BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230217
DTEND;VALUE=DATE:20230226
DTSTAMP:20260530T154537
CREATED:20230215T121028Z
LAST-MODIFIED:20230215T121125Z
UID:29361-1676592000-1677369599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:AIVAG's Legislation Kitchen
DESCRIPTION:Artist’s in Iceland Visa Action Group (AIVAG) býður ykkur velkomin á röð viðburða sem munu eiga sér stað í Gallery Port í febrúar\, undir titlinum Legislation Kitchen – Löggjafa eldhús. Markmið AIVAG með þessum viðburðum er að móta drög að tillögum að lagabreytingum á vinnu- og dvalarleyfum innflytjenda á Íslandi\, með áherslu á listafólk sem býr á Íslandi en er með ríkisborgararétt frá löndum fyrir utan Schengen.\n\nVið trúum því að skortur á almennilegum réttindum aðflutts listafólks endurspegli stærri vandamál sem snerta kjör og aðstæður allra sem vinna við listir og menningu á Íslandi. Þess vegna þykir okkur mikilvægt að beina athygli að þessu viðfangsefni ekki aðeins fyrir þau sem málefnið snertir beint heldur samfélag listafólks í heild sinni.\n\nÞessar lagalegu hömlur ýta undir skort á fjölbreytni og inngildingu í íslensku menningarsamfélagi. AIVAG hefur lagt áherslu á að afla gagna sem sýna glöggt litla þátttöku listamanna utan ESB/EES í sýningum á listasöfnum og öðrum sýningarrýmum á Íslandi á síðustu tíu árum og einnig hversu fáir listamenn utan ESB hafa reynt að nám á Íslandi. Hópurinn hefur skrifað greinar og haldið málstofur til að vekja athygli á þessum gögnum og málefninu í heild sinni\, með það að markmiði að skapa grundvöll til samtals um þessi mál. Það er okkur mikilvægt að þessi hagsmunagæsla eigi sér stað á samfélagsgrundvelli\, og þess vegna stefnir AIVAG að því að leggja áherslu á að byggja upp samstöðu.\n\nAIVAG stendur fyrir Artists in Iceland Visa Action Group. Hópurinn var stofnaður árið 2021 og berst fyrir hagsmunum og vinnukjörum aðflutts listafólks sem býr og starfar á Íslandi. Markmið okkar er að starfa í samvinnu að grundvelli þar sem við getum vakið máls á baráttumálum okkar.\n\nAktívir meðlimir þessa stundina eru Adam Flint\, Bilge Hasdemir\, Bryndís Björnsdóttir\, Hugo Llanes\, Megan Auður\, Vala Sigþrúður Jónsdóttir og Wiola Ujazdowska\, en með styðjandi meðlimum er hópurinn 30 talsins.\n\nDagskráin í Gallery Port er eftirfarandi:\n\n17. Febrúar: Opnun í Gallery Port\, milli kl. 17-19\, boðið verður upp á drykk og dagskrá kynnt.\n18. Febrúar: Vinnustofa með R.E.C Arts Reykjavík um samfélag og samstöðu sem hefur titilinn: Allyship vs Accompliceship: How to combat the issue of exclusivity in Icelandic academic & artistic spaces. Frá kl. 15-17. ATH breytt staðsetning: vinnustofan verður haldin í Þjóðleikhúskjallaranum.\nSkráningarblað:\nhttps://docs.google.com/…/1FAIpQLSfY9wYr053Ixd…/viewform\n24. Febrúar: Samtal við Nicol Savinetti\, stofnandi IMMART – https://immart.dk/\nHefst kl. 18.\n25. Febrúar: Vinnustofa þar sem verða lögð drög að lista – dvalarleyfi\, sem hefst á kynningu frá Claudiu Ashanie Wilson. Stendur milli kl. 16-18. . Sýningunni sjálf lýkur sama dag kl. 19.\n\nÞað gæti verið að við höldum óformleg spjöll við fólk sem tengist menningu og málum innflytjenda\, þá verða þau tilkynnt síðar í mánuðinum undir titlinum Kitchen Talk. Ef þú eða einhver sem þú þekkir hefðir áhuga á að skipuleggja slíkt spjall mátt þú endilega vera í sambandi við okkur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/aivags-legislation-kitchen/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/330158042_698644592005521_2711451626250115000_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR