Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar: Vísitala

22 June, 202316 July, 2023

Vísitala er sýning sem fjallar um fagurfræði og fjármál og byggir á persónulegri hrifningu listamannsins á tölfræðilegum breytum settum fram á sjónrænan máta sem einföld tölfræðirit. Líkt og línurit sem lýsa margvíslegum fjármálakreppum 20. aldar, birtast okkur myndir af veruleika með taktfastri endurtekningu lína líkt og um óhlutbundið málverk módernisma væri að ræða. Vísitala sækir innblástur í slíkar skýringarmyndir fjármálakerfisins og einnig þá hugmynd að hægt sé að formgera efnahagsstefnur í haldbæra hluti. Nánar tiltekið þær efnahagsstefnur sem mynduðust á níunda áratugnum – á ólgusömum tímum verðbólgu, þegar fjármálakerfið tók að þenjast óðfluga. Útkoman er röð stálskúlptúra sem byggja á stíleinkennum hönnunarhúsgagna og arkitektúrs níunda áratugar sem bera með sér blæbrigði tíðarandans. Þau eru sýnd ásamt upplögum af silkiþrykktum prentverkum sem notast við myndmál bankaauglýsinga, með vísun til þeirra bankasamruna sem áttu sér stað á síðari hluta 20stu aldar.

Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar er myndlistarmaður sem skapar verk sem mætti telja til  lýrískrar (eða kannski súrrealískrar) konsept listar, með áherslu á formfræðilega eiginleika sem byggja á efnahagslegum forsendum. Hún bjó í Amsterdam í um áratug eftir að hafa lokið námi frá Rijksakademie van Beeldende Kunsten (NL). Hún býr og starfar í Reykjavík og hefur sýnt á bæði opinberum vettvöngum hérlendis og erlendis t.d. hjá Listasafni Reykjavíkur (IS), Museum La Tertulia (CO), W139 (NL), Overgaden (DK), Kunsterverein Amsterdam (NL), Nýlistasafninu (IS), Kustverein Ingolstadt (DE), After the Butcher (DE), Kling & Band (IS), Kunsterverein Milano (IT) og nú síðast sýndi hún útilistaverkið „Minnismerki um gengisfellingar á níunda áratugnum“ á Arnarhóli á útilistasýningunni „Hjólinu“ (IS) á vegum Myndhöggvarafélags Reykjavíkur.

Venue

Ásmundarsalur
Freyjugata 41
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
View Venue Website