Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Solander 250: Bréf frá Íslandi

20 May, 202317 June, 2023

Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp til að minnast þess að liðin eru 250 ár frá merkum erlendum vísindaleiðangri til Íslands árið 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carls von Linné, náttúrufræðingurinn Daniel Solander frá Svíþjóð. Þá skrásetti Solander og safnaði margs konar fróðleik um náttúru Íslands, menningu, siði og klæðaburð þjóðarinnar. Á sýningunni túlka tíu íslenskir listamenn frá félaginu Íslenskri grafík þessa atburði og þær breytingar sem hafa orðið á landi og þjóð síðan.
Samhliða henni má svo sjá sýninguna Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy, sem ætlað er að minnast ferða Solanders til Kyrrahafsins árið 1769. Eru þar sýnd verk tíu listamanna frá Kyrrahafssvæðinu en Solander var í áhöfn HMS Endeavour í fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. Mynda sýningarnar tvær þannig einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í ljósi ferða Solanders. Sýningarnar eru settar upp í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar á Íslandi og félagið Íslenska grafík.
Paradise lost – Daniels Solander’s Legacy hefur áður verið sett upp á Nýja-Sjálandi, í Ástralíu og Svíðþjóð en að loknum sýningartímanum í Hafnarborg munu sýningarnar ferðast um landið. Umsjón með sýningunni Solander 250: Bréf frá Íslandi fyrir hönd félagsins Íslenskrar grafíkur hafa Anna Snædís Sigmarsdóttir og Elísabet Stefánsdóttir.

Sýningin Solander 250: bréf frá Íslandi er stærsta og viðamesta myndlistasýning sem hefur ferðast um landið en hún mun teygja anga sína um tólf listasöfn og sýningarsali um allt land frá haustinu 2022 og enda í Svíþjóð 2024. Sýningin er samstarfsverkefni félagsins Íslensk grafík og sænska sendiráðsins á Íslandi.

Sýningin er sett upp til að minnast þess að 250 ár eru liðin frá merkum erlendum vísindaleiðangri til Íslands árið 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carls von Linné, náttúrufræðingurinn Daniel Solander frá Svíþjóð. Solander skrásetti og safnaði margs konar fróðleik um náttúru Íslands, menningu, siði og klæðaburð þjóðarinnar. Á sýningunni túlka tíu íslenskir listamenn frá félaginu Íslenskri grafík þessa atburði og þær breytingar sem hafa orðið á landi og þjóð síðan.

Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni Solander 250: Bréf frá Íslandi eru:

Aðalheiður Valgeirsdottir, Anna Líndal, Daði Guðbjörnsson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Iréne Jensen, Laura Valentino, Soffía Sæmundsdóttir Valgerður Björnsdóttir og Viktor Petur Hannesson.

Sýningarstjórar eru Anna Snædís Sigmarsdóttir og Beta Gagga