
- This event has passed.
Þórunn Bára: Kæru landnemar!
5 November, 2022–1 December, 2022

Details
- Start:
- 5 November, 2022
- End:
- 1 December, 2022
- Event Tags:
- Listval - Hörpu, Þórunn Bára
- Website:
- https://listval.is/

Þórunn Bára fæst við náttúruskynjun og samspil manns og umhverfis í verkum sínum. Hún telur að list í samvinnu við náttúruvísindi geti aukið skilning á mikilvægi bættrar umgengni við náttúruna.
“Við berum sameiginlega ábyrgð á mörgum þeim þáttum sem nú ógna stöðugleika lífs á jörðinni. Mörg okkar vakna nú við vondan draum vegna uggvænlegrar stöðu vistkerfisins og hratt vaxandi breytinga á loftslagi jarðar. Okkur ber að skila Jörðinni, eina heimilinu okkar, heilbrigðri í hendur komandi kynslóða.“
“Skynreynsla er vannýtt leið til að öðlast skilning á tilverunni. Án skynjunar verður engin hugsun. Skynjun er nauðsynleg viðbót við vitneskju um náttúruna sem vísindin hafa lagt fram og því verður maðurinn að gefa sér tíma til að sjá og hugsa. Samtímalist gegnir mikilvægu hlutverki með því að varpa ljósi á orsakasamhengi í tilverunni auk þess að lyfta upp fegurð og tilgangi alls lífs.” Með þetta að leiðarljósi hefur Þórunn Bára horft til náttúruvísinda úr lífríki Surtseyjar síðastliðna tvo áratugi og skrásett á léreft. Verkunum, sem hér eru sýnd, er ætlað að lyfta upp tilvist smárra en mikilvægra plantna úr vistkerfinu svo sem fléttum og mosum. En einnig þeim íslensku plöntum sem hafa náð að festa rætur á hrjóstugu landi og við þekkjum og okkur þykir vænt um. “Ég mála verk af íslenskri náttúru alls staðar og hvergi eins og ég upplifi hana. Verkin eru i mínum huga nokkursskonar samnefnari fyrir þróun lífs á jörðu með áherslu á auðmýkt og fegurð í því smáa. Náttúran býr yfir visku og örlæti ef hún fær frið frá yfirgangi og hugsunarleysi mannsins til að varðveita vistkeðjuna og sinna sínu á eigin forsendum Með því að gefa gróðri jarðar gaum verður okkur ljós sú fegurð og viska sem í náttúrunni býr.”
Sýningin stendur til 1. desember og opið í Hörpu sunnudaga-þriðjudaga 10 til 18 og fimmtudaga – laugardaga 10-20.
Details
- Start:
- 5 November, 2022
- End:
- 1 December, 2022
- Event Tags:
- Listval - Hörpu, Þórunn Bára
- Website:
- https://listval.is/