BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220217
DTEND;VALUE=DATE:20220301
DTSTAMP:20260530T071638
CREATED:20220221T163835Z
LAST-MODIFIED:20220825T133706Z
UID:22112-1645056000-1646092799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Andreas Brunner: I Had Cake for Breakfast
DESCRIPTION:MǪRSUGUR 2022 \nAndreas Brunner \n17.02 – 28.02 2022 \nI HAD CAKE FOR BREAKFAST  \n2019 \nHD Video \nFimmtudaginn 17. febrúar opnar sýning Andreas Brunner I HAD CAKE FOR BREAKFAST en hún er fjórða og síðasta sýningin í sýningarröðinni MǪRSUGUR 2022. Mǫrsugur er þriðji mánuður vetrar samkvæmt gömlu misseratali. Mǫrsugur er dimmasti tími vetrarins þegar allur lífsandi liggur í dvala. Til að lýsa upp myrkrið munu fjórir listamenn varpa verkum sínum á glugga Gallerís Úthverfu við Aðastræti á Ísafirði. Sýningin Mǫrsugur varir í tvo mánuði og sýningar listamannanna standa í 12 daga hver. \n04.01 – 15.01 ¤ Ívar Glói \n20.01 – 31.01 ¤ Sigrún Gyða Sveinsdóttir \n03.02 – 15.02 ¤ Margrét Dúadóttir Landmark \n*17.02 – 28.02 ¤ Andreas Brunner* \nAndreas er fæddur árið 1988 í Zürich í Sviss en býr og starfar í Reykjavík. Hann nam myndlist við Lucerne University of Applied Science and Arts og stundaði framhaldsnám Listaháskóla Íslands\, þaðan sem hann útskrifaðist árið 2018. Listræn iðkun hans snýst um hugtök sem tengjast menningarþróun og gjörningaþætti merkingarsköpunar. Það má líta þannig á að meginmarkmið rannsókna hans sé að aðskilja myndlíkingalega merkingu og skapa skynsemi með kraftmiklum samtengingum frekar en tengingum. \nI had cake for breakfast er vídjó gjörningur tekinn upp á svölum Listasafns Akureyrar og sýnir óskynsamlega tilraun til að borða hrúgu af snjó.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/andreas-brunner-i-had-cake-for-breakfast/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/02/andreas-brunner-breakfast-cake.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211122
DTSTAMP:20260530T071638
CREATED:20211014T122500Z
LAST-MODIFIED:20211122T144344Z
UID:19655-1634342400-1637539199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - / SKÖPUN / EYÐING /
DESCRIPTION:/ SKÖPUN / EYÐING / er titill sýningar Sequences í Marshallhúsinu sem tekur yfir sýningarrými Nýlistasafnsins og Kling & Bang. Titill sýningarinnar er vísun í texta Sigurðar Guðmundssonar\, TÍMI\, sem er til sýnis á hátíðinni og hægt er að finna á heimasíðu hátíðarinnar og sýningarskrá: \nTíminn er mikilvægur þáttur í allri list. Listin er mjög heppileg aðferð til að ferðast í tíma og rúmi. Flestar leiðir til nýrra tíma liggja gegnum listaverk.  \nVið skynjum nýja myndlist\, en hún opnar okkur nýjan heim sem er ekki draumur heldur veruleiki. Við látum gamla heiminn lönd og leið\, höldum þó eftir nokkrum pinklum\, eilitlum menningarlegum farangri eða lögvernduðum listaverkum. Af þeim getum við séð hvar við vorum stödd. \nTíminn eyðir öllu. Eftilvill eiga menjar mannsandans\, sönnunargögn sannleikans\, listaverkin\, sér þó mestar lífslíkur. \nSigurður Guðmundsson\nnóvember 1969\nFyrirlestur fluttur í Norræna húsinu\, Reykjavík \nListamenn Kling & Bang: \nAndreas Brunner (f. 1988) fæddist í Zurich í Sviss og býr nú í Reykjavík. Verk hans eru yfirleitt ekki sérstaklega bundin ákveðnum miðli\, heldur tengjast þau endurskoðun á hugmyndum sem geta birst í ýmsum myndum. Þessar hugmyndir fjalla um þróun menningar\, merkingar og skynjun á tíma\, rúmi og efni. Þannig myndast þráður verka hans í hugmyndinni frekar en því sjónræna. Að aftengja mynd og merkingu\, og skapa nýja\, má líta á sem heildarhvata verka hans. \nÁsta Fanney Sigurðardóttir (f. 1987) er listakona og skáld. Hún vinnur meðal annars með tóna\, hljóð og orð í verkum sínum\, ásamt gjörningum. Verk hennar hverfast oft um hið óvænta og fáránlega þar sem mörk ólíkra miðla mást út. Árið 2018 sýndi hún gjörningaverkið Lunar-10.13 & Gáta Nórensu á Listahátíð í Reykjavík\, þar sem ljóð\, tónlist\, innsetningar og gjörningar runnu saman í eitt. Meðal verka hennar er þorskaópera\, raulkórverk\, hljóðaljóðakórverk og sérhljóðatónverk. Nýjasta bók hennar nefnist Gluggi – draumskrá sem er skrásetning á draumum. Ásta hefur flutt tónverk sín\, ljóð og gjörninga á ýmsum hátíðum og sýningum bæði hérlendis og erlendis. Hún var handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör árið 2017 og var tilnefnd til Bernard Heidsieck-verðlaunanna í Pompidou árið 2021. \nTónsmíðar Bergrúnar Snæbjörnsdóttur (f. 1987) hafa verið fluttar í formi kammer- og hljóðverka víðsvegar um Evrópu\, Bandaríkin  Ástralíu og í Asíu af hópum eins og Oslo Philharmonic (NO)\, International Contemporary Ensemble ICE (US)\, Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Nordic Affect (IS)\, Avanti! Kammersveit (FI) og fleirum. Hún er handhafi Hildegard verðlauna The National Sawdust árið 2019. Þá hafa verk hennar verið valin til flutnings á virtum tónlistarhátíðum eins og Mostly Mozart Festival í Lincoln Center (New York)\, ISCM World Music Days (Peking)\, Sound of Stockholm\, Ultima Festival (Oslo)\, Nordic Music Days (London\, Bodø\, Reykjavík)\, Only Connect (Oslo)\, SPOR (Árósir)\, Tectonics Music Festival (Glasgow/Reykjavík)\, Prototype (New York)\, Classical NEXT (Rotterdam) og KLANG (Kaupmannahöfn) auk annarra viðburða. \nNýlókórinn var stofnaður 2003 og fæst við flutning hljóðljóða. Kórinn kemur fram tvisvar til þrisvar á ári og hefur flutt margvísleg verk eftir innlenda og erlenda höfunda eins og Magnús Pálsson\, Philip Corner\, Eric Andersen\, Hörð Bragason\, Kristin G. Harðarson\, Rúrí\, Hörpu Björnsdóttur\, Ástu Ólafsdóttur\, Eiríksínu Ásgrímsdóttur\, Áka Ásgeirsson\, Magneu Ásmundsdóttur\, Þorkel Atlason\, Rod Summers\, Níels Hafstein\, Guðmund Haraldsson og Magnús Jensson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-skopun-eyding/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/gif:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/lighter.gif
END:VEVENT
END:VCALENDAR