BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211002
DTEND;VALUE=DATE:20211015
DTSTAMP:20260530T120526
CREATED:20211006T151446Z
LAST-MODIFIED:20211014T104451Z
UID:19489-1633132800-1634255999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Brúnn\, bleikur\, banani
DESCRIPTION:Við erum lítil\, við lærum lag um litina. Ekki alveg alla litina en nógu marga til að taka þátt í því samtali. Stef\, orð\, byrjun og endir\, um eitthvað sem við sjáum. Kannski erum við að kynnast einhverjum lit í fyrsta skiptið\, annað hvort orðinu þá eða litnum\, það sem við tengjum orðið við. Þú hefur sennilega heyrt lagið áður en þú syngur það. Þetta er upplifun\, að læra er upplifun. Við lærum af upplifunum. Við lærum litina með lagi. \nEf við getum lært litina með lagi\, hvað annað er hægt? Getum við lært tölur með trompeti? Lært um tölvur með trjágreinum? Um geiminn með lyklum? Sumt af þessu er augljóst\, auðvitað. Eins og þegar þú lærðir um sársauka með svelli\, eða lærðir um bíla þegar hann bilaði\, eða lærðir um drauma frá dauðanum. Sumar tengingar eru viljandi\, sumar eru óvart tengingar. \nAf því það er alltaf líka eitthvað meira.Við lærum eitthvað kannski fyrst og fremst: nöfnin á litunum. En hér er ekki bara brúnn\, bleikur heldur líka banani\, og svo appelsína – talandi. Litir eru alltaf bara til á einhverju\, ekki í lausu lofti\, ok. Eitthvað til að muna\, já\, en líka til að túlka. Kannski er ekkert þá fyrst og fremst. Kannski er lærdómurinn hvernig á að beita raddböndunum\, eða að ríma\, eða kannski hvernig á að vinna saman og syngja í hópi. Kannski er það stuðlunin\, kannski erum við að læra fyst og fremst hvernig við stuðlum. Ég skal ekki segja\, það er þitt mál. \n  \nAnna Hrund Másdóttir (f.1981) vinnur tilraunakennt og óútreiknanlega með efnivið sinn. Hún lauk BS námi í stærðfræði við Háskóla Íslands árið 2006 og BA námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2010. Árið 2012 var hún nemi í listamannarekna skólanum The Mountain School of Arts í Los Angeles og útskrifaðist síðar með MFA gráðu við California Institute of the Arts. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum\, hérlendis og erlendis. \nAuður Lóa Guðnadóttir (f.1993)er myndlistarmaður\, sem leikur sér á landamærum hins hlutlæga og huglæga\, skúlptúrs og teikningar\, listar og veruleika. Hún vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri\, fígúratíft\, og myndmál sem hún sækir í forna jafnt og nýliðna sögu.\nAuður Lóa útskrifaðist af myndlistasviði Listaháskóla Íslands 2015. Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt og í samstarfi við aðra listamenn\, og tekið þátt í sýningum eins og Leikfimi í Safnasafninu\, Djúpþrýstingur í Nýlistasafninu og Allt á sama tíma í Hafnarborg. Hún hlaut hvatningarverðlaun myndlistarráðs 2018 fyrir sýninguna Díana\, að eilífu sem hún tók þátt í og stýrði. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur en hún bar titilinn Já / Nei og samanstóð af yfir 100 skúlptúrum úr pappamassa. \nPatty Spyrakos (f. 1974) er myndhöggvari og listmálari sem leggur áherslu á blandaða tækni og er búsett í Reykjavík. Patty lauk BS-prófi í sálfræði og mannfræði við Loyola-háskóla í Chicago en í námi sínu lagði hún einkum áherslu á skynkerfi\, skyntúlkun og þróunarsálfræði. Um 20 ára skeið starfaði hún við sjónræna og gagnvirka hönnun og sem hugmyndastjóri hjá stóru alþjóðlegu tæknifyrirtæki í San Francisco. Hún lærði keramikgerð í þrjú ár við Lincoln Square Pottery Studio í Chicago. Patty leggur í verkum sínum mikla áherslu á tilraunastarfsemi með efniviðinn og viðfangsefnið er oftar en ekki undir áhrifum frá þeim stað þar sem hún heldur til eða þar sem sýningin er haldin. Hver sýning listakonunnar vekur upp ný sjónarhorn á bæði verkum og hana sjálfa en undir niðri má skynja þróunarferli hugans\, andleg og tilfinningaleg átök\, hverfult jafnvægi\, hið yfirnáttúrulega og þróun tengsla og tengingu af öllu tagi jafnt innan sem á milli sjálfsins og samfélagsins. Hún hefur sýnt í Chicago\, Los Angeles\, Hong Kong\, Reykjavík og hélt sína fyrstu einkasýningu í New York á þessu ári í Padre Gallery.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/brunn-bleikur-banani/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/banana.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211011
DTSTAMP:20260530T120526
CREATED:20210927T122250Z
LAST-MODIFIED:20211011T142350Z
UID:19387-1632528000-1633910399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Fullkomið Firðrúm
DESCRIPTION:ANNA HRUND MÁSDÓTTIR\, JÓHANNA ÁSGEIRSDÓTTIR & DANÍEL MAGNÚSSON \nVillurnar vinda upp á sig sjálfsprottnar úr tóminu. Skekkjan getur af sér bil á milli hins beina og hins bogna\, eins og mynstruð mygla eða algoriðmi sem gæti hringsólast út í óendanleikann\, babelturn tæknialdarinnar. Samkvæmt ófullkomnunarsetning Gödels getur kerfi ekki lýst sér sjálfu\, sagt þér hvort það haldi áfram eða hætti og þá hvenær. \nVið teygðum úr okkur og komum okkur fyrir í hnitakerfi og fórum að elta óræðar tilfinningar fyrir einhverskonar samhengi hlutanna og þess óhlutbundna. Rúm er teygjanlegt yfirborð sem gefur eftir eins og svampur eða sykurpúði\, en stundum brotnar það skyndilega eins og rúða. Handahófskennt en rökrétt. Hvers vegna leiðir svo margt óvænt af rökfræðinni? Sumt er hugsanlegt en ekki nauðsynlegt. Ekkert er sjálfsagt og dæmið gengur ekki alltaf upp. Ó\, en þegar það gengur upp! \nSýningin er afrakstur úr vinnustofu teymisins Slembilukka sem stóð yfir í Gryfjunni 23. ágúst – 3. október. \nUm sýnendur:  \nJóhanna Ásgeirsdóttir (f. 1993) vinnur innsetningar\, upplifanir og skúlptúra innblásna af raunvísindum og umhverfismálum. Hún lauk grunnnámi í myndlist frá New York University og meistaranámi í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í og sýningarstýrt myndlistarsýningum á Íslandi\, Berlín og New York. Hún starfar nú sem listrænn stjórnandi listahátíðarinnar List án landamæra. \nAnna Hrund Másdóttir (f.1981) vinnur tilraunakennt og óútreiknanalega með efnivið sinn. Hún lauk BS námi í stærðfræði við Háskóla Íslands árið 2006 og BA námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2010. Árið 2012 var hún nemi í listamannarekna skólanum The Mountain School of Arts í Los Angeles og útskrifaðist síðar með MFA gráðu við California Institute of the Arts. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum\, hérlendis og erlendis. \nDaníel Magnússon (f. 1958) útskrifaðist úr Myndlista – og handíðaskóla Íslands árið 1987 og vakti þá strax athygli fyrir áhugaverð verk þar sem íslensk menning var oftar en ekki til umfjöllunar. Hann er einkum þekktur fyrir skúlptúra og ljósmyndaverk. Verk hans hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Auk þess að starfa sem myndlistarmaður kennir Daníel stærðfræði á framhaldsskólastigi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fullkomid-firdrum/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/complete-spaces.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR