöðum. Viðfangsefni þeirra var sólargangurinn og áhrif sólar og birtu á menn og samfélög. Samhliða útgáfunni verður gefin út ljósmyndaserían Veiddar sólir sem er sprottin upp úr hugmyndaheimi Hvítrar sólar\, og verður til sýnis á meðan á útgáfuhófinu stendur. Einnig verða sýnd brot úr sýningunum ásamt hljóðmynd verksins eftir Daníel Helgason. \nHöfundar verksins eru Halla Birgisdóttir\, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir\, Ragnheiður Maísól Sturludóttir og Sigrún Hlín Sigurðardóttir. Verkefnið er styrkt af Myndlistarsjóði. \n  \n \nKoma jól? Útgáfuhóf sunnudaginn 14. nóvember frá kl. 13–17 \nKoma jól? er jólaljóðabók eftir Hallgrím Helgason og Rán Flygenring sem kveðst á við fræga bók Jóhannesar úr Kötlum\, Jólin koma. Hér er að finna nýjustu fréttir af Grýlu og Jólakettinum og þá stíga hinar jökulhressu Grýludætur\, systur jólasveinanna\, fram úr þúsund ára löngum skugga bræðra sinna\nog arka til byggða\, hver með sínu lagi og hrekkjabrögð í farteskinu. \nÍ tilefni útgáfunnar mun Hallgrímur lesa upp úr bókinni í tvígang\, fyrst klukkan 14 og aftur klukkan 15. Kakó og pipakökur í boði. \nDúkristur Ránar verða sýndar í Gryfjunni frá 11–17 og tölusett eintök í takmörkuðu upplagi til sölu. \nÖll velkomin nema Grýla – léttar veitingar í boði.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/reykjavik-art-book-fair/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/artbook-fair.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211015
DTEND;VALUE=DATE:20211108
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20211014T113942Z
LAST-MODIFIED:20211104T100451Z
UID:19637-1634256000-1636329599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sindri Leifsson: Næmi\, næmi\, næm
DESCRIPTION:Sýningin samanstendur af innsetningu nýrra skúlptúra sem og tveimur kvöldverðarboðum sem unnin eru í samstarfi við Kjartan Óla Guðmundsson\, veitingamann og vöruhönnuð og Jóhönnu Rakel Jónasdóttur\, myndlistar- og tónlistarkonu. \nInni á sýningunni er búið að slá upp langborði þar sem gestum verður boðið að virkja skynfærin í gegnum mat & drykk. Sérútbúinn margrétta matseðill hefur verið gerður í nánum tengslum við verkin á sýningunni. Þá hafa verkin einnig tekið á sig mynd út frá seðlinum og afraksturinn er alltumlykjandi ferðalag með tilvísanir í hina fjölbreyttu flóru og fánu íslenskrar náttúru. \nEr matur list? Getur matur verið myndlist? Matur er að minnsta kosti upplifun sem virkjar skilningarvitin og getur verið hugvekjandi. En lengi hefur matargerð verið föst í þeim viðjum að vera gleðjandi og hugguleg upplifun. Líkt og ef einu leiksýningarnar væru farsar eða að rómantískar gamanmyndir væru eina kvikmyndaformið. Myndlist og önnur listform hafa hinsvegar löngu brotið niður þessa múra. Myndlist hefur leyfi til að vera allskonar; ljót\, erfið og krefjandi. Undanfarna áratugi hefur matreiðsla hægt og bítandi verið að brjóta niður þessa múra og veitingastaðir líkt og El Bulli\, Noma og Alchemist svo örfá dæmi séu nefnd bjóða upp á upplifun með fastmótuðum margrétta matseðlum og færa upplifunina þar með nær leikhúsi en veitingastaðir þar sem þú getur valið þér rétti af matseðli. Það er skemmtilegt að fá tækifæri til að brjóta niður þessa múra og framreiða matarupplifun þar sem unnið er í samstarfi við myndlistarmann. Úr verður túlkun á hugarheimi hans\, heildstætt verk þar sem sýningar upplifunin verður margþætt samofið verk tveggja hugmyndaheima þar sem tæki og verkferlar myndlistarinnar eru notuð til að virkja öll skilningarvitin í gegnum mat og drykk. \nMiðapantanir hér.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sindri-leifsson-naemi-naemi-naem/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/naemi-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211011
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20210927T122250Z
LAST-MODIFIED:20211011T142350Z
UID:19387-1632528000-1633910399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Fullkomið Firðrúm
DESCRIPTION:ANNA HRUND MÁSDÓTTIR\, JÓHANNA ÁSGEIRSDÓTTIR & DANÍEL MAGNÚSSON \nVillurnar vinda upp á sig sjálfsprottnar úr tóminu. Skekkjan getur af sér bil á milli hins beina og hins bogna\, eins og mynstruð mygla eða algoriðmi sem gæti hringsólast út í óendanleikann\, babelturn tæknialdarinnar. Samkvæmt ófullkomnunarsetning Gödels getur kerfi ekki lýst sér sjálfu\, sagt þér hvort það haldi áfram eða hætti og þá hvenær. \nVið teygðum úr okkur og komum okkur fyrir í hnitakerfi og fórum að elta óræðar tilfinningar fyrir einhverskonar samhengi hlutanna og þess óhlutbundna. Rúm er teygjanlegt yfirborð sem gefur eftir eins og svampur eða sykurpúði\, en stundum brotnar það skyndilega eins og rúða. Handahófskennt en rökrétt. Hvers vegna leiðir svo margt óvænt af rökfræðinni? Sumt er hugsanlegt en ekki nauðsynlegt. Ekkert er sjálfsagt og dæmið gengur ekki alltaf upp. Ó\, en þegar það gengur upp! \nSýningin er afrakstur úr vinnustofu teymisins Slembilukka sem stóð yfir í Gryfjunni 23. ágúst – 3. október. \nUm sýnendur:  \nJóhanna Ásgeirsdóttir (f. 1993) vinnur innsetningar\, upplifanir og skúlptúra innblásna af raunvísindum og umhverfismálum. Hún lauk grunnnámi í myndlist frá New York University og meistaranámi í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í og sýningarstýrt myndlistarsýningum á Íslandi\, Berlín og New York. Hún starfar nú sem listrænn stjórnandi listahátíðarinnar List án landamæra. \nAnna Hrund Másdóttir (f.1981) vinnur tilraunakennt og óútreiknanalega með efnivið sinn. Hún lauk BS námi í stærðfræði við Háskóla Íslands árið 2006 og BA námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2010. Árið 2012 var hún nemi í listamannarekna skólanum The Mountain School of Arts í Los Angeles og útskrifaðist síðar með MFA gráðu við California Institute of the Arts. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum\, hérlendis og erlendis. \nDaníel Magnússon (f. 1958) útskrifaðist úr Myndlista – og handíðaskóla Íslands árið 1987 og vakti þá strax athygli fyrir áhugaverð verk þar sem íslensk menning var oftar en ekki til umfjöllunar. Hann er einkum þekktur fyrir skúlptúra og ljósmyndaverk. Verk hans hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Auk þess að starfa sem myndlistarmaður kennir Daníel stærðfræði á framhaldsskólastigi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fullkomid-firdrum/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/complete-spaces.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210821
DTEND;VALUE=DATE:20210913
DTSTAMP:20260530T040936
CREATED:20210819T144214Z
LAST-MODIFIED:20220916T110139Z
UID:18496-1629504000-1631491199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jóhannes Atli Hinriksson: Marmari
DESCRIPTION:Jóhannes Atli Hinriksson opnar einkasýninguna MARMARI í Ásmundarsal laugardaginn 21. ágúst kl. 14:00. \nVerkin eru unnin sérstaklega fyrir sýninguna í Ásmundarsal og eru blanda af þrívíðum skúlptúrum og tvívíðum verkum\, nánar hér:\n„Óhlutbundin höggmyndalist er í besta falli orðaleikur\, í versta falli brandari. Hluturinn er alltaf hlutbundinn. Það segir sig bókstaflega sjálft\, Jónas minn. Og dag nokkurn verður ungur listamaður loks miðaldra. Þá hefur hann einn valkost (ef einn kostur er þá valkostur): Hina hreinu uppgjöf fyrir klassíkinni. \nHöggmyndir\, lágmyndir\, alvöru list. Hráefnið: Einhverskonar marmari. Allavega svipar efninu til marmara: Ljóst\, mjúkt\, auðmótanlegt. \nEn rétt undir yfirborði vitundarinnar mallar jú síðan sitthvað ógreinilegra en steinefni. Er það ósýnilegt jafnvel? Óhlutbundið? Nei\, hægan\, hægan. En hvernig lítur þá „efi“ aftur út? Nú eða ADHD? Hvernig lítur það út? Nú eða bara eitthvað sem enginn hefur smíðað hlutbundið orð um ennþá en liggur samt kæruleysislega þarna rétt undir yfirborðinu og stýrir óhlutbundnum straumum á einkar hlutbundin hátt. \nListamaður meinar hverja sveigju\, hann meinar þetta allt. Hitt er hins vegar óljóst: hvað þetta allt er. Byrjum á því að móta þennan skratta – svo sjáum við til. \nAllavega er ljóst að hin bergtegundin marmari er hlutbundin og sannar að óhlutbundin höggmyndalist er í besta falli orðaleikur\, í versta falli brandari.“ RHÓ\nVerið hjartanlega velkomin! \nJóhannes Atli Hinriksson (f. 1975)\nhefur getið sér orð fyrir innsetningar og málverk. Hann útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2000 og lauk síðar MFA-gráðu frá School of Visual Arts í New York og hefur haldið sýningar víða\, m.a. í Kaupmannahöfn\, New York og Zurich.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/johannes-atli-hinriksson-marmari/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/marmari.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR