Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Kviksjá – Alþjóðleg safneign

16 February, 20237 May, 2023

Á sýningunni gefst sjaldgæft tækifæri til að fá innsýn í þann hluta safneignar  Listasafns Reykjavíkur sem tileinkaður er alþjóðlegri myndlist.

Hvað veldur því að verk eftir erlenda listamenn rata í hendur safnsins?

Í gegnum tíðina hafa safninu borist gjafir frá listamönnum og velunnurum um víða veröld og eins hafa verk verið keypt í safneignina. Þá eru nokkur verk eftir heimskunna listamenn í almannarými borgarinnar og þar með í eigu og umsjón safnsins. Hér má nefna verk eftir þekkta listamenn eins og Yoko Ono, Richard Serra og Claudio Parmiggiani.

Af um sautján þúsund skráðum verkum, skissum og öðrum safnkosti eru tæplega eitt þúsund eftir alþjóðlega listamenn. Þar eru nöfn sem telja mætti til „Íslandsvina“ en mikill fjöldi erlendra listamanna hefur bundist landinu sterkum böndum og haft víðtæk áhrif á íslenskt listalíf meðal annars með því að skilja eftir sig listaverk hér á landi. Mörgum hefur landið líka verið hugmyndalegur grunnur verka eða uppspretta myndefnis sem borðið hefur landið og menningu þess víða.

Á sýningunni Kviksjá – alþjóðleg safneign má sjá forvitnileg verk frá ýmsum tímum. Fyrir utan verk eftir listamenn sem dvalið hafa langdvölum hér á landi eru á sýningunni verk eftir listamenn á borði við Carolee Schneemann og Jean Jacques Lebel sem eru tilkomin vegna tenginga við Erró og veglegar gjafir hans til safnsins, auk sérstakrar gjafar á verkum Flúxus-listamanna. Af nógu er að taka og óhætt að segja að hér kenni ýmissa grasa.

Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni eru, Dale Chiluly, Ian Hamilton Finley, Roni Horn, Patrick Huse, Bernd Koberling, Alicja Kwade, Kazumi Nakamura, Yoko Ono, Karin Sander,  Lawrence Weiner og Barbara Westman , .

Í ár, 2023, fagnar Listasafn Reykjavíkur því að 50 ár eru liðin frá því fyrsta aðsetur safnsins var formlega opnað á Kjarvalsstöðum. Í tilefni tímamótanna verður sérstakur gaumur gefinn að safneigninn og tækfærið nýtt til til þess að skoða og sýna gersemar úr safneigninni.

Með þessari sýningu hefst formlega sýningaröð á verkum úr safneign Listasafns Reykjavíkur undir yfirskriftinni Kviksjá. Í mars til ágúst mun standa yfir sýningin Kviksjá – Íslensk myndlist á 20. öld og frá frá júní til september Kviksjá – Íslensk myndlist á 21. öld  í Hafnarhúsi.

Details

Start:
16 February, 2023
End:
7 May, 2023
Event Tags:
Website:
https://listasafnreykjavikur.is/syningar/kviksja-althjodleg-safneign

Venue

Reykjavik Art Museum – Hafnarhús
Tryggvagata 17, 101
Reykjavík, Iceland
+ Google Map

This year, in 2023, the Reykjavík Art Museum celebrates its 50th anniversary and it is an occasion to look at the treasures that have been collected over this time. Of the approximately 17,000 registered works, sketches and other collection items, there are nearly one thousand by international artists. Amongst those, are names that can be considered “friends of Iceland”, but various other connections also lie behind these works in the collection. Throughout the years, work donations have been made by artists and friends of the museum from around the world, while others have been specifically aqcuired for the museum collection. There are also several works by renowned international artists in the city’s public spaces and thus owned and maintained by the museum.

This exhibition is divided into an introductory section where interesting international works give insight into various eras, works in the collection that have resulted through connections with Erró and his generous gifts to the museum in recent decades, and a special donation of selected works by Flúxus artists from a sister institution in Norway. There is enough to choose from and it is safe to say that this will be a curious display. Artists in the exhibition include Barbara Westman, Dale Chiluly, Ian Hamilton Finley, Roni Horn, Patrick Huse, Karin Sander, Bernd Koberling, Lawrence Weiner, Carolee Schneemann, Jean Jacques Lebel, Alicja Kwade, Yoko Ono and Kazumi Nakamura.

Venue

Reykjavik Art Museum – Hafnarhús
Tryggvagata 17, 101
Reykjavík, Iceland
+ Google Map