
- This event has passed.
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir: Heritage
5 March, 2022–27 March, 2022

On a day like any other I make myself a sandwich where generations blend together in the mayo and different periods of human history lie stacked on top of each other. A slice of turkey, lettuce, tomatoes and cheese. I take a bite and think of my foremothers and forefathers, relocation, Europe and immigrants. About vegetation, earth and fossils, the arts and the history of mankind.
Heritage
I was born with a silk ribbon in hand
which I grabbed on my way through the birth canal
and immediately grasped
that it was to be my anchor in life
silk ribbon on a spool
that every woman on my mother’s side has received
spun
and then passed on
it is best to close your eyes and look with your fingers
in order to untangle the knots
-Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir
Translated by Hólmar Hólm

Í hversdeginum smyr ég mér samloku þar sem kynslóðirnar blandast saman í majonesinu og ólík tímabil mannkynssögunnar hlaðast ofan á hvert annað. Kalkúnabringa, salatblað, tómatar og ostur. Ég fæ mér bita og hugsa um ömmur mínar og afa, landflutninga, Evrópu og innflytjendur. Um gróður, mold og steingervinga, listir og sögu mannkyns.
Arfur
ég fæddist með silkiborða í höndunum
greip hann á leið minni gegnum fæðingarveginn
og skildi þá um leið
að hann væri haldreipi mitt í lífinu
silkiborði á kefli
sem hver einasta kona í móðurlegg hefur tekið við
spunnið
og síðan gefið áfram
það er best að loka augunum og horfa með fingrunum
þá greiðist fyrr úr flækjunum
-Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f. 1981) lauk B.A. námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og MFA frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áslaug bjó um tíma í Bandaríkjunum en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í samsýningum í söfnum, galleríum og öðrum sýningarrýmum í Evrópu, Bandaríkjunum og á Íslandi. Áslaug hélt sína fyrstu einkasýningu árið 2015 í Hverfisgalleríi en nýlegar sýningar eru STEIN SKRIFT í Norr11, Stellingar I Línulegar frásagnir í Berg Contemporary, Umskráning, fyrir sýningarröðina Í kring í Reykjavík Roasters/Ásmundarsal og Innanyfir í Gallerí Port.