BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230818
DTEND;VALUE=DATE:20231001
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230816T155156Z
LAST-MODIFIED:20230816T155625Z
UID:32350-1692316800-1696118399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hallgrímur Árnason:  Opnar skjöldur
DESCRIPTION:Hallgrímur Árnason (f. 1988) býr og starfar í Vínarborg. Hann stundaði nám við Listaakademíuna í Vín\, m.a. undir leiðsögn þýska listamannsins Daniel Richter. Í febrúar síðastliðnum opnaði hann sína fyrstu einkasýningu\, Fehlerhaft [kœtlʏð]\, í Vínarborg. Sýningin Opnar skjöldur\, er hans fyrsta sýning á Íslandi. Verkin á sýningunni fjalla um tilfinningalega afstöðu og viðbrögð Hallgríms við stað og stund og sýna áköf form\, liti og línur spretta fram og breiða úr sér. Orka\, hvatvísi og undarlegt jafnvægi kyrrðar og óreiðu einkenna myndflöt Hallgríms. Hann leyfir því óvænta að taka völdin. Eitt hugskot verður að hreyfingu\, athöfn að hugskoti\, eitt leiðir af öðru. Við horfum inní fjölskrúðugan hugarheim listamannsins\, afstæða tilveru\, og látum hugann reika\, rétt á meðan við gleymum okkar eigin stað og stund. 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallgrimur-arnason-opnar-skjoldur/
LOCATION:Listval\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/Vidrar_162x146edh.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230401
DTEND;VALUE=DATE:20230428
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230330T145109Z
LAST-MODIFIED:20230426T133851Z
UID:30281-1680307200-1682639999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Emma Heiðarsdóttir: Ljósrofi
DESCRIPTION:Emma Heiðarsdóttir (f. 1990) vinnur út frá breytilegum mörkum skúlptúrs og arkitektúrs\, listar og lífs. Verkin byggja gjarnan á inngripi í þau rými eða umgjörð sem hún sýnir í hverju sinni og snúa upp á viðtekna sýn okkar á umhverfið. Á sýningunni Ljósrofi kemur fram viðleitni til að skoða rými út frá takmarkandi og hlutlægum eiginleikum þess\, sem mynda umgjörð fyrir líkamlega og huglæga upplifun. Áhorfendur virkja sum verkanna með líkömum sínum og takmörk í rými leiða ef til vill hugann að öðrum takmörkum.\nEmma nam myndlist við Listaháskóla Íslands 2010-13 og stundaði framhaldsnám við listaakademíuna í Antwerp\, þaðan sem hún útskrifaðist 2018. Árið 2020 hlaut hún tilnefningu til hvatningarverðlauna Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Jaðar í D-sal Listasafns Reykjavíkur. Auk þess hafa verk Emmu meðal annars verið sýnd í i8 Gallery\, Listasafni Árnesinga\, Gallerí Úthverfu\, Kling & Bang\, Gerðarsafni\, Kunsthall Oslo og Einstein Kultur í München.\nemmaheidarsdottir.com
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/emma-heidarsdottir-ljosrofi/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/emma.jpeg
ORGANIZER;CN="%C3%81smundarsalur":MAILTO:asmundarsalur@asmundarsalur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230330
DTEND;VALUE=DATE:20230410
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230330T141341Z
LAST-MODIFIED:20230330T141458Z
UID:30266-1680134400-1681084799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sophie Durand: looking for / stumbling across
DESCRIPTION:Associate Gallery er að Köllunarklettsvegi 4.\n„looking for / stumbling across“ (að leita að / hrasa yfir) er samansafn rannsókna\, safnkostur látbragða\, kort af hreyfingu. Sophie Durand setur fram innsetningu muna sem bera með sér ferðalag og notar gallerírýmið til að búa hugmyndum sem hún hefur sankað að sér tímabundinn stað.\n„Ég held að sýningin snúist um hafið en ég held að hún sé líka um hafið sem fjarlægð\, þröskuld.“ – Joe Keys\n\nSophie Durand er þverfaglegur listamaður með aðsetur á milli Perth\, Ástralíu og Vilníus\, Litháen\, sem leggur áherslu á innsetningu\, söfnun\, teikningu og texta. Verkefni hennar eru knúin áfram af upplifunum\, athugunum og munum. Stefnumót hrinda frásögnum af stað og mynda stærri rannsóknir\, söfn og tengslanet með fjölbreyttum aðferðum. Nýverið hefur Sophie reynt að finna listform sem samræmast vistfræðilegum kerfum við ströndina\, sætta sig við iðkun sem byggist á því að velta fyrir mér minni og leita að leiðum til að endurkvarða framleiðslu og framsetningu til að gerast samtímis hvort öðru og nútíðinni.\nSophie er með BA (Hons 1st Class) í myndlist frá Curtin University og hefur lokið meistaranámi í samtímalist við Eistnesku listaháskólann (með láði). Hún er nú doktorsnemi í myndlist við Listaháskólann í Vilnius í Litháen.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sophie-durand-looking-for-stumbling-across/
LOCATION:Associate Gallery\, Köllunarklettsvegi 4\, Reykjavík\, 104\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/sophie.jpeg
ORGANIZER;CN="Associate%20Gallery":MAILTO:associate.gallery@gmail.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230330
DTEND;VALUE=DATE:20230514
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230330T140547Z
LAST-MODIFIED:20230530T113632Z
UID:30251-1680134400-1684022399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lawrence Weiner og Birgir Andrésson
DESCRIPTION:Tungumálið er kjarni sköpunarferils Lawrence og Birgis. Báðir listamennirnir\, sem einnig voru vinir\, tengjast mætti orðanna órofa böndum og nota þau sem tjáningaraðferð\, sér í lagi með því að leita í sjónrænt afl textans. Birgir og Lawrence rannsökuðu takmörk listarinnar með því að teygja sig út fyrir hefðbundnar hugmyndir um eðli hluta í rými og áhorfandann og sköpuðu þannig nýjar leiðir til tjáningar. Með tilvistar- og heimspekilegum hugleiðingum þróuðu báðir listamennirnir einstakar aðferðir við listsköpun sem bergmáluðu á alþjóðagrundvelli og breyttu stefnu samtímalistar. \nÁhugi Birgis Andréssonar á aðferðum miðlunar magnaðist á uppeldisárunum en Birgir ólst upp hjá blindum foreldrum á blindraheimili. Þar af leiðandi skipuðu lýsingar með orðum mikilvægan sess í lífi Birgis og því þróaði hann með sér aukna næmni fyrir tungumálinu og lýsandi mætti þess. Einnig spilaði kímni og persónu- og þjóðareinkenni stórt hlutverk í listsköpun Birgis en saga Íslands ómar í gegnum allan feril hans. Birgir var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1995 og er verk eftir hann í safneign Metropolitan Museum of Art í New York. Hann hélt einkasýningar á Listasafni Íslands og árið 2022 var sett upp stór yfirlitssýning af verkum hans á Listasafni Reykjavíkur í sýningarstjórn Robert Hobbs; með yfirlitssýningunni kom út vegleg bók um feril hans sem gefin var út af Distanz Verlag. \nLawrence Weiner helgaði sköpun sinni því að draga viðteknar reglur í efa sem gerði hann að leiðandi persónu konseptlistar á sjöunda áratug síðustu aldar. Myndrænt tungumál grafískrar notkunar á texta í hástöfum\, merkjum og línum einkennir myndlist hans og hefur hlotið mikið lof. Lawrence hefur sýnt víða á alþjóðlegum vettvangi þar á meðal í Tate Modern í London; Stedelijk Museum\, Amsterdam; Museo Tamayo í Mexíkóborg; Guggenheim Museum í Bilbao; The Jewish Museum í New York og í Museo Nacional Centro de Arte Reina Sofía í Madrid. Stór yfirlitssýning var sett upp á vegum Whitney Museum í New York; The Museum of Contemporary Art í Los Angeles og K12 Kunstsammlung Nordrhein-Westfalen í Dusseldorf á árunum 2007 – 2009.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/lawrence-weiner-og-birgir-andresson/
LOCATION:i8 Gallery\, Tryggvagata 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-30-at-14.04.55.png
ORGANIZER;CN="i8%20Gallery":MAILTO:info@i8.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230330
DTEND;VALUE=DATE:20230501
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230330T135142Z
LAST-MODIFIED:20230330T135347Z
UID:30246-1680134400-1682899199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Brynjar Helgason: Fyrirbærafræði
DESCRIPTION:Svo tala mætti á frumspekilegu nótunum um áhrifasvið umhverfis upplag ákveðinna efnislegra listhluta skilgreini ég listiðkun mína út frá þannig ‘smíðavinnu’. Í eigin heimi sem aftur á móti gerir ráð fyrir osmósu við einhvern fullkomlega ókunnugan sem með hugveruleika sínum myndi ljá upplifuninni væ( )gi í tengslum við sögu og samfélag\, sértæk sum þau kunna að vera… Þetta felur á endanum í sér visst notagildi ̶v̶e̶g̶ flug?ferðarinnar sem mælikvarði á fagurfræðilegt gildi afstætt öllum mögulegum hlutum og hluteigandi gjörðum vorum (aðstæðunum). Þess konar fagurfræðivæðing lífsins eða raunveruleikans er það sem hefur verið nefnt galdur sem fólk lendir í álögum hvers. Í raun er samfélagið í heild byggt á draumum og órum. Einhverjum okkar hvílir á bölvun þess að af sjálfselsku leita leiða eyðileggingar. Öðrum er blásin í hjarta sýn af paradís á jörðu. Af þannig kyrrð eimir innsetningin sem að ég vil og stuðla að.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/brynjar-helgason-phenomenology/
LOCATION:Phenomenon Gallery\, Ægisgata 7\, Reykjavík\, 101
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/ynjarhelgason.jpeg
ORGANIZER;CN="Phenomenon%20Gallery":MAILTO:artstudiosphenomenon@gmail.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230310
DTEND;VALUE=DATE:20230321
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230308T151740Z
LAST-MODIFIED:20230308T152123Z
UID:29702-1678406400-1679356799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Dorka Csora: Fáum okkur sæti
DESCRIPTION:Dorka Csora fædd í Ungverjalandi og alin upp í Berlín. Dorka er þverfaglegur myndlistarmaður sem býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur mikið með húsgagnasmíði og hönnun í myndlist sinni.\nOPIÐ um helgar 10:00 til 20:00 en einnig er hægt að óska eftir því að rýmið sé opnað með því að hafa samband
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/29696/
LOCATION:Opið sýningarrými\, Ingólfsstræti 6\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/317901028_10222107102374573_5038839892480864140_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20231002
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230308T150551Z
LAST-MODIFIED:20231013T123120Z
UID:29693-1677888000-1696204799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Einkasafnið
DESCRIPTION:Í upphafi árs 2022 var listaverkasafn hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar\, sem kenndur var við Síld og fisk\, afhent Listasafni Íslands til framtíðarvörslu. Safnið\, sem samanstendur meðal annars af málverkum\, teikningum\, grafíkverkum\, höggmyndum og lágmyndum\, er með stærstu einkasöfnum hér á landi og telur um 1400 verk eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinnar. Þar af eru um 400 verk eftir Jóhannes S. Kjarval sem var mikill vinur þeirra hjóna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-private-collection/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-08-at-15.04.43.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230319
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230307T170300Z
LAST-MODIFIED:20230307T170300Z
UID:29665-1677888000-1679183999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gjörningaklúbburinn: Skilaboð að handan
DESCRIPTION:Sýningin SKILABOÐ AÐ HANDAN hverfist um upptöku á miðilsfundi sem Gjörningaklúbburinn átti við Ásgrím árið 2019.\nFundurinn fór fram á fyrrum heimili Ásgríms að Bergsstaðastræti 74\, sem hluti af undirbúningi fyrir einkasýningu Gjörningaklúbbsins\, Vatn og blóð\, sem fram fór á Listasafni Íslands 2019\, og var unnin útfrá Ásgrími og list hans.\nGjörningaklúbburinn hefur á síðustu árum nýtt sér sjáendur við upphaf sköpunarferlis\, aðferð sem þær kalla miðil-miðil. Þær hafa hingað til ekki opinberað miðilsfundina sjálfa en í þessu tilfelli vilja þær gefa fólki\, ekki síst listafólki\, kost á að komast í þessa frumheimild þar sem hún er afar mikilvæg í íslensku- og einnig alþjóðlegu samhengi.\nÁ sýningunni í Gallery Port mun miðilsfundurinn hljóma af vínylplötu sem gefin verður út í 30 platna upplagi ásamt nýjum vatnslitaverkum sem Gjörningaklúbburinn vinnur fyrir hvert eintak af plötunni sem öll verða sýnd á sýningunni. Hverri plötu fylgir textabók með skrásetningu á fundinum á íslensku og ensku.\nVídeóverkið Vatn og blóð\, sem unnið var m.a. útfrá umræddum miðilsfundi\, verður einnig hluti af sýningunni auk pappírs- og ljósa innsetningar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gjorningaklubburinn-skilabod-ad-handan/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frameilc.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230326
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230307T164958Z
LAST-MODIFIED:20230307T165416Z
UID:29657-1677888000-1679788799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Dagrún Aðalsteinsdóttir: Afstaða
DESCRIPTION:Sýningin skoðar þátttöku okkar í að móta og árétta ákveðna afstöðu gagnvart listhlutum. Og hvernig endurtekin virkni og vinna fyrri kynslóða hefur haft áhrif á hvaða hlutir og líkamar virðast passa í ákveðin rými. Verkin skoða þann vendipunkt sem átti sér stað rétt eftir aldamótin 1900 þegar listamenn fóru að nota fundna hluti en sá gjörningur fól í sér að verðmæti verksins var ekki lengur bundinn við hlutinn sjálfan heldur hvar hann var staðsettur og hvernig samhengið gaf hlutnum vægi. Sýningin samanstendur af fundnum listrænum hlutum þar sem þeir eru settir fram í nýju samhengi og umhverfi. Hlutirnir eru eftir óþekkta höfunda fundna á flóamörkuðum í Berlín. Með því að stilla fram fundnum verkum er fókusnum beint að samhenginu og hvað skapar listhlutum menningarlegt og efnahagslegt vægi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/dagrun-adalsteinsdottir-orientation/
LOCATION:Y Gallery\, Hambraborg 12\, Kópavogur\, 200\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frame-ygallery.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230918
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230307T164204Z
LAST-MODIFIED:20231013T123055Z
UID:29650-1677888000-1694995199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Rúrí: Glerregn
DESCRIPTION:Glerregn er innsetning frá árinu 1984 og er eitt fyrsta verk Rúríar í röð margra sem fjalla um tíma og ógnir. \n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nListamaðurinn Þuríður Rúrí Fannberg (1951)\, eða Rúrí eins og hún kýs að kalla sig\, tilheyrir fámennum hópi íslenskra myndlistarmanna sem taka afgerandi pólitíska afstöðu í verkum sínum. Pólitíska vitund Rúríar á rætur sínar að rekja til frétta úr útvarpi í upphafi kalda stríðsins. Það andrúmsloft sem ríkti í heiminum á sjötta og sjöunda áratugnum birtist hér á landi í fréttaflutningi útvarpsins. Frásagnir af styrjöldum í Austurlöndum og vopnuðum innrásum í Austur-Evrópu og víðar ásamt uppgjöri tengdu útrýmingarbúðum voru daglegt brauð. Þá var vitneskjan um tilvist gereyðingarvopna beggja vegna Atlandsála ekki til að draga úr þeim ótta að friðurinn væri gálgafrestur. Rúrí tilheyrir fyrstu kynslóðinni sem óx úr grasi þess meðvituð að maðurinn gæti sjálfur eytt öllu lífi í kringum sig á svipstundu ef hann kærði sig um það. Þessi vitneskja hefur mótað viðhorf Rúríar sem myndlistarmanns en í mörgum verka Rúríar má sjá afstöðu hennar til stríðsreksturs og ofbeldis.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ruri-glassrain/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frameruri.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230323
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230307T163626Z
LAST-MODIFIED:20230307T163745Z
UID:29647-1677888000-1679529599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sólveig Thoroddsen: Leiðtogafundur
DESCRIPTION:Solveig Thoroddsen stundaði B.A. nám við Myndlistardeild LHÍ 2007-2010 og útskrifaðist með mastergráðu frá sama skóla árið 2015. Hún hefur verið virkur myndlistarmaður allar götur síðan. Solveig vinnur í ýmsa miðla eða þá sem hentar hverju sinni og eru viðfangsefnin gjarna samskipti manneskjunnar og náttúrunnar: \,\,Hvernig manneskjan hefur búið um sig í veröldinni er mér hugleikið\, allt frá því að komast af í náttúrunni og til samfélagslegra þátta. Hvernig hún kljáist við umhverfi sitt og settur mark sitt á það og eins hvernig náttúra og umhverfi bregst við.“ \nUmfjöllunarefnið er hér í stóra samhenginu manneskjan vs. náttúran (allt lífríki)\, aðskilnaður eða samruni\, valdbeiting eða samvinna\, neysla eða náttúruvernd. \nÞetta stóra verkefni sem við stöndum frammi fyrir núna\, að halda jörðinni lífvænlegri og sá möguleiki að vinna með náttúrunni og finna sameiginlega fleti og vinna út frá þeim\, þeirri heildarhugsun að við erum öll eitt. \nFramtíðin veltur á því hvernig koníakið fer í leiðtogana.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/solveig-thoroddsen-summit-meeting/
LOCATION:SÍM Gallery\, Hafnarstræti 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frame.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230323
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230301T142604Z
LAST-MODIFIED:20230301T142604Z
UID:29613-1677888000-1679529599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Solveig Thoroddsen: Leiðtogafundur
DESCRIPTION:Solveig Thoroddsen stundaði B.A. nám við Myndlistardeild LHÍ 2007-2010 og útskrifaðist með mastergráðu frá sama skóla árið 2015. Hún hefur verið virkur myndlistarmaður allar götur síðan.  Solveig vinnur í ýmsa miðla eða þá sem hentar hverju sinni og eru viðfangsefnin gjarna samskipti manneskjunnar og náttúrunnar: \,\,Hvernig manneskjan hefur búið um sig í veröldinni er mér hugleikið\, allt frá því að komast af í náttúrunni og til samfélagslegra þátta. Hvernig hún kljáist við umhverfi sitt og settur mark sitt á það og eins hvernig náttúra og umhverfi bregst við.“ \nUmfjöllunarefnið er hér í stóra samhenginu manneskjan vs. náttúran (allt lífríki)\, aðskilnaður eða samruni\, valdbeiting eða samvinna\, neysla eða náttúruvernd. \nÞetta stóra verkefni sem við stöndum frammi fyrir núna\, að halda jörðinni lífvænlegri og sá möguleiki að vinna með náttúrunni og finna sameiginlega fleti og vinna út frá þeim\, þeirri heildarhugsun að við erum öll eitt. \nFramtíðin veltur á því hvernig koníakið fer í leiðtogana.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/solveig-thoroddsen-leidtogafundur/
LOCATION:SÍM gallerí\, Hafnarstræti 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frame.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230225
DTEND;VALUE=DATE:20230327
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230227T145958Z
LAST-MODIFIED:20230227T150108Z
UID:29603-1677283200-1679875199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ólöf Nordal: Fygli
DESCRIPTION:Sýning Ólafar Nordal í Ásmundarsal ber titilinn Fygli og er innsetning með skúlptúrum\, texta og hljóðmynd.  Ólöf Nordal hefur lengi unnið með fugla í verkum sínum sem oft eiga rætur í þjóðtrú\, ímyndarsköpun og menningu samtímans. Fygli eru skúlptúrar steyptir í brons sem sýna fígúrur í umbreytingu.  Formgerð þeirra vísar í umskipti frá gervi manns í gervi fugls\, frá hinu efnislega til hins andlega. Fyglin eru af heimi gróteskunnar og þess kynlega\, en ýja líka að farfuglum þeim sem fljúga yfir hafið jafnt í formi fugls sem og í mennskri formgerð. Verkið er í samtali við nýlegt verk Ólafar sem ber heitið Mannfuglar (2022) og er staðsett í garði hjúkrunarheimilisins Móbergs á Selfossi. \nÓlöf vinnur með menningararfinn\, söguna og minni þjóðar í verkum sínum á gagnrýninn og greinandi hátt. Listrannsóknir hennar beinast að sjálfsmynd þjóðar á eftir-nýlendutímum\, uppruna og endurspeglun þjóðsagnaminna í samtímanum og brotinu sem spegli inn í fortíðina. \nÓlöf Nordal stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk síðan mastersprófi frá Cranbrook Academy of Art\, Michigan og MFA frá höggmyndadeild Yale Háskólans í New Haven\, BNA. Ólöf á sér langan listferil og hefur sýnt hérlendis sem og erlendis. Árið 2019 stóð Listasafn Reykjavíkur fyrir yfirlitssýningu um listferil Ólafar með sýningunum Úngl á Kjarvalsstöðum og úngl-úngl í Ásmundarsafni. Samtímis gaf safnið út yfirlitsrit um feril hennar. Ólöf hefur gert fjölda verka í almannarými. Nýjustu verkin eru Þúfa (2013) við höfnina í Reykjavík\, Hella Rock (2020) í Portland\, Main\, Auga (2021) í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Mannfuglar (2022) við hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi. Ólöf Nordal er prófessor í myndlist við Listaháskóla Íslands. \nsjá nánar á https://olofnordal.com/
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/olof-nordal-blird/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/olof-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230211
DTEND;VALUE=DATE:20230306
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20230215T131320Z
LAST-MODIFIED:20230215T131517Z
UID:29370-1676073600-1678060799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Atli Pálsson: Þar sem köttur hvílir\, þar er heimili
DESCRIPTION:Sýningin ber heitið \,\,Þar sem köttur hvílir\, þar er heimili‘‘ og stendur til sunnudagsins 5. mars.\nAtli Pálsson er myndlistarmaður sem útskrifaðist vorið 2020 frá Listaháskóla Íslands. Verk Atla rýna oft í hversdagslegar athafnir og samfélagsleg gildi á húmorískan máta. Viðfangsefni eins og tilefnislaus verðlaun\, persónulegir sigrar\, ofurgestrisni og gjafmildi hafa verið í forgrunni verka hans\, sem og persónusköpun. Ofgnótt einkennir oft framsetningu þessara hugmynda. Undanfarið hefur Atli beint sjónum sínum að heimilinu í verkum sínum í seríu sem kallast “vistarverur”. Sýningin “Þar sem köttur hvílir\, þar er heimili” er ákveðið framhald af vangaveltum um umhverfi og andrúmsloft sem myndast getur í heimilisrýminu. Á sýningunni er áhorfandanum boðið að kynnast hópi katta inni á heimili þeirra. Þeir horfa löngunaraugum út um gluggann á fuglana sem fljúga frjálsir. Kannski einn daginn komast þeir sjálfir á flug.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/atli-palsson-thar-sem-kottur-hvilir-thar-er-heimili/
LOCATION:Gallerí Úthverfa\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/329801736_547641663986621_7687864391948761463_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220707
DTEND;VALUE=DATE:20220911
DTSTAMP:20260530T044026
CREATED:20220803T174044Z
LAST-MODIFIED:20220916T101408Z
UID:24499-1657152000-1662854399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Teikningar: Edda Jónsdóttir
DESCRIPTION:Edda Jónsdóttir (f. 1942) býr og starfar í Reykjavík. Edda stundaði nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur\, Myndlistar- og handíðaskóla Íslands og Rijksakademie van Beeldende Kunsten Amsterdam. Edda starfaði við myndlist frá árunum 1975 -1995\, stofnaði i8 gallerí og vann sem framkvæmdastjóri þess frá árunum 1995-2007 en sneri sér aftur á þeim tíma að myndlist. Síðustu sýningar hennar voru í Ásmundarsal 2021 og á Mokka kaffi sama ár. \nÞað er Hverfisgalleríi sérstakur heiður að skipuleggja einkasýningu Eddu Jónsdóttur þar sem hún fóstraði stofnun gallerísins fyrir tæpum tíu árum. Samhliða sýningunni Teikningar er efnt til útgáfu bókverks sem gerð var möguleg fyrir tilstuðlan úthlutunar úr Myndlistarsjóði.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/drawings-edda-jonsdottir/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/edda.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR