BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230204
DTEND;VALUE=DATE:20230918
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20230131T160219Z
LAST-MODIFIED:20231013T123103Z
UID:29170-1675468800-1694995199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnar Kjartansson: Gestirnir
DESCRIPTION:The Visitors – óður vináttu við tónfall rómantískrar örvæntingar. Hópur vina og tónlistarmanna safnast saman í kjörlendi bóhemíunnar\, í ljósaskiptunum\, á hinum stórbrotna og hnignandi Rokeby Farm í Upstate New York. Staðurinn verður vettvangur þess sem Ragnar kallar feminískt\, níhilískt gospel lag: marglaga portrett af vinum listamannsins\, könnun á möguleikum tónlistar í kvikmyndaforminu og dregur titil sinn af síðustu plötu ABBA\, The Visitors\, sem mörkuð var aðskilnaði og ósigri. Lagið er samið við textabrot úr myndbandsverkum og gjörningum Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur.  \nThe Guardian valdi The Visitors besta listaverk 21. aldarinnar eftir að það var fyrst sett upp í Migrossafninu í Zürich 2012. Verkið hefur farið sigurför um helstu listasöfn heims og hefur einungis einu sinni áður verið sýnt á Íslandi\, í Kling og Bang 2012. \nRagnar Kjartansson (f. 1976) nam við Listaháskóla Íslands\, Konunglegu Akademíuna í Stokkhólmi og Hússtjórnarskólann í Reykjavík. Einkasýningar hans hafa verið haldnar í mörgum af virtustu listasöfnum heims og hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2009. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson. \nRagnar Kjartansson\, The Visitors\, 2012. Myndband á níu skjám\, 64 mínútur. Með leyfi listamannsins\, Luhring Augustine\, New York og i8 gallerí\, Reykjavík.\nLjósmynd: Elisabet Davids.\nTBA21 Thyssen-Bornemisza Art Contemporary Collection\, lánaði verkið.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnar-kjartansson-the-visitors/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/listasafn-akureyrar-ragnar-kjartansson.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221203
DTEND;VALUE=DATE:20231120
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20221130T112111Z
LAST-MODIFIED:20230530T130018Z
UID:27861-1670025600-1700438399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Stofn - Safneign Listasafns Háskóla Íslands
DESCRIPTION:Listasafn Háskóla Íslands var stofnað 1980. Líkt og mörg háskólalistasöfn erlendis byggir það safneign sína að hluta til á gjöfum. Stofngjöf hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur (1911-1994) og Sverris Sigurðssonar (1909-2002) vegur þar þyngst en alls gáfu þau safninu um 1200 verk. Listaverkagjafir þeirra til safnsins eru meðal verðmætustu gjafa sem Háskóla Íslands hafa borist. Einnig hafa ýmsir íslenskir listamenn eða dánarbú þeirra gefið safninu verk sín. Að öllu samanlögðu hafa Listasafni Háskóla Íslands verið gefin hátt í 1300 listaverk. Með innkaupum safnsins hefur verið aukið við listaverkaeignina og á Listasafn Háskóla Íslands nú um 1550 listaverk sem reglulega eru til sýnis í byggingum háskólans. \nStofngjöfin til Listasafns Háskóla Íslands var að stórum hluta fjölmörg abstraktverk frá miðbiki og seinnihluta 20. aldar sem lagði grundvöll að einstöku safni. Á þessari sýningu verða sýnd abstraktverk eftir listamenn eins og Þorvald Skúlason\, Karl Kvaran\, Hörð Ágústsson\, Guðmundu Andrésdóttur\, Eyborgu Guðmundsdóttur o.fl.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/stofn-safneign-listasafns-haskola-islands/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/THorvaldur-Skúlason_án-titils_1977-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221006
DTEND;VALUE=DATE:20221010
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220627T115321Z
LAST-MODIFIED:20221013T153805Z
UID:24123-1665014400-1665359999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:A! Gjörningahátíð 6-9. okt á Akureyri
DESCRIPTION:A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri dagana 6.-9. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega\, nú í áttunda sinn og er eina hátíðin á Íslandi sem einbeitir sér einungis að gjörningalist. Ókeypis er inn á alla viðburði. \nAlls taka 22 alþjóðlegir listamenn þátt í hátíðinni og koma frá Króatíu\, Rússlandi\, Bandaríkjunum\, Póllandi og Íslandi. Dómnefnd valdi verk úr hópi fjölbreyttra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dagskránni: myndlist\, sviðslist\, tónlist og ritlist. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn\, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri\, Hlöðunni í Litla-Garði\, Deiglunni\, Kaktus\, Eyjafjarðarsveit og á Ketilkaffi. \nÞátttakendur eru: Anna Kolfinna Kuran\, Áki Sebastían Frostason\, Dýrfinna Benita Basalan\, Einkasafnið\, Kaktus\, Katrin Hahner\, Olya Kroyter\, Rashelle Reynevald\, Rösk\, Tricycle Trauma\, Vídeólistahátíðin Heim og Örn Alexander Ámundason. \nGjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri\, Leikfélags Akureyrar\, Menningarhússins Hofs\, Gilfélagsins\, Vídeólistahátíðarinnar Heim\, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-performance-festival-2/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/Áki-Sebastian-Frostason.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220924
DTEND;VALUE=DATE:20230116
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220623T135842Z
LAST-MODIFIED:20230117T161550Z
UID:23843-1663977600-1673827199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:KRISTINN G. JÓHANNSSON
DESCRIPTION:Kristinn G. Jóhannsson (f. 1936) er Akureyringur. Stúdent frá MA 1956. Nam myndlist á Akureyri\, Reykjavík og Edinburgh College of Art. Lauk kennaraprófi 1962. Starfaði við kennslu og skólastjórn í tæpa fjóra áratugi. Kristinn efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri 1954\, en sýndi fyrst í Reykjavík 1962 í Bogasal Þjóðminjasafnsins og sama ár tók hann í fyrsta sinn þátt í Haustsýningu FÍM í Listamannaskálanum. Hann hefur síðan verið virkur á sýningavettvangi. Auk málverka liggja eftir Kristin grafíkverk þar sem hann sækir efni í gamlan íslenskan útskurð og vefnað. Hann hefur myndskreytt fjölda bóka m.a. Nonnabækur og þjóðsögur. \n„Ég hefi árum saman gengið til litgrasa og forma í brekkurnar og heiðina sem við mér blasa dag hvern og í spegil Pollsins og í vaðlana\, ofið saman litbrigði jarðarinnar með mínum hætti. Í þessum nýlegu málverkum leitar landslagið og málverkið eins konar jafnvægis\, sátta.“ \nSýningarstjóri: Brynhildur Kristinsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristinn-g-johannsson/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/Screen-Shot-2022-06-23-at-13.57.47.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220924
DTEND;VALUE=DATE:20230116
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220908T155920Z
LAST-MODIFIED:20230117T161707Z
UID:25874-1663977600-1673827199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Rebekka Kühnis: Innan víðáttunnar
DESCRIPTION:„Ég hef alla tíð haft listræna þörf fyrir að leysa upp umhverfi mitt\, eða í það minnsta að umbreyta því í eitthvað loftkenndara og óljósara. Ég upplifi íslenska náttúru sem ósnortna og ekki eins skilgreinda og afmarkaða eins og náttúruna í heimalandi mínu. Það er eins og allt sé kvikt og breytilegt og að ég sé hluti þess alls. Þessi skynjun birtist í túlkun minni á íslensku landslagi. \nVerkin einkennast af fjölmörgum viðfangsefnum\, s.s. tvíræðni\, gagnsæi\, hreyfingu og marglögun. Kannanir á möguleikum línulegrar framsetningar leika stórt hlutverk í þessu samhengi. Hingað til hef ég aðallega notað grafíska tækni í verkum mínum\, en á þessari sýningu mun ég í fyrsta sinn sýna olíumálverk.“ \nRebekka Kühnis (f. 1976) er frá Windisch í Sviss og útskrifaðist með meistaragráðu í listkennslufræðum frá Hochschule der Künste í Bern. Síðan hefur hún starfað sem listakona og myndlistarkennari. Hún flutti til Akureyrar 2015.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/rebekka-kuhnis-innan-vidattunnar/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/rebekka-kuhnis2_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220827
DTEND;VALUE=DATE:20230306
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220525T173754Z
LAST-MODIFIED:20220916T100008Z
UID:23372-1661558400-1678060799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Egill Logi Jónasson: Þitt besta er ekki nóg
DESCRIPTION:„Það er maður\, það er ungur maður\, það er unglingur. Í stærsta herberginu í minnsta húsinu hangir mynd af ljóni.\nLjónið heldur á minna ljóni. Það ljón heldur um halann á sér og myndar endalausa hringrás ráns og dýra. Fyrir utan gluggann blæs vindurinn sérstaklega kröftuglega á veru sem leitar skjóls í hálfbyggðu bakhúsi. Tónlistin tórir\, að hluta til.“ \nEgill Jónasson (f. 1989)\, einnig þekktur sem Drengurinn fengurinn\, býr og starfar á Akureyri. Hann útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri 2012 og lauk BA í myndlist í Listaháskóla Íslands 2016. Egill vinnur með ýmsa miðla eins og tónlist\, málverk\, klippimyndir\, gjörninga og vídeóverk. Hann er einn af aðstandendum listhópsins Kaktuss.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/egill-logi-jonasson-your-best-is-not-enough/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/lifid-er-ljuft.-2021_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220827
DTEND;VALUE=DATE:20230814
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220525T172409Z
LAST-MODIFIED:20220916T100542Z
UID:23365-1661558400-1691971199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Steinunn Gunnlaugsdóttir: Blóð og heiður
DESCRIPTION:Verkið samanstendur af fjórum fánum sem blakta á fánastöngum á svölum Listasafnsins. Fánarnir eru afrakstur tilraunar þar sem þrír þættir voru bræddir saman: íslenski þjóðfáninn\, leturgerðin Comic Sans og þeir stafir íslenska stafrófsins sem tákna hljóðin sem fólk gefur frá sér við sársauka: A\, Á\, Ó\, Æ. \nSteinunn Gunnlaugsdóttir (f. 1983) útskrifaðist frá myndlistadeild Listaháskóla Íslands vorið 2008 og tók þátt í listnámi í menningarstofnuninni Ashkal Alwan í Beirút í Líbanon veturinn 2013-2014. \nAf gáskablandinni alvöru tekst hún á við hin fjölmörgu hugmyndafræðilegu og siðferðislegu kerfi sem mannskepnan skapar\, fæðist inn í\, lifir við og berst gegn.\nMeð því að skoða og berhátta grunnstoðir hins siðmenntaða mannheims verður til efniviður fyrir tilraunir Steinunnar til að ávarpa samtímann. \nSteinunn var tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna sem listamaður ársins 2018. Árið 2021 fékk hún verðlaun úr styrktarsjóði Richard Serra fyrir framlag sitt til skúlptúrlistar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/steinunn-gunnlaugsdottir-blood-honour/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/a-769-n-titils-steinunn-gunnlaugsdo-769-ttir_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220602
DTEND;VALUE=DATE:20220815
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220525T144417Z
LAST-MODIFIED:20220916T100849Z
UID:23359-1654128000-1660521599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Auður Lóa Guðnadóttir
DESCRIPTION:Auður Lóa Guðnadóttir (f. 1993) er myndlistarmaður sem leikur sér á landamærum hins huglæga og hlutlæga\, skúlptúrs og teikningar\, listar og veruleika. Hún vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri og fígúratíft myndmál sem hún sækir í forna jafnt og nýliðna sögu. Auður Lóa leitast við að virkja sjálf listaverkin\, ætíð þó sem fyrirbæri í sínu eigin félagslega umhverfi. Á sýningunni Forvera heldur hún áfram á þeirri braut\, en heimilisbúnaður og skrautmunir frá ýmsum tímapunktum sögunnar eru að þessu sinni í brennidepli. \nAuður Lóa útskrifaðist af myndlistasviði Listaháskóla Íslands 2015. Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt\, í samstarfi við aðra listamenn og tekið þátt í sýningum\, s.s. Leikfimi í Safnasafninu\, Djúpþrýstingur í Nýlistasafninu og Allt á sama tíma í Hafnarborg. Hún hlaut hvatningarverðlaun Myndlistarráðs 2018 fyrir sýninguna Díana\, að eilífu sem hún tók þátt í og stýrði. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur\, Já / Nei\, sem samanstóð af yfir 100 skúlptúrum úr pappamassa.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/audur-loa-gudnadottir/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/ja-nei-2021-2_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220602
DTEND;VALUE=DATE:20220912
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220525T143511Z
LAST-MODIFIED:20220916T100839Z
UID:23353-1654128000-1662940799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Svarthvítt
DESCRIPTION:Andstæður og ólíkir hlutir\, viðhorf og sjónarhorn. Það sem skilur okkur að getur einnig tengt okkur saman. Fimm listamenn sem vinna með svart-hvítar ljósmyndir eiga verk á þessari sýningu. Listamennirnir nálgast viðfengsefnin á ólíkan hátt og myndefnin eru einnig margvísleg: landslag\, fólk\, sögur\, staðir og stemning. Andstæður og ógnir\, rólegheit og væntumþykja og fjölmargar birtingarmyndir daglegs lífs\, ævintýra\, menningar\, hins óþekkta og þess kunnuglega. \nListamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Agnieszka Sosnowska\, Christopher Taylor\, Katrín Elvarsdóttir\, Páll Stefánsson og Spessi. Bakgrunnur þeirra er fjölbreyttur\, sem kemur glögglega fram í verkunum. Á sama tíma er margt sem sameinar þau\, þegar betur er að gáð. \nSýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/black-and-white/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/8-agnieszka_sosnowska_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220528
DTEND;VALUE=DATE:20220930
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220505T111034Z
LAST-MODIFIED:20221006T161303Z
UID:23094-1653696000-1664495999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gústav Geir Bollason: Sandtímasálmur um fölnandi jarðarblóm
DESCRIPTION:„Teiknimyndir og lifandi myndir af jurtaleifum\, ryki og rusli. Einnig blendingshlutir sem jarðtengjast í hugmynd um mæli- og farartæki\, sem og skjól eða holur sem verða til í skemmdu landslagi. Alls staðar er sandurinn\, sýnilegur eða ósýnilegur: í steyptum veggjunum\, sjóntækjunum\, símanum\, landfyllingunni. Hreyfingar blómanna í teiknimyndunum verða flöktandi í hröðuninni. Inn á milli mynda; ekkert. Tóm eða fjarvist\, andleg. \nÍ lifandi vídeómyndum birtast gróðurleifar í uppstillingu er hreyfist mishratt í vélrænni hringrás ljóss og skugga þar sem allt líður hjá\, hraðar og hraðar\, og verður ógreinilegra. Hverfulir svipir í hverfandi tíma og rúmi. Samruni einskis og veruleikans. Skúlptúrar sem hluti af innsetningu lýsa kyrrstöðu. Verkin verða hugleiðing um hið sýnilega: hreyfingu\, hröðun\, tíma og eyðingu.“ \nGústav Geir Bollason (f. 1966) fæst við teikningar og tilraunakvikmyndir auk skúlptúrverka. Hann rekur einnig óhefðbundið sýningarými á Hjalteyri við Eyjafjörð.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gustav-geir-bollason-sandtime-psalm-of-fading-flowers/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/img_7035_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220507
DTEND;VALUE=DATE:20220516
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220505T105926Z
LAST-MODIFIED:20220916T101802Z
UID:23081-1651881600-1652659199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sjónmennt 2022 - nemendasýning Myndlistaskólans á Akureyri
DESCRIPTION:Það dylst engum sem skoðar verk þeirra myndlistarmanna og hönnuða sem brautskráðir eru að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum Myndlistaskólans á Akureyri að þar eru á ferð sterkir einstaklingar sem taka fag sitt alvarlega og hagnýta sér til fulls þá reynslu sem þeir hafa öðlast. \nSjálfsskoðun er mikilvæg og gerir þá kröfu til nemandans að hann nái að yfirstíga nánd sína og birta viðfangsefni sitt á þann hátt að veki áhuga áhorfandans. Það getur verið snúið\, en styrkleiki nemandans felst í hnitmiðaðri\, myndrænni framsetningu verkanna og kunnáttu til að miðla henni á sem sterkastan hátt til áhorfandans. Myndræn framsetning verkanna er hluti af hugmyndinni og gegnir lykilhlutverki í að miðla áhrifunum til áhorfandans.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/visual-art-studies-2022/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/myndak1_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220219
DTEND;VALUE=DATE:20220418
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20220208T092135Z
LAST-MODIFIED:20220825T134208Z
UID:21816-1645228800-1650239999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sköpun bernskunnar 2022
DESCRIPTION:Þetta er níunda sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp sem hluti af safnfræðslu\, með það markmið að gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn. Þátttakendurnir vinna verk sem falla að þema sýningarinnar sem að þessu sinni er Fuglar og önnur dýr. \nMyndlistarmennirnir sem boðin var þátttaka í ár eru Aðalheiður S.buy acyclovir online herbalshifa.co.uk/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/acyclovir.html no prescription\n Eysteinsdóttir og Helgi Þorgils Friðjónsson. Þau eru bæði landsþekkt fyrir list sína\, skúlptúra og málverk\, af fólki og dýrum. Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Lundarsel og grunnskólarnir Hlíðarskóli\, Oddeyrarskóli og Hríseyjarskóli\, sem og Minjasafnið á Akureyri / Leikfangahúsið \nLeikskólabörnin vinna sín verk á Listasafninu undir handleiðslu Aðalheiðar og Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur\, fræðslufulltrúa og sýningarstjóra. Myndmenntakennarar grunnskólanna sem taka þátt stýra þeirri vinnu sem unnin er sérstaklega fyrir sýninguna í samstarfi við nemendur. \nSköpun bernskunnar hlaut öndvegisstyrk Safnaráðs 2020 til þriggja ára. \nSýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.buy temovate online herbalshifa.co.uk/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/temovate.html no prescription
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/creation-of-childhood-2022/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/02/helgi-thorgils_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211214
DTEND;VALUE=DATE:20221121
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20211109T101820Z
LAST-MODIFIED:20221201T145758Z
UID:20121-1639440000-1668988799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gjöfin til íslenzkrar alþýðu
DESCRIPTION:Það þóttu stórtíðindi þegar athafnamaðurinn Ragnar Jónsson\, kenndur við Smára\, ákvað að færa Alþýðusambandi Íslands málverkasafnið sitt að gjöf sumarið 1961. Ósk Ragnars var sú að stofnað yrði listasafn sem kæmi listinni á framfæri við vinnandi fólk í landinu. Listaverkagjöf Ragnars – um 147 verk – lagði grunninn að Listasafni ASÍ og geymir verk margra af þekktustu myndlistarmönnum þjóðarinnar frá síðustu öld. \nRagnar Jónsson byggði safn sitt í kring um fastan kjarna\, stór og kynngimögnuð verk eftir fimm listmálara sem að hans mati voru þekktustu listamenn samtímans. Það voru þeir Ásgrímur Jónsson\, Jóhannes S. Kjarval\, Jón Stefánsson\, Gunnlaugur Scheving og Þorvaldur Skúlason. \nÁ sýningunni er lögð áhersla á verk þessara listamanna\, leitast er við að fanga þá meginhugsun sem lá að baki söfnunarstefnu Ragnars og spegla sýn hans á íslenska listasögu. \nSýningin er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri og Listasafns ASÍ. Sýningarstjóri: Kristín G. Guðnadóttir\, listfræðingur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-gift-to-the-people/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/asgrimur-jonsson-landslag-1948-1950.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20220207
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20211109T101018Z
LAST-MODIFIED:20220825T132315Z
UID:20107-1638576000-1644191999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Karl Guðmundsson: Lífslínur
DESCRIPTION:Listferill Karls Guðmundssonar spannar nú rúmlega tvo áratugi. Hann hefur haldið einkasýningar frá 2000 og jafnframt tekið þátt í fjölda samsýninga. \nKarl hóf nám í Myndlistaskólanum á Akureyri fimm ára gamall undir handleiðslu Rósu Kristínar Júlíusdóttur og útskrifaðist af myndlistabraut Verkmenntaskólans á Akureyri 2007. Þau hafa unnið saman síðan.buy actos generic https://myindianpharmacy.net/actos.html over the counter\n Í upphafi sem kennari og nemandi\, en nú sem samstarfsfélagar í listinni. Verkin á sýningunni eru myndrænn afrakstur samtals þeirra og samleiks. Flest þeirra eru máluð á striga\, gler og plexígler. Samstarfsfélagar á sýningunni eru myndlistarmennirnir Arna Valsdóttir og áðurnefnd Rósa Kristín Júlíusdóttir. \nKarl er mál- og hreyfihamlaður\, en tekst engu að síður að koma skýrt til skila þeirri næmu\, listrænu tilfinningu sem býr innra með honum. Hann var útnefndur listamaður Listar án landamæra 2015. \nSýningarstjóri: Rósa Kristín Júlíusdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/karl-gudmundsson-lifelines/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/kalli-pensilmynd-re-769-tt-8.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20220117
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20210830T120937Z
LAST-MODIFIED:20220916T111110Z
UID:18769-1632528000-1642377599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ann Noël: Teikn og tákn
DESCRIPTION:Ann Noël\, fædd á Englandi 1944\, hefur verið búsett í Berlín frá 1980. Bakgrunnur hennar er í grafískri hönnun\, prenti\, ljósmyndun\, málun og gjörningum. \nEftir útskrift úr grafískri hönnun 1968\, frá Bathlistaakademíunni í Corsham\, vann hún með Hansjörg Mayer í Stuttgart\, en hann var einn af fyrstu útgefendum bókverka. \nÞessi reynsla kom sér vel þegar henni bauðst að vinna sem aðstoðarmaður Dick Higgins\, útgefanda hjá The Something Else Press í New York. \nÞar kynntist hún Emmett Williams (1925-2007)\, ritstjóra forlagsins og fjölmörgum Fluxus listamönnum. \nSnemma á níunda áratugnum varð hún virkur meðlimur í Fluxus hreyfingunni og tók þátt í gjörningahátíðum víða um heim\, einkum í samvinnu við eiginmann sinn Emmett Williams. Hún fremur ennþá gjörninga innan Fluxus Art\nGroup. Einnig hefur hún sjálf gefið út mörg af sínum eigin bókverkum í gegnum árin. \nSýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ann-noel-teikn-og-takn/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/ann-noel.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210529
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T091623
CREATED:20210831T151314Z
LAST-MODIFIED:20220916T110006Z
UID:18880-1622246400-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Nýleg aðföng
DESCRIPTION:Eitt af meginhlutverkum listasafna er að safna myndlist og miðla safneigninni. Því miður er ekkert fjármagn áætlað á fjárhagsáætlun Listasafnsins á Akureyri til kaupa á listaverkum og þannig hefur það verið í meira en áratug. Þetta stendur vonandi til bóta\, enda mikilvægt að safna með reglubundnum hætti listaverkum sem endurspegla listasöguna. \nListasafninu hafa aftur á móti borist margar góðar gjafir á síðustu árum og byggir sýningin Nýleg aðföng á þeim verkum. \nÍ söfnunarstefnunni segir meðal annars: „Söfnunarsvið Listasafnsins á Akureyri er allt landið en jafnframt leggur safnið sérstaka áherslu á söfnun verka sem tengjast Norðurlandi.“ Móttaka gjafa takmarkast af því markmiði að Listasafnið byggi upp heillega og markvissa safneign. Safnstjóri og fulltrúar í Listasafnsráði fjalla um og taka ákvarðanir er varða móttöku gjafa. \nÁkvörðunin byggir á söfnunarstefnu safnsins\, markmiðum þess og stöðu safneignar á hverjum tíma. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/nyleg-adfong/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/04/ny-adfong2-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR