Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Erró: The Power of Images

9 April, 202229 September, 2022

Erró is one of the few Icelandic artists who has gained a foothold in the international art scene. The Power of Images is a comprehensive overview of the artist’s colourful career that has made use of various media in the visual arts. Within it you will find everything from performances, video works, graphics, multiples and collages, to larger works in public spaces and paintings of all scales. All have helped to earn his place in the art history of Europe. Here presented, is the most extensive exhibition that has been realized of the artist’s works in Iceland.

The artist Erró, born Guðmundur Guðmundsson in 1932 in Ólafsvík, West Iceland, was among the most prominent figures of the European avant-garde of the 1960s. In the history of art of that period, his name is associated not only with the renewal of pictorial figuration, due to his invention of narrative collage-paintings, but also with the Happenings movement and experimental cinema. Although his work is often, rightly, attached to artistic groups like Surrealism, Narrative Figuration or Pop art, it cannot be reduced to any one of them.

Erró draws inspiration from our globalized world and its continuous flow of images and information. As the forefather of painted collage (that is, the practice of painting based on preparatory montages of ready-made images), he has developed an exuberant saga of consumer society and world politics, often with critical or satirical intent. Freely mixing and opposing images from different print sources and places, he has produced a dense, complex and often disturbing oeuvre, which breaks open cultural stereotypes and hierarchies and mingles past and present, fiction and reality. Taking the art of collage to its extremes, his original compositions articulate a flow of powerful visual narratives that covered the “world scene” long before the internet was invented and globalization became a common theme.

Organized according to a chronological-thematic framework, this retrospective exhibition covers the whole of Erró’s artistic career, in all its diversity, right up to his most recent paintings and collages. It puts on show more than seventy years of work, during which images made by other people have nourished his imagination and his practice. Avidly collected in the course of his numerous travels around the world, these images have been subjected to various misappropriations and unexpected combinations. The exhibition seeks to show how Erró’s fund of sources has been enriched and renewed over time to cover every possible domain, from art and cinema to comic strips, by way of science and technology, history and politics, advertising and propaganda, or eroticism. It looks at the different ways in which he has refashioned and recomposed this visual material in order to create a hub of resistance to every form of authority, and to express a highly inventive fantasy.

The exhibition The Power of Images reflects Erró’s remarkable career and is considerably based upon the artist’s donation of art to the City of Reykjavík. In 1989 the City of Reykjavík accepted a large collection of around 2000 works by the artist, including documents and other material important to research on the artist and his contemporary time. The collection has grown steadily over the past years, with nearly 4000 works now in total. The Erró Collection found its place in Hafnarhús and the gift initiated the basis for the Reykjavík Art Museum to open operations in the building. Exhibitions from Errós’ collection are a permanent fixture there, and with them we aim to offer insight into the different emphases in his work. The exhibition will travel to Denmark and open in ARos Museum in Aarhus in April 2023.

The Power of Images is installed across Reykjavík Art Museum – Hafnarhús, with more than 300 artworks of various kinds, as well as, photographs and other information about the artist exhibited. An extensive publication will be released parallel to the exhibition, with texts by the curators, Danielle Kvaran and Gunnar B. Kvaran, connection to the exhibition, who write of the different periods in the artists career, along with texts and interviews by Bjarni Hinriksson, Jean-Max Colard, Alain Jouffroy, Jean-Jacques Lebel, Hans Ulrich Obrist and Anne Tronche.

Curators: Danielle Kvaran and Gunnar B. Kvaran
Exhibition design: Axel Hallkell Jóhannesson

Erró er einn fárra íslenskra listamanna sem náð hafa fótfestu í heimi alþjóðlegrar myndlistar. Sprengikraftur mynda er heildstæð úttekt á hinum litríka ferli listamannsins sem hefur fengist við ýmsa miðla myndlistarinnar. Þar má finna allt frá gjörningum, vídeólist, grafík, fjölfeldi og klippimyndum, til stórra verka í almannarými og málverka á öllum skala, sem hafa unnið honum verðugan sess í evrópskri listasögu. Hér er á ferðinni umfangsmesta sýning sem sett hefur verið upp á verkum listamannsins hérlendis.

Listamaðurinn Erró, fæddur Guðmundur Guðmundsson árið 1932 í Ólafsvík á Vesturlandi, var í fararbroddi evrópsku framúrstefnunnar á sjöunda áratugnum. Í listasögu þessa tímabils er nafn hans ekki aðeins tengt endurnýjun fígúratífs myndmáls, vegna uppfinningar hans á frásagnarmálverkum sem byggja á samklippi, heldur einnig við hræringar sem á sínum tíma voru kenndar við uppákomur og tilraunakvikmyndir. Þótt verk hans séu réttilega gjarnan tengd við súrrealisma, fígúratífa frásögn eða popplist, er ekki hægt að spyrða þau við eina þeirra umfram aðra.

Erró sækir innblástur í hnattvædda veröld okkar með sínu látlausa flæði mynda og upplýsinga. Sem brautryðjandi á sviði hins málaða samklipps (þ.e. þeirrar aðferðar að mála eftir samklippi sem hefur verið samsett úr fundnu myndefni), hefur hann sett fram yfirgripsmikla sögu af neytendasamfélagi og heimspólitík, oft frá gagnrýnu eða háðsku sjónarhorni. Við það að blanda frjálslega saman myndum af ólíkum uppruna, og stefna þeim hver gegn annarri, einkennist ævistarf hans af sneisafullum, marglaga og oft og tíðum truflandi verkum sem brjóta upp menningarlegar staðalmyndir og valdakerfi auk þess að blanda saman fortíð og nútíð, skáldskap og raunveruleika. Frumlegar samsetningar hans þenja hugmyndina um samklipp út í ystu æsar og bera á borð flæði myndrænna frásagna sem takast á við „alheimsvettvanginn“ löngu áður en internetið kom til sögunnar og hnattvæðing ruddi sér til rúms.

Yfirlitssýning þessi rekur gjörvallan feril Errós eftir tímabilum og þemum, í öllum sínum fjölbreytileika, allt fram til nýjustu verka hans. Hér er afrakstur sjö áratuga vinnu þar sem sjá má hvernig myndir eftir aðra og úr kunnuglegum myndheimi dægurmenningar hafa alla tíð fóðrað ímyndunarafl listamannsins og listsköpun. Hann hefur verið óþreytandi að viða að sér myndefni allstaðar að úr heiminum sem síðan hefur öðlast nýja merkingu og lent í óvæntu samhengi. Á sýningunni er leitast við að sýna hvernig heimildasafn Errós hefur stækkað og endurnýjast í áranna rás og fangað öll möguleg svið, frá list og kvikmyndum til teiknimyndasagna, í gegnum vísindi og tækni, sögu og stjórnmál, auglýsingar, áróður eða erótík. Hér eru dregnar fram þær ólíku leiðir sem hann hefur farið við að endurvinna og aðlaga þennan myndræna efnivið að því marki að sporna við hvers konar yfirvaldi og tjá um leið óvenju auðugt ímyndunarafl.

Sýningin Sprengikraftur mynda endurspeglar glæsilegan feril Errós og byggir að mestu á listaverkagjöf listamannsins til Reykjavíkurborgar. Árið 1989 tók Reykjavíkurborg við stóru safni, um 2000 verkum eftir listamanninn, auk skjala og annarra gangna sem hafa mikið gildi fyrir rannsóknir sem snerta listamanninn og samtíma hans. Safnið hefur vaxið jafnt og þétt síðustu árin og telur nú um 4000 listaverk. Errósafninu var fundinn staður í Hafnarhúsi og var gjöfin grunnur þess að Listasafn Reykjavíkur hóf starfsemi í húsinu. Sýningar úr safni Errós eiga sér þar fastan sess en með þeim er leitast við að gefa innsýn í ólíkar áherslur í verkum hans. Þegar sýningunni lýkur í Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsi fer hún á ferð um Evrópu og verður opnuð í ARos safninu í Árósum í apríl, 2023.

Sprengikraftur mynda er sett upp í öllu Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi og verða þar meira en 300 listaverk af ýmsum gerðum, sem og ljósmyndir og annar fróðleikur um listamanninn. Í tengslum við sýninguna kemur út vegleg sýningarskrá með textum eftir sýningarstjórana, þau Gunnar B. Kvaran og Danielle Kvaran, sem rita um ólík tímabil á ferli listamannsins, ásamt textum og viðtölum eftir Bjarna Hinriksson, Jean-Max Colard, Alain Jouffroy, Jean-Jacques Lebel, Hans Ulrich Obrist og Anne Tronche.

Sýningarhönnun: Axel Hallkell Jóhannesson.