BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221125
DTEND;VALUE=DATE:20221218
DTSTAMP:20260530T091619
CREATED:20221125T153114Z
LAST-MODIFIED:20221201T153152Z
UID:27752-1669334400-1671321599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Áslaug Íris Katrín: Bergmál
DESCRIPTION:Á sýningunni\, Bergmál\, kannar Áslaug Íris Katrín óhlutbundin form innan myndflatarins. Negatíf og positíf form eru endurtekin milli verka þar sem þau mynda nýja myndbyggingu hverju sinni og taka á sig nýja merkingu – abstrakt innan abstraktsins. Áslaug laðast að lifandi hefð óhlutbundins myndmáls sem gefur henni rými til þess að vinna með myndheim sinn á rökrænan hátt án fyrirfram gefins ramma. \nHvenær öðlast hið óhlutbundna merkingarbært form? Í sýningunni leikur Áslaug sér að endurtekningum forma sem svo kallast á milli verka. Upphafspunkturinn er línuteikning. Þar eru dregin upp óhlutbundin form sem tengjast hvert öðru\, raðast reglulega yfir myndflötinn og mynda grind eða net. Negatífur formanna eru síðan skornar út og endurraðað að nýju. Ný form verða til\, negatífur þeirra skornar út og þeim endurrað enn á ný. Að þessu leyti eru verkin samfelld abstraksjón.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/aslaug-iris-katrin-bergmal/
LOCATION:Listval\, Hólmaslóð 6\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-25-at-14.51.16.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220305
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T091619
CREATED:20220314T110140Z
LAST-MODIFIED:20220406T173535Z
UID:22682-1646438400-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir: Arfur
DESCRIPTION:Í hversdeginum smyr ég mér samloku þar sem kynslóðirnar blandast saman í majonesinu og ólík tímabil mannkynssögunnar hlaðast ofan á hvert annað. Kalkúnabringa\, salatblað\, tómatar og ostur. Ég fæ mér bita og hugsa um ömmur mínar og afa\, landflutninga\, Evrópu og innflytjendur. Um gróður\, mold og steingervinga\, listir og sögu mannkyns. \n  \nArfur \nég fæddist með silkiborða í höndunum \ngreip hann á leið minni gegnum fæðingarveginn  \nog skildi þá um leið  \nað hann væri haldreipi mitt í lífinu \nsilkiborði á kefli  \nsem hver einasta kona í móðurlegg hefur tekið við \nspunnið  \nog síðan gefið áfram \nþað er best að loka augunum og horfa með fingrunum \nþá greiðist fyrr úr flækjunum \n-Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir \n  \nÁslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f. 1981) lauk B.A. námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og MFA frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áslaug bjó um tíma í Bandaríkjunum en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í samsýningum í söfnum\, galleríum og öðrum sýningarrýmum í Evrópu\, Bandaríkjunum og á Íslandi. Áslaug hélt sína fyrstu einkasýningu árið 2015 í Hverfisgalleríi en nýlegar sýningar eru STEIN SKRIFT í Norr11\, Stellingar I Línulegar frásagnir í Berg Contemporary\, Umskráning\, fyrir sýningarröðina Í kring í Reykjavík Roasters/Ásmundarsal og Innanyfir í Gallerí Port.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/aslaug-iris-katrin-fridjonsdottir-heritage/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/03/heritage.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211015
DTEND;VALUE=DATE:20211029
DTSTAMP:20260530T091619
CREATED:20211018T142030Z
LAST-MODIFIED:20220916T111552Z
UID:19689-1634256000-1635465599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir & Steingrímur Gauti Ingólfsson: Innanyfir
DESCRIPTION:Föstudaginn 15. október kl. 17:00 verður sýningin Innanyfir opnuð í Gallery Port. Á sýningunni getur að líta ný verk eftir Áslaugu Írisi Katrínu Friðjónsdóttur og Steingrím Gauta Ingólfsson. \nSýn\, innsýn\, innsæi\, sjónarhorn. Hvaðan horfir listamaðurinn á verkin sín og hvernig horfir áhorfandinn á þau? Horfum við ofan frá\, með yfirsýn eða sjáum við aðeins brot af heildarmyndinni. Er horft innávið eða út um augun og frá okkur. Uppundir\, í gegnum\, afturábak í tíma eða áfram inn í eilífðina? \nÍ verkum sínum vinnur Áslaug með efnivið sem á sér sterkar rætur í náttúru og í byggingariðnaði og stuðlar jafnframt að hugrenningartengslum við umhverfi okkar\, mótun þess og skipulag. Í stöðugri leit að jafnvægi teflir Áslaug fram andstæðum og stillir þeim upp sem hliðstæðum hvað varðar efnivið\, aðferðir og efnistök. Fágun og fínleiki þess grófa og hráa er dregið fram og öfugt. \nSteingrímur Gauti nálgast málverkið af alúð og léttleika\, með því að aðskilja sjálfið og fyrirframgefnar hugmyndir frá daglegu sköpunarferli sínu. Verk hans leika með grunnspurningar um myndlist og fagurfræði\, eru í senn kraftmikil og lítillát en fjalla í raun ekki um annað en sig sjálf og sjónræn áhrif þeirra á áhorfandann. Ónákvæmni\, endurtekning og höfnun gagnrýnnar hugsunar einkenna vinnubrögð hans og útkoman ber þess jafnan merki\, þar sem verkin dansa á línu þess ljóðræna og barnslega. \nÁslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f. 1981) lauk B.A. námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og MFA frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áslaug bjó um tíma í Bandaríkjunum en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í samsýningum í söfnum\, galleríum og öðrum sýningarrýmum í Evrópu\, Bandaríkjunum og á Íslandi. Áslaug hélt sína fyrstu einkasýningu árið 2015 í Hverfisgalleríi en nýlegar sýningar hafa verið sýningin STEIN SKRIFT í Norr11\, Stellingar I Línulegar frásagnir í Berg Contemporary og einkasýningin Umskráning\, sem nú stendur yfir á jarðhæð Ásmundarsalar og er hluti sýningarraðarinnar Í kring hjá Reykjavík Roasters. \nSteingrímur Gauti Ingólfsson (f. 1986) býr og starfar í Reykjavík. Hann lauk B.A. námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2015 og hefur verið virkur í sýningarhaldi síðastliðin ár. Hann hefur tekið þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis og haldið allnokkrar einkasýningar. Nýlegar sýningar eru m.a. Soft Approach í Galerie Marguo í París\, Life in a Day í Diller Daniels í Zurich og Allt á sama tíma í Hafnarborg. Verk Steingríms má finna í bæði opinberum- og einkasöfnum í Evrópu\, Bandaríkjunum og Asíu.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/aslaug-iris-katrin-fridjonsdottir-steingrimur-gauti-ingolfsson-innanyfir/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/innayfir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210904
DTEND;VALUE=DATE:20211001
DTSTAMP:20260530T091619
CREATED:20210830T130741Z
LAST-MODIFIED:20220825T133402Z
UID:18791-1630713600-1633046399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:30x30
DESCRIPTION:Laugardaginn 4. september\, kl. 16\, opnar samsýningin 30×30 í Gallery Port. \nÁ sýningunni kemur saman fjölbreyttur hópur listafólks\, 30 manns\, og sýna þrjátíu ný verk. Sýningin er framhald af sýningunni 20×20 en nú hafa bæst 10 listamenn. \nVerkin eiga reikningsdæmið 30×30 sameiginlegt\, en hverjum svo í sjálfsvald sett hvernig útkoman er útsett. Útkoman er fjölbreytt sýning og spanna verkin marga miðla. \nListamennirnir koma hver úr sinni áttinni\, eru af hinni og þessari kynslóðinni\, bæði gömul og ný í hettunni. \nSýningin stendur til 30. september og eru opnunartímar Gallery Port í september frá fimmtu- til laugardags frá 12:00 – 17:00. \nListamenn:\nAuður Ómarsdóttir\nArngrímur Sigurðsson\nÁrni Már Erlingsson\nÁsgeir Skúlason\nÁslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir\nDodda Maggý\nFreyja Reynisdóttir\nFritz Hendrik\nGeirþrúður Einarsdóttir\nGuðlaug Mía Eyþórsdóttir\nGuðrún Heiður Ísaksdóttir\nHallgrímur Helgason\nHelgi Þórsson\nHulda Hákon\nJón Óskar\nKristín Gunnlaugs\nKristín Karólína\nLeifur Ýmir Eyjólfsson\nLoji Höskuldsson\nMagnús Helgason\nPétur Magnússon\nSalka Rósinkranz\nSigurður Angantýsson Hólm\nSigurður Atli Sigurðarson\nSigurður Ámundason\nSigurlaug Gísladóttir\nSkarphéðinn Bergþóruson\nSvavar Pétur Eysteinsson\nSteinunn Marta Önnudóttir\nÞórdís Erla Zoëga
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/30x30/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/30-at-port.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR