BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221126
DTEND;VALUE=DATE:20230306
DTSTAMP:20260530T044619
CREATED:20221130T104455Z
LAST-MODIFIED:20221201T153605Z
UID:27818-1669420800-1678060799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Guðrún Gunnarsdóttir: Línur\, flækjur og allskonar
DESCRIPTION:Guðrún Gunnarsdóttir er frumkvöðull á sviði þráðlistar og gefur sýning hennar góða mynd af þróun listamannsins frá myndvefnaði á áttunda áratug síðustu aldar\, til þrívíddarmynda sem einkenna myndlist hennar í dag. \nÞráðlist eins og sú sem Guðrún Gunnarsdóttir ástundar er ótvírætt þrívíddarlist í klassískum skilningi\, þótt listakonan gangi í berhögg við ýmsar siðvenjur sem fylgt hafa slíkri list frá örófi alda. Til að mynda hirðir hún ekki um að setja verk sín á stalla\, og þar með bæði upphefja þau og staðsetja utan seilingar. Þess í stað fá þau að leika lausum hala í námunda við okkur\, hanga ofan úr lofti\, fikra sig ofur varlega upp og niður veggi\, eða mynda smágerðar lífrænar einingar niður við fótskör. Og í stað þess að kalla á athygli\, eins og stallsettir skúlptúrar óneitanlega gera\, eru verk Guðrúnar gerð til að birtast okkur eins og fyrir tilviljun\, jafnvel koma þægilega á óvart\, ekki ósvipað og ljóðlínur með óvæntu niðurlagi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudrun-gunnarsdottir-linur-flaekjur-og-allskonar/
LOCATION:Reykjanes Art Museum\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/IMG_8169.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220616
DTEND;VALUE=DATE:20220919
DTSTAMP:20260530T044619
CREATED:20220624T142030Z
LAST-MODIFIED:20221006T161153Z
UID:23959-1655337600-1663545599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Andlit úr skýjum – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals
DESCRIPTION:Á gjörvöllum ferli sínum vann Kjarval mannamyndir og á þessari yfirgripsmiklu sýningu fá gestir að kynnast þeim. Hér eru olíumálverk af þekktu fólki frá öllum tímabilum\, vatnslitamyndir af ítölsku fólki frá 1920\, úrval blek- og túskteikninga frá 1928-30\, rauðkrítarmyndir af fjölskyldu og nánum vinum og lítt þekktar andlitsmyndir frá seinni árum hans. Loks má geta um hópmyndir hans sem aldrei hafa verið sýndar saman. Á sýningunni eru einnig allar fáanlegar sjálfsmyndir Kjarvals. \nAndlitsmyndir Kjarvals hafa skipað veglegan sess á yfirlitssýningum á verkum listamannsins og samsýningum af ýmsu tagi en til þessa hefur sjónum ekki verið beint að þessum myndum sérstaklega. \nJóhannes Sveinsson Kjarval (1885-1972) er einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar og málverk hans og túlkun á náttúru Íslands skipa stóran sess í menningar- og listasögu landsins. Hann hóf þó sinn opinbera listamannsferil sem málari og teiknari andlitsmynda þegar hann vann árið 1923 portrett af fjórum bankastjórum Landsbankans\, lífs og liðnum. Teikningar hans af íslensku alþýðufólki frá árunum 1926-30 mörkuðu svo hin stóru þáttaskil á ferli hans en með þeim vann hann hug og hjarta þjóðarinnar. Um leið voru þessar andlitsteikningar fyrstu myndir hans sem keyptar voru fyrir myndlistarsafn þjóðarinnar. \nKjarval setti sig aldrei úr færi að mála\, teikna eða rissa upp andlitsmyndir svo lengi sem hann lifði\, og gilti þá einu hvort fyrirmyndirnar voru þessa heims eða annars\, sögulegar persónur eða helberar hugsýnir. En öfugt við það sem gerist í mannamyndahefð annarra þjóða eru andlitsmyndir Kjarvals sjaldnast skýrt afmörkuð fyrirbæri á myndlistarferli hans\, með rætur í viðtekinni aðferðafræði mannamyndagerðar\, heldur eins konar viðauki við náttúrusýn hans. Þessi tengsl milli andlitsmynda hans og landslagsmynda virðast hafa blasað við mönnum frá byrjun. Í fyrsta listdómi sínum\, rituðum 1927\, fjallar Halldór Laxness um teikningarnar frá 1926 og segir: „Vinnubrögðin í andlitsmyndunum (…) votta skilning hámenntaðs listamanns á íslenskri náttúru.“ \nOft kemur það fyrir í verkum Kjarvals að andlitin spretta út úr þekktu eða ímynduðu landslagi blóma\, hrauns og mosa nánast sjálfkrafa\, í eðlilegu ummyndunarferli myndlistarinnar. Í öðrum verkum virðist eiga sér stað meðvitaðri samanburður\, þar sem andlitin eru notuð til að árétta órofa tengsl íslenskrar náttúru og íslensku þjóðarinnar\, sem var ein lífseigasta samlíking íslenskrar þjóðmála- og þjóðernisumræðu á árum áður. Þá hefur listamaðurinn þann sið að staðsetja það fólk sem um ræðir í náttúrulegu umhverfi\, sýnilega íslensku\, sem verður eins konar lykill að persónuleika þess\, skapferli eða köllun. Þetta á raunar einnig við um skáldaðar persónur Kjarvals\, sem kvikna til lífs vegna þekkingar hans á náttúrunni. Á sýningunni blasir við helsta einkenni á andlitsmyndum Kjarvals sem er að þær eru fremur „um“ fólk en „af“ því. \nÁ sýningunni eru verk víða að\, jafnt úr Kjarvalssafneign Listasafns Reykjavíkur\, frá Listasafni Íslands og frá einkasöfnurum sem góðfúslega hafa lánað verk sem mörg hver hafa aldrei komið fyrir almenningssjónir. \n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjóri: Aðalsteinn Ingólfsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/heads-from-clouds-the-portraits-of-johannes-s-kjarval/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/bjorn_johannsson_bondi_1927_teikning_43x44cm_einkaeign-web.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR