Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Lukas Bury: Zigaretten nach Berlin

21 June, 202315 December, 2023

The work Zigaretten nach Berlin (Cigarettes to Berlin) is based on a product photograph of Jin Ling cigarettes. This contraband brand emerged as the most popular one in Europe in the late 90s and 2000s. The work challenges the conventional definition of art, pushing the boundaries of legality and exploring the blurred lines between originals and fakes.

Zigaretten nach Berlin draws its title from a Polish song from the 90’s. It is the soundtrack from the sattirical tv series, Tigers of Europe, verifying the myths about Polish early capitalism after 1989.

To read the full exhibition text go to: https://lukasbury.com/selected-works/siara

Venue

Gallery Skilti
Dugguvogur 3
Reykjavík, 104 Iceland
+ Google Map
View Venue Website
Verkið Zigaretten nach Berlin (Sígarettur til Berlínar) byggir á ljósmynd af sígarettutegundinni Jin Ling. Þessi smygltegund sígaretta varð einhver sú vinsælasta í Evrópu á tíunda áratug síðustu aldar og fyrsta áratug þessarar. Verkið er áskorun á gildandi viðmið í myndlist og þenur mörk þess sem er löglegt auk þess að afmá mörkin milli frummynda og eftirmynda.
Verkið Zigaretten nach Berlin dregur nafn sitt frá þekktu dægurlagi frá tíunda áratugnum. Lagið tengist sjónvarpsþáttunum Evróputígrarnir sem voru háðsádeila á upphaf kapítalismans í Póllandi eftir 1989.
Lukas Bury segir eftirfarandi um verkið:
Fall járntjaldsins einkenndist ekki eingöngu af tilkomu frjáls markaðar og lýðræðislegra kosninga í Austur-Evrópu; það boðaði fjölda djúpstæðra samfélagsbreytinga. Tilkoma kapítalísks kerfis og endurúthlutun auðs í kjölfarið leiddi til þróunar nýrra þjóðfélagsstétta og endurmótunnar Póllands. Mitt í hringiðunni virðist Edward Nowak, söguhetja hinnar margrómuðu pólsku sjónvarpsþáttaraðar „Evróputígrarnir“, vera persónugervingur tilviljana.
Í laginu „Zigaretten nach Berlin“, byrjar Edward Rywinski, leikarinn sem leikur Nowak, á því að telja upp eignasöfnun og áunna virðingu sem honum hefur hlotnast í gegnum árin: tveir kóreskir lífverðir, virt hesthús sem hýsir fágætan hest, safarí þar sem fíll er skotmark vopnfimi hans, lúxus farartæki, Versace bindi og safn málverka. Þrátt fyrir að vera komnir í hans eigu, kalla þessar hlutir fram tilfinningar lífsleiða, frekar en gleði.
Tár kemur upp um ætlaða yfirvegun hans þegar hann segir frasann „Zigaretten nach Berlin“ og rifjar upp samverustundirnar sem hann eyddi með eiginkonu sinni, Kryśka, í fátæklegum Fiat Bambino bíl þeirra. Minningar um sígarettusmygl, hana við stýrið og samverustundirnar í bílnum, akandi um hina nýju höfuðborg Þýskalands, flæða um huga hans. Í leit að fullvissu um að áhorfandinn skilji frásögn hans og tilfinningar grátbiður hann „Verstehen Sie“. Nowak, hefur að því er virðist, óvart mætt örlögum sínum. Eða kannski er refsing hans í því fólgin að hafa ekki fyrr áttað sig á eiginlegum löngunum sínum.
Á svipuðum tíma varð Jin Ling vinsælasta smyglsígarettutegundin. Framleiðsla þeirra var keypt af Baltic Tobacco Company, með aðsetur í Kaliningrad, árið 1997 voru þær kynntar á evrópskum markaði. Þrátt fyrir löglega framleiðslu þeirra voru Jin Ling sígarettur aldrei ætlaðar til opinberrar dreifingar innan Evrópusambandsins eða Rússlands. Þess í stað var aðeins hægt að verða sér út um þær með ólöglegum hætti. Ákveðnir Víetnamskir götusalar seldu vöruna fyrir utan stórmarkaði og lestarstöðvar í Berlín. Smyglið var fengið frá heildsölum í Póllandi og smyglað yfir pólsku landamærin af milliliðum, þeirra á meðal voru faðir minn og afi. Sem betur fer komust þeir ekki upp í glæstar raðir Tígra Evrópu, þar sem faðir minn varð fórnarlamb vökulla augna þýsku lögreglunnar.
Í dag ber ég arfleifð þeirra áfram, þó í öðru samhengi. Samt spyr ég sjálfan mig stundum: „Hvað gæti faðir minn hafa orðið ef lögreglan hefði ekki gripið inn í þennan dag? Hver hefði hans eigin persónulega refsing verið, í ætt við þá refsingu sem hæfir persónu úr Wildean ríkinu?“
Lukas Bury (f. 1991 í Bonn, Þýskalandi, búsettur í Reykjavík) er myndlistarmaður sem vinnur með málverk, myndbönd, innsetningar og gjörninga./ Lukas sameinar óljós mótíf úr listasögunni og af internetinu og skrásetur þau á frásagnarkenndan hátt. Ef það reynist ógerlegt, snýr hann hinu óljósa á hnyttinn hátt í samtímalegt samhengi. / Lukas stundaði MA nám við Listaháskóla Íslands, Hochschule für Bildende Künste í Braunschweig og Brera Academy of Fine Arts í Mílanó.

Details

Start:
21 June, 2023
End:
15 December, 2023
Event Tags:
Website:
https://www.facebook.com/profile.php?id=100077353010024

Venue

Gallery Skilti
Dugguvogur 3
Reykjavík, 104 Iceland
+ Google Map
View Venue Website