BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220910
DTEND;VALUE=DATE:20221107
DTSTAMP:20260530T120248
CREATED:20220627T151031Z
LAST-MODIFIED:20220913T153751Z
UID:24193-1662768000-1667779199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:flæðir að – flæðir frá
DESCRIPTION:Haustsýning Hafnarborgar í ár er flæðir að – flæðir frá í sýningarstjórn Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur. Á sýningunni verður sjónum beint að strandlengjunni\, sem er jafnt stórbrotin og uppfull af smáum lífverum\, viðkvæmum gróðri og fjölbreyttum steinategundum. Takast þar á hið stóra og ofsafengna\, hið smáa og viðkvæma\, er öldurnar skella með krafti á ströndinni. \nÁ sýningunni verður strandlengjan skoðuð í gegnum verk listamanna frá ólíkum löndum þar sem sjórinn og strandlengjan mótar bæði menningu og atvinnulíf. Íbúar við sjávarsíðuna hafa í gegnum aldirnar byggt lífsviðurværi sitt að stórum hluta á nálægðinni við hafið en ströndin skilgreinir bæði mörk heimsins fyrir íbúana og er tenging þeirra við aðra heima. \nHlutverk strandlengjunnar í þessu sambandi kann því að varpa ljósi á margvísleg viðhorf til umhverfisins\, ábyrgð og stöðu mannsins í náttúrunni á mannöld. \nÁ tímum loftslagsbreytinga má líta á strandlengjuna sem eins konar átakasvæði. Hækkandi sjávarborð hefur bein áhrif á strandlengjuna – lífverur við ströndina eiga eftir að hverfa og aðrar nema land með hækkandi hitastigi og svo getur farið að hugsa þurfi byggð og búsetu við sjóinn út frá nýjum forsendum. Þá mun sýningin draga fram hversu samlíf okkar við náttúruna er viðkvæmt og dýrmætt\, í þeirri von að hreyfa við áhorfendum og fá gesti til að hugsa um viðhorf sitt til strandlengjunnar á nýjan hátt og í nýju samhengi. \nListamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Alda Mohr Eyðunardóttir\, Anna Rún Tryggvadóttir\, Pétur Thomsen\, Stuart Richardson\, Studio ThinkingHand (Rhoda Thing og Mikkel Dahlin Bojesen) og Tadashi Ono. \nSigrún Alba Sigurðardóttir er sjálfstætt starfandi sýningarstjóri en hún hefur sett upp sýningar í Listasafni Íslands\, Listasafni Árnesinga\, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Þjóðminjasafni Íslands. Þá vinnur hún nú að sýningu í samstarfi við Fotografisk Center í Danmörku\, Landskrona Foto í Svíþjóð\, Northern Photographic Center í Finnlandi og Listasafn Akureyrar. Sigrún Alba er stundakennari í listfræði við Háskóla Íslands og við hönnunardeild Listaháskóla Íslands. Hún hefur gefið út sjö bækur og fjölda fræðigreina\, m. \na. um íslenska myndlist og ljósmyndun.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/high-tide-low-tide/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/Hafnarborg-2022-haustsyning-featureimage-956x600-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR