Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Litlar lindir

22 April, 202319 May, 2023

Berglind Erna Tryggvadóttir

Geirþrúður Einarsdóttir

Í sýningunni Litlar lindir rannsaka tvær myndlistakonur Mosfellsbæ; sögu ungs bæjarfélags sem fer þó að síga á miðjan aldur. Myndlistarkonurnar tengja eigin sögu saman við sögu bæjarins, umhverfi og landslag, náttúruleg fyrirbrigði og minningar sem fléttast uppvexti seint á síðustu öld. Lindir sköpunarkraftsins leynast víða.
Berglind Erna Tryggvadóttir og Geirþrúður Einarsdóttir útskrifuðust samanúr Listaháskóla Íslands árið 2016 og deila nú vinnustofu miðsvæðis í Reykjavík. Berglind Erna hefur unnið mikið með gjörninga, innsetningar, fundna hluti og ljósmyndun þar sem hún tekst m.a.  við mannlegsamskipti, tilfinningalíf og minningar, á meðan Geirþrúður hefur unnið meira með hefðbundnari form í listsköpun sinni og undanfarið hefur hún einbeitt sér að málverkinu. Í þeim verkum mótar fyrir formi landslags á hör og bómullarstriga sem skapa þrívíða mynd.
Opnun er laugardaginn 22. apríl kl. 14-16.
Síðasti sýningardagur er 19. maí. Opið er kl. 9-18 virka daga og kl. 12-16 á laugardögum.
Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2.