
- This event has passed.
Olga Komarova: Innlit í Andlit
15 June, 2023–30 June, 2023

Olga Komarova er upprennandi listmálari, sem hefur búið á Íslandi síðustu sex ár, og sérhæfir sig í portrett myndum úr olíumálningu. Hún sýnir nú málverk sín í fyrsta skipti.
Sjálft sköpunarferli portrettmyndanna er Olgu mjög mikilvægt. „Ég varð svo hrifin af sköpunarferlinu á bakvið þær. Ég fæ að rýna í andlit og sögurnar sem þau segja og bera með sér — fólk af öllum aldri, kynjum, þjóðernum og stéttum“.
Ferlið sjálft getur þannig skapað nánari samkennd með viðfanginu þar sem það krefst þess að þú staldrir við andlit bæði vina sem og ókunnugra.
Olga Komarova vill því bjóða gestum og gangandi tækifæri til þess að taka þátt í þessu persónulega ferli og skapa eigin portrettmyndir sem verða svo hengdar upp á einn sýningarvegg í WHITE BOX.