
- This event has passed.
Þrándur Þórarinsson: Borgarlistamaður
22 April, 2023–11 May, 2023

Á sýningunni verða ný verk og er myndefnið allt fengið úr landslagi Reykjavíkurborgar. Stræti og torg, ísilögð tjörn og sólslegin höfn. Allt eru þetta þekktir og fjölfarnir staðir en sýndir með nýju nefi borgarlistamannsins, Þrándar Þórarinssonar.
Borgarlistamaður. 2023 segir dagatalið. En málverk Þrándar eru borgarlistaverk allra tíma, fanga hið liðna og hlaða það ókomna óvæntum væntingum. Og það er löngu tímabært að til þess bær yfirvöld uppfylli þann hégómlega draum hins værukæra og bitlausa listmálara, nú þegar aldurinn færist yfir, að gera hann að Borgarlistamanni 2023.
Liðin er sú tíð að stinga á kýlum í spilltu samfélagi til að slá auðveldar pólitískar keilur og vinna lýðhylli. Það lýðskrum er að baki. Viðhlæjendunum fer fækkandi. Engar hauskúpur og rotnandi lík í leigukytrum leiguhákarla saurga strigann meir. Það er honum orðinn löðurmannlegur starfi og léttur að þeyta upp moldroki í moldugum heimi, farsa og skandala.
Börnum og viðkvæmum er óhætt að koma á sýninguna.
— — —
Sýningin stendur til 11. maí næstkomandi og er opið þriðjudaga til laugardags, milli kl. 12-17.