Eilíf endurkoma

Reykjavík Art Museum - Kjarvalsstaðir Flókagata 24,, Reykjavík, Iceland

Á þessari viðamiklu sýningu mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma. Hér er verkum hans teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár. Skömmu eftir andlát Kjarvals ritaði Björn Th. Björnsson (1922-2007) listfræðingur grein þar sem hann fjallar um framlag Kjarvals til íslenskrar listasögu …

Eilíf endurkoma Read More »

Nokkur nýleg verk

The National Gallery of Iceland Fríkirkjuvegur 7, Reykjavík, Iceland

Listasafn Íslands er þjóðlistasafn okkar Íslendinga og eitt af hlutverkum þess er að safna myndlist með það að markmiði að endurspegla sem best strauma og stefnur í íslenskri og alþjóðlegri myndlist á hverjum tímaeins og segir í lögum um safnið. Safneignin er yfirgripsmikil og fjölbreytt. Elstu verkin eru frá 16. öld og þau yngstu innan …

Nokkur nýleg verk Read More »

Sigurður Guðjónsson

Reykjavik Art Museum - Hafnarhús Tryggvagata 17, 101, Reykjavík, Iceland

Heillandi myndheimur Sigurðar Guðjónssonar lætur engan ósnortinn. Einn fremsti vídeólistamaður íslenskrar samtímalistar verður fulltrúi landsins á Feneyjatvíæringnum 2022. Á sýningunni í Hafnarhúsi eru sett fram ný og eldri verk listamannsins sem kynna einstaka listsköpun Sigurðar fyrir áhorfendum. Listamaðurinn er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann beinir einkum …

Sigurður Guðjónsson Read More »

Sigurður Guðjónsson: Leiðni

Reykjavik Art Museum - Hafnarhús Tryggvagata 17, 101, Reykjavík, Iceland

Sigurður Guðjónsson er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann beinir einkum sjónum að virkni margs konar tækjabúnaðar, þar sem áhorfandinn er lokkaður inn í heim sefjandi endurtekningar, takts og reglu og mörk hins mannlega og vélræna verða óljós. Hér á sýningunni gefst færi á að kynnast ögrandi …

Sigurður Guðjónsson: Leiðni Read More »

Sigurður Guðjónsson: Ævarandi hreyfing

BERG Contemporary Klapparstígur 16, Reykjavík, Iceland

Ævarandi hreyfing byggist á nálgun Sigurðar Guðjónssonar á orkuflæði efnislegra hluta. Í gegnum tilraunir með linsur, ljós og hreyfiafl magnar hann upp og skoðar tiltekin form og hluti og afhjúpar orku þeirra. Ofurnærmyndum af málmryki er varpað á stóran, tvískiptan skjá sem getur af sér ljóðræna skynupplifun og umbreytir rýminu í skúlptúr. Umskipti og upplausn …

Sigurður Guðjónsson: Ævarandi hreyfing Read More »

VÍDEÓ verk í fimm þáttum

Skaftfell- Center for Visual Art Austurvegur 42, Seyðisfjörður, Iceland

Sýning fimm myndbandsverka sem fjalla um ýmiss konar hreyfingu – fjaðurmagnaða, flöktandi, látlausa, ósjálfráða og dáleiðandi – lýsir upp sýningarsalinn í Skaftfelli undir titlinum Composition in Five Movements. Sýningarstjóri: Pari Stave

Opnun

Y Gallery Hambraborg 12, Kópavogur, Iceland

Samsýning tólf listamanna, sem Ragga og Magga Weisshappel hafa tekið tali í Opnun II í Ríkissjónvarpinu á fimmtudagskvöldum í vor. Birgir Snæbjörn Birgisson, Erla Þórarinsdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Hildigunnur Birgisdóttir, Kristján Guðmundsson, Melanie Ubaldo, Páll Haukur Björnsson, Pétur Magnússon, Ragna Róberts, Rakel McMahon, Sigurður Guðjónsson og Sigurður Guðmundsson.

Sigurður Guðjónsson: Leiðni leiðir

Verksmiðjan á Hjalteyri Verksmiðjan á Hjalteyri, Hjalteyri, Eyjafjörður, Iceland

Listamaðurinn Sigurður Guðjónsson hefur umbreytt 2000 fermetra verksmiðjurými í fjölskynjunarverk hreyfingar og hljóðs. Verk sem leikur með tíma og orku. Sigurður vinnur út frá miðju hússins lóðrétt upp og niður þrjár hæðir og hugsar sýninguna sem einn stóran skúlptúr samofin byggingunni sjálfri. Fyrir honum er verksmiðjan eitt stórt hljóðumhverfi, þannig að vængirnir – gamlar mjölgeymslur, …

Sigurður Guðjónsson: Leiðni leiðir Read More »