BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230106
DTEND;VALUE=DATE:20230201
DTSTAMP:20260530T071204
CREATED:20230104T152647Z
LAST-MODIFIED:20230104T152647Z
UID:28403-1672963200-1675209599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Will Owen
DESCRIPTION:Will Owen (Fíladelfía\, Bandaríkin) kynnir röð af viðgerðum eða viðhaldsverkum sem eiga í glímu við siðferði og siðfræði samtímans. Með því að nota efnivið og tjáningarmiðla af margvíslegu tagi\, meðal annars keramik\, skúlptúra\, hefðbundar aðferðir til að hnýta flugur\, auk málverka\, veltir will upp ýmsum spurningum: \nHvernig erum við ábyrg gagnvart sálrænum áföllum? Gagnvart efnislegri neyslu? Gagnvart öðrum dýrategundum sem og okkar eigin? \nHvernig búum við til hluti sem rotna vel? Hvernig varðveitum við hluti þegar þeir hrörna og brotna niður? \nEr hægt að nota sveppi og eiginleika þeirra til að draga eiturefni úr jarðvegi og nota sem glerung á leirmuni? \nBreyta sálræn áföll upplifun okkur á öðrum? \nWill Owen  byggir hér á útskriftarsýningu sinni frá UPenn í Fíladelfíu\, en hann útskrifaðist þaðan með meistaragráðu í myndlis. Á þeirri sýningu velti hann upp svipuðum siðferðilegum spurningum\, en þar\, eins og hér\, gerir will sér mat úr hefðbundnum handíðum Appalachiafjalla\, vísunum í íþróttir\, líffræðitilraunum og matvælum\, allt efni sem kallast á við brýnustu mál samtímans. \nÞað er engar lausnir að finna á þessari sýningu\, né heldur siðavendni\, heldur bara tilraunir og sjónrænar tillögur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/will-owen/
LOCATION:Alþýðuhúsið / Kompan\, Þormóðsgata 13\, Siglufjörður\, 580\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/DSC09562-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20221024
DTSTAMP:20260530T071204
CREATED:20221005T140920Z
LAST-MODIFIED:20221027T144429Z
UID:26766-1665187200-1666569599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Loji Höskuldsson: Tveir pottar mjólk
DESCRIPTION:Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 – 17.00 til 23. október. \nLoji Höskuldsson\, 1987\, Reykjavík\, Ísland. Útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010. Í myndlist sinni Kannar Loji hefðbundnar og nýjar leiðir í útsaumi\, tækni sem hann hefur þróað útfrá mömmu sinni en hún er atvinnusaumakona og útsaumssnillingur. Í útsaumi Hans er viðfangsefnið fengið úr hversdagsleikanum; plöntur\, ávextir og hlutir sem finnast á heimilum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/loji-hoskuldsson-tveir-pottar-mjolk/
LOCATION:Alþýðuhúsið / Kompan\, Þormóðsgata 13\, Siglufjörður\, 580\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/DSF8219_100px.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220415
DTEND;VALUE=DATE:20220418
DTSTAMP:20260530T071204
CREATED:20220411T164059Z
LAST-MODIFIED:20220916T101652Z
UID:22961-1649980800-1650239999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Leysingar 2022
DESCRIPTION:Föstudaginn langa 15. apríl kl. 14.00 hefst árlega listahátíðin Leysingar í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Hátíðin stendur í þrjá daga og er boðið uppá sýningu í Kompunni\, þrjá gjörninga\, upplestur og tvenna tónleika. \nDagskráin er hér að neðan.\nAllir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og eru gestir beðnir um að sinna sóttvörnum. Tekið verður við frjálsum framlögum á viðburði við innganginn í formi peninga eða með því að millifæra með síma.\nHúsið opnar 15. mín fyrir viðburði.\nNánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 8655091. \nSSNE\, Fjallabyggð\, Norðurorka\, KEA\, Aðalbakarí og Rammi hf. styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.\n\nLeysingar 15. – 17. apríl\n\nÞátttakendur eru:\nKristín Ómarsdóttir\nDavíð Þór Jónsson\nSilfrún Una Guðlaugsdóttir\nTara Njála Ingvarsdóttir\nSindri Leifsson\nÓskar Guðjónsson\nSkúli Sverrisson\nSamúel Rademaker\nÞórir Hermann Óskarsson\nHalldór Ásgeirsson\n\nFöstudagur 15. apríl\nkl. 14.00 – Kompan\, Sindri Leifsson\nkl. 15.00 – Gjörningur\, Silfrún Una Guðlaugsdóttir\, Tara Njála Ingvarsdóttir\nkl. 15.45 – Gjörningur\, Samúel Rademaker\, Þórir Hermann Óskarsson\nkl. 16.20 – Gjörningur\, Halldór Ásgeirsson\, Þórir Hermann Óskarsson\n\nLaugardagur 16. apríl\nkl. 14.00 – 17.00 – Kompan\, Sindri Leifsson\nkl. 21.00 – Tónleikar\, Óskar Guðjónsson\, Skúli Sverrisson\n\nSunnudagur 17. apríl\nkl. 14.00 – Kompan\, Sindri Leifsson\nkl. 16.00 – Ljóðalestur\, Kristín Ómarsdóttir\nkl. 16.45 – Tónleikar\, Davíð Þór Jónsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/leysingar-2022/
LOCATION:Alþýðuhúsið / Kompan\, Þormóðsgata 13\, Siglufjörður\, 580\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/04/278051528_10219564300194885_8772603804293988111_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211010
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T071204
CREATED:20211006T153249Z
LAST-MODIFIED:20220916T111544Z
UID:19501-1633824000-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:J Pasila: Ókunnugur
DESCRIPTION:Síðustu 18 mánuði hef ég varið tíma mínum í Zoom og FaceTime símtöl í leit að einhverskonar samveru – líkt og vinir mínir og kunningjar. Stundum hægði á sambandinu eða nettengingin hökti. Skjámyndin fraus og varð þokukennd\, eins og óljós vatnslitamynd. \nÉg fór að taka myndir af þessum augnablikum – tilgangslitlar tilraunir til að halda í tengingu sem var þá þegar næstum horfin\, varla til staðar lengur. Andlitsmyndirnar bera með sér súrrealískan og í senn kvíðavænlegan blæ. Í stað þess að hinar stafrænu “samkomur” með ástvinum færðu mér félagsskap og samkennd juku þær á vanlíðan mína og einsemd. \nLitirnir eru dempaðir; þokugráir og bleik- og blámóskulegir. Sums staðar birtast andlitin út úr dökkum bakgrunni. Ég prentaði upphaflega þessar myndir af vinum og fjölskyldufólki á þunnan ljósritunarpappír sem er jafn léttur og hverfull og innihald myndanna og fellur vel að dulúð þeirra. Stærðirnar eru 20×20 sm og 90×117 sm. Samhliða má sjá myndaröð sem sýnir pixluð rýmin sem stóðu auð þegar fólk stóð upp og færði sig út úr myndrammanum. Sófapúðar\, bókahillur og gluggatjöld birtast sem leiktjald á sviði sem bíður þess að einhver stígi á stokk. \nJ Pasila hefur sýnt verk sín bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Í New York hafa sýningar hennar meðal annars farið fram í Plane Space Gallery\, Momenta\, og The Carriage Trade Gallery. Í Evrópu hefur hún sett upp sýningar í Apollohuis í Eindhoven Hollandi\, Waterfront Gallery í Gent í Belgíu og á Siglufirði. Verk hennar voru valin af Robert Storr fyrir 44. National Chatauqa sýninguna á amerískri list. Þá hefur hún tekið þátt í sýningu “dust” ljósmyndasafnsins í Pompidou safninu í París frá október 2020 til mars 2021. Þá hefur J hlotið styrki og verðlaun frá Elizabeth Foundation\, Sambandi íslenskra myndlistarmanna og Mustarinda félaginu í Finnlandi – og tvisvar dvalið í McDowell Colony\, NH. \nJ Pasila útskrifaðist frá Ontario College of Art í Toronto. Hélt áfram námi í vídeolistadeild og arkitektúr við Listaháskólann í Dusseldorf. Á námsárum sínum í Þýskalandi stundaði hún rannsóknar- og þróunarvinnu með OMA\, Christopher Alexander og CRATerre fyrir skapandi heimildarmyndina A sense of place. J dvelur ýmist í Brooklyn\, New York\, eða á Siglufirði.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/j-pasila-okunnugur/
LOCATION:Alþýðuhúsið / Kompan\, Þormóðsgata 13\, Siglufjörður\, 580\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/244390824_10218802726156010_4743310700090855570_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR