BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221006
DTEND;VALUE=DATE:20221010
DTSTAMP:20260530T060329
CREATED:20220627T115321Z
LAST-MODIFIED:20221013T153805Z
UID:24123-1665014400-1665359999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:A! Gjörningahátíð 6-9. okt á Akureyri
DESCRIPTION:A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri dagana 6.-9. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega\, nú í áttunda sinn og er eina hátíðin á Íslandi sem einbeitir sér einungis að gjörningalist. Ókeypis er inn á alla viðburði. \nAlls taka 22 alþjóðlegir listamenn þátt í hátíðinni og koma frá Króatíu\, Rússlandi\, Bandaríkjunum\, Póllandi og Íslandi. Dómnefnd valdi verk úr hópi fjölbreyttra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dagskránni: myndlist\, sviðslist\, tónlist og ritlist. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn\, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri\, Hlöðunni í Litla-Garði\, Deiglunni\, Kaktus\, Eyjafjarðarsveit og á Ketilkaffi. \nÞátttakendur eru: Anna Kolfinna Kuran\, Áki Sebastían Frostason\, Dýrfinna Benita Basalan\, Einkasafnið\, Kaktus\, Katrin Hahner\, Olya Kroyter\, Rashelle Reynevald\, Rösk\, Tricycle Trauma\, Vídeólistahátíðin Heim og Örn Alexander Ámundason. \nGjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri\, Leikfélags Akureyrar\, Menningarhússins Hofs\, Gilfélagsins\, Vídeólistahátíðarinnar Heim\, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-performance-festival-2/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/Áki-Sebastian-Frostason.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210605
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T060329
CREATED:20210831T143950Z
LAST-MODIFIED:20220913T155438Z
UID:18875-1622851200-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anna Kolfinna Kuran: Yfirtaka
DESCRIPTION:Yfirtaka er röð gjörninga eftir Önnu Kolfinnu Kuran\, þar sem markmiðið er að fylla ólík rými með kvenorku og líkömum. Kveikju verksins má rekja til vangaveltna um sýnileika kvenna í samfélaginu. Á Íslandi er ekki hægt að fullyrða að konur séu ósýnilegar eða raddlausar. En hvaða konur eru það sem við heyrum í og sjáum? Hverjar eru það sem taka pláss og hafa hljómgrunn? Hugmyndin með Yfirtökunni er að búa til vettvang fyrir konur úr ólíkum samfélagshópum að sameinast í samstöðu og krafti. Verkið kannar mátt mýktarinnar og kyrrðarinnar og orkunnar sem myndast þegar margar konur koma saman. \nFyrir Listasafn Árnesinga hefur Anna Kolfinna skapað þríþætt verk sem byggir á hugmyndafræði Yfirtökunnar: myndbandsverk\, gjörning á opnun sýningarinnar og hljóðverk. Í myndbandinu mynda konurnar samstöðu\, búa til mynstur og máta sig við arkitektúr listasafnsins. Þetta er staðbundið myndbandsverk þar sem flytjendurnir fást við dularfullar og táknrænar athafnir. Á opnunardegi sýningarinnar þann 5. júní 2021\, gera konurnar innrás í listasafnið og fremja gjörning þar sem verða sterkar tilvísanir í athafnir myndbandsins. Þær birtast innan um sýningargesti og leiða hæga og stigmagnandi athöfn sem skapar dulúðlega og rafmagnaða stemmningu. Eftir opnunina endurfæðist hluti verksins. Raddhluti gjörningsins á opnunardeginum verður tekinn upp og settur aftur inn í rýmið\, þar sem hann mun hljóma líkt og bergmál gjörningsins\, og öðlast þannig sjálfstætt líf sem hljóðverk það sem eftir lifir sýningartímabilsins. \nMyndbandsverkið\, gjörningurinn frá opnunardeginum og hljóðverkið eru þríþætt nálgun á sama viðfangsefnið sem rannsakar mörk tíma og rúms í einum rauðum alheimi. \nAnna Kolfinna Kuran (f. 1989) er sjálfstætt starfandi listakona. Hún útskrifaðist með BA- gráðu af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2013 og með meistaragráðu í performance fræðum (e. performance studies) úr New York Háskóla árið 2017. Verk Önnu Kolfinnu taka á sig ólíkar myndir þar sem flæði milli miðla\, greina og aðferða er greinilegt\, megin áherslan liggur þó í því sjónræna og líkamlega. Gegnumgangandi þemu í verkum hennar eru að rannsaka viðfangsefni sem við koma líkama konunnar og samtíma femínisma. Anna Kolfinna er meðal stofnenda fjöllistahópanna Dætur og Kraftverk sem unnið hafa að ýmsum sýningum sem meðal annars fyrir Reykjavík Dance Festival (2013) og Sequences Art Festival (2015). Undanfarin ár hefur Anna Kolfinna einblínt á langtíma verkefni sem ber titilinn Konulandslag þar sem hún rannsakar tengsl milli kyns og rýmis. Verkefnið er marglaga listræn og fræðileg rannsókn þar sem hún skoðar vægi kvenlíkamans og sýnileika kvenna í mismunandi umhverfum. Markmiðið með verkefninu er að varpa ljósi á og gera heim kvenna\, í sinni margslungnu mynd\, sýnilegan í formi lifandi verka á sviði\, gjörninga\, ljósmynda og myndbandsverka. \nMeðal þessara verka eru röð gjörninga undir yfirskriftinni Yfirtaka þar sem markmiðið er að fylla ólík rými með kvenlíkömum og röddum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anna-kolfinna-kuran-yfirtaka/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/05/takeover.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR