Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Kynngiveður Avant-garður

3 December, 202231 December, 2022

KYNNGIVEÐUR magnar upp fornar þjóðsagnir og þær verur sem þar þrífast og bregður ljósi á tilveru þeirra í nútímanum.

“Rómurinn barst frá bæ til bæjar, mann fram af manni, munn af munni. Ógnin sem lá í loftinu var raunveruleg en samt óræð. Tilvist hennar líkamnaðist í fjallgarðinum sem umlukti veröld manneskjunnar. Hvort sem um væri að ræða græðgi, greddu, ofsagleði eða hamslausa illsku vissi enginn fyrr en á reyndi.”

Avant-garður tekur sér rými í Höggmyndagarðinum í desembermánuði. En sýningarverkefnið byggir á því að búa til óhefðbundnarsýningar sem standa í óráðin tíma. Verkefnið hefur verið starfrækt síðan 2013 og komið á fót sýninga sem virkja skynjun áhorfandans með tilraunarkenndum útfærslum.