
- This event has passed.
Tvítugsafmæli Kling & Bang
19 May, 2023 8:00 am–5:00 pm

Kling & Bang hefur verið lifandi og leiftrandi vettvangur fyrir framsækna myndlist í tuttugu ár og til að fagna þessum tímamótum munu framúrskarandi listamenn taka þátt í gjörninga dagskrá sem gefur eilítið sýnishorn af þeim fjömörgu listamönnum sem Kling & Bang hefur unnið með í þessa tvo áratugi! Yfir afmælishátíðina taka listamenn yfir rýmið bæði kvöldin með fimm gjörningum sem flettast saman í heildræna dagskrá.
Listamenn sem koma fram eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Halla Einarsdóttir, Hugo Llanes + Ronja, John Bock, Tara & Silla, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Hlökk Þrastardóttir, Lucky 3, Pétur Már Gunnarsson og Ragnar Kjartansson.
Edda Kristín Sigurjónsdóttir teflir fram ljúffengum mat sem hægt verður að kaupa á hóflegu verði og barinn verður opinn!
Í tilefni tímamótanna verður gefin út sérstök afmælisútgáfa ,sem mun veita yfirsýn á þær fjölbreyttu sýningar og viðburði sem Kling & Bang hefur staðið fyrir í þessi tuttugu ár.
Föstudagur 19.maí 2023 kl.17.00:
Ásdís Sif Gunnarsdóttir
Halla Einarsdóttir
Hugo Llanes + Ronja
John Bock
Tara & Silla
Halla Einarsdóttir
Hugo Llanes + Ronja
John Bock
Tara & Silla
Laugardagur 20.maí 2023 kl.17.00:
Ásta Fanney Sigurðardóttir
Hlökk Þrastardóttir
Lucky 3
Pétur Már Gunnarsson
Ragnar Kjartansson
Hlökk Þrastardóttir
Lucky 3
Pétur Már Gunnarsson
Ragnar Kjartansson