
- This event has passed.
Amanda Riffo: House of Purkinje
16 March, 2023–30 April, 2023

The eye is the organ that receives what we see. The brain processes the light, takes in the information that captures our attention, and produces images. Therefore, only a part of what is visible is seen, and only a small part of what we see captures our awareness.
House of Purkinje, Amanda Riffo’s solo exhibition, is a staging of reality. The title refers to the Czech biochemist Jan Evangelista Purkyně who, among other things, discovered corresponding and multiple reflections of a single image that appear on the surface of the eye and from within it. Like multiple reflections of the self.
With House of Purkinje, Riffo draws parallels between the physiology of the eye and our awareness of the surrounding environment. She does this by combining the exhibition space with a film studio. Amanda has worked in the film industry almost as long as she has worked as an artist. In both fields, she works with distorted objects, fictional images and constant speculation about how we perceive our surroundings.

Augað er líffærið sem tekur á móti því sem við sjáum. Heilinn vinnur úr ljósinu, meðtekur upplýsingarnar sem fanga athygli okkar og framkallar myndir. Þannig sést aðeins hluti af því sem fyrir augu ber, og þannig erum við aðeins meðvituð um lítinn hluta af því sem við sjáum.
House of Purkinje, einkasýning Amanda Riffo er sviðsetning á raunveruleikanum. Titillinn vísar til tékkneska lífefnafræðingsins Jan Evangelista Purkyně sem meðal annars uppgötvaði samverkandi og margfaldar speglanir af einni einstakri fyrirmynd sem birtast á yfirborði augans og innan úr því. Eins og margföld speglun sjálfsins.
Með House of Purkinje setur Amanda fram hliðstæður á milli lífeðlisfræði augans og meðvitundar okkar gagnvart umhverfinu. Þetta gerir hún með því að etja sýningarrýminu saman við kvikmyndaver, en Amanda hefur starfað í kvikmyndaiðnaðinum næstum jafn lengi og hún hefur starfað sem myndlistarmaður. Á báðum sviðum vinnur hún með afbakaða hluti, skáldaðar myndir og stöðugar vangaveltur um hvernig við skynjum umhverfi okkar.