
- This event has passed.
Rakela McMahon: Ég sé stjörnurnar en ég sé ekki heiminn
10 December, 2022–25 March, 2023

Sýningin samanstendur af skúlptúr – textaverki sem er sérstaklega unnið fyrir sýningarrýmið.
Innblástur að verkinu er sóttur í grísku goðsögnina um Echo og Narcissus. Verkið vísar einnig í hugmyndir Carl Gustav Jung um undirmeðvitundina, æskuminningar og drauma.
Innblástur að verkinu er sóttur í grísku goðsögnina um Echo og Narcissus. Verkið vísar einnig í hugmyndir Carl Gustav Jung um undirmeðvitundina, æskuminningar og drauma.
Ég sé stjörnurnar en ég sé ekki heiminn.
Allir litir verða máðir og eyðast í myrkrinu.
Í undirgöngunum rúmast ekkert nema skuggi og birta.
Í útlínunum ekkert nema spegilmynd annarra.
Allir litir verða máðir og eyðast í myrkrinu.
Í undirgöngunum rúmast ekkert nema skuggi og birta.
Í útlínunum ekkert nema spegilmynd annarra.
Hvað knýr áfram bergmál sem hafði eitt sinn rödd?
Hvað verður um hönd sem visnar, hverfur, eyðist?
(skilur ekkert eftir nema snertinguna)
Hvaðan kemur það sem birtist í draumi?
(þar sem allir litir verða máðir og eyðast)
Hvað verður um hönd sem visnar, hverfur, eyðist?
(skilur ekkert eftir nema snertinguna)
Hvaðan kemur það sem birtist í draumi?
(þar sem allir litir verða máðir og eyðast)
Ég sé stjörnurnar – en ég sé ekki heiminn.
Bergþóra Snæbjörnsdóttir