
- This event has passed.
The Factory: Kynjalegar gáttir
10 June, 2023–15 September, 2023

Áttunda útgáfan af The Factory, Kynjalegar gáttir, endurómar leiðina í gegnum gap, tíma og heima. Með orðið “heiðni” að leiðarljósi hafa listamennirnir 13 skapað næmnar innsetningar sem rísa sjálfstæðar en um leið samsvarast —næstum trúarlega— í undarlegri nánd við veðraða steypuna. Það er huggun í þessum dulrænu aðstæðum: um leið og við ferðumst á milli verka sem eiga rætur í trumbuslætti seiðmanna, höfuðkúpu villisvíns, og norrænni goðafræði, þá erum við minnt á að lífið er aldrei línulegt. Lífið er fléttað saman af óreiðu, guðdómleika, grjóti, plöntum, dýrum, rotnun, vexti, og fæðingu. Með þessa mynd í huga, staldrið við, og sjáið fyrir ykkur fjölgyðis átrúnað heiðninnar og sýn hennar á samgildingu manna og nátturu sem undirstöðu sýningarinnar.
Listaverkin eru staðsett: Mjölganginum, Lagernum, Færibandsganginum, Lýsistanknum og utandyra, hinu megin við brúnna.
Listamenn:
Alda Ægisdóttir (IS)
Clara Holt (IT)
Ferrelyte (Kamile Pikelyte og Victoria Björk Ferrell) (LI / IS)
Florence Giroux Gravel (CA)
Gudrita Lape (IS)
Heimir Hlöðversson (IS)
Jana Rinchenbachová (CZ)
Jette Dalsgaard (DK)
Linnéa Falck (SE)
Maria-Carmela Raso (CA)
Nína Óskarsdóttir (IS)
Sofie Hermansen Eriksdatter (DK)
Clara Holt (IT)
Ferrelyte (Kamile Pikelyte og Victoria Björk Ferrell) (LI / IS)
Florence Giroux Gravel (CA)
Gudrita Lape (IS)
Heimir Hlöðversson (IS)
Jana Rinchenbachová (CZ)
Jette Dalsgaard (DK)
Linnéa Falck (SE)
Maria-Carmela Raso (CA)
Nína Óskarsdóttir (IS)
Sofie Hermansen Eriksdatter (DK)
Sýningarstjórn: Emilie Dalum
Kynjalegar gáttir stendur yfir frá 10 júní til 15 september, 2023, í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík.
Opið daglega 10.00 -18.00
Aðgangur ókeypis
Aðgangur ókeypis
Hafa samband: emilie@thefactory.is
instagram.com/djupavikart/
instagram.com/djupavikart/
The Factory er árleg hópsýning í yfirgefnu síldarverksmiðjunni í Djúpuvík á Ströndum. Með þvi að sameina staðbundna list, innsetningar og hljóð, brúar The Factory bilið á milli horfins sjávarútvegs og samtímalistar. Íslenskir og alþjóðlegir listamenn, hvort sem er upprennandi eða reynslumiklir, taka þátt. Öll verkin eru innblásin af persónulegum áhrifum af Íslandi, sem (endur)skapa rými í samtali og andstöðu við umhverfið í Djúpuvík. Á hverju ári er nýtt undirþema kynnt til sögunnar. Aðalmarkmið sýningarinnar er að móta vettvang skynjunar þar sem fortíð og nútíð mætast—stað til að anda og leyfa sér að vera til.