BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210826
DTEND;VALUE=DATE:20210912
DTSTAMP:20260530T191707
CREATED:20210824T144124Z
LAST-MODIFIED:20220916T110439Z
UID:18747-1629936000-1631404799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Óskilamunir
DESCRIPTION:Hundur hleypur um Hamraborgina\, þefar upp hluti sem virðast jafn utan veltu og hann. Úr verður kort sem er háð veðri og vindum\, greining á rými í stöðugu flæði. Í andyri Midpunkt er fáni sem kortleggur óskilamuni sem fundust í Hamraborg. Gestum er boðið að þræða slóðir hlutana sem gætu hafa fundist eða týnst aftur. \nUm listamennina: \nAgnes Ársæls (f. 1996)\, Anna Andrea Winther (f. 1993) og Svanhildur Halla Haraldsdóttir (f.1992) hófu samstarf sitt árið 2018 eftir að þær útskrifuðust með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Samstarf þeirra nýtir spuna og leik til þess að fjalla um almenningsrými. Með því að skrásetja myndræna upplifun á hversdeginum hvetja þær áhorfendur til þess að veita umhverfi sínu eftirtekt. \nAgnes Ársæls vinnur með róttæka væntumþykju í verkum sínum sem kanna samband mannsins við umhverfi sitt og aðrar tegundir. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Meðal nýjustu verkefna eru útvarps innslögin Samlíf sem voru birt á Rás 1 sumarið 2021 og unnin í samstarfi við Sylvíu Dröfn Jónsdóttur. \nAgnes hefur tekið þátt í alþjóðlega samstarfsverkefninu United 1 á vegum UK Young Artists og Platform Nord\, dvalið í gestavinnustofunni In Context í Slănic-Rúmeníu og sýningarstýrt sýningunni Af stað / Go! Í Norræna húsinu ásamt Önnu Andreu Winther. Agnes er meðlimur Ræktarinnar\, listamannasamsteypu sem mun sýna á Sequences X haustið 2021. \nAnna starfar í Reykjavík og Glasgow. Hún stundar nú nám í MFA deild Glasgow School of Art og er handhafi Leverhulme MFA Bursary verðlaunanna. Hún hefur sýnt á ýmsum samsýningum\, bæði hérlendis og erlendis og hefur haldið fjórar einkasýningar á Íslandi\, þar á meðal Skiljum ekki baun (Harbinger\, Reykjavík) og Pönnukökuverkunin (Gallery Úthverfa\, Ísafjörður). \nUndanfarið hefur hún unnið að útvarpsþáttunum og myndlistarverkefninu „Er það eitthvað ofan á brauð?“ í samstarfi við Berglindi Ernu Tryggvadóttur. Eftir útskrift hefur hún starfað sem myndmenntakennari og skipuleggjandi listaklúbba í frístundastarfi. Anna er huti af listasamsteypunni Mál/tíð. \nSvanhildur Halla Haraldsdóttir býr og vinnur í Reykjavík. Árið 2016 útskrifaðist hún með BA gráðu í Listfræði. Árið 2019 sýndi hún verk á sýningunni Öll brögð möguleg í Kling og Bang og sumarið 2020 tók hún þátt í listahátíðinni Stálsmiðjan og sýndi þar verkið Ræflar sem hún vann í samvinnu við Önnu Andreu Winther. Svanhildur starfar sem Deildarbókavörður hjá Borgarbókasafni Reykjarvíkur og vinnur þar meðal annars að undirbúningi og uppsetningu sýninga. Svanhildur er hluti af listasamsteypunni Ræktin.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/oskilamunir/
LOCATION:Midpunkt\, Hambraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/lost.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR