BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220101
DTEND;VALUE=DATE:20230115
DTSTAMP:20260530T091637
CREATED:20220214T093526Z
LAST-MODIFIED:20221201T151926Z
UID:21916-1640995200-1673740799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ásgrímur Jónsson: Gluggi í Reykjavík
DESCRIPTION:Sýningin Gluggi í Reykjavík samanstendur af úrvali verka eftir Ásgrím Jónsson sem eiga það sameiginlegt að tengjast nærumhverfi listamannsins í Reykjavík. Verkin eru úr safneign Listasafns Íslands en Ásgrímur ánafnaði íslensku þjóðinni öll listaverk sín ásamt húseign sinni að Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. \nÁsgrímur Jónsson (1876–1958) er einn af brautryðjendum íslenskrar listasögu og varð fyrstur íslenskra málara til að gera listina að aðalstarfi sínu. Hann fæddist í Suðurkoti í Rútsstaðahverfi í Flóa og stundaði nám við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn á árunum 1900–1903. Að námi loknu dvaldi hann um skeið í Danmörku og ferðaðist suður á bóginn\, meðal annars dvaldi hann eitt ár á Ítalíu og staldraði einnig við í Þýskalandi. Ferðalögin veittu honum innblástur þar sem honum gafst færi á að sjá verk frönsku impressjónistanna sem höfðu mótandi áhrif á listsköpun hans síðar meir. Íslensk náttúra var meginviðfangsefni Ásgríms auk þess sem hann var frumkvöðull í túlkun íslenskra þjóðsagna og ævintýra. \nÁsgrímur sneri aftur til Íslands árið 1909\, 33 ára að aldri\, og bjó í Reykjavík. Fyrst í Vinaminni í Grjótaþorpinu en árið 1928 reistu þeir Ásgrímur og Jón Stefánsson listmálari sér parhús við Bergstaðastræti 74 eftir teikningu Sigurðar Guðmundssonar arkitekts. Ásgrímur hafði þann háttinn á að ferðast um landið á sumrin með trönurnar og halda síðan sýningu um páskana en fjölmargar myndir frá Reykjavík og nágrenni bera því vitni að honum var einnig hugað um sitt nánasta umhverfi. \n  \nÚtsýnið úr glugganum í Vinaminni þar sem hann bjó fyrst eftir heimkomuna varð honum tamt mótív þar sem Reykjavíkurhöfn og Esjan blasa við. Einnig varð útsýnið til suðurs úr þakglugga vinnustofunnar við Bergstaðastræti honum að innblæstri síðar. Vatnslitirnir eru þá viðeigandi þar sem hann fangar birtuna yfir Skerjafirðinum og húsin við Laufásveginn. Ævistarf Ásgríms\, list hans\, spannar langt tímabil í sögu þjóðarinnar\, tíma þegar sveitasamfélagið byrjar að leysast upp og Reykjavík að breytast úr bæ í borg. Mörg málverka Ásgríms frá Reykjavík sem máluð eru á fyrri hluta 20. aldar sýna friðsaman smábæ þar sem húsin kúra við ysta sæ en þau lýsa einnig athafnalífi\, svo sem mönnum að vinna við gatnagerð í borgarsamfélagi í mótun. Borið saman við Reykjavík í dag sjáum við að lágreist hús\, hænsnakofar og hesthús hafa vikið fyrir uppbyggingu borgarinnar í takt við breytta lifnaðarhætti og nýja samgöngumáta. Sjónarhorn listamannsins þar sem horft er út um gluggann er algengt viðfangsefni í listasögunni. Nándin við listamanninn er mikil í þessum verkum og í húsi Ásgríms má út um glugga sjá sama sjónarhornið og Ásgrímur festi á striga og pappír. Sérstæð litbrigði húsanna í bænum njóta sín og þrátt fyrir breytta tíma eimir enn eftir af þeirri Reykjavík sem Ásgrímur þekkti svo vel og í verkum hans má sjá mörg þekkt kennileiti borgarinnar í dag\, svo sem Tjörnina\, Fríkirkjuna\, Þingholtin og Grjótaþorpið í Reykjavík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/asgrimur-jonsson-a-window-in-reykjavik/
LOCATION:Home of an Artist\, Bergstaðastræti 24\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/02/1gluggi-i-rvk.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211214
DTEND;VALUE=DATE:20221121
DTSTAMP:20260530T091637
CREATED:20211109T101820Z
LAST-MODIFIED:20221201T145758Z
UID:20121-1639440000-1668988799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gjöfin til íslenzkrar alþýðu
DESCRIPTION:Það þóttu stórtíðindi þegar athafnamaðurinn Ragnar Jónsson\, kenndur við Smára\, ákvað að færa Alþýðusambandi Íslands málverkasafnið sitt að gjöf sumarið 1961. Ósk Ragnars var sú að stofnað yrði listasafn sem kæmi listinni á framfæri við vinnandi fólk í landinu. Listaverkagjöf Ragnars – um 147 verk – lagði grunninn að Listasafni ASÍ og geymir verk margra af þekktustu myndlistarmönnum þjóðarinnar frá síðustu öld. \nRagnar Jónsson byggði safn sitt í kring um fastan kjarna\, stór og kynngimögnuð verk eftir fimm listmálara sem að hans mati voru þekktustu listamenn samtímans. Það voru þeir Ásgrímur Jónsson\, Jóhannes S. Kjarval\, Jón Stefánsson\, Gunnlaugur Scheving og Þorvaldur Skúlason. \nÁ sýningunni er lögð áhersla á verk þessara listamanna\, leitast er við að fanga þá meginhugsun sem lá að baki söfnunarstefnu Ragnars og spegla sýn hans á íslenska listasögu. \nSýningin er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri og Listasafns ASÍ. Sýningarstjóri: Kristín G. Guðnadóttir\, listfræðingur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-gift-to-the-people/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/asgrimur-jonsson-landslag-1948-1950.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T091637
CREATED:20210819T142932Z
LAST-MODIFIED:20220916T105746Z
UID:18485-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halló\, geimur
DESCRIPTION:Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti. \nÁ sýningunni Halló\, geimur er skyggnst inn í undraveröld himingeimsins með hjálp listaverka í safneign Listasafns Íslands. \nFramúrstefnuleg verk Finns Jónssonar\, sem fyrstur Íslendinga tókst á við geiminn í verkum sínum á fyrri hluta 20. aldar\, miðla óheftri tjáningu listamannsins á töfrum himintunglanna sem eru leiðarstef sýningarinnar. Leyndardómar Vetrarbrautarinnar sem aldnir spámenn afhjúpa með forsögnum sínum um veðurfar og forlög manna eru Hildigunni Birgisdóttur og Svavari Guðnasyni innblástur. Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar leiftrar með litadýrð og innsetning Steinu Vasulka\, Of the North\, hrífur áhorfandann með sér í áhrifamikilli upplifun.\nÍ verkum Ásgríms Jónssonar og Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) frá fyrri hluta 20. aldar sjáum við hvernig himintunglin tengjast þjóðtrú og ævintýrum þar sem vættir birtast mannfólki í tunglsljósi og blessuð sólin breytir tröllum í stein þegar dagur rís. Á sýningunni eru einnig mörg verk frá 7. og 8. áratug 20. aldar þegar framfarir í geimvísindum voru stórstígar og maðurinn fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolf jarðar. \nGeimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik\, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk. Með hjálp Tuma\, aðalpersónu bókarinnar Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann\, geta yngstu gestir safnsins skoðað sýninguna á aðgengilegan hátt\, sett upp gleraugu vísindamannsins og numið nýjan fróðleik! \nSýningarstjórar: Guðrún Jóna Halldórsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir \nVísindalegar staðreyndir: Sævar Helgi Bragason \nListamenn sem eiga verk á sýningunni: \nÁsgrímur Jónsson\nBjörg Þorsteinsdóttir\nErró\nEyborg Guðmundsdóttir\nFinnur Jónsson\nGuðmunda Andrésdóttir\nGuðmundur Thorsteinsson (Muggur)\nHalldór Ásgeirsson\nHelgi Þorgils Friðjónsson\nHildigunnur Birgisdóttir\nHildur Hákonardóttir\nHreinn Friðfinnsson\nJóhann Eyfells\nJón Gunnar Árnason\nKeith Grant\nKristinn E. Hrafnsson\nMargrét Elíasdóttir\nSigurjón Ólafsson\nSteina\nSvavar Guðnason\nSverrir Haraldsson\nVilhjálmur Bergsson\nÞorvaldur Skúlason
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallo-geimur/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/hallo-geimur-vefur-Listasafn-Íslands.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200101
DTEND;VALUE=DATE:20220101
DTSTAMP:20260530T091637
CREATED:20211108T104105Z
LAST-MODIFIED:20220916T105720Z
UID:20014-1577836800-1640995199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ásgrímur Jónsson: Korriró og dillidó
DESCRIPTION:Ævintýrin gerast enn! Myndheimur íslenskra þjóðsagna og ævintýra sem Ásgrímur Jónsson skapaði með verkum sínum er sannkallaður töfraheimur. Álfar\, tröll og draugar\, sem lifað höfðu í hugskoti þjóðarinnar í rökkri baðstofunnar\, tóku á sig skýra mynd í verkum Ásgríms\, en hann sýndi slík verk í fyrsta sinn á Íslandi árið 1905. Þjóðsagnamyndir Ásgríms fengu góðan hljómgrunn og í blaðaskrifum um sýninguna er því fagnað að í fyrsta sinn hafi íslenskur listmálari tekist á við að túlka þjóðsögurnar. Mikil sátt virðist hafa ríkt um útlit álfa og trölla í meðförum Ásgríms\, svo ætla má að listamanninum hafi tekist að fanga þá mynd sem landsmenn höfðu skapað í huga sér af þessum fyrirbærum. Þjóðsagnamyndirnar eru í dag hluti af einstökum menningararfi sem Listasafn Íslands varðveitir. \nSýningin Korriró og dillidó á vinnustofu Ásgríms í íbúðarhúsi hans við Bergstaðastræti veitir kærkomið tækifæri til að kynnast þeim einstaka ævintýraheimi skrautbúinna álfa og ógnvekjandi trölla sem Ásgrímur Jónsson túlkaði af mikilli einlægni og ástríðu. Á sýningunni er hægt að hlusta á lestur nokkurra þjóðsagna bæði á íslensku og ensku sem bæði ungir og aldnir\, fjölskyldur eða hópar geta notið í þeirri einstöku umgjörð sem heimili listamannsins er.\nÍ safneign Listasafns Íslands eru rúmlega 1.000 verk sem tengjast efni þjóðsagna og ævintýra og í teiknibókum Ásgríms Jónssonar eru yfir 2.000 teikningar sem að stórum hluta sækja myndefni í þennan sagnabrunn. \nÁ sýningunni í Ásgrímssafni má sjá brot af því fjölbreytta safni þjóðsagnamynda sem Ásgrímur Jónsson lét eftir sig\, bæði olíu- og vatnslitamálverk auk teikninga\, þ. á m. túlkun á sögunum Una álfkona\, Nátttröllið\, Gissur á botnum\, Búkolla\, Mjaðveig Mánadóttir\, Djákninn á Myrká og „Horfðu í glóðarauga mitt\, Gunna“.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/asgrimur-jonsson-korriro-og-dillido/
LOCATION:Hús Ásgríms Jónssonar\, Bergstaðastræti 24\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2020/05/LI_AJ_00311.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR