
- This event has passed.
Ráðhildur Ingadóttir and Igor Antić: SecondSkin
20 November, 2021–30 January, 2022

Skrápur / SecondSkin opens in Reykjanes Art Museum on the 20th of November 2021.
Reykjanes Art Museum presents the exhibition SecondSkin with Ráðhildur Ingadóttir and Igor Antić.
The exhibition tackles refugees and migration of people in the world. The title SecondSkin refers to the shelter that the body creates over time from external aggravation. The word also refers to the thick skin people develop mentally as a defence.
Both artists have discussed human displacement and conflict in their earlier works and exhibitions.
Dwelling or shelter is the frame that supports the existence of art according to the Australian philosopher Elizabeth Grosz. In her book Chaos, Territory, Art: Deleuze and the framing of the earth, from 2008, she claims that forces such as national areas frame and bring forth the quality of other things or events; It is the frame that builds up content, material for a collaborative fictional history of nations.
Were a country not bordered, there would be no territory. That would not obstruct things existing, but they would not have the same meaning and would be without independent expression capable of intensifying and transforming the living body. The demarcation of territory causes colour, texture, rhythm, mass, and weight to take on a different meaning within the boundaries of the defined territory. This makes it possible to affect people, conjure impressions that are extracted from the area, which, at best, is interpreted in the field of art.
Reykjanes Art Museum is in the vicinity of Iceland’s international airport, which makes Reykjanesbær the most populous border town in Iceland. The demographic of the town’s population is the most multi-cultural in Iceland, as 30% of residents with permanent residence in the town are foreigners, furthermore Reykjanesbær receives a significantly larger number of refugees than most other municipalities in the country.
With the community’s environment in mind, the museum director decided to produce an exhibition revolving around the idea of seeking shelter.
The work by Igor Antić, in the exhibition SecondSkin, was created in collaboration with MSS – Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum.
The exhibition is open until 30 January 2022.
Curated by Helga Þórsdóttir, museum director of Reykjanes Art Museum.
The exhibition is sponsored by the Visual Arts Fund.
Ráðhildur Ingadóttir (1959) works within a particular ideology in her works that she implements in various media; text, drawing, painting, sculpture, and video, often presented in multi-layered installations.
Ráðhildur has held numerous solo exhibitions, the first was in the Living Art Museum in 1986, and she has been asked to participate in group exhibitions both in Iceland and all over Europe. Works by Ráðhildur are in the collections of the National Gallery of Iceland, Reykjavik Art Museum, and the Living Art Museum. Ráðhildur has also curated several exhibitions and in 2013 and 2014 she was awarded an honorary position as the artistic director of Skaftafell – centre of visual art in East Iceland.
Ráðhildur studied fine art in England from 1981 to 1986 at Emerson College in Sussex and St Albans College of Art and Design. She was a part-time lecturer at the Icelandic College of Arts and Crafts and the Iceland Academy of the Arts from 1992-2002, in addition to being a guest teaches at the Royal Academy of Fine Art in Copenhagen. Ráðhildur was on the board for the Living Art Museum from 2000 to 2002. She has received various stipends and grants both in Iceland and in Denmark. Ráðhildur is born in Reykjavik but splits her time between Copenhagen and Seyðisfjörður.
Igor Antić (1962) explores the concepts of site-specific works, within a certain context that may be political, economic, cultural, and societal. His works appear in various media, such as photography, video, and installation.
Antić has held several solo exhibitions and been selected to participate in group exhibitions all over Europe, the United States, and Asia. He has for instance exhibited in Iceland in the Living Art Museum in the exhibition Polylogue 158 in 1999. Antić curated Values: 11th Biennial of Visual Arts in Pancevo, Serbia in 2004.
Antić studied fine art from 1984 – 1991 at Novi Sad Academy of Fine Arts in Serbia, École Nationale Supérieure des Beaux-Arts in Paris, and at the Institut des hautes Etudes en Arts Plastiques in Paris. In 1995 he founded Pokret Encounter Centre in Novi Sad, Serbia, a movement of artists during the war. Antić has received several arwards, such as the Pollock-Krasner Foundation’s Grant in New York in 2002. Antić is born in Novi Sad, Serbia, but lives and works in Paris.

Skrápur/SecondSkin opnar hjá Listasafni Reykjanesbæjar, þann 20. nóvember 2021.
Listasafn Reykjanesbæjar kynnir sýninguna Skrápur, með Ráðhildi Ingadóttur og Igor Antić.
Sýningin fjallar um flótta og tilfærslur þjóða í heiminum. Nafnið Skrápur vísar í skjól sem líkaminn býr til sjálfur yfir tíma, fyrir utanaðkomandi áreiti. Einnig vísar orðið í skráp sem manneskjan kemur sér upp huga sínum til varnar.
Báðir listamennirnir hafa gert málefni þjóðaflótta og átaka sem af því hlýst að umfjöllunarefni í fyrri sýningum.
Híbýli eða skjól er sá rammi sem heldur uppi tilveru lista samkvæmt ástralska heimspekingnum Elizabeth Grosz. Í bók sinni Chaos, Territory, Art: Deleuze and the framing of the earth, frá árinu 2008, segir hún að skilgreindir kraftar eins og þjóðarsvæði rammi inn og dragi fram gæði annarra hluta eða atburða; Það er ramminn sem byggir upp innihald, efni í samskáldaða sögu þjóða.
Ef land væri ekki rammað inn, þá væru ekki til nein yfirráðasvæði. Það myndi ekki koma í veg fyrir það að hlutir væru til, en þeir hefðu ekki sömu merkingu og væru án sjálfstæðrar tjáningar sem væri fær um að magna og breyta hinum lifandi líkama. Afmörkun yfirráðasvæðis gerir það að verkum að litir, áferðir, taktur, massi og þyngd fá aðra merkingu innan síns afmarkaða svæðis. Þetta gerir þeim mögulegt að hafa áhrif á manneskjuna, koma af stað hughrifum sem eru dregin út frá svæðinu sem, þegar best lætur, verður túlkað á sviði lista.
Listasafn Reykjanesbæjar er staðsett við alþjóðaflugvöll Íslendinga sem gerir Reykjanesbæ að fjölmennasta landamærabæ landsins. Íbúasamsetning bæjarins er sú fjölmenningarlegasta á Íslandi en um 30% íbúa með fasta búsetu eru erlendir, einnig tekur Reykjanesbær á móti flóttamönnum með stórtækari hætti en flest önnur bæjarfélög á landinu.
Með umhverfi bæjarfélagsins í huga ákvað safnstjóri að setja upp sýningu sem fjallar um hugmyndina að leita skjóls.
Verk eftir Igor Antić, á sýningunni Skrápur, er unnið í samvinnu við Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum.
Sýningin stendur til og með 30. janúar 2022.
Sýningarstjóri er Helga Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar.
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.
Ráðhildur Ingadóttir (1959) vinnur með ákveðna hugmyndafræði í verkum sínum sem hún útfærir í marga miðla; texta, teikningu, málun, skúlptúr og myndbönd, og er framsetning þeirra jafnan í margslungnum innsetningum.
Ráðhildur hefur haldið margar einkasýningar, sú fyrsta var í Nýlistasafninu árið 1986, og verið valin til þátttöku á samsýningar bæði hér á landi og víða um Evrópu. Verk eftir hana eru í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Nýlistasafnsins. Ráðhildur hefur unnið víðs vegar sem sýningarstjóri, árin 2013 og 2014 hlaut hún heiðursstöðu sem listrænn stjórnandi Skaftfells – miðstöðvar myndlistar á Austurlandi.
Ráðhildur stundaði nám í myndlist á Englandi 1981–1986, við Emerson College in Sussex og St. Albans College of Art and Design. Hún var stundakennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, 1992–2002, og einnig gestakennari við Konunglegu myndlistarakademíuna í Kaupmannahöfn. Ráðhildur var í stjórn Nýlistasafnsins 2000–2002. Hún hefur hlotið hin ýmsu starfslaun og styrki bæði á Íslandi og í Danmörku. Ráðhildur er fædd í Reykjavík, hún býr og starfar í Kaupmannahöfn og Seyðisfirði.
Igor Antić (1962) kannar hugtök í staðbundnum (e. site-specific) verkum, innan tiltekins samhengis sem getur verið pólitískt, efnahagslegt, menningarlegt og samfélagslegt. Verkin birtast í mismunandi miðlum, eins og ljósmyndum, myndböndum og innsetningum.
Antić hefur haldið fjölmargar einkasýningar og verið valinn til þáttöku á samsýningar víðs vegar í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Þar á meðal hefur hann áður sýnt á Íslandi í Nýlistasafninu á sýningunni Polylogue 158 árið 1999. Antić var sýningarstjóri Values: 11th Biennial of Visual Arts í Pancevo, Serbíu, árið 2004.
Antić nam myndlist á árunum 1984–1991, við Novi Sad Academy of Fine Arts, Serbíu, École Nationale Supérieure des Beaux-Arts, París, og Institut des Hautes Etudes en Arts Plastiques, París. Árið 1995 stofnaði hann Pokret Encounter Centre í Novi Sad, Serbíu, hreyfingu listamanna á stríðstímum. Antić hefur unnið til ýmissa verðlauna m.a. hlaut hann The Pollock-Krasner Foundation’s Grant í New York árið 2000. Antić er fæddur í Novi Sad, Serbíu, hann býr og starfar í París.