BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221112
DTEND;VALUE=DATE:20221201
DTSTAMP:20260530T115551
CREATED:20221110T102616Z
LAST-MODIFIED:20221201T114231Z
UID:27446-1668211200-1669852799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lofthaf
DESCRIPTION:Lofthaf sýning Olgu Bergmann og Önnu Hallin opnar í Listamenn Gallerí – Skúlagötu 32   Laugardaginn 12. nóvember klukkan 16:00.\n\n“Er ímyndun ímyndun? Hverjir eru höfundar og eigendur raunveruleikans? Hvaða sannleikur er heimasmíðaður\, manngerður\, hvaða ekki? Hvað geri ég í raunveruleika sem fyrirlítur skaðlausa eðlisþætti mína? Byggi ég mér nýjan heim? Endar náttúran? Hvar? Við Ósonlag? \n\nSpurningarnar ganga sem rauður þráður í list tveggja geimfara sem búa í Reykjavík: Önnu Hallin og Olgu Bergmann\, myndlistarkvenna sýningarinnar Lofthaf sem galleríið Listamenn opnar þ. 12. nóvember 2022. Laus undan skrásetningarþörf í kauphöll má kalla listamannateymið Berghall geimferðastofnun; hún rís á óvenjulegum eldflaugnapalli fjórðu hæðar í 101-Reykjavík\, í augnhæð við sjálfa Esjuna. Þar og í útbúi á verkstæði í Vesturbæ skapa Anna og Olga leirmálverk\, myndbönd\, skúlptúra\, teikningar – afrakstur og afurðir rannsókna og skynjunar\, m.a. á geimnum.” \n\n“Á sýningunni má sjá loftmyndir af stöðum sem Anna dregur úr fjarlægðinni\, himnakroppa sem Olga tálgar úr gjöfum Jarðar. Þær spinna landslag í geimnum\, byggja og reisa ferskar heimsmyndir. Ég er ekki lengur viss um að ímyndun sé ímyndun. “ \n(textabrot úr sýningarskrá eftir  Kristínu Ómarsdóttur)\n\nOlga og Anna hafa haldið fjölda einkasýninga í söfnum og galleríum á Íslandi og erlendis og hafa tekið þátt í mörgum sýningarverkefnum bæði í samstarfi og sem einstaklingar. Þær hafa frá árinu 2005 unnið fjölmörg verk og verkefni í sameiningu.\nUm er að ræða myndlistarsýningar heima og erlendis\, til dæmis í Listasafni Íslands\, Kling og Bang Gallerí\, Safnasafninu\, í Listasafni Einar Jónssonar\, Bozar í Brussel og á norræna tvíæringnum Momentum í Moss í Noregi.  Auk þess hafa þær unnið verk fyrir opinbert rými bæði tímabundin verk í formi innsetninga innandyra og úti og verk fyrir almannarými og opinberar byggingar.\nAnna og Olga vinna með ólíka miðla og nota innsetningar\, skúlptúr\, ljósmyndun\, kvikmyndir og teikningar í verkum sínum.\nUppspretta hugmyndanna sem eru grunnur verka þeirra\, sækir innblástur í samspil manns og náttúru\, líffræði\, spáskáldskap og menningarsögulega og staðbundna þætti.\nSýningin Lofthaf stendur til 30. nóvember
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/lofthaf/
LOCATION:Listamenn Gallerí\, Skúlagata 32-34\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-10-at-10.25.26.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211030
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T115551
CREATED:20211011T145801Z
LAST-MODIFIED:20220916T105047Z
UID:19597-1635552000-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Abrakadabra
DESCRIPTION:Við kynnumst töfrum samtímalistar á þessari skemmtilegu sýningu fyrir alla sem vilja sjá ný og spennandi verk eftir núlifandi listamenn. Markmiðið er að gera heim samtímalistar aðgengilegan. Í verkunum má sjá fjölbreytileika listarinnar\, þau höfða til ímyndunaraflsins og skynfæranna\, þar er fjallað um líkamann\, sjálfsmyndina\, náttúruna\, samfélagið og ótal margt fleira. Við bjóðum unglinga\, ungmenni og alla sem eru forvitnir um samtímalist sérstaklega velkomna! \nAbrakadabra er dularfullt orð sem tengist töfrum. Það er mjög gamalt og uppruni þess er ókunnur. Líklega er það dregið úr hinu forna tungumáli arameísku og þýðir: „Það sem ég segi verður að veruleika.“ Er það ekki dálítið eins og listamenn vinna? Þau fá hugmyndir og láta þær verða að listaverkum. Á sýningunni Abrakadabra er miðlað áherslum sem er að finna í deiglu samtímans. \nHvað einkennir myndlist dagsins í dag? Hver eru viðfangsefni listamanna\, aðferðir\, efni og áskoranir? \nSamhliða sýningunni er sett fram ríkuleg fræðsludagskrá ásamt miðlun á stafrænu formi. Abrakadabra er jafnframt nýtt svæði á heimasíðu Listasafns Reykjavíkur sem verður áfram aðgengilegt. Þar er að finna fróðleik sem eflir hugtakaskilning og menningarlæsi og hentar vel til kennslu og til að grúska í samtímalist. \nListamenn\n\n\n\n\n\nAlicja Kwade\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Júlía Friðbjörnsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Hallin\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Líndal\n\n\n\n\n\n\n\n\nAuður Lóa Guðnadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nBaldur Geir Bragason\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nFritz Hendrik IV\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðný Guðmundsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHeimir Björgúlfsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildigunnur Birgisdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildur Bjarnadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnhildur Arnardóttir/Shoplifter\n\n\n\n\n\n\n\n\nHreinn Friðfinnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKarin Sander\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Steingrímur Jónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nLeifur Ýmir Eyjólfsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nLogi Leó Gunnarsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nMagnús Helgason\n\n\n\n\n\n\n\n\nMargrét H. Blöndal\n\n\n\n\n\n\n\n\nMatthías Rúnar Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nMelanie Ubaldo\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Gíslason\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlöf Nordal\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnheiður Gestsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRúrí\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteingrímur Eyfjörð Kristmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nUnndór Egill Jónsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/abrakadabra/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/abracadabra.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR