Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Nína Magnúsdóttir: Hársbreidd

26 November, 202229 January, 2023

Verkin voru gerð í kjölfar aurskriðanna í desember 2020 sem leiddu til tímabundinnar rýmingar Seyðisfjarðar. Listakonan og fjölskylda hennar gátu ekki snúið aftur til heimilis síns og vinnustofu í nokkra mánuði og dvöldu í bryggjuhúsi Roth fjölskyldunnar á Seyðisfirði. Þetta tímabil neyðarflutninga var tími uppgjörs og leitar að stöðugleika á óvissutímum.

Ólíkt fyrri verkum hennar í málaralist og öðrum miðlum, notar Nína hár sem efnivið í nýjustu verkum sínum; aðferð sem þróaðist áreynslulaust út frá hugmyndinni um hár sem hluta af líkamanum en einnig efni sem er aðskilið honum. Líkt og aðrar lífrænar trefjar eins og ull eða silki, hefur hár innri uppbyggingu sem tengist hverjum einstökum uppruna. Við gerð verkanna tóku hinir hárfínu þræðirnir á sig karakter línuteikninga. Sum verkanna sýna þrívíðar “línur” hársins á móti grófu, hvítu yfirborði, á meðan önnur nota liti í óhlutbundnum blæbrigðum sem leika sér með spennuna milli jákvæðs og neikvæðs rýmis.

Details

Start:
26 November, 2022
End:
29 January, 2023
Event Tags:
,
Website:
https://skaftfell.is/nina-magnusdottir-lines-of-flight-harsbreidd/

Venue

Skaftfell- Center for Visual Art
Austurvegur 42
Seyðisfjörður, 710 Iceland
+ Google Map
View Venue Website