Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Jóna Hlíf Halldórsdóttir: Það sem jökultíminn skapar

6 May, 202321 May, 2023

Í innsetningunni Það sem jökultíminn skapar er umfjöllunarefnið tími sem bæði forsenda mannlífs og hluti af því. Hvernig myndir skapa umgjörð utan um skilning á þeim náttúruöflum sem við erum hluti af og erum ósjaldan minnt á að við þurfum að beygja okkur fyrir. Hvernig orð styðja við þá sögu sem við sköpum til að skilja okkur sjálf innan umhverfis.

1 Firðir myndast þegar jöklar bráðna. Farvegur vatns leitar uppi veikleika í steininum, áin sverfur berg niður í haf. Ummyndun jarðar býr til eitthvað nýtt, skapar forsendur fyrir mannlífi – örsmáum hluta af lífinu sjálfu.

2 Hver fjörður er einstakur. Hver fjörður hefur sinn svip, tími þeirra markaður af sögu fólks sem þar býr.

Jóna Hlíf (f. 1978) útskrifaðist með mastersgráðu í myndlist frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007 og í listkennslu frá Listaháskóla Íslands 2012. Jóna Hlíf hefur haldið einkasýningar á viðurkenndum sýningarstöðum, m.a. í Berg Contemporary, Listasafninu á Akureyri og Listasafni Reykjavíkur. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og eru verk hennar í eigu opinberra safna.

Textaverk, tilraunir með efni og innsetningar eru kjarninn í myndrænni tjáningu verka Jónu Hlífar. Texti sem áferð: sem leið til að birta hugsanir, við að setja fram og skapa samfélag, eða sem grundvöllur hugmynda. Í verkunum hefur Jóna Hlíf m.a. fengist við fyrirbærin kjarna, tíma og ímynd sögunnar. Nánari upplýsingar um verk Jónu Hlífar er að finna á heimasíðunni: jonahlif.is

Details

Start:
6 May, 2023
End:
21 May, 2023
Event Tags:

Venue

Alþýðuhúsið / Kompan
Þormóðsgata 13
Siglufjörður, 580 Iceland
+ Google Map
View Venue Website