
- This event has passed.
Sunneva Ása Weisshappel: Flagð
8 July, 2023–12 August, 2023

Flagð rannsakar flókið og marglaga félagsmunstur kvenna. Sunneva leitast við að kanna myrkar og mótsagnarkenndar hliðar á mannlegu eðli og samskiptum kvenna á milli. Óáþreifanleg átök og þrá fyrir því að tengjast mætast sem mótstæðir pólar í hverju verki. Sunneva notast við ólíka miðla í uppbyggingu verkanna þar sem hár, nælonsokkar og blúndur leika stórt hlutverk. Hárið er fléttað inn í myndmál sýningarinnar með ýmsum hætti þar sem fyrsta lag hvers striga er slegið með hárlokkum. Ferlið undirstrikar því viðfangsefnið og eru höggin missýnileg í gegnum marglaga verkin. Listamaðurinn vinnur jafnframt með ryð og ryðgunarferlið sjálft, efnahvörf niðurbrots sem lita efniviðinn. Í titilverkinu Flagð undir fögru skinni hefur myndefnið verið rifið í sundur. Verkið spannar tíma og rúm, marglaga upplifanir, fegurð, blíðleika, áföll og orðróma sem taka sér bólfestu í líkamanum. Þannig skeytir hún saman myndmáli verkanna með þversögnum á borð við blúndur og ryðgað skrapajárn, kvenlega fegurð og óumflýjanlega hnignun; táknmyndum hégóma, valdsækni, öfundar og ofbeldis við hugsmíðar tærleika, gæsku og sakleysis. Verk sýningarinnar skora á hólm viðteknar tvíhyggjur og kanna eyðileggjandi öfl innan menningar kvenna sem stríðir gegn hugmyndum um verndandi eðli þeirra og hlýju. Þáttum sem samfélagið afneitar gjarnan í þágu ímyndaðs fullkomleika.
-Þemað tengir saman sýninguna Jezebel og seinni sýningu listamannsins á þessu ári sem opnar þann 14.september í Robilant+Voena, New York.
Sunneva Ása Weisshappel f. 1989 útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2013 og mun ljúka Mastersnámi vorið 2024 frá Goldsmith University í London og Listaháskóla Íslands. Sunneva vinnur með ólíka miðla; málverk, skúlptúra, gjörninga og videolist. Í gegnum listina leitast hún við að spegla samtímann og veltir upp krefjandi spurningum. Verk Sunnevu eru rannsókn á kvenleikanum sem miðar að því að afbyggja yfirborðskenndar staðalmyndir og myrkari leyndarmál hans. Þau draga áhorfandann að sér með því að skeyta saman tíma og rúmi, mýkt og grófleika, umhyggju og ofbeldi. Innan þessa hugmyndarheims fléttar Sunneva saman flóknum og duldum tilfinningum í gegnum andstæð efni eins og blúndur, hár og ryð
Nýlegar einkasýningar Sunnevu eru meðal annars New Work,Robilant+Voena, London (2022) Undirlög, Þula, Reykjavík (2021) og Metamorphosis, Gallerí Port (2018). Einnig tók hún þátt í hópsýningunum Tíðarandi, Listasafn Árnesinga (2020) og Raunir, B Plan Art Festival (2018)