Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir: Algjör draumur 3 – 6 – 9

13 May, 20232 July, 2023

iEnkasýning Katrínar Ingu Jónsdóttur Hjördísardóttir Algjör draumur 3 – 6 – 9 í Höggmyndagarðinum teflir saman verkum sem mótuð eru og endurunnin úr ýmsum efnum. Þarna ber fyrir sjónum meðal annars um 1,5 tonna steypu afsagir úr veggjum nágrannahúss við Ægisgötu 7, nánari tiltekið útveggjum vinnustofu listamannsins. Við getum horft á það þannig: vinnustofan er einhverskonar brynja tilrauna listamannsins í efa og sköpunargleði. Efnið er hlaðið symbólisma. Katrín Inga vinnur að verkum sínum með líkamanum og í gegnum gjörninga. Þessi verk hafa verið unnin rétt eins og þau hafi farið í gegnum meltingarveg. Mögulega meltingarveg hugmynda og heimspekilegra vangavelta um tilvist og hringrás mannsins, skúlptúrískum högg-hugmyndum af saur. Þráður sýningarinnar er skömmin og takturinn á milli tveggja opa í líkamanum: rass og munns. Hvað er skömmin annað en gapandi sár, gapandi op á líkama okkar, ormagöng. Sýningin Algjör draumur 3 – 6 – 9 berassar sig í harðgerðum fundnum efnum í gegnum persónulegar nærmyndir listamannsins en þarna ertu mögulega komin í einhverskonar innri skrúðgarð, innri virkni líkama, sam-mannlagt landslag.

Details

Start:
13 May, 2023
End:
2 July, 2023
Event Tags:
Website:
https://mhr.is/hoggmyndagardurinn-the-sculpture-garden

Venue

The Sculpture Association
Nýlendugata 17a
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
View Venue Website