Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir

3 December, 202122 December, 2021

Á undanförnum áratugum hafa kynni mín af krossviðarplötum verið með ýmsu móti. Málaðir kjólar á þvívíða skúlptúra, kápur, buxnaskálmar, fossar í lágmyndir, iðandi vatnsflaumur eða flæðandi flæðilínur. Samvinna mín og samtal við viðaræðar krossviðarplötunar er nú orðið töluvert og mikil reynsla og virðing þar á milli.
buy singulair Canada https://langleyrx.com/singulair.html no prescription

Og nú leiðir platan mig á enn nýjar slóðir þar sem lífrænt flæði gróðurs og blóma sameinast á myndfletinum. Sýninguna samtal vann ég í september síðastliðnum og set upp eins og jafnan í desember í Kompunni. Samhliða sýningunni opna ég fyrir jólamarkað í Anddyri Alþýðuhússins þar sem sjá má lítil verk eftir mig sem ratað gætu í jólapakka. Athugið að virða allar sóttvarnir við komu og verið velkomin.

Sýningin stendur til 22. desember og er opin frá kl. 14.00 – 17.00 

Uppbyggingasjóður, Fjallabyggð og Aðalbakarí styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fæddist á Siglufirði 23.júní 1963 og bjó þar til 1986, þá fluttist hún til Akureyrar. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 1989-93 og hefur síðan unnið ýmis störf á sviði myndlistar ásamt því að vera athafnasamur myndlistamaður. Aðalheiður starfrækti Kompuna, gallerí á Akureyri í 8 ár, tók virkan þátt í uppbyggingu “Listagilsins” á Akureyri og er einn af stofnenda Verksmiðjunar á Hjalteyri. Hún hefur verið í sýningarnefnd Skaftfells á Seyðisfirð, gjaldkeri Gilfélagsins á Akureyri og varaformaður Myndlistafélagsins á Akureyri. Aðalheiður er félagi í Sím og Myndhöggvarafélaginu. Árið 2000 var hún útnefnd Bæjarlistamaður Akureyrar og sama ár hóf hún þátttöku í Dieter Roth akademíunni. Aðalheiður hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun ríkisins. Í desember 2011 keypti Aðalheiður Alþýðuhúsið á Siglufirði og hefur komið upp vinnustofu þar. Einnig stendur hún fyrir mánaðlegum menningarviðburðum og hefur endurvakið Kompuna í litlu rými þar. Aðalheiður hlaut menningarverðlaun DV árið 2015 og var tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2017 og 2020 fyrir starfið í Alþýðuhúsinu. Nýverið var hún útnefnd Bæjarlistamaður Fjallabyggðar. Vinnustofa og heimili Aðalheiðar er í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og í Freyjulundi, 601 Akureyri.
 

Details

Start:
3 December, 2021
End:
22 December, 2021
Event Tags:
,
Website:
https://www.facebook.com/events/438780391220139

Venue

Alþýðuhúsið / Kompan
Þormóðsgata 13
Siglufjörður, 580 Iceland
+ Google Map
View Venue Website

 

Details

Start:
3 December, 2021
End:
22 December, 2021
Event Tags:
, , ,
Website:
https://www.facebook.com/events/438780391220139

Venue

Alþýðuhúsið / Kompan
Þormóðsgata 13
Siglufjörður, 580 Iceland
+ Google Map
View Venue Website