
- This event has passed.
Hornsteinn
11 February, 2023–20 August, 2023

Safnið býr yfir einstöku samansafni af um það bil 550 listaverka, allt frá merkustu meisturum íslenskrar myndlistar til atgervisgróskunnar í sveitunum í kring. Það var stofnað árið 1963 og er þar með fyrsta listasafnið á Íslandi sem tók til starfa utan höfuðborgarinnar. Því verður með réttu haldið fram að Bjarnveig Bjarnadóttir* og synir hennar Loftur og Bjarni Markús hafi lagt hornsteininn að Listasafni Árnesinga með rausnarlegri gjöf listaverka úr sinni eigu til Árnessýslu árið 1963. Gjöf þeirra var 41 listaverk og héldu mæðginin áfram að gefa safninu verk fram til ársins 1986 og taldi safnið þá 75 listaverk. Það inniheldur verk merkustu meistara íslenskrar málaralistar á fyrri helmingi tuttugustu aldar: 19 málverk eftir Ásgrím Jónsson og verk eftir Kjarval, Gunnlaug Scheving, Jón Stefánsson og Þorvald Skúlason meðal annarra. Smekkur Bjarnveigar er eftirtektarverður sem og skynbragð hennar á nýja strauma eins og birtist í síðari gjöfum hennar. Hún lagði sig eftir verkum abstraktlistamanna (eftir Hörð Ágústsson og Kjartan Guðjónsson) en lagði líka mikið upp úr að gefa verk íslenskra kvenna, á borð við Björgu Þorsteinsdóttur, Þorbjörgu Höskuldsdóttur og Ragnheiði Jónsdóttur.