Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Dröfn Friðfinnsdóttir: Töfrasproti tréristunnar

26 August, 20234 February, 2024

Dröfn Friðfinnsdóttir (1946-2000) nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1962-1963 og við Dupointskólann í Kaupmannahöfn 1964. Haustið 1982 hóf hún nám við Myndlistaskólann á Akureyri og útskrifaðist þaðan frá málaradeild 1986. Hún hélt áfram námi í Finnlandi 1987-1989. Dröfn hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir list sína og 1998 var hún Bæjarlistamaður Akureyrar.

Sýningin Töfrasproti tréristunnar fjallar um afar frjótt tímabil í listsköpun Drafnar, sem hófst í námsferð til Finnlands 1987 og stóð til 1999, þar sem tréristan er hennar aðalviðfangsefni. Dröfn risti myndverk sín í stórar og grófar krossviðarplötur og þrykkti eitt eintak í einu án aðstoðar hefðbundinna grafíkáhalda. Á þennan nána hátt glímdi Dröfn bæði við efnið og andann. Þegar liturinn og tréð létu undan sífelldum strokum listamannsins og gáfu eftir á pappírinn fullbúið verk, er eins og myndin fljóti á milli flatarins og áhorfandans, þar sem æðar og áferð prentplötunnar eru enn til staðar eins og fjarlæg minning.

Sýningarstjóri: Haraldur Ingi Haraldsson.

Details

Start:
26 August, 2023
End:
4 February, 2024
Website:
http://www.listak.is/is/syningar/naestu-syningar/drofn-fridfinnsdottir

Venue

Akureyri Art Museum
Kaupvangsstræti 8-12
Akureyri, 600 Iceland
+ Google Map
View Venue Website