BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230818
DTEND;VALUE=DATE:20231001
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230816T155156Z
LAST-MODIFIED:20230816T155625Z
UID:32350-1692316800-1696118399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hallgrímur Árnason:  Opnar skjöldur
DESCRIPTION:Hallgrímur Árnason (f. 1988) býr og starfar í Vínarborg. Hann stundaði nám við Listaakademíuna í Vín\, m.a. undir leiðsögn þýska listamannsins Daniel Richter. Í febrúar síðastliðnum opnaði hann sína fyrstu einkasýningu\, Fehlerhaft [kœtlʏð]\, í Vínarborg. Sýningin Opnar skjöldur\, er hans fyrsta sýning á Íslandi. Verkin á sýningunni fjalla um tilfinningalega afstöðu og viðbrögð Hallgríms við stað og stund og sýna áköf form\, liti og línur spretta fram og breiða úr sér. Orka\, hvatvísi og undarlegt jafnvægi kyrrðar og óreiðu einkenna myndflöt Hallgríms. Hann leyfir því óvænta að taka völdin. Eitt hugskot verður að hreyfingu\, athöfn að hugskoti\, eitt leiðir af öðru. Við horfum inní fjölskrúðugan hugarheim listamannsins\, afstæða tilveru\, og látum hugann reika\, rétt á meðan við gleymum okkar eigin stað og stund. 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallgrimur-arnason-opnar-skjoldur/
LOCATION:Listval\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/Vidrar_162x146edh.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230401
DTEND;VALUE=DATE:20230716
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230330T151655Z
LAST-MODIFIED:20230330T151655Z
UID:30295-1680307200-1689465599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Helgi Hjaltalín & Pétur Örn: Markmið XVI
DESCRIPTION:Sýningin er nýjasta afurð samstarfs listamannana sem teygir sig yfir tvo áratugi og hófst með sýningunni Markmið I í Gallerí Hlemmur í Reykjavík um aldamótin. Verk þeirra sem samanstanda af skrásettum gjörningum og tilraunum\, skúlptúrum\, ljósmyndum\, og myndböndum hafa síðan verið sýnd víða\, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur\, Listasafni Akureyrar\, Listasafni Íslands\, Kling og Bang\, Museum for Contemporery Art í Sydney\, Goethe Institute í New York\, Motorenhalle í Dresden svo eitthvað sé nefnt.\nSamstarf þeirra Helga og Péturs einkennist af leikgleði og uppáfinningarsemi þar sem ákveðin afbygging á karlmennskutengdri tækjadellu á sér stað. Þeir búa til furðutæki og farskjóta fyrir ómögulegar aðstæður\, verkfæri sem hafa takmarkað notagildi og framkvæma óskilgreinanlegar athafnir . Tilgangur athafnanna getur virst óljós en markmið þeirra Helga og Péturs virðist oftar en ekki vera ferðalag – hvort sem það er ferð myndbandstökuvélar niður fjallshlíð eða ferðalag ýmisskonar farartækja sem knúin eru áfram af ímyndunaraflinu. Verkin taka óvænta stefnu\, undirbúningurinn verður niðurstaðan\, hætt er í miðjum klíðum\, allt gengur upp\, eitt kveikir annað og tengist með óskýranlegum hætti aftur eða fram í tímann eftir atvikum.\nFyrir sýninguna í Gallerí Undirgöng hafa listamennirnir aðlagað skrásetningu gjörnings að sýningarrýminu í anda þess samtals sem verk þeirra eiga ávallt í við áhorfendur við ólíkar aðstæður.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/helgi-hjaltalin-petur-orn-markmid-xvi/
LOCATION:Gallerí Undirgöng\, Hverfisgata 76\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/markmid.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230401
DTEND;VALUE=DATE:20230428
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230330T145109Z
LAST-MODIFIED:20230426T133851Z
UID:30281-1680307200-1682639999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Emma Heiðarsdóttir: Ljósrofi
DESCRIPTION:Emma Heiðarsdóttir (f. 1990) vinnur út frá breytilegum mörkum skúlptúrs og arkitektúrs\, listar og lífs. Verkin byggja gjarnan á inngripi í þau rými eða umgjörð sem hún sýnir í hverju sinni og snúa upp á viðtekna sýn okkar á umhverfið. Á sýningunni Ljósrofi kemur fram viðleitni til að skoða rými út frá takmarkandi og hlutlægum eiginleikum þess\, sem mynda umgjörð fyrir líkamlega og huglæga upplifun. Áhorfendur virkja sum verkanna með líkömum sínum og takmörk í rými leiða ef til vill hugann að öðrum takmörkum.\nEmma nam myndlist við Listaháskóla Íslands 2010-13 og stundaði framhaldsnám við listaakademíuna í Antwerp\, þaðan sem hún útskrifaðist 2018. Árið 2020 hlaut hún tilnefningu til hvatningarverðlauna Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Jaðar í D-sal Listasafns Reykjavíkur. Auk þess hafa verk Emmu meðal annars verið sýnd í i8 Gallery\, Listasafni Árnesinga\, Gallerí Úthverfu\, Kling & Bang\, Gerðarsafni\, Kunsthall Oslo og Einstein Kultur í München.\nemmaheidarsdottir.com
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/emma-heidarsdottir-ljosrofi/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/emma.jpeg
ORGANIZER;CN="%C3%81smundarsalur":MAILTO:asmundarsalur@asmundarsalur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230401
DTEND;VALUE=DATE:20230424
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230330T143323Z
LAST-MODIFIED:20230425T113941Z
UID:30270-1680307200-1682294399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Una Björg Magnúsdóttir: Svikull Silfurljómi
DESCRIPTION:SVIKULL SILFURLJÓMI\nSýningin Svikull silfurljómi birtist okkur í rými sem nú þegar er uppfullt af lögum\, sögum og fingraförum. Á sýningunni eru höggmyndir og myndverk sem ávarpa ýmist rýmið beint eða velta upp spurningum um tíma og gildismat.\nInnsta lag sýningarinnar er ókannað svæði\, fundið rými innan í rými. Blassgrün litur handriðs mótar jaðar hins ósýnilega rýmis og gefur því skilgreinda stærð\, lögun og mörk. Utan hins nýskilgreinda rýmis hanga rauð leikhústjöld. Þau marka líka rými\, renna eftir brautum og aðgreina eftir hentugleika. Leikhústjöld eru rauð því myrkur gleypir rauða litinn fyrst\, mýkir eldmóðinn og ástríðuna.\nFjórir pappírspésar finnast vel geymdir eftir langa dvöl á milli blaðsíðna í spakmælabók sem segir: ”Skynseminnar er að ráða\, en tilfinninganna að njóta”\, greinilega dýrmætir en týndir og gleymdir. Súrefnið er yfirþyrmandi.\nLög rýmisins hrannast upp\, þunnar skyggnur sem erfitt er að greina eftir því sem þær verða fleiri. Tímalínur blandast saman\, enginn man lengur hvort að fermingarveislur voru haldnar að vori eða snemma hausts og sumir segja að handriðið hafi alltaf verið þarna.\n1. apríl býr þó til pláss fyrir efa\, þetta gæti allt saman verið plat – þvílíkur léttir. Ysta lag sýningarinnar er hús\, samkomuhús.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/una-bjorg-magnusdottir-svikull-silfurljomi/
LOCATION:Listasafn ASÍ – Samkomuhúsið Súðavík\, Grundarstræti 1\, Súðavík\, 420\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/UBM-teningar-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="Listasafn%20AS%C3%8D":MAILTO:info@listasafnasi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230331
DTEND;VALUE=DATE:20230403
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230330T152610Z
LAST-MODIFIED:20230330T152703Z
UID:30311-1680220800-1680479999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hyojung Bea:
DESCRIPTION:
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hyojung-bea/
LOCATION:Gilfélagið\, Kaupvangsstræti 32\, Akureyri\, 600\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/gilfel.jpeg
ORGANIZER;CN="Gilf%C3%A9lagi%C3%B0":MAILTO:gilfelag@listagil.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230330
DTEND;VALUE=DATE:20230410
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230330T141341Z
LAST-MODIFIED:20230330T141458Z
UID:30266-1680134400-1681084799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sophie Durand: looking for / stumbling across
DESCRIPTION:Associate Gallery er að Köllunarklettsvegi 4.\n„looking for / stumbling across“ (að leita að / hrasa yfir) er samansafn rannsókna\, safnkostur látbragða\, kort af hreyfingu. Sophie Durand setur fram innsetningu muna sem bera með sér ferðalag og notar gallerírýmið til að búa hugmyndum sem hún hefur sankað að sér tímabundinn stað.\n„Ég held að sýningin snúist um hafið en ég held að hún sé líka um hafið sem fjarlægð\, þröskuld.“ – Joe Keys\n\nSophie Durand er þverfaglegur listamaður með aðsetur á milli Perth\, Ástralíu og Vilníus\, Litháen\, sem leggur áherslu á innsetningu\, söfnun\, teikningu og texta. Verkefni hennar eru knúin áfram af upplifunum\, athugunum og munum. Stefnumót hrinda frásögnum af stað og mynda stærri rannsóknir\, söfn og tengslanet með fjölbreyttum aðferðum. Nýverið hefur Sophie reynt að finna listform sem samræmast vistfræðilegum kerfum við ströndina\, sætta sig við iðkun sem byggist á því að velta fyrir mér minni og leita að leiðum til að endurkvarða framleiðslu og framsetningu til að gerast samtímis hvort öðru og nútíðinni.\nSophie er með BA (Hons 1st Class) í myndlist frá Curtin University og hefur lokið meistaranámi í samtímalist við Eistnesku listaháskólann (með láði). Hún er nú doktorsnemi í myndlist við Listaháskólann í Vilnius í Litháen.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sophie-durand-looking-for-stumbling-across/
LOCATION:Associate Gallery\, Köllunarklettsvegi 4\, Reykjavík\, 104\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/sophie.jpeg
ORGANIZER;CN="Associate%20Gallery":MAILTO:associate.gallery@gmail.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230330
DTEND;VALUE=DATE:20230514
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230330T140547Z
LAST-MODIFIED:20230530T113632Z
UID:30251-1680134400-1684022399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lawrence Weiner og Birgir Andrésson
DESCRIPTION:Tungumálið er kjarni sköpunarferils Lawrence og Birgis. Báðir listamennirnir\, sem einnig voru vinir\, tengjast mætti orðanna órofa böndum og nota þau sem tjáningaraðferð\, sér í lagi með því að leita í sjónrænt afl textans. Birgir og Lawrence rannsökuðu takmörk listarinnar með því að teygja sig út fyrir hefðbundnar hugmyndir um eðli hluta í rými og áhorfandann og sköpuðu þannig nýjar leiðir til tjáningar. Með tilvistar- og heimspekilegum hugleiðingum þróuðu báðir listamennirnir einstakar aðferðir við listsköpun sem bergmáluðu á alþjóðagrundvelli og breyttu stefnu samtímalistar. \nÁhugi Birgis Andréssonar á aðferðum miðlunar magnaðist á uppeldisárunum en Birgir ólst upp hjá blindum foreldrum á blindraheimili. Þar af leiðandi skipuðu lýsingar með orðum mikilvægan sess í lífi Birgis og því þróaði hann með sér aukna næmni fyrir tungumálinu og lýsandi mætti þess. Einnig spilaði kímni og persónu- og þjóðareinkenni stórt hlutverk í listsköpun Birgis en saga Íslands ómar í gegnum allan feril hans. Birgir var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1995 og er verk eftir hann í safneign Metropolitan Museum of Art í New York. Hann hélt einkasýningar á Listasafni Íslands og árið 2022 var sett upp stór yfirlitssýning af verkum hans á Listasafni Reykjavíkur í sýningarstjórn Robert Hobbs; með yfirlitssýningunni kom út vegleg bók um feril hans sem gefin var út af Distanz Verlag. \nLawrence Weiner helgaði sköpun sinni því að draga viðteknar reglur í efa sem gerði hann að leiðandi persónu konseptlistar á sjöunda áratug síðustu aldar. Myndrænt tungumál grafískrar notkunar á texta í hástöfum\, merkjum og línum einkennir myndlist hans og hefur hlotið mikið lof. Lawrence hefur sýnt víða á alþjóðlegum vettvangi þar á meðal í Tate Modern í London; Stedelijk Museum\, Amsterdam; Museo Tamayo í Mexíkóborg; Guggenheim Museum í Bilbao; The Jewish Museum í New York og í Museo Nacional Centro de Arte Reina Sofía í Madrid. Stór yfirlitssýning var sett upp á vegum Whitney Museum í New York; The Museum of Contemporary Art í Los Angeles og K12 Kunstsammlung Nordrhein-Westfalen í Dusseldorf á árunum 2007 – 2009.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/lawrence-weiner-og-birgir-andresson/
LOCATION:i8 Gallery\, Tryggvagata 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-30-at-14.04.55.png
ORGANIZER;CN="i8%20Gallery":MAILTO:info@i8.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230330
DTEND;VALUE=DATE:20230501
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230330T135142Z
LAST-MODIFIED:20230330T135347Z
UID:30246-1680134400-1682899199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Brynjar Helgason: Fyrirbærafræði
DESCRIPTION:Svo tala mætti á frumspekilegu nótunum um áhrifasvið umhverfis upplag ákveðinna efnislegra listhluta skilgreini ég listiðkun mína út frá þannig ‘smíðavinnu’. Í eigin heimi sem aftur á móti gerir ráð fyrir osmósu við einhvern fullkomlega ókunnugan sem með hugveruleika sínum myndi ljá upplifuninni væ( )gi í tengslum við sögu og samfélag\, sértæk sum þau kunna að vera… Þetta felur á endanum í sér visst notagildi ̶v̶e̶g̶ flug?ferðarinnar sem mælikvarði á fagurfræðilegt gildi afstætt öllum mögulegum hlutum og hluteigandi gjörðum vorum (aðstæðunum). Þess konar fagurfræðivæðing lífsins eða raunveruleikans er það sem hefur verið nefnt galdur sem fólk lendir í álögum hvers. Í raun er samfélagið í heild byggt á draumum og órum. Einhverjum okkar hvílir á bölvun þess að af sjálfselsku leita leiða eyðileggingar. Öðrum er blásin í hjarta sýn af paradís á jörðu. Af þannig kyrrð eimir innsetningin sem að ég vil og stuðla að.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/brynjar-helgason-phenomenology/
LOCATION:Phenomenon Gallery\, Ægisgata 7\, Reykjavík\, 101
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/ynjarhelgason.jpeg
ORGANIZER;CN="Phenomenon%20Gallery":MAILTO:artstudiosphenomenon@gmail.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230318
DTEND;VALUE=DATE:20230416
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230316T110644Z
LAST-MODIFIED:20230316T110826Z
UID:29862-1679097600-1681603199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Maria Wandel: Not Keeping Journal
DESCRIPTION:Maria Wandel er danskur listamaður sem mun opna sýningu í Þulu. Sýningin ber heitið Not Keeping Journal og opnar klukkan 16:00 þann 18.mars.\nFrá því að Maria Wandel lauk námi við Konunglegu dönsku listaháskólann (1997-2005) hefur hún gert tilraunir með ýmsar listrænar aðferðir og komið á nýjum og óvæntum sjónrænum samræðum á milli bæði myndlistar og bókmennta og milli ljósmyndunar og málverks. Árið 1998\, í Nikolaj Kunsthal\, sýndi hún röð af dökkbrúnum málverkum þar sem nokkrir af samnemendum hennar böðuðu sig í heitum hverum á Íslandi. Þar var hún strax farin að vinna með fígúratív málverk en aftur á móti sýndi hún í Kunsthal Charlottenborg árið 1999 stór\, expressjónísk málverk af ristum\, kúlum og öðrum formum og fígúrum. Hún er enn þann dag í dag óhrædd við að stökkva á milli stíla og mun hún í Þulu sína fjölbreytt verk á pappír.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/maria-wandel-not-keeping-journal/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-15-at-10.45.14.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230316
DTEND;VALUE=DATE:20230501
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230316T105118Z
LAST-MODIFIED:20230505T094531Z
UID:29854-1678924800-1682899199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Amanda Riffo: House of Purkinje
DESCRIPTION:Augað er líffærið sem tekur á móti því sem við sjáum. Heilinn vinnur úr ljósinu\, meðtekur upplýsingarnar sem fanga athygli okkar og framkallar myndir. Þannig sést aðeins hluti af því sem fyrir augu ber\, og þannig erum við aðeins meðvituð um lítinn hluta af því sem við sjáum. \n\n\nHouse of Purkinje\, einkasýning Amanda Riffo er sviðsetning á raunveruleikanum. Titillinn vísar til tékkneska lífefnafræðingsins Jan Evangelista Purkyně sem meðal annars uppgötvaði samverkandi og margfaldar speglanir af einni einstakri fyrirmynd sem birtast á yfirborði augans og innan úr því. Eins og margföld speglun sjálfsins. \nMeð House of Purkinje setur Amanda fram hliðstæður á milli lífeðlisfræði augans og meðvitundar okkar gagnvart umhverfinu. Þetta gerir hún með því að etja sýningarrýminu saman við kvikmyndaver\, en Amanda hefur starfað í kvikmyndaiðnaðinum næstum jafn lengi og hún hefur starfað sem myndlistarmaður. Á báðum sviðum vinnur hún með afbakaða hluti\, skáldaðar myndir og stöðugar vangaveltur um hvernig við skynjum umhverfi okkar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/amanda-riffo-house-of-purkinje/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-16-at-10.41.32.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230311
DTEND;VALUE=DATE:20230417
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230316T111800Z
LAST-MODIFIED:20230425T113729Z
UID:29876-1678492800-1681689599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:UNDIRLJÓMI
DESCRIPTION:Sýningin UNDIRLJÓMI / INFRA-GLOW opnar í Listasafni Reykjanesbæjar laugardaginn 11. mars og stendur til sunnudagsins 16. apríl 2023.\nSýningarstjórar eru Daria Testoedova\, Elise Bergonzi og Hannah Zander sem allar stunda meistaranám í sýningagerð við myndlistardeild Listaháskóla Íslands.\n\nNánd við samvirk tengsl á milli líkama okkar\, huga og umhverfis er beisluð líkt og orka í listsköpun Carissu Baktay\, Claire Paugam\, Claudiu Hausfeld\, Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur\, Hye Joung Park\, Iðu Brár Ingadóttur og Þórdísar Erlu Zoëga á sýningunni UNDIRLJÓMI.\nUpptök orkunnar er ósæ nálægð við hversdagsleg yfirborð og flæðandi glýpt á milli þeirra.\n\nGrafísk hönnun eftir Huga Ólafsson.\nLjósahönnun eftir Rósu Dögg Þorsteinsdóttur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/infra-glow/
LOCATION:Reykjanes Art Museum\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/framereykija.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230310
DTEND;VALUE=DATE:20230321
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230308T151740Z
LAST-MODIFIED:20230308T152123Z
UID:29702-1678406400-1679356799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Dorka Csora: Fáum okkur sæti
DESCRIPTION:Dorka Csora fædd í Ungverjalandi og alin upp í Berlín. Dorka er þverfaglegur myndlistarmaður sem býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur mikið með húsgagnasmíði og hönnun í myndlist sinni.\nOPIÐ um helgar 10:00 til 20:00 en einnig er hægt að óska eftir því að rýmið sé opnað með því að hafa samband
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/29696/
LOCATION:Opið sýningarrými\, Ingólfsstræti 6\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/317901028_10222107102374573_5038839892480864140_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20231002
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230308T150551Z
LAST-MODIFIED:20231013T123120Z
UID:29693-1677888000-1696204799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Einkasafnið
DESCRIPTION:Í upphafi árs 2022 var listaverkasafn hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar\, sem kenndur var við Síld og fisk\, afhent Listasafni Íslands til framtíðarvörslu. Safnið\, sem samanstendur meðal annars af málverkum\, teikningum\, grafíkverkum\, höggmyndum og lágmyndum\, er með stærstu einkasöfnum hér á landi og telur um 1400 verk eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinnar. Þar af eru um 400 verk eftir Jóhannes S. Kjarval sem var mikill vinur þeirra hjóna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-private-collection/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-08-at-15.04.43.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230319
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230307T170300Z
LAST-MODIFIED:20230307T170300Z
UID:29665-1677888000-1679183999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gjörningaklúbburinn: Skilaboð að handan
DESCRIPTION:Sýningin SKILABOÐ AÐ HANDAN hverfist um upptöku á miðilsfundi sem Gjörningaklúbburinn átti við Ásgrím árið 2019.\nFundurinn fór fram á fyrrum heimili Ásgríms að Bergsstaðastræti 74\, sem hluti af undirbúningi fyrir einkasýningu Gjörningaklúbbsins\, Vatn og blóð\, sem fram fór á Listasafni Íslands 2019\, og var unnin útfrá Ásgrími og list hans.\nGjörningaklúbburinn hefur á síðustu árum nýtt sér sjáendur við upphaf sköpunarferlis\, aðferð sem þær kalla miðil-miðil. Þær hafa hingað til ekki opinberað miðilsfundina sjálfa en í þessu tilfelli vilja þær gefa fólki\, ekki síst listafólki\, kost á að komast í þessa frumheimild þar sem hún er afar mikilvæg í íslensku- og einnig alþjóðlegu samhengi.\nÁ sýningunni í Gallery Port mun miðilsfundurinn hljóma af vínylplötu sem gefin verður út í 30 platna upplagi ásamt nýjum vatnslitaverkum sem Gjörningaklúbburinn vinnur fyrir hvert eintak af plötunni sem öll verða sýnd á sýningunni. Hverri plötu fylgir textabók með skrásetningu á fundinum á íslensku og ensku.\nVídeóverkið Vatn og blóð\, sem unnið var m.a. útfrá umræddum miðilsfundi\, verður einnig hluti af sýningunni auk pappírs- og ljósa innsetningar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gjorningaklubburinn-skilabod-ad-handan/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frameilc.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230326
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230307T164958Z
LAST-MODIFIED:20230307T165416Z
UID:29657-1677888000-1679788799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Dagrún Aðalsteinsdóttir: Afstaða
DESCRIPTION:Sýningin skoðar þátttöku okkar í að móta og árétta ákveðna afstöðu gagnvart listhlutum. Og hvernig endurtekin virkni og vinna fyrri kynslóða hefur haft áhrif á hvaða hlutir og líkamar virðast passa í ákveðin rými. Verkin skoða þann vendipunkt sem átti sér stað rétt eftir aldamótin 1900 þegar listamenn fóru að nota fundna hluti en sá gjörningur fól í sér að verðmæti verksins var ekki lengur bundinn við hlutinn sjálfan heldur hvar hann var staðsettur og hvernig samhengið gaf hlutnum vægi. Sýningin samanstendur af fundnum listrænum hlutum þar sem þeir eru settir fram í nýju samhengi og umhverfi. Hlutirnir eru eftir óþekkta höfunda fundna á flóamörkuðum í Berlín. Með því að stilla fram fundnum verkum er fókusnum beint að samhenginu og hvað skapar listhlutum menningarlegt og efnahagslegt vægi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/dagrun-adalsteinsdottir-orientation/
LOCATION:Y Gallery\, Hambraborg 12\, Kópavogur\, 200\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frame-ygallery.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230918
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230307T164204Z
LAST-MODIFIED:20231013T123055Z
UID:29650-1677888000-1694995199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Rúrí: Glerregn
DESCRIPTION:Glerregn er innsetning frá árinu 1984 og er eitt fyrsta verk Rúríar í röð margra sem fjalla um tíma og ógnir. \n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nListamaðurinn Þuríður Rúrí Fannberg (1951)\, eða Rúrí eins og hún kýs að kalla sig\, tilheyrir fámennum hópi íslenskra myndlistarmanna sem taka afgerandi pólitíska afstöðu í verkum sínum. Pólitíska vitund Rúríar á rætur sínar að rekja til frétta úr útvarpi í upphafi kalda stríðsins. Það andrúmsloft sem ríkti í heiminum á sjötta og sjöunda áratugnum birtist hér á landi í fréttaflutningi útvarpsins. Frásagnir af styrjöldum í Austurlöndum og vopnuðum innrásum í Austur-Evrópu og víðar ásamt uppgjöri tengdu útrýmingarbúðum voru daglegt brauð. Þá var vitneskjan um tilvist gereyðingarvopna beggja vegna Atlandsála ekki til að draga úr þeim ótta að friðurinn væri gálgafrestur. Rúrí tilheyrir fyrstu kynslóðinni sem óx úr grasi þess meðvituð að maðurinn gæti sjálfur eytt öllu lífi í kringum sig á svipstundu ef hann kærði sig um það. Þessi vitneskja hefur mótað viðhorf Rúríar sem myndlistarmanns en í mörgum verka Rúríar má sjá afstöðu hennar til stríðsreksturs og ofbeldis.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ruri-glassrain/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frameruri.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230323
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230307T163626Z
LAST-MODIFIED:20230307T163745Z
UID:29647-1677888000-1679529599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sólveig Thoroddsen: Leiðtogafundur
DESCRIPTION:Solveig Thoroddsen stundaði B.A. nám við Myndlistardeild LHÍ 2007-2010 og útskrifaðist með mastergráðu frá sama skóla árið 2015. Hún hefur verið virkur myndlistarmaður allar götur síðan. Solveig vinnur í ýmsa miðla eða þá sem hentar hverju sinni og eru viðfangsefnin gjarna samskipti manneskjunnar og náttúrunnar: \,\,Hvernig manneskjan hefur búið um sig í veröldinni er mér hugleikið\, allt frá því að komast af í náttúrunni og til samfélagslegra þátta. Hvernig hún kljáist við umhverfi sitt og settur mark sitt á það og eins hvernig náttúra og umhverfi bregst við.“ \nUmfjöllunarefnið er hér í stóra samhenginu manneskjan vs. náttúran (allt lífríki)\, aðskilnaður eða samruni\, valdbeiting eða samvinna\, neysla eða náttúruvernd. \nÞetta stóra verkefni sem við stöndum frammi fyrir núna\, að halda jörðinni lífvænlegri og sá möguleiki að vinna með náttúrunni og finna sameiginlega fleti og vinna út frá þeim\, þeirri heildarhugsun að við erum öll eitt. \nFramtíðin veltur á því hvernig koníakið fer í leiðtogana.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/solveig-thoroddsen-summit-meeting/
LOCATION:SÍM Gallery\, Hafnarstræti 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frame.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230323
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230301T142604Z
LAST-MODIFIED:20230301T142604Z
UID:29613-1677888000-1679529599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Solveig Thoroddsen: Leiðtogafundur
DESCRIPTION:Solveig Thoroddsen stundaði B.A. nám við Myndlistardeild LHÍ 2007-2010 og útskrifaðist með mastergráðu frá sama skóla árið 2015. Hún hefur verið virkur myndlistarmaður allar götur síðan.  Solveig vinnur í ýmsa miðla eða þá sem hentar hverju sinni og eru viðfangsefnin gjarna samskipti manneskjunnar og náttúrunnar: \,\,Hvernig manneskjan hefur búið um sig í veröldinni er mér hugleikið\, allt frá því að komast af í náttúrunni og til samfélagslegra þátta. Hvernig hún kljáist við umhverfi sitt og settur mark sitt á það og eins hvernig náttúra og umhverfi bregst við.“ \nUmfjöllunarefnið er hér í stóra samhenginu manneskjan vs. náttúran (allt lífríki)\, aðskilnaður eða samruni\, valdbeiting eða samvinna\, neysla eða náttúruvernd. \nÞetta stóra verkefni sem við stöndum frammi fyrir núna\, að halda jörðinni lífvænlegri og sá möguleiki að vinna með náttúrunni og finna sameiginlega fleti og vinna út frá þeim\, þeirri heildarhugsun að við erum öll eitt. \nFramtíðin veltur á því hvernig koníakið fer í leiðtogana.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/solveig-thoroddsen-leidtogafundur/
LOCATION:SÍM gallerí\, Hafnarstræti 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frame.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230225
DTEND;VALUE=DATE:20230327
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230227T145958Z
LAST-MODIFIED:20230227T150108Z
UID:29603-1677283200-1679875199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ólöf Nordal: Fygli
DESCRIPTION:Sýning Ólafar Nordal í Ásmundarsal ber titilinn Fygli og er innsetning með skúlptúrum\, texta og hljóðmynd.  Ólöf Nordal hefur lengi unnið með fugla í verkum sínum sem oft eiga rætur í þjóðtrú\, ímyndarsköpun og menningu samtímans. Fygli eru skúlptúrar steyptir í brons sem sýna fígúrur í umbreytingu.  Formgerð þeirra vísar í umskipti frá gervi manns í gervi fugls\, frá hinu efnislega til hins andlega. Fyglin eru af heimi gróteskunnar og þess kynlega\, en ýja líka að farfuglum þeim sem fljúga yfir hafið jafnt í formi fugls sem og í mennskri formgerð. Verkið er í samtali við nýlegt verk Ólafar sem ber heitið Mannfuglar (2022) og er staðsett í garði hjúkrunarheimilisins Móbergs á Selfossi. \nÓlöf vinnur með menningararfinn\, söguna og minni þjóðar í verkum sínum á gagnrýninn og greinandi hátt. Listrannsóknir hennar beinast að sjálfsmynd þjóðar á eftir-nýlendutímum\, uppruna og endurspeglun þjóðsagnaminna í samtímanum og brotinu sem spegli inn í fortíðina. \nÓlöf Nordal stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk síðan mastersprófi frá Cranbrook Academy of Art\, Michigan og MFA frá höggmyndadeild Yale Háskólans í New Haven\, BNA. Ólöf á sér langan listferil og hefur sýnt hérlendis sem og erlendis. Árið 2019 stóð Listasafn Reykjavíkur fyrir yfirlitssýningu um listferil Ólafar með sýningunum Úngl á Kjarvalsstöðum og úngl-úngl í Ásmundarsafni. Samtímis gaf safnið út yfirlitsrit um feril hennar. Ólöf hefur gert fjölda verka í almannarými. Nýjustu verkin eru Þúfa (2013) við höfnina í Reykjavík\, Hella Rock (2020) í Portland\, Main\, Auga (2021) í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Mannfuglar (2022) við hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi. Ólöf Nordal er prófessor í myndlist við Listaháskóla Íslands. \nsjá nánar á https://olofnordal.com/
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/olof-nordal-blird/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/olof-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230225
DTEND;VALUE=DATE:20230320
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230227T144236Z
LAST-MODIFIED:20230227T144317Z
UID:29587-1677283200-1679270399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hallsteinn Sigurðsson & Greta Vazhko: Eggið\, vængir & kanína
DESCRIPTION:Það er langur aðdragandinn að fyrstu sýningu ársins í Café Pysju\, hverrar Hallsteinn Sigurðsson er annar listamannanna sem komu að gerð. ‘Eggið’ var upphaflega mótað árið 1968 – er eitt af (h)elstu verkum þessa merka listamanns. Það var og efst á lista yfir þau verk sem listamaðurinn óskaði sér að yrði uppsköluð þegar við hófum okkar samstarf fyrir tæpu ári síðan. Nú hefur það verið gert og er tilbúið til sýningar! \n..en það er okkur í mun að verk Hallsteins séu ísamtali við verk yngri listamanna og þess vegna höfum við fengið með okkur litháesku listakonuna Gretu Vazhko til að sýna verk sitt mót egginu. Greta hóf nýjan kafla í sínu lífi við komuna til landsins nýverið og vinnur nú að verkum á vinnustofu sinni í listamanna komplexinu Fyrirbæri sem er til húsa niður í bæ. \nSýningin er opin á venjubundnum opnunartíma; fimmtudaga til sunnudaga frá 2 – 6\, tímabilið 25.02 – 19.03
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallsteinn-sigurdsson-greta-vazhko-eggid-vaengir-kanina/
LOCATION:Cafe Pysja\, Hverafold 1-3\, Reykjavík\, 112\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/DSC07859-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230217
DTEND;VALUE=DATE:20230305
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230215T133610Z
LAST-MODIFIED:20230215T133610Z
UID:29376-1676592000-1677974399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir: Endurvarp
DESCRIPTION:Á sýningunni Endurvarp kannar Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir mörk málverks og vefnaðar\, þar sem verkin verða hugleiðing og tilraun til að fanga óstöðugt ástand lita.\nLitir birtast á mismunandi hátt í verkunum og hafa áhrif hver á annan. Liturinn er ýmist ofinn inn í efnið eða málaður á fleti sem vísa fram eða til hliðar. Litafletir varpast á vegginn og birtast á mismunandi hátt eftir birtuskilyrðum\, samspili við aðra liti og augum þeirra sem horfa.\nIngunn Fjóla veltir fyrir sér hvernig við skynjum listaverk – er það hluturinn sjálfur eða upplifunin af honum sem við skynjum? Er litur áþreifanlegur eða óáþreifanlegur – er hægt að snerta hann? Eðlisfræðilega séð eru litir ljósbylgjur með mismunandi bylgjulengdir. Við sjáum liti vegna eiginleika efna sem varpa frá sér bylgjum sem augu okkar og heilar nema. En hvaða merkingu finnum við í litum? Táknræn merking lita getur breyst eftir samhengi\, menningarheimum og tímabilum. Til dæmis getur rauður litur táknað ást eða reiði eða einfaldlega stopp\, allt eftir samhenginu sem hann birtist í. Litir eru afstæðir\, og við finnum öll okkar eigin merkingu í litum eftir upplifun og skynjun.\n________________\nIngunn Fjóla Ingþórsdóttir (f. 1976) útskrifaðist með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2017 og BA gráðu í myndlist frá sömu stofnun árið 2007. Hún er einnig með BA gráðu í listasögu frá háskólanum í Árósum frá 2002. Ingunn Fjóla fæst aðallega við málverk og innsetningar. Í listsköpun sinni byggir hún gjarnan á sögu naumhyggjunnar og abstraktmálverksins. Verk hennar fela oft í sér gagnvirkni eða beina þátttöku og teygir hún þannig svið málverksins inn í opið kerfi þar sem verkin lifna við fyrir tilstilli áhorfenda og rýmisins. Verk Ingunnar hafa verið sýnd víða í galleríum og söfnum á Íslandi sem og erlendis. Ingunn Fjóla er handhafi Guðmunduverðlaunanna 2022.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ingunn-fjola-ingthorsdottir-endurvarp/
LOCATION:Listval – Granda\, Hólmaslóð 6\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/opnun.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230216
DTEND;VALUE=DATE:20230312
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230215T134307Z
LAST-MODIFIED:20230215T134444Z
UID:29388-1676505600-1678579199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Karen Björg Jóhannsdóttir: ACE-ar
DESCRIPTION:Karen Björg Jóhannsdóttir er starfandi listmálari\, búsett í Reykjavík. Hún lauk 2 ára diplómu af listmálarabraut Myndlistarskólans í Reykjavík árið 2018. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum í Reykjavík auk fjölda einkasýninga. Hún vinnur oft á mörkum hins hlutbundna og óhlutbundna og litagleðin er sjaldan langt undan.\nÁ sýningunni ACE-ar hefur Karen einbeitt sér að því að mála litrík\, gróf portrett af sterkum og öflugum konum sem standa henni nærri. Skaðleg upplifun í æsku (e. ACE-Adverse Childhood Experiences) nær yfir margskonar líkamlegt og andlegt ofbeldi\, vanrækslu og heimilisvandamál sem eiga sér stað í æsku.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/karen-bjorg-johannsdottir-ace-ar/
LOCATION:Gallery Grótta\, Eiðistorgi 11\, Seltjarnarnes\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/Screenshot-2023-02-15-at-13.42.31.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230211
DTEND;VALUE=DATE:20230306
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230215T131320Z
LAST-MODIFIED:20230215T131517Z
UID:29370-1676073600-1678060799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Atli Pálsson: Þar sem köttur hvílir\, þar er heimili
DESCRIPTION:Sýningin ber heitið \,\,Þar sem köttur hvílir\, þar er heimili‘‘ og stendur til sunnudagsins 5. mars.\nAtli Pálsson er myndlistarmaður sem útskrifaðist vorið 2020 frá Listaháskóla Íslands. Verk Atla rýna oft í hversdagslegar athafnir og samfélagsleg gildi á húmorískan máta. Viðfangsefni eins og tilefnislaus verðlaun\, persónulegir sigrar\, ofurgestrisni og gjafmildi hafa verið í forgrunni verka hans\, sem og persónusköpun. Ofgnótt einkennir oft framsetningu þessara hugmynda. Undanfarið hefur Atli beint sjónum sínum að heimilinu í verkum sínum í seríu sem kallast “vistarverur”. Sýningin “Þar sem köttur hvílir\, þar er heimili” er ákveðið framhald af vangaveltum um umhverfi og andrúmsloft sem myndast getur í heimilisrýminu. Á sýningunni er áhorfandanum boðið að kynnast hópi katta inni á heimili þeirra. Þeir horfa löngunaraugum út um gluggann á fuglana sem fljúga frjálsir. Kannski einn daginn komast þeir sjálfir á flug.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/atli-palsson-thar-sem-kottur-hvilir-thar-er-heimili/
LOCATION:Gallerí Úthverfa\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/329801736_547641663986621_7687864391948761463_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230204
DTEND;VALUE=DATE:20230515
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230131T112158Z
LAST-MODIFIED:20230530T122632Z
UID:29125-1675468800-1684108799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hvernig ég komst í sprengjubyrgið
DESCRIPTION:Hvernig ég komst í sprengjubyrgið er þverfagleg sýning sjö úkraínskra listamanna í Norræna húsinu\, sýningarstjóri er Yulia Sapiha. Í sýningunni kafa listamennirnir djúpt ofan í eigin reynslu af stríðinu\, þrána eftir friðsælu lífi\, leiðina til þess að þrauka af og vonina um framtíðina.\nHow did I get to the bombshelter opnar þann 4. febrúar í sýningarsal Norræna hússins og stendur fram í maí 2023.  \nListamenn sýningarinnar eru: Kinder Album (b. 1982)\, Mykhaylo Barabash (b. 1980)\, Jaroslav Kostenko (b. 1989)\, Sergiy Petlyuk (b. 1981)\, Elena Subach (b. 1980)\, Art Group Sviter (b. 1982)\, Maxim Finogeev (b. 1989). \nSýningarstjóri: Yuliia Sapiga\nGrafísk hönnun: Olenka Zahorodnyk
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/how-did-i-get-to-the-bomb-shelter/
LOCATION:The Nordic House\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/norrdicbaner-1280x720_logo-1920x1080-1.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230119
DTEND;VALUE=DATE:20230319
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20230118T103501Z
LAST-MODIFIED:20230315T114234Z
UID:28787-1674086400-1679183999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Butterly / Pétursson
DESCRIPTION:Í heildarverki Kathy Butterly og Eggert Péturssonar má finna líkindi í áratuga langri skuldbindingu við handverkið\, án þess að þau missi sjónar á persónulegri tjáningu viðfangsins. Sýn Kathy og Eggerts einkennist af samtali við efni og aðferð og næmni þeirra beggja fyrir smáatriðum leiðir af sér kraftmikil\, grípandi verk sem bjóða áhorfandanum að hugleiða þolmörk lita og forma í gegnum færni listamannsins; Kathy reynir á takmörk og getu skúlptúrsins rétt eins og Eggert reynir á málverkið. \nFerli og tími eru mikilvægir þættir í verkum beggja listamanna\, og taka þau hvort um sig mánuði\, jafnvel ár í sköpun verka sinna. Kathy brennir keramík verk sín allt að 40 sinnum til að ná fram réttri samsetningu lita og forms; Eggert glæðir strigann íslenskri flóru af kostgæfni og elju. Áhugi þeirra á eiginleikum efnis og ásækinn áþreifanleiki listaverkanna býr til rúm fyrir áhugavert samspil skúlptúrs og málverks tveggja ólíkra heima. Listamennirnir vinna báðir innan sjálfskipaðra ramma – Kathy eftir formi og stærð\, Eggert eftir efnivið – sem í höndum þeirra virðist ótæmandi uppspretta nýrrar nálgunar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/butterly-petursson/
LOCATION:i8 Gallery\, Tryggvagata 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Frame-461-3-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220905
DTEND;VALUE=DATE:20221224
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20220803T151331Z
LAST-MODIFIED:20230103T104747Z
UID:24459-1662336000-1671839999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:GOETHE MORPH*: A Growing Body of Evidence
DESCRIPTION:Frá 5 þar til 15 september\, 2022\, mun Goethe Morph* eiga sér stað og samanstanda af mismunandi viðburðum\, svo sem gjörningum\, vinnustofum\, fyrirlestrum og sýningum. Aðalvettvangur verkefnisins eru Norræna húsið en einnig munu viðburðir eiga sér stað utandyra sem og á netinu.   \nSýningin A Growing Body of Evidence mun vera opnuð í Hvelfingu Norræna hússins 10 september og mun standa þar til 23 desember. \n  \nSýningarstjórar eru: Arnbjörg María Danielsen og Thomas Schaupp. \nFrekari upplýsingar munu koma síðar\, en fyrir áhugasama má skoða heimasíðu verkefnisins og einnig finna það á samfélagsmiðlum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/goethe-morph/
LOCATION:The Nordic House\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/unnamed-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220804
DTEND;VALUE=DATE:20221101
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20220803T123653Z
LAST-MODIFIED:20221110T111342Z
UID:24448-1659571200-1667260799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Edith Hammar: Vellíðan
DESCRIPTION:Edith Hammar (f. 1992 í Helsinki) er ungt listkvár sem vakið hefur athygli fyrir stórar og kraftmiklar blekteikningar sem unnar eru ýmist á pappír eða sem veggverk.\n\nHán teiknar endurtekin myndefni sem eru á margan hátt sjálfsævisöguleg\, með áherslu á upplifun og ímynd kynhlutlausra einstaklinga\, í félagslífi\, í hvíldarstund og að klæða sig í og úr fatnaði í heimilislegu\, en þó útópísku\, umhverfi.\nStórar teikningarnar bjóða áhorfandanum inn í einskonar gátt\, glugga með útsýni yfir örugga og draumkennda vídd þar sem bæði listkvárið og áhorfandinn geta mátað við sig langanir og þarfir. Hversdagslegir hlutir verða að miðpunkti þessara draumóra\, skyndilega er ekkert sjálfssagðara en að kveikja á kerti sem kúrir ofan í rassaskoru og það að raka af einhverjum hárið verður að hámarki rómantíkurinnar.\n\nÁrið 2020 gaf Hammar út sína fyrstu teiknimyndabók Homo Line (Förlaget M) í Finlandi sem notið hefur mikilla vinsælda og frá og með árinu 2022 má finna verk háns í safneign Modern Museum of Art í Stokkhólmi.\n\nEdith Hammar er með BA gráðu í myndlist frá Royal Academy of Fine arts í Stokkhólmi. \n\nFyrir Gallerí Undirgöng vann Edith nýtt verk sem teiknað er beint á veggi sýningarrýmisins.\nSýningin opnar sem hluti af dagskrá Hinsegin daga í Reykjavík 2022.\n@elmhammar
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/edith-hammar-well-being/
LOCATION:Gallery Underpass\, Hverfisgata 76\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/vellídan-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220709
DTEND;VALUE=DATE:20220808
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20220803T161307Z
LAST-MODIFIED:20220822T112800Z
UID:24481-1657324800-1659916799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Arkíf horfinna verka
DESCRIPTION:Safneign Nýlistasafnsins er fyrir löngu orðin lifandi goðsögn\, en í henni leynast óleystar ráðgátur sem nú taka yfir sýningarrými safnsins í Marshallhúsinu. Arkíf horfinna verka miðar að því að ná yfirsýn yfir safneignina á meðan unnið er að því að leysa þessa leyndardóma og gestir eru beðnir um að leggja sitt að mörkum í rannsókninni. Niðurstaðan verður heimildasafn um verk sem að af einhverjum ástæðum eru ekki á þeim stað sem þeim er ætlaður. Verkefnið tekur yfir sýningarrýmið í Marshallhúsinu frá 9. júlí til 7. ágúst í sumar. Samhliða því hefjum við upptökur á efni fyrir Nýló rásina\, nýja hlaðvarpsveitu sem fer af stað með sumrinu. \n\n\nHvað gæti hafa komið fyrir horfnu verkin? Í hvaða hillu eru þau komin? Eru þau hreinlega ekki lengur í varðveisluhúsnæðinu? Var þeim skilað til fyrri eigenda? Komið fyrir í öðrum geymslum? Voru þau lánuð á sýningu og aldrei skilað? Urðu þau fyrir óafturkræfum skemmdum? Finnast einhverjar ljósmyndir af verkunum? Hefur eitthvað verið skrifað um þau? Hvenær voru þau sýnd síðast? Og hvað með verkin sem við vitum ekkert um? Hvaðan komu þau? Hver er listamaðurinn? Hefur þú einhverjar upplýsingar? Við bjóðum þér að taka þátt í því að skapa Arkíf horfinna verka. \n  \nFrá stofnun Nýlistasafnsins 1978 hefur safneignin vaxið ört og nálgast í dag 3000 listaverk. Söfnunin hófst út frá hugsjón myndlistarmanna í andófi gegn áhuga- og afskiptaleysi opinberra safna í garð samtímalistar og safneignin er þess vegna einstök á marga vegu. Hún endurspeglar þróun íslenskrar myndlistar frá og með sjötta áratug síðustu aldar en geymir einnig verk eftir marga alþjóðlega stóra listamenn. Safneignin samanstendur eingöngu af gjöfum\, að mestu leiti frá listamönnum sem gefa safninu eigin verk eða verk eftir aðra í þeirra eigu. \n  \nÍ gegnum tíðina hafa safneignarfulltrúar Nýló rekið sig á leyndardóma í geymslum safnsins\, verk sem ekki finnast\, verk sem talin eru munaðarlaus og jafnvel alls óþekkt verk. Arkíf horfinna verka miðar að því að yfirfara safneign Nýló og skrásetja þau verk sem telja má glötuð í dag\, safna um þau heimildum og skrásetja. Verkefnið felur í sér yfirferð á öllum hillum\, skúffum og öðrum varðveilsustöðum safnsins og samanburði við skráningu á Sarpi og í pappírsgögnum um hvert einasta verk sem hefur verið þegið að gjöf. \n  \nSafnið heldur utan um tvö heimildarsöfn: Arkíf um listamannarekin rými og Gjörningaarkífið\, auk heimildasafns um eigið starf\, en á næstu misserum er ætlunin að bæta við Arkífi horfinna verka. Ætlunin með þessu nýja heimildasafni er sú að ná heildstæðri mynd af þeim verkum sem af einhverjum ástæðum eru ekki á skráðum varðveislustað\, en aukaafurð rannsóknarstarfsins verður heildstæð mynd af ástandi safneignarinnar og aukin þekking á þeim verkum sem eru á einhvern hátt óþekkt eða óskilgetin. Með því að safna heimildum um horfnu verkin gefst tækifæri til þess að endurheimta þau í safneignina sem hluta af arkífinu\, á meðan þeirra er leitað í yfirferðinni. Með því að opna þessa hlið safneignarstarfsins fyrir gestum er verið að opinbera viðkvæma og vandasama hlið safnastarfsins um leið og almenningi er boðið að taka þátt í því starfi sem rannsakendur. \n  \nÍ sumar fer fyrsti fasi verkefnisins fram í sýningarsal Nýló í Marshallhúsinu þar sem framtíð verkefnisins verður mótuð og það keyrt af stað með aðstoð gesta. Í framhaldi verður síðan reglulega opnunartími í safneigninni í Völvufelli samhliða áframhaldandi yfirferð. Einnig er fyrirhuguð útgáfa í tengslum við verkefnið. Þetta er því þáttur í því að opna safneignina meira og gera hana sýnilegri í safnastarfinu.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/archive-of-missing-artworks/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/Nýlistasafnid_arkívhorfinnaverka-Sigthora-Odins.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220707
DTEND;VALUE=DATE:20220911
DTSTAMP:20260530T032944
CREATED:20220803T174044Z
LAST-MODIFIED:20220916T101408Z
UID:24499-1657152000-1662854399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Teikningar: Edda Jónsdóttir
DESCRIPTION:Edda Jónsdóttir (f. 1942) býr og starfar í Reykjavík. Edda stundaði nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur\, Myndlistar- og handíðaskóla Íslands og Rijksakademie van Beeldende Kunsten Amsterdam. Edda starfaði við myndlist frá árunum 1975 -1995\, stofnaði i8 gallerí og vann sem framkvæmdastjóri þess frá árunum 1995-2007 en sneri sér aftur á þeim tíma að myndlist. Síðustu sýningar hennar voru í Ásmundarsal 2021 og á Mokka kaffi sama ár. \nÞað er Hverfisgalleríi sérstakur heiður að skipuleggja einkasýningu Eddu Jónsdóttur þar sem hún fóstraði stofnun gallerísins fyrir tæpum tíu árum. Samhliða sýningunni Teikningar er efnt til útgáfu bókverks sem gerð var möguleg fyrir tilstuðlan úthlutunar úr Myndlistarsjóði.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/drawings-edda-jonsdottir/
LOCATION:Hverfisgallerí\, Hverfisgata 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/edda.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR